Morgunblaðið - 18.02.1989, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
41. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 18. PEBRÚAR 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Afganistan:
Risaveldin reyni að
stöðva blóðbaðið
- segir í bréfi Gorbatsjovs til Bandarílgaforseta
Moskvu, Kabúl, Waahington. Reuter.
MÍKHAIL S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefur sent George Bush Banda-
rikjaforseta bréf þar sem hann hvetur til þess að risaveldin tvö samein-
ist um að binda enda á blóðbaðið i Afganistan. Aðstoðarutanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Alexander Bessmertnykh, skýrði fréttamönnum
frá orðsendingu Gorbatsjovs á fundi i Moskvu í gær.
í bréfí Gorbatsjovs segir að Sovét-
stjómin telji að risaveldin geti í sam-
vinnu við önnur erlend ríki beitt sér
fyrir friðsamlegri lausn deilumála í
Afganistan. Sovétleiðtoginn leggur
til að risaveldin hvetji til vopnahlés
í átökum stjómarhersins og afgan-
skra skæruliða og skuldbindi sig til
að hlutast ekki um málefni afgönsku
Miklar vin-
sældir Banda-
ríkjaforseta
þjóðarinnar þannig að unnt verði að
mynda nýja stjóm í landinu. Að sögn
aðstoðarutanríkisráðherrans hefur
ákalli i þessa vem einnig verið kom-
ið á framfæri við stjómvöld á Bret-
landi og Ítalíu og í FVakklandi og
Vestur-Þýskalandi.
Bessmertnykh sagði að „nokkrir"
sovéskir hemaðarráðgjafar væru enn
í Kabúl en kvað þá ekki vera á
vigstöðvunum. Aðstoðarráðherrann
sagði sovésk stjómvöld líta svo á að
„ýmislegt jákvætt" væri að fínna í
yfírlýsingu Bandarílqaforseta frá þvi
á fimmtudagskvöld en þá kvaðst
hann telja ótímabært að stöðva her-
gagnasendingar til skæruliða.
Reuter
Um 1.000 heittrúaðir múhameðstrúarmenn söfnuðust saman í Dhaka í Bangladesh i gær og hvöttu tíl
þess að indverski rithöfundurinn Salman Rushdie, sem býr á Bretlandi, yrði tekinn af lífi með heng-
ingu vegna bókarinnar „Söngvar Satans".
WaBhington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti nýtur mikilla vinsælda í upp-
hafi valdaferils síns ef marka
má niðurstöður skoðanakönnun-
ar bandarísku sjónvarpsstöðvar-
inna ABC og dagblaðsins Wash-
ington Post.
Frá lokum síðari heimsstyrjaldar-
innar hafa aðeins tveir forsetar,
þeir Harry Tmman og Lyndon
Johnson, notið meiri vinsælda en
Bush en 76 prósent aðspurðra kváð-
ust vera sátt við framgöngu forset-
ans frá því hann sór embættiseiðinn
þann 20. fyrra mánaðar. í sams
konar könnun árið 1981 sögðust
68 prósent ánægð með frammistöðu
Ronalds Reagans og Johns F.
Kenndys naut fylgis 72 prósenta
þjóðarinnar við upphaf forsetaferils
síns.
Könnunin var gerð í síðustu viku.
1.512 karlar og konur þátt í henni
og vom skekkjumörk sögð vera
þijú prósent.
hvatti í gær mdverska nthöfúnd-
inn Salman Rushdie til að biðja
múhameðstrúarmenn um heim all-
an afsökunar vegna skáldsögu
hans, „Söngvar Satans“ sem vakið
hefur hamslausa heift i brjóstum
öfgafúllra múslima vfða um heim.
Sagði forsetinn „hugsanlegt" að
þá myndu fylgismenn Múhameðs
spámanns „náða" Rushdie en fjór-
ar milljónir Bandarfkjadala (200
milljónir ísl. kr.) hafa verið settar
til höfúðs honum.
Öfgamenn í íran hafa dæmt Salm-
an Rushdie til dauða vegna bókarinn-
ar sem þeir leggja að jöfnu við guð-
last. Ummæli Khameinis í gær þóttu
gefa til kynna að ráðamenn vildu
sefa reiðina sem bókin hefur orsakað
þar eð hamfarir öfgafullra múha-
meðstrúarmanna, sem fylgja Aya-
tollah Khomeini, trúarleiðtoga írana
að málum, hafa spillt fyrir samskipt-
um írana og vestrænna ríkja en þau
hafa stjómvöld í íran reynt að bæta
að undanfömu.
