Morgunblaðið - 18.02.1989, Blaðsíða 24
24
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1989
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1989
Útgefandi
r ramkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
BaldvinJónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 70 kr. eintakið.
Selir, hvalir og
þjóðhöfðingjar
Við sem búum hér á norður-
slóðum og höfum getað
nýtt okkur náttúrugæði án af-
skipta þjóða, sem búa við allt
aðra lífshætti, eigum erfítt með
að sætta okkur við afskipti
umhverfísvemdarsinna af veið-
um okkar. Norðmenn eiga und-
ir högg að sækja vegna sjón-
varpsmyndar, sem þykir sýna
grimmilega framgöngu þeirra
við seladráp. Við stöndum í
stríði vegna hvalveiða.
Deilur vegna þessa taka á
sig hinar furðulegustu myndir.
Þannig hefðu líklega fáir átt
von á að Karl Gústaf Svíakon-
ungur tæki upp á því að senda
Norðmönnum neyðarleg skeyti
vegna selveiða. Sé litið til sög-
unnar má ætla, að fátt þjappi
Norðmönnum meira saman, án
tillits til þess hver málstaðurinn
er, en afskipti Svíakonungs,
sem þeir telja óviðeigandi íhlut-
un í norsk málefni. Samkvæmt
sænsku stjómarskránni er
hlutverk Svíakonungs nú lítið
annað en táknrænt. Að maður
í slíkri stöðu skuli halda þannig
á málum, að orð hans- kyndi
undir milliríkjadeilur norrænna
frænd- og nágrannaþjóða er í
einu orði furðulegt. Hvað sem
því líður verða Norðmenn að
taka til hendi og snúa vöm í
sókn í þessu selamáli, sem alls
ekki er lokið. Eitthvað segðu
íslendingar ef Margrét Dana-
drottning sendi þeim svipaða
kveðju í hvalamálinu og Norð-
menn fengu frá Svíakonungi,
en forfeður þessara jijóðhöfð-
ingja voru áður yfír Islandi og
Noregi.
Hvalamál okkar er einnig
enn á döfínni. A næstunni ætla
Grænfriðungar að efna til mót-
mæla gegn okkur um þver og
endilöng Bandaríkin. Ekkert
þýðir að ræða um þau mót-
mæli við bandarísk stjómvöld.
Þau geta ekki bannað almenn-
ingi að mótmæla því, sem hann
vill. Á hinn bóginn höfum við
haldið uppi viðræðum við
Bandaríkjastjóm um þá hlið,
sem að henni snýr vegna
bandarískra laga. Ráðherrar
landanna hafa oft rætt um
málið og um það hefur tekist
samkomulag oftar en einu
sinni. Á sínum tíma ritaði Þor-
steinn Pálsson þáverandi for-
sætisráðherra Ronald Reagan
þáverandi Bandarílg'aforseta
bréf vegna hvalamálsins. Reag-
an var aðili að málinu vegna
bandarísku stjómarskrárinnar,
þar sem framkvæmdavaldið er
r höndum forsetans.
Fréttir hafa nú borist af því,
að frú Vigdís Finnbogadóttir
forseti íslands, Steingrímur
Hermannsson forsætisráð-
herra, Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra og Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra hafí ritað starfsbræð-
rum sínum í Vestur-Þýskalandi
bréf vegna hvalamálsins. Var
þar meðal annars vísað til við-
ræðna, _sem fram fóru þegar
forseti íslands var í opinberri
heimsókn í Vestur-Þýskalandi
á síðasta sumri.
Það er ekki á valdi þýskra
stjómvalda að stemma stigu
við framgöngu Grænfriðunga
þar í landi og í raun er hvala-
deilan ekki milliríkjamál
íslenskra og þýskra stjómvalda
eins og íslenskra og banda-
rískra.
