Morgunblaðið - 15.01.1989, Page 26
26 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989
Afinn og amman
arfastl þjónninn! Hvað
táknar það? Ekki svo langt
siðan það fór ekki á milli mála.
Auðvitað íslenski hesturinn. Sá
sem um aldur bar alla íslend-
inga milli staða og flutti allt sem
flytja þurfti. Gerði íslendingum
fært að búa í þessu landi. En
merking orða og hluta umbreyt-
ist með nýjum lífsháttum. Nú
er hesturinn nær þvi að vera það
sem Hinrik V segir hann i leik-
riti Shakespeares, loftið tæra og
loginn en aldrei hversdagslegar
hðfuðskepnur, jörð og vatn . . .
Eða gleðigjafi og leikfang. Og
ömmumar, þessar nýtu mann-
eskjur í umbyltu samfélagi,
erfðu sæmdarheitið „þarfasti
þjónninn". í umrótinu hafa
heimaömmumar gjarnan tekið
við og borið þau böm sem ekki
var rúm fyrir eða tími. Ómetan-
legar til að brúa bilið meðan
samfélagið lagar sig að nýjum
siðum.
En ömmumar staðna ekki
fremur en annað. Þær breytast
með breyttum tímum. Afa-
* mynstrið vitanlega líka. Hvað
em afinn og amman annars?
Það heiti kemur óbeðið. Og hvar
falla þau inn í nútíma samfélag-
ið? Ekki lengur hægt að gera ráð
fyrir því við fæðingu bama-
barnsins að amma sitji heima
og afi sé æ tiltækur á heimilinu.
Ekki veit ég hver meðalaldur
þeirra er á Islandi. En í nýút-
kominni bók eftir Frakkann
Ségolene Royal, sem hann nefn-
ir „Vor afans og ömmunnar —
nýju kynslóðatengslin", kemur
fram að þar í landi sé önnur
hver 52ja ára kona orðin amma
og eigi um sextugt að meðaltali
3 bamabörn. Annar hver karl-
maður sé orðinn afi 55 ára.
Nýja afa-ömmu-kynslóðin
blómstri.
Eftir stórskáldinu er haft að
orð sé á íslensku til um allt sem
er hugsað á jörðu. En þarna
verð ég samt heimaskítsmát.
Finn ekkert eitt heiti á íslensku
yfir „afi og amma“, sem á flest-
um tungum er tiltækt sem sam-
heiti: grandparents, bedste-
forældre etc. Finnið þið það?
Kynlegt að þarft heiti skuli ekki
hafa myndast i aldanna rás um
svo algengt fyrirbrigði, ekki
satt? „Tilfinningahlekkir eru
steinlímið (steypan) í mannleg-
um samsklptum," segir í ann-
arri nýlegri bók um svipað efni,
„ Afinn og amman, barnabörnin
og lífsnauðsynlegi hlekkurinn",
eftir Frakkana Arthur Kom-
haber og Kenneth Woodward.
Og þessi hlekkur, sem tengir
börnin við afana og ömmurnar,
er mjög sérstæður. Höfundarnir
benda á að „fælni flytjist aðeins
milli samhangandi kynslóða.
Samband afa og ömmu og
barnabarna þeirra geti því verið
afslappað og lipurt". En það
verður varla texti, þar sem sifellt
þarf að tyggja upp þrjú orð fyrir
GÁRDR
eftirEíínu Pálmadóttur
í hamskiptum
eitt.
Þessi hugartengsl lifnuðu við
lestur greinar í fimmtudags-
blaðinu Pressunni undir fyrir-
sögninni: „Fjölskyldubrot gerð
að heild", þar sem fjallað er um
stjúpbörn i skilnaðarfjölskyld-
um og hina algengu og tíðu
myndun nýrra
sambanda
beggja foreldra,
með óhjá-
kvæmilegum
erfiðleikum
fyrir börnin. Þá
rifjuðust upp
kannanir og
skrif um hlut-
verk afa og
ömmu í þessu
nútíma
mynstri
síbreytilegra
fjölskyldna.
Þar virðist
semsagt hlut-
verk afa og
ömmu síst
minna og þarf-
ara nú en var
þegar þessi
heiðurshjón voru á heimili bam-
anna eða meðan heimili þeirra
var tiltækur hjálparbanki með
ömmu á vaktinni. Þau eru að
laga sig að aðstæðum eins og
allir aðrir, taka hamskiptum.
Þetta á við þessar erlendu at-
huganir. Ætli fyrirbrigðið sé
nokkuð sérislenskt?
Við að afarnir og ömmurnar
verða sífellt yngri, virðast kyn-
slóðirnar eiga auðveldara með
að tala saman, og fylgja tíðari
samskipti. Fjögur börn af hveij-
um fimm á aldrinum 15-18 ára
hltta í Frakklandi afa sinn og
ömmu mánaðarlega og eitt af
hveijum fjórum vikulega. Og
87% unglinganna finnst þau
elskuleg, hlý og gefandi. Nútíma
afar og ömmur virðast lika yngri
en aldurinn segir til um. Hvar-
vetna eru ömmur í siðbuxum
og afar í sportpeysum og „menn-
Ingarbilið", sem skildi fyrir 20
árum afa frá sonarsyninum,
á
Hitastrengir til margra nota
Eram með
á lager hita-
strengi til
margvís-
legra nota.
Auðveldir í
. . „ Hitastrengir til golf-
hitunar
t.d. flísagólf, forstof-
ur, arinstofur, bað-
herbergi, tröppur o.fl.
til jarð-
vegshitunar, sólstof-
ur, garðhús, garðreiti.
Hitastrengir til frost-
varna
þakrennur, gangstótt-
ar, niðurföll.
Leitiö nánari upplýsinga
Kúplingarsett
í miklu úrvali
Póstsendum somdægurs.
Verð frá kr. 5.400,-
GSvarahlutir
Hamarshotöa 1 - 110 Raytejavik - Stmar 36510 og 83744
virðist stöðugt óalgengara. Þessi
kynslóð aldraðra hefur lifað
tíma með kröfum um fagkunn-
áttu og þegar þau verða afar og
ömmur gengið í gegn um stöð-
uga endurhæfingu til að halda
færninni. Segolene Royal hafn-
ar því að fjölskyldurnar séu í
kreppu þar sem börnunum sé
þvælt milli sinýrra heimila er
myndast við slit og nýmyndun
hjónabanda. Þarna sé að mynd-
ast nýtt mynstur, þar sem afinn
og amman haldi um þráðinn
sem bindur og veitir börnunum
öryggi af að tilheyra ættflokki,
jafnvel þótt einhveijir þessara
fjölskylduþráða rakni. Þau séu
kjölfesta barnanna nú. Fjöl-
skyldumynstrið sé þvi bara í
enn einum hamskiptunum. í
fyrrnefndum könnunum kemur
fram að meira en helmingur
barna fari að minnsta kosti einu
sinni á ári í fri með afa sinum
og ömmu og yfir 80% af fólki
yfir 55 ára segist laga sumar-
leyfistímann alfarið að skóla-
leyfi barna og barnabarna. Þeir
sem orðnir eru sextugir hafa
líka yfirleitt rýmrl efni og sumir
jafnvel yfir sumarhúsi að ráða.
Aldurinn er alltaf að hækka og
ömmu og afahlutverkið sem
hlekkur milli fortíðar og fram-
tiðar nær því yfir æ lengra skeið.
Starfssvið afans og ömmunnar
er því öruggt framtíðarstarf!
litfifrUk
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Nú bjóóum við 30-
afslútt af útsöluvörum
v/Laugalæk, sími 33755.