Ríkisstjómir fjölmargra vest-
rænna ríkja hafa fordæmt dauða-
dóminn og hótanir íranskra ráða-
manna en Bretar hyggjast að auki
beita sér fyrir því að öll 12 aðild-
arríki Evrópubandalagsins sendi
írönum mótmæli í sameiningu. Fran-
skir bókaútgefendur hvöttu í gær
Alþjóðasamtök útgefenda (IPA) til
að bregðast hart við mótmælunum,
sem sögð voru „afturhvarf til villi-
mennsku". Evrópuþingið hefur þegar
fordæmt dauðadóminn, sem Khom-
eini erkiklerkur kvað upp og hótað
refsiaðgerðum verði reynt að ráða
Rushdie af dögum. Hann fer nú
huldu höfði á Bretlandi og nýtur
öflugrar lögregluvemdar.
Lögreglumenn í borginni Srinagar
á Indlandi beittu í gær skotvopnum
gegn trylltum múg sem safnaðist
saman til að fordæma rithöfundinn
og verk hans og um 1.000 múham-
eðstrúarmenn kröfðust þess í Dhaka,
höfuðborg Bangladesh, að Rushdie
yrði tekinn af lífi. Hermenn vopnaðir
vélbyssum héldu uppi gæslu á götum
Karachi í Pakistan.
Bandaríska dagblaðið The New
York Times skýrði frá því í gær að
forráðamenn stórrar keðju bóka-
verslana, „Waldenbooks", hefðu af-
ráðið að hætta sölu bókarinnar af
ótta við hefndir öfgamanna og
ákveðið hefur verið að loka skrifstofu
„Penguin“-útgáfufyrirtækisins í
Grikklandi. Talsmaður danska út-
gáfufyrirtækisins „Samlerens Forlag
A/S“ sagði að fyrirtækið hefði
ákveðið að gefa bókina út í danskrí
þýðingu. Yfírvöld í Kanada ákváðu
í gær að stöðva innflutning bókarinn-
ar til að unnt væri að skera úr um
hvort í henni sé að fínna „haturs-
fullan áróður" en samkvæmt lögum
þar í landi geta stjómvöld bannað
sölu og dreifingu slíkra bókmennta.
Pressens Bild
Hlutar selamyndarinnar falsaðir
Svíar halda uppteknum hætti og saka Norðmenn um hrottaskap við
selveiðar og brot á alþjóðasamningum varðandi þær. Að sögn NTB,
norsku fréttastofúnnar, hefúr komið í ljós að hlutar selamyndarinn-
ar, sem hratt málinu af stað, eru ekki af norskum veiðimönnum
heldur teknir fyrir mörgum árum við Nýfúndnaland. Ekki sé þó
rétt að kalla myndina í heild sinni fölsun. A myndinni sjást fyrirsagn-
ir í blöðum frændþjóðanna.
Sjá einnig bls. 22: „Sviakonungur sakaður..."
Gorbatsjov ræðir um
framtíð sína og völd
Moskvu. Reuter.
MÍKHAlL Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, gerði vangaveltur á
Vesturlöndum um að hann yrði ekki langlífúr i embætti að umtals-
efni i ræðu sem hann flutti á fúndi með verkamönnum á fimmtudag.
í máli hans kom einnig fram að allt tal um að koma á fiölflokka-
kerfi væri „þvættingur" og kvað hann nauðsynlegt að sýna fúlla
hörku þeim sem hefðu uppi kröfúr um aðskilnað frá Sovétríkjunum.
í ræðunni sagði Gorbatsjov:
„Hlýði menn á vestrænar útvarps-
stöðvar — þær eru ekki lengur
truflaðar — þá heyrast sumir segja
að Gorbatsjov muni tæpast halda
völdum lengur en í eitt ár.“ Kvað
hann málið ekki snúast um þetta
heldur um umbæturnar, sem lands-
menn allir, ekki hann einn, vildu
koma á.
Verkamaður frá Litháen sagði á
fundinum, að alls kyns samtök þar
í landi væru farin að gera starfsemi
kommúnistaflokksins erfítt fyrir og
krefðust meðal annars fjölflokka-
kerfis og aðskilnaðar frá Sovétríkj-
unum. Gorbatsjov sagði, að allt
slíkt tal væri út í hött:
„Fjölflokkakerfi, tveir flokkar,
þrír flokkar eða fleiri, þetta er
þvættingur. Kommúnistaflokkur-
inn á bjarta framtíð fyrir sér, hann
hefur sannað sig í verki," sagði
Gorbatsjov.
Mótmæli heittrúaðra múhameðstrúarmanna vegna bókarinnar Söngvar Satans:
Höfundurinn heldur ef til
vill lífi játi hann villu sína
- segir forseti Irans en 200 milljónir króna hafa verið settar til höfuðs Salman Rushdie
Nikósíu, Srinagar á Indlandi, Brussel, Islamabad, Dhaka, New York, Kaupmannahöfn, Ottawa. Reuter.
FORSETI írans, Ali Khameini,