Eftir að Halldór Ásgrímsson
hafði skýrt frá því í skýrslu til
ríkisstjómarinnar, að forseti
íslands hefði ritað fyrrgreint
bréf og frétt um það birst í fjöl-
miðlum, gerðist atburður, sem
er einsdæmi og sýnist ekki
styðjast við nein stjómskipuleg
ákvæði. Forsetar Alþingis und-
ir forystu forseta sameinaðs
þings, settust á rökstóla um
það, hvort þeir sættu sig við
efni bréfs forseta íslands. For-
seti sameinaðs þings sagði að
þeim fundi loknum, að þingfor-
setamir hefðu ekkert við bréfíð
að athuga. Hvað hefðu for-
svarsmenn Alþingis gert, ef
niðurstaða þeirra hefði orðið
önnur? Hvaðan kemur þeim
vald til að úrskurða um efni
bréfa forseta fslands? Vita þeir
ekki að ráðherrar bera ábyrgð
á gjörðum forseta samkvæmt
stjómarskránni?
Ef vilji ráðamanna stendur
til þess að breyta stjómarhátt-
um og fara aðrar leiðir en hing-
að til hefur verið talið í sam-
ræmi við stjómarskrá lýðveld-
isins, fer auðvitað best á því,
að tillögur séu gerðar um breyt-
ingar á stjómarskránni og þær
hljóti síðan afgreiðslu lögum
samkvæmt. Þannig hefur
Mauno Koivisto, Finnlands-
forseti, til dæmis beitt sér fyrir
tillögum er miða að því að
minnka vald forseta Finnlands
meðal annars í utanríkismál-
um.
Deilur um seli og hvali mega
ékki verða til þess að hrófla
við undirstöðum stjómskipunar
á Norðurlöndunum. Um stjóm-
lögin og hlut þjóðhöfðingja á
að takast við aðrar aðstæður.
Knésettír kratar og
kj arasamní ngar
eftir Þorstein Pálsson
Um nokkum tíma hefur það ver-
ið kunnugt að mannvirkjasjóður
Atlantshafsbandalagsins hefði
áhuga á að byggja varaflugvöll hér
við Norður-Atlantshafið. Það gæti
verið góður kostur vegna sameigin-
legra hagsmuna íslands og Atlants-
hafsbandalagsins að gera slíkan
flugvöll hér á landi. En vitað er að
bæði Danir og Grænlendingar hafa
sýnt því áhuga að slíkur flugvöllur
yrði á Grænlandi.
Þó að þetta mál hafi verið á döf-
inni um nokkum tíma er það fyrst
nú upp á síðkastið að almennar
umræður hafa farið fram um efnið.
Þær hafa verið um margt athyglis-
verðar. Efnisrökin með og á móti
em sjálfstæður þáttur í þessum
umræðum. En hitt hefur ekki vakið
minni athygli hvemig Alþýðu-
bandalagið og Framsóknarflokkur-
inn knésetja Alþýðuflokkinn í sér-
hveiju því máli þar sem hann reyn-
ir að hafa sérstöðu.
V araflugvöllur og
mannvirkjasjóður
Vegna staðfestu Atlantshafs-
bandalagsríkjanna hafa orðið mikl-
ar breytingar í alþjóðamálum. Menn
eygja nú möguleika á verulegri
fækkun kjamorkuvopna og sam-
drætti í hefðbundnum heralfa. Aug-
ljóst er að nýr tími kallar á ný við-
horf og í stað hefðbundinnar hem-
aðarlegrar uppbyggingar og aukins
heralfa verður í framtíðinni meiri
áhersla lögð á hverskonar eftirlit
og öryggisráðstafanir. Nýr vara-
flugvöllur sem reistur yrði af mann-
virkjasjóði Atlantshafsbandalagsins
er því í einu og öllu í takt við þær
breytingar sem nú eru að verða í
alþjóðamálum.
Gerð nýs varaflugvallar af þessu
tagi er því bæði í fullu samræmi
við grundvallarstefnu íslands í ut-
anríkis- og vamarmálum svo sem
hún hefur verið framkvæmd undan-
fama fjóra áratugi og þau nýju við-
horf sem em að skapast á alþjóða-
vettvangi. íslensk stjómvöld hafa
frá upphafi sett þau skilyrði að
engin hemaðammsvif yrðu á flug-
velli sem þessum á friðartímum.
