Morgunblaðið - 15.01.1989, Side 27
Einu
sinni
var
er leiksmiðja fyrir
börn á aldrinum 6-12
ára. Innritun og
nánari upplýsingar
í síma 23943.
GALLERt
hefur til sölu málverk eftir
Jóhannes Kjarval, 60x150 cm
(Þingvellir) og málverk eftir
Ágrím Jónsson, 70x80 cm.
Anni Kjems. Tværvej 58, DK-
2791, Köbenhavn Dragor.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
esex HAÍJMAt. .31 HUOAOimVlUg QIQAJSVIU0HOM J
MORGUNBLAÐIÐ MEIMNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989 C 27
DJASS/Lagasmidir eda tónskáld?
Listitt tekin alvarlega
Islandsdjassinn upphóf árið
1989 með glans — Tómas R.
Einarsson með sextett í Norræna
húsinu og Vilhjálmur Guðjónsson
með sextett í Heita pottinum.
Jólafríið hófst á
heimsókn Hall-
dórs Pálssonar,
altista, í Heita
pottinn, en þar
blés hann með
kvartett Árna
Schevings. Hall-
dór Pálsson kann
sinn djass og
ekki hefur bráðfallegur altótónn
hans bliknað í Svíþjóð. Á efnis-
skránni voru klassísk verk sem
djassmenn leika gjaman þegar
lítið tóm gefst til æfinga. Arni
átti margan góðan víbrafónsóló-
inn og við bíðum bara eftir að
hann taki sér tak og fari að sinna
djassinum af þeirri alvöru sem
manni með hans hæfileika ber.
skylda til. Undir lokin kom einn
af jóladrengjunum frá Banda-
ríkjunum og blés nokkra ópusa
með Halldóri. Tveir altóar og Sig-
urður Flosason annar. Það var
orðið heitt í Pottinum og Sigurður
kynti vel og meira að segja orðvör-
ustu menn sögðu að nú væri
drengurinn farinn að svínga.
Sigurður var í liði Tómasar R.
Einarssonar bassaleikara er sló
upp djassveislu í Norræna húsinu
fyrir rúmri viku. Þar voru á efnis-
skrá tíu nýir eða nýlegir ópusar
eftir Tómas, ýmist leiknir af
kvartett; sá var skipaður þeim
tvímenningum ásamt Eyþóri
Gunnarssyni, píanista og Birgi
Baldurssyni, trommara eða sext-
ett þar sem Ásgeir Steingrímsson
trompetleikari og Össur Geirsson
básúnuleikari bættust í hópinn.
Manni leið eins og á mennta-
skólatónleikum hjá Brubeck í
gamla daga í upphafi, þó maður
hafí aldrei verið þar nema með
plötúnum. Troðfullt Norræna hús-
ið og allir þögðu og hljómsveitin
glerfín og bassaleikarinn alvarleg-
ur eins go hann væri í Marsalis-
bandinu. Svo upphófst tónlistin
og þegar Sigurður Flosason tók
upp barýtonsaxafóninn og blés
ballöðu hljómsveitarstjórans,
Sorg, þá fór manni að líða ansi
vel. Sigurður hefur tón a la Sergie
Charloff og sú ætt og eykur þama
við fáskrúðuga flóru íslensks
djassblásturs.
Tómas R. Einarsson kallar sig
lagasmið og fékk styrk úr Tón-
skáldasjóði Rásar 2 til þess að
semja þessi verk. Það skiptir ekki
höfuðmáli hvort menn kalla sig
lagasmiði eða tónskáld — djassinn
blómstrar fyrst og fremst í hljóð-
færaleiknum og þama var hann
pottþéttur — sérílagi á rólegri
nótunum. Það er eins og sú lína
falli okkur íslenskum best — ekki
síst tónsmiðum Tómasar. Fyrr-
nefnd Sorg, Vangadansinn norr-
æni svo og gullfallegur ópus sval-
ur: Trúnaður í stofunni, lifa best
í minni undirritaðs eftir þessa tón-
leika auk blúsins um Hampton
Hawes: Blár í gegn. Skrítla eins
og Tyrkneski baðvörðurinn (sem
upphaflega var helgaður Guðrúnu
Símonardóttur, Tyrkja-Guddu)
gekk ekki upp í flutningi þeirra
félaga því tryllingurinn í sam-
spunanum var ekki fyrir hendi —
aftur á móti gekk trommugrín
Birgis Baldurssonar í aukalaginu,
Stríðsdans, betur.
Tómas R. Einarsson tekur tón-
sköpun sína alvarlega og mættum
við eignast sem flesta slíka. Mað-
ur saknar þess t.a.m. að heyra
ekki meira frá Stefáni S. Stefáns-
syni sem hélt þessa dúndurtón-
leika með tentett í Norræna hús-
inu nýkominn frá námi í Banda-
ríkjunum. Lífsbaráttan er hörð á
íslandi og djassmenn þurfa ekki
síður opinbera styrki en aðrir tón-
listarmenn.
Á sunnudagskvöldið var lék
Vilhjálmur Guðjónsson með sept-
ett sínum eigin verk í Heita pottin-
um. Þar sem Tómas viðheldur
hinum klassíska djassi hallast Vil-
hjálmur oft á rafsveifina með
fönkívafí. Það skortir þó ekkert á
djasssveifluna í tónlistinni og mik-
ið er alltaf gaman að heyra Krist-
in Svavarsson blása í saxafónana
sína. Hann gerði margan góðan
hlutinn í Heita pottinum á síðasta
ári. Tónleikar Vilhjálms voru
hljóðritaðir og heyrast vonandi
brátt á Rás 2. Þá er bara að
hlusta eða mæta í Heita pottinn
sem fyrst. Þar er alltaf djass á
sunnudagskvöldum.
ettir Vernharð
Linnet
UTSALAN HEFST A MORGUN
*' 'tt kortatímabil
nýjum vörum meðan útsalan
stenduryfir.
V/SA
RIH
SNORRABRAUT 56 SIMI 13505 ■14303