Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989
MEZZOFORTE
Þeir hafa fengið sig fullsadda af undirleik ■ Hafa sagt skilið við drauminn um
heimsfrægð ■ Eru að senda frá sérdýrustu plötu sem gerð hefurverið hérlendis
eftir Urði Gunnarsdóttur/mynd Bjarni Eiríksson
ÞAÐerliðinn langurtími frá því síðast heyrð-
ist í Mezzoforte. Hljómsveitinni sem hefur
komist efst íslenskra hljómsveita á breska
vinsældalistann og á sértraustan áhangenda-
hóp á meginlandi Evrópu og Norðurlöndun-
um. Nú eru Eyþór, Frissi, Jóhann og Gulli að
senda frá nýja plötu, þá áttundu í röðinni.
Saman og hver í sínu lagi hafa þeir spilað á
svo að segja annarri hverri íslenskri dægurla-
gaplötu, alltfrá Hauki Morthenstil Megasar.
Þeir hafa fengið sig fullsadda af því að leika
undir hjá öðrum og ætla að einbeita sér að
eigin tónlist og eigin hljómsveit. Nýhafið ár
verðurhelgað Mezzoforte.
Við höfum mælt okkur
mót á Hressó eitt
napurt síðkvöld í
svartasta skamm-
deginu. Illvígir og
kófdrukknir herra-
menn slást nærri útidyrunum án
þess að nokkur skipti sér af þeim
og skvaldrið í salnum hækkar eftir
því sem lækkar S glösunum. Forvitn-
ir gestir gjóa augunum á strákana,
sumir hugsa eflaust með sér hvar
þeir hafí séð þessi andlit áður en
flestir þeklqa þá. Slíkt láta strák-
amir ekki á sig fá, enda uppteknir
af nýju plötunni og því sem kann
að fylgja í kjölfarið.
Gjörþekkjum vinnu
hvers annars
Þýska hljómplötufyrirtækið RCA
gefur plötuna út, sem hefur hlotið
nafnið Playing for Time. RCA
dreifði síðustu plötu Mezzoforte í
Evrópu og þá þegar var gerður
samningur um tvær plötur auk
þessarar. Platan verður gefin út í
Evrópu auk þess sem stefnan verð-
ur tekin á Bandaríkjamarkað. Enn
er þó óvíst um hann. „Bandaríkin
eru gamall draumur og við leggjum
áherslu á að fá samning þar, RCA
í Bandaríkjunum hefur forkaupsrétt
en ef fyrirtækið notfærir sér hann
ekki leitum við til annarra aðila.
Við höfum unnið að plötunni í
átta mánuði en vinnan við hana
hefur verið gloppótt. Fyrst fengum
við tvo norska upptökustjóra sem
komu og fóru til skiptis. Á eftir
þeim kom Bandaríkjamaður, sem
hafði sama háttinn á. Þetta hefur
óneitanlega sett mark á plötuna en
við erum nokkuð ánægðir með
vinnu þeirra. Sjálfír stjómuðum við
upptökum á þremur lögum. En það
er ágætt að fijóvga andann með
utanaðkomandi hugmyndum, því
við erum famir að gjörþekkja vinnu
okkar sjálfra og hinna. Þetta varð
stundum erfitt, því það em svo
margir upptökustjórar í þessari
hljómsveit og allir vildu fá að leggja
eitthvað til málanna. Það varð þó
aldrei til vandræða."
RCA og Steinar hf. greiða upp-
tökukostnaðinn, sem er að öllum
líkindum sá hæsti sem greitt hefur
verið fyrir hljómplötu með íslensk-
um flytjendum. Hann er nú þegar
kominn á sjöundu milljóm og ekki
em öll kurl komin til grafar. „Þeir
hjá RCA hafa beðið rólegir, komið
hingað og fylgst með okkur og
hlustað á prufuupptökur. í rauninni
áttum við að skila plötunni fyrir
um ári síðan, en þeir hafa sýnt
þolinmæði. Við höfum alltaf haft
nokkuð fijálsar hendur og ekki ver-
ið sett nein skilyrði.
Reynslan hefur kennt okkur það
að okkur er eiginlegast að semja
„instmmental“-tónlist og við ákváð-
um með nýju plötunni að hverfa
aftur til hennar. Þeir hjá RCA vom
í fyrstunni smeykir við það að á
henni er enginn söngur en þeir
sannfærðust fljótt um að þess þyrfti
ekki með.“
Engin lyftumúsík
Megnið af lögunum hafa Friðrik
og Eyþór samið. Þeir segja plötuna
nokkuð frábmgðna öðm sem þeir
hafí gert en erfítt sé að gera sér
grein fyrir á hvaða hátt. „Við höfum
alltaf lagt áherslu á melódísk leikin
lög, spiluð af krafti. Leikinni tónlist
hættir svo til að hljóma eins og
lyftumúsik en við pössum okkur á
því að falla ekki í þá gryfju, með
því að hafa nógu mikið rokk í
þessu,“ segir Eyþór og Friðrik seg-
ist ekki fjarri því að platan sé
svolítið rokkaðri en fyrri plötur.
Enginn söngur er á plötunni,