í tíð fyrrverandi ríkisstjómar
gerði ég til að mynda bandarískum
stjómvöldum og hemaðaryfirvöld-
um grein fýrir þessari afstöðu og
þeim augljósu skilyrðum sem slík
framkvæmd yrði bundin af okkar
hálfu. Á þau var fallist af hálfu
bandarískra yfírvalda og nú hefur
það verið bréflega staðfest af hálfu
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins að í einu og öllu em
þau skilyrði sem við höfum sett
virt af hálfu Atlantshafsbandalags-
ins.
Þannig liggur alveg ljóst fyrir
að varaflugvöllurinn yrði starfrækt-
ur af almennum borgurum, þar yrðu
engin hemaðarleg umsvif og engir
hermenn á friðartímum. Þetta er
kjami málsins. Og auðvitað eiga
íslendingar ekki við aðstæður sem
þessar að hika við að framkvæmda
þá könnun á slíkri flugvallargerð
sem mannvirkjasjóðurinn er nú til-
búinn að kosta.
Þröngsýni
Alþýðubandalagsins
Ákvarðanir sem þessar hljótum
við að taka fyrst og fremst á gmnd-
velli afstöðu okkar í vamar- og
öryggismálum. En á hitt er líka
rétt að líta að flugvallargerð af
þessu tagi nýtist íslendingum að
þvl er varðar allt flug bæði innan
lands og milli landa. Fæstum bland-
ast hugur um að verkefni á þessu
sviði em mjög mikilvæg og við
„Eftir að Möðruvalla-
liðið lýsti því yfir að
Alþýðuflokkurinn
kæmist ekki upp með
framgang þessa máls
hefiir formaður Al-
þýðuflokksins gripið til
þess ráðs að segjast
vilja sem minnst um það
tala vegna vina sinna í
Alþýðubandalaginu, en
sennilega kæmist það
til framkvæmda í fyll-
ingu tímans. Og Al-
þýðubandalagsráðherr-
arnir hafa skilgreint
fyllingu tímans á þann
veg að hún komi ekki
til fyrr en eftir daga
þessarar ríkisstjórnar.
Auðmýking utanríkis-
ráðherrans virðist því
vera algjör.“
þurfum reyndar fleiri en einn og
fleiri en tvo flugvelli sem þjónað
geta sem varaflugvellir. Allt hnígur
þetta að þeirri niðurstöðu að við
eigum að taka þátt í þessari fram-
kvæmd.
Mótrök Alþýðubandalagsins
byggjast á gömlum fordómum og
kreddufestu. Aðildin að Atlants-
hafsbandalaginu er nú óumdeildari
en nokkru sinni fyrr. Þröngsýni
Alþýðubandalagsins í þessu máli
kemur e.t.v. ekki á óvart en hún
bendir til þess að flokkurinn hafi
lítið lært og I fáu aðlagað sig að
nýjum tímum.
Þorsteinn Pálsson
Þingmenn Alþýðuflokksins
brotnir á bak aftur
Hin hlið málsins varðar það
hvaða augum Alþýðubandalagið og
Framsóknarflokkurinn líta Alþýðu-
flokkinn í núverandi stjómarsam-
starfí. Að vísu hefur forysta Al-
þýðuflokksins lagt á það mikla
áherslu upp á síðkastið að söguleg-
um ágreiningi við Alþýðubandalag
og Framsóknarflokk væri lokið. En
I einstökum atriðum hefur forysta
Alþýðuflokksins þó reynt að við-
halda ákveðnum sérkennum.
Þingmenn Alþýðuflokksins hafa
á hinn bóginn verið brotnir niður í
nær öllum málum þar sem þeir
hafa reynt að sýna einhverja sér-
stöðu gagnvart Álþýðubandalagi og
Framsókn.
Atburðarásin er yfírleitt mjög
svipuð. Hún byijar á því að ein-
hveijir af þingmönnum eða forystu-
mönnum Alþýðuflokksins lýsa yfir
skoðun á tilteknu máli. Framsókn-
arforystan bíður þar til að Alþýðu-
bandalagsforystan hefur talað.
Síðan lýsir forysta Alþýðubanda-
lagsins sínum skoðunum. Og þá
kveður Framsóknarforystan upp
úrskurð um það að ekkert verði
gert sem ágreiningur er um innan
ríkisstjómarinnar og Alþýðuflokk-
urinn verður að sætta sig við niður-
stöðuna.
