Morgunblaðið - 15.01.1989, Qupperneq 18
18 $
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989
Hræðilegur
glæpur
aðmisnota_______
dulræna hæfileika
Lynne Hertsgaard útskrifaðist frá Towson
State-háskólanum árið 1978 með BA-gráðu í
sálarfræði og hefur stundað framhaldsnám við
Wesley-guðfræðiháskólann í Washington D.C.
og við Towson State-háskólann. Hún hefur
fengist við dulsálarfræði, heilun og ráðgjöf um
margra ára skeið og hefur tekið þátt í að skipu-
leggja námskeið, vinnuhópa, hugleiðsluhringi
og árlegar ráðstefnur fyrir bandarískt sálarrann-
sóknafélag.
Sem stendur er hún í framkvæmdastjóm lands-
samtaka Spiritual Frontiers Fellowship og í
nefnd sem sá um að skipuleggja hugleiðsluhring
í norðausturhluta Bandaríkjanna 1987 fyrir
landssamtökin. Hún hefurstjómað umneðu-
hópum og haldið fyrirlestra, bæði í Banda-
ríkjunum og í öðmm löndum, og hefur kennt
andlega sálrækt, stjómað námshópum í heilun,
stjómað vinnuhópum í talnaspeki, tarot og við-
bragðafræði, auk þess sem hún stundar persónu-
lega ráðgjöf á heimili sínu. Þess utan er hún
listakona, kennari í leirkerasmíði og glerlist og
með próf í viðbragðafræði fótarins.
LYNNEHERTSGAARDBEITIR TALNASPEKI
TIL AÐ FINNA TILGANG OKKAR HÉR Á JÖRÐ
eftir Súsönnu Svavorsdóttur
Hún er eflaust óskaplega yflrveguð, Qarræn og
kærleiksrík, með sjálfa sig og allt á hreinu,
hugsaði ég meðan ég undirbjó mig fyrir viðtal
við Lynne Hertsgaard, sem var stödd hér á landi
í boði „Ljósgjafans,“ félags áhugamanna um
andleg málefni, Daginn áður en ég hitti hana,
þurfti ég að senda henni nafn, fæðingardag og
fæðingarstund og var svo með fiðrildi í
maganum, vegna þess að út frá talnaspekinni,
reiknar Lynne út hlutverk okkar hér á jörðinni.
Talnaspekin er aldagöm-
ul aðferð til að lesa út
sálgerð og tilgang
mannsins hér á jörð og
tengist karmakenningu
(endurholdgunarkenningu) yoga-
heimspekinnar. Karmakenningin
gengur út frá því að sálin eigi eilíft
líf og endurholdgist hér á jörðinni,
aftur og aftur, á leið til þroska.
Vera okkar allra hér er til að greiða
fyrir misgjörðir í fyrri lífum. Þegar
maðurinn deyr tekur hann með sér
hugsanir sínar, langanir og þrár;
þar með talið reiði og hefndarhug,
svo dæmi sé tekið, sem sál hans
þarf að hreinsa af sér, næst þegar
hún endurholdgast. Allt sem við
gerum rangt i þessu lífí, þurfum
við að bæta fyrir í næsta lífí. Það
er þvi enginn refsandi Guð tjl, held-
ur refsum við okkur sjálf. í stuttu
máli sagt; þú hittir fyrir sjálfan þig.
{ talnaspekinni hefur hver bók-
stafur sinn tölustaf, frá 1 til 9.
Nokkrir stafír hafa því sömu tölu.
Þegar sálgerð og tilgangur manns
eru fundin er reiknuð út þversumm-
an af nafninu og þversumman af
fæðingardeginum, því næst eru
þessar tölur bomar saman við stað-
setningu plánetanna á fæðingar-
stundinni. Og hvað svo?
