Morgunblaðið - 18.02.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ1 LAUGARDAG'UR 18. FEBRÚÁR 1989
lega í Laxá og í Skjálfandafljótið.
Svo fer það illa í fólk að tala um
hemað í þessu sambandi, æfínga-
flug hervéla. Ég held að fólk hér í
sveitinni sé upp til hópa á móti
þessu. Svona flugvallargerð fylgir
geysilega mikið jarðrask og ég sé
ekki hvar á að taka efnið í völl-
inn,“ sagði Vigfús. Hann bjóst við
að landeigendafélagið legðist gegn
framkvæmdinni, en taldi ekki að
andstaða yrði í sveitinni við stækk-
un núverandi flugvallar.
Hjördfs Ámadóttir forseti bæjar-
stjómar á Húsavík segir það vera
langbesta kostinn að hafa varaflug-
völl við Húsavík. Hins vegar hafí
ekki verið tekin afstaða í bæjar-
stjóminni til alþjóðlegs varaflug-
vallar. Hún segist halda að fólk þar
sé almennt hlynnt framkvæmdinni
aðrir en Alþýðubandalagsmenn.
Húsvíkingar horfa til þess að físk-
eldi fer vaxandi í nágrenninu og
möguleikar skapist til að flytja físk-
inn með flugvélum, hóteliými er
fyrir á staðnum og landsvæðið í
kring er eftirsótt af ferðamönnum.
„Furðuleg umræða“
„Öll þessi umræða um varaflug-
velli er hin furðulegasta," segir
Akureyringur, gjörkunnugur flug-
málum nyrðra. „Akureyrarflugvöll-
ur hefur verið varaflugvöllur fyrir
innlenda millilandaflugið, minni
þotumar, undanfarin ár nema þeg-
ar fsing hefur verið á brautinni.
Nú er stutt í að allur millilandaflug-
floti íslendinga verði minni þotur
og þá er ekkert mál að Akureyrar-
völlur verði varaflugvöllur. Þar er
þegar mikil umferð og af þeim sök-
um einum er hann betri kostur en
bæði Egilsstaðir og Sauðárkrókur.
Þar er starfsemi alla daga og ekki
þarf miklu að bæta við til að starf-
semi geti verið allan sólarhringinn.“
Vara- flugvellir Varaflugvöllur fyrir Innlent millilandaflug Varaflugvöllur fyrir alþjóðlegt millilandaflug, hernaðarflug og innlent millilandaflug
Flugvélar B-727, B-737, B-757 DC-9, B-767 B-747, DC-8, D.C-10 Stærstu herflugvélar
Flugbrautir lengd x breidd 2.400 x 45m 3.000 x 60m
Staðirsem mælt hefurverið með Akureyri, Egilsstaðir Húsavík, Sauðárkrókur Húsavík, Sauðárkrókur til vara
Stærð flug- vallarsvæðis 1.838 km2 3.720 km2
Nauðsynlegar framkvæmdir Lenging flugbrautar, flugleiðsögubúnaðar, snjóruðningstæki, slökkvi- og björgunartæki Lagning flugbrautar, lagning akstursbrautar, bygging flugskýlis, bygging flugstöðvar og flugturns, bygging skýlis fyrir vélarog tæki, bygging eldsneytisgeymslu neðan- jarðar. Fullkomin flug- leiðsögutæki, fullkomin slökkvi- og björgunar- búnaður, fullkominn snjóruðningsbúnaður.
Áætlaður kostnaður Stofnkostnaður Reksturáári (Miðaðervið Egilsstaði) 300-350 millj. kr. 11.000 millj. kr. 100 millj. kr.
Stofnkostnað greiðir: Islendingar Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandal.
Áætlaður mannafli fastráðinna Óbreytt (+ 1 til 2) U.þ.b. 10
Melrakkaslétta best
Þessi sami Akureyringur er undr-
andi á umræðum um alþjóðlegan
völl f Aðaldal. „Það er eitt viðkvæm-
asta svæði landsins og kemur næst
Mývatnssveitinni að því leyti. Svona
flugvöll þarf alls ekki að hafa ná-
lægt byggð og þess vegna á að
hafa hann norður á Melrakkasléttu.
Þar eru engin fjöll og nóg rými,
landið er ekki viðkvæmt og frá sjón-
armiði flugihanna er Sléttan hag-
stæðust því að þar er eini staðurinn
sem getur rúmað tvær flugbrautir
ef menn vilja, aðalflugbraut og aðra
þvert á hana. Menn eiga að hætta
þessum feluleik og kalla hlutina
réttu nafni. Leyfa Atlantshafs-
bandalaginu að byggja varaflugvöll
á Melrakkasléttu og ganga tryggi-
lega frá því að hann verði ekki
aðeins byggður, heldur að hann
verði líka í rekstri.“
Tvíátta umræða
Augljóslega er um tvö aðskilin
mál að ræða í þessari umræðu.
Varaflugvöll fyrir umferð innlendra
millilandaflugvéla sem verða fljót-
lega eingöngu tveggja eða þriggja
hreyfla þotur og þurfa styttri flug-
brautir. Hins vegar alþjóðlegan
varaflugvöll fyrir alla flugumferð,
þar á meðal stærstu flugvélar sem
þurfa lengri flugbrautir.
Spyija má hvort þurfi marga
varaflugvelli. Ef til vill er það nauð-