Í þessu máli koma mjög augljós-
lega fram gömlu Möðruvallatengsl-
in í Framsókn og núverandi foiystu
Alþýðubandalagsins. Þeir sem þar
ráða ferðinni telja sig hafa styrk
og afl til þess að skipa Alþýðu-
flokknum að sitja og standa eins
og þeim sýnist.
Uppgjöf á öllum sviðum
Eftir að Möðruvallaliðið lýsti því
yfir að Alþýðuflokkurinn kæmist
ekki upp með framgang þessa máls
hefur formaður Alþýðuflokksins
gripið til þess ráðs að segjast vilja
sem minnst um það tala vegna vina
sinna í Alþýðubandalaginu, en
sennilega kæmist það til fram-
kvæmda í fyllingu tímans. Og al-
þýðubandalagsráðherramir hafa
skilgreint fyllingu tímans á þann
veg að hún komi ekki til fyrr en
eftir daga þessarar ríkisstjómar.
Auðmýking utanríkisráðherrans
virðist því vera algjör.
í byijun þessa stjómarsamstarfs
tók Framsóknarflokkurinn þá af-
stöðu að Alþýðubandalagið skyldi
hafa neitunarvald um hugsanlega
samvinnu við erlenda aðila varðandi
áframhaldandi uppbyggingu stór-
iðju og stórvirkjana. Þessu kyngdi
Alþýðufiokkurinn. Síðan hefur Al-
þýðuflokkurinn verið knésettur I
nær öllum málum þar sem hann
hafði áður sérstöðu gagnvart öðmm
vinstri flokkum.
Nú er verið að gera tilraunir til
þess að gera bankaráð ríkisbank-
anna að einskonar pólitískum kom-
missarastjómum. Það er verið að
auka miðstýringu á öllum sviðum
fjármagnsmarkaðarins. Niður-
greiðslur og uppbætur til atvinnu-
fyrirtækja úr ríkissjóði em auknar
meira en dæmi er um í annan tíma.
Skattar em hækkaðir á almennum
launatekjum og nú síðast er Al-
þýðuflokkurinn knésettur í vara-
flugvallarmálinu.
Því meir sem forystumenn Al-
þýðubandalagsins traðka á þing-
mönnum Alþýðuflokksins með þess-
um hætti virðast kratamir missa
trúna á sjálfan sig og leggja meira
upp úr en áður að sameinast Al-
þýðubandalaginu. Og Alþýðu-
bandalagið sýnist ætla að nota
sömu aðferðir við sameininguna og
Sovétstjómin á sínum tíma gagn-
vart Eystrasaltsríkjunum. Það er
sannarlega bágt hlutskipti.
Ábyrg verkalýðsforysta
Umræður um kjaramál em nú
að hefjast. Svo sem jafnan áður
verður uppgjörið á vinnumarkaðn-
um erfitt og vandasamt. En það er
órækur vitnisburður um vinstri-
stefnu og forystu Alþýðubandalags-
ins í ríkisstjóm að verkalýðshreyf-
ingin telur sig ævinlega vera I erfið-
ari stöðu til þess að ná bættum
kjömm þegar afleiðingar slíkrar
stefnu em famar að koma fram í
dagsljósið. Sagan virðist vera að
endurtaka sigi að þessu leyti um
þessar mundir.
Fæstum blandast hugur um að
afleiðingar stjómarstefnunnar
munu koma með miklum þunga
niður á atvinnuvegum landsmanna
og því em blikur á lofti ekki síst í
sjávarplássunum víða um land. Og
eðlilega gætir ótta hjá starfsfólki
iðnfyrirtækjanna ekki síst með til-
liti til þess hversu hatrammlega
ríkisstjómin hefur veist að atvinnu-
öryggi þess með rangri skatta-
stefnu.
Við erfíðar aðstæður sem þessar
er ánægjulegt til þess að vita að
forystumenn f verkalýðshreyfing-
unni virðast hafa skilning á stöðu
atvinnufyrirtækjanna. Þetta hefur
komið fram hjá formanni Verka-
mannasambandsins og Dagsbrúnar
og hinum nýja formanni BSRB. Af
þeirra hálfu em engar almennar
kauphækkunarkröfur uppi á borð-
inu að því er virðist.
Þess em allt of mörg dæmi að
verkalýðsfélög hafa í engu skeytt
um afstöðu atvinnulífsins í landinu.
Það er því sérstakt fagnaðarefni
að ýmsir helstu forystumenn laun-
þegasamtakanna virðast ætla að
koma fram af miklúm skilningi
gagnvart atvinnufyrirtækjunum í
þeim kjarasamningum sem nú fara
í hönd.
Forseti Alþýðusambandsins hef-
ur á hinn bóginn lagt meiri áherslu
á kaupmáttaraukningu en flestir
aðrir forystumenn verkalýðsfélag-
anna. Vonandi er það ekki vfsbend-
ing um að Alþýðusambandið ætli
að fara fram með óraunhæfar kröf-
ur í kjarasamningunum.
Þó að væntanlega sé of mikið
gert úr yfirvofandi atvinnuleysi fyr-
ir þá sök að hinar gífurlegu erlendu
lántökur sem ríkisstjómin stefnir
að munu sennilega valda nokkurri
þenslu í byggingariðnaði og þjón-
ustugreinum, er ærin ástæða til
þess að fara með gát í þeim kjara-
samningum sem framundan eru.
Enga gamaldags
félagsmálapakka
Það hefur oft borið við að for-
ystumenn verkalýðshreyfíngarinn-
ar hafa reynt að finna afsakanir
fyrir hógværum kjarasamningum.
Slíkar afsakanir hafa gjaman verið
færðar í búning margskonar félags-
málapakka. En í raun og veru er
með öllu óþarft að færa fram afsak-
anir fyrir hófsömum kjarasamning-
um. Eigi samningar að halda og
vera raunhæfir verða þeir alltaf að
taka mið af verðmætasköpun þjóð-
arbúsins og möguleikum atvjnnu-
fyrirtækjanna. Þetta skilur fólk al-
mennt.
Núverandi ríkisstjóm fylgir þeirri
meginstefnu að höfuðframleiðslu-
greinar þjóðfélagsins verði reknar
með viðvarandi tapi. Það þrengir
svigrúm launafólksins. Kjaraskerð-
ing með skattahækkunum var því
óhyggilegur aðdragandi kjara-
samninga.
Það væri á hinn bóginn mjög
varasamt við þessar aðstæður að
búa til umfangsmikla félagsmála- tT
pakka að hefðbundinni gerð. Það
verður einungis afsökun fyrir rfkis-
stjómina til þess að hefja nýia her-
ferð fyrir skattahækkunum. I reynd
ætti að snúa þessu hugtaki við og
segja sem svo: Besti félagsmála-
pakkinn væri aðhald í ríkisrekstri
og loforð um að stöðva skattahækk-
anastefnuna.
Meðan ríkisstjómin neyðir fram-
leiðslu- og útflutningsfyrirtækin til
viðvarandi hallareksturs eykst við-
skiptahallinn, verðbólgan fer upp
aftur og vextir hækka í raun, hvað
sem gerviákvörðunum líður. Það
gæti því einnig verið félagsmála-
pakki með nýju sniði að knýja ríkis-
stjómina til raunhæfra almennra
aðgerða í þágu atvinnuveganna.
Hlifundur er formaður Sjálfstæð-
isOokksins.
Reykjavík:
Matvælasýning og
sj ávar r éttaveizla
UNDIRBÚNINGUR að alþjóðlegri matvælasýningu í Laugardalshöll
er nú vel á veg kominn. Jafhframt verður i tengslum við sýninguna
„sjávarréttaveizla“ á um 10 hótelum og veitingahúsum. Sýningin
spannar mat og drykk af ýmsu tagi og varaing sem hvorutveggja
tengist. Fyrir sýningunni stendur brezka fyrirtækið ITFI i samvinnu
við Alþjóðlegar vörusýningar hf hér á landi, en „sjávarréttaveizluna“
skipuleggur Útflutningsráð íslands í samvinnu við viðkomandi veit-
ingahús og hótel.
Bima Sigurðardóttir, sölustjóri
Alþjóðlegra vörusýninga hf., sagði
í samtali við Morgunblaðið, að gert
væri ráð fyrir nokkurri aðsókn út-
lendinga að sýningunni og þátttöku
einhverra erlendra fyrirtækja, en
sýningin væri fyrst og fremst
fslenzk. Að sögn Bimu verður mik-
il áherzla lögð á möguleika til að
efla viðskiptatengsl og möguleika á
samningum um kaup og sölu á sýn-
ingunni. í því augnamiði meðal
annars verður sýningin eingöngu
opin viðskiptaaðilum milli klukkan
14.00 og 16.00 á daginn og verða
Flugleiðir með pakkaferðir fyrir
kaupmenn utan af landi. Jafnframt
verður sett upp sérstök aðstaða við
sýningarsvæðið fyrir þá, sem hugs-
anlega vilja ræða þar einhver við-
skipti.
Klukkan 16.00 verður opnað fyr-
ir almenning. „Þar verður margt á
boðstólum," segir Bima. „Mikið að
smakka og möguleikar á að kaupa
vaminginn á kynningarverði. Áð
auki hefur Hilmar B. Jónsson, mat-
reiðslumeistari, fengið nokkra
heimskunna matreiðslumenn til að
koma á sýninguna og kynna listir
sínar. Ýmis fyrirtæki hér á landi
hafa unnið að þróun tilbúinna rétta
til að kynna við þetta tækifæri, svo
við bindum miklar vonir við árang-
ursríka sýningu, bæði fyrir fram-
leiðendur, kaupmenn og neytend-
ur.“
Benedikt Höskuldsson, markaðs-
stjóri matvæla hjá Útflutningsráði
íslands, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að sýningardagana væri
ákveðið að efna til „sjávarrétta-
veizlu", „Iceland Seafood Festival".
Veizlan verður dag hvem á um 10
hótelum og veitingastöðum og er
ætlunin að ná þannig til erlendra
sýningargesta auk okkar sjálfra.
„Við erum þekkt fyrir góðar,
ferskar sjávarafurðir, en ekki fyrir
matreiðslu þeirra. Með þessu von-
umst við að geta aukið áhuga
íslenzkra matreiðslu manna og al-
mennings á þéim möguleikum, sem
fiskmetið býryfir," sagði Benedikt.
Sýningin verður í Laugardags-
höll dagana 6. til 15. maí næstkom-
andi.
Morgunblaðið/Sverrir
Tæplega 3.300 undirskriftir
Tæplega 3.300 eða 76% þeirra íbúa, sem greiða.
mega atkvæði í Árbæjar- og Seláshverfi, skrif-
uðu undir mótmæli gegn staðsetningu sorp-
böggunarstöðvar í Hádegismóum ofan við hverf-
ið. Benedikt Bogason, formaður stjómar Fram-
farafélags Seláss- og Árbæjarhverfís, afhenti í
gær Davíð Oddssyni, borgarstjóra, undirskrift-
imar. Auk Benedikts voru viðstaddir þeir Guðni
F. Gunnarsson, Róbert Jónsson, Jóhann Hólm
og Gísli Karel Halldórsson.
Eyjólfíir Konráð Jónsson:
Sýnum varkámi í samskipt-
um við Evrópubandalagið
EVRÓPUNEFND Alþingis er nýkomin úr ferð til Bruxelles og Genfar
þar sem rætt var við ýmsa ráðamenn Evrópubandalagsins og EFTA.
Eyjólfúr Konráð Jónsson, alþingismaður og varaformaður nefndarinn-
ar, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann teldi mikilvægt að íslend-
ingar sýndu varkárni í samskiptum við EB til dæmis hvað varðaði stór-
orðar yfirlýsingar um að EB vildi veiðiheimildir. Slflct væri ekki á dag-
skrá hjá bandalaginu og gætu yfirlýsingar af þessu tagi haft afdrifarík-
ar afleiðingar f för með sér.
Eýjólfur Konráð sagði að þetta
hefði verið mjög nytsamleg ferð og
nefndarmenn orðið margs vísari þó
þeir hefðu ekki haft aðgang að helstu
ráðamönnum í Evrópusamstarfinu á
sama hátt og í ferð utanríkisnefndar
til Strasbourg og Bruxelles í septem-
ber 1987. Taldi hann að nefndin
hefði unnið vel en hver árangurinn
yrði kæmi í ljós þegar nefndin birti
skýrslu sína. „Ég er sannfærður
um það eftir þessa ferð að það sé
ekki önnur leið út úr efnahagsöng-
þveitinu hér en að aflétta öllum höft-
um á fjármagns- og gjaldeyrisvið-
skiptum. Nefndin hefur ekki enn tek-
ið afstöðu til þessa en þetta er mfn
persónulega skoðun og nokkurra
annarra nefndarmanna," sagði Ey-
jólfur Konráð. „Þar með er ekki sagt
að útlendingar geti komið hér inn í
landið og keypt hvaða fyrirtæki sem
er. Það eru í gildi ýmis lög í landinu
sem koma í veg fyrir það og við
getum með ýmsum aðferðum séð til
þess að undirstöðuatvinnuvegimir,
landréttindi og landhelgi verði áfram
í höndum íslendinga," sagði Eyjólfur
Konráð. Hann sagði að þróunin í
heiminum nú' væri í átt að nokkurs
konar alheimsopnun ijármagns-
markaðarins.
Ejg'ólfur Konráð lagði líka áherslu
á að Islendingar færu með gát í sam-
skiptum við bandalagið. Sá embætt-
ismaður innan EB sem hefði með
ísland að gera sagðist hafa heyrt
orðróm þess efnis að íslendingar
vildu versla með vamir og fiskveiði-
réttindi. Kvaðst embættismaðurinn
vera furðu lostinn yfír þessu - þetta
væri ekkert til umræðu innan EB.
Eyjólfur Konráð sagði að hann hefði
aldrei heyrt nokkum mann minnast
á það innan Evrópubandalagsins að
krefjast ætti veiðiheimilda f fslenskri
efnahagslögsögu. Þvert á móti viður-
kenndu menn rétt íslands til físki-
miðanna. Það eina sem EB færi fram
á væru tvíhliða viðræður um sam-
skipti íslands og EB. Það ætti að
hans mati að forðast allar umræður
af þessu tagi, við ættum ekki að
kalla yfir okkur kröfugerð af hálfu
EB. Svo virtist líka sem von væri á
því að fríverslun með fisk yrði loks
samþykkt innan EFTA. Svíar væru
að mýkjast í afstöðu sinni og Finnar
yrðu áreiðanlega að bakka líka. Þetta
yrði mjög mikilvægur áfangi fyrir
Islendinga þegar kæmi að viðræðum
EFTA við EB.
Kjartan Jóhannsson:
EB snýst wn fleira en fisk
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
HEIMSÓKN nefiidar Alþingis um stefiiu íslands gagnvart EB til höfúð-
stöðva Evrópubandalagsins í Brussel lauk á mánudag. Nefiidin átti við-
ræður við starfsmenn íslenska sendiráðsins, við EB og hlýddi á fyrir-
lestra um helstu viðfangsefiii bandalagsins.
Kjartan Jóhannsson, formaður
neftidarinnar, sagði að ekki hefði
þótt ástæða til að ræða sérstaklega
við fulltrúa úr fískimáladeild EB f
þetta sinn. Utanríkismálanefnd Al-
þingis hefði átt ítarlegar viðræður
við fulltrúa þaðan haustið 1987 þeg-
ar nefndin heimsótti stofnanir banda-
lagsins. „Ev’ópubandalagið snýst um
fleira en fisk,“ sagði Kjartan. „Til-
gangur þessarar ferðar var að kynn-
ast starfsemi þess og fá yfirsýn yfir
viðfangsefni bandalagsins. Það tókst
bærilega."
Kjartan sagði að það væri ljóst
að til mikils væri að vinna með sam-
starfi við EB á flestum sviðum. Að
því yrði að vinna, annars vegar í
gegnum aðildina að EFTA og hins í
vegar með beinum viðræðum við
bandalagið.