Hún var iðandi af lífskrafti og
fjöri. Lynne Hertsgaard talaði á
methraða og til að útskýra fræðin
notaði hún dæmisögur af sjálfri sér
— sem lýstu því hvemig raunveru-
leikinn stangaðist á við óskimar og
hún hafði mikinn „húmor" fyrir
sjálfri sér. Lynne er mikils metin
meðal þeirra sem fást við sálarrann-
sóknir og dulspeki, er á stöðugum
ferðalögum um heiminn, heldur fyr-
irlestra og skipuleggur námskeið,
vinnuhópa, hugleiðsluhringi og ráð-
stefnur, „og ég er mjög vandlát í
vali á því fólki sem ég fæ til liðs
við mig, því það er mjög mikið af
fúskurum og svikamiðlum í þessum
greinum," segir hún. „Það er nauð-
synlegt að vera varkár, því þegar
maður hefur öðlast mikla viður-
kenningu í einhveiju, verður maður
að vemda orðstír sinn.
Ég kalla þetta heilun — ég er
ekki spákona," heldur hún áfram,
„ég nota hugtök sálfræðinnar og
geng út frá henni. Með því að skoða
þessa hluti og læra að þekkja okkur
sjálf getum við haldið áfram að
þroskast. Spákonur, og annað fólk
sem hefur næma skynjun — og hér
er ég ekki að tala um miðla, því
þeir eru annað — stillir sig inn á
sterkar óskir þess sem þeir lesa
fyrir; sá sem verið er að spá fyrir
bíður eftir að heyra eitthvað um
sína heitustu ósk og sendir hugsun-
ina þar með yfír til spákonunnar
eða -mannsins. Ég hef séð þetta
gerast og það getur valdið óbætan-
legu tjóni. Ég held að fólk sem
fæst við spádóma geri sér oft ekki
grein fyrir þessu og það gerir
kannski ekki greinarmun á því sem
það kann og því sem það tekur við
hjá_þeim sem verið er að spá fyrir.
Ég þekki líka mikið af frábærum
miðlum, sem em ekki á þessari
sálfræðilínu, heldur hafa áhuga á
dulrænum þáttum tilverunnar. Það
er mjög áríðandi að hafa heilindi
og vera ábyrgur í þessari vinnu.
Ég er núna að skipuleggja stóra
ráðstefnu í Bandaríkjunum í sumar
og ég geng alltaf úr skugga um
að fólkið sem ég fæ til liðs við mig
hafi heilindi. Það er mjög nauðsyn-
legt að vera ábyrgur vegna þess
að það getur verið hættulegt fyrir
ósynt fólk að kasta sér beint út í
djúpu laugina. Maður vill ekki vera
ábyrgur fyrir því að afvegaleiða
fólk. Það er karmaskuld sem ég
vildi ekki bera.
En ég hef verið í þessu í nokkuð
mörg ár núna og séð margt. Ég var
í þessu þegar þetta voru mjög óvin-
sæl fræði, en nú má segja að þau
séu nánast að komast í tísku."
— Hvers vegna fórstu út í dul-
og talnaspeki?
„Ég hef alltaf gert mér grein
fyrir því að í veröldinni býr meira
en líkamleg augu sjá. Ég ólst upp
í sveit — á bóndabýli — og það er
einhver tilfínning einsemdar í nátt-
úrunni. Mér fannst það dásamleg
tilhugsun að allt í kringum mig
væru álfar. Ég sá þá aldrei, en ég
las mikið af álfasögum og goðsög-
um — þær voru í miklu uppáhaldi
hjá mér.
Þegar ég svo kom í menntaskóla
fórum við í andaglas. Við vissum
ekki þá, það sem ég veit núna, að
það var fyrir tilstilli hugarorku sem
glasið hreyfðist. Við lékum okkur
að því að spyijast fyrir um hvemig
körfuboltaleikir og fleira myndi
fara. En ég hélt ekki áfram á þeirri
línu og hafði einhveija óljósa hug-
mynd um að þetta væri ekki rétt,
því í hlutum af þessu tagi er virki-
lega hægt að tapa áttum.
En það gerist margt í henni til-
veru. Ég man þegar ég var 16 ára
að mig dreymdi að ég var í jarðar-
för. Það var verið að jarðsyngja
einhvem úr fjölskyldu minni, en ég
gat ekki séð hver var í kistunni.
Viku seinna dó litli bróðir minn og
ég gerði mér grein fyrir að mér
hafði ekki verið ætlað að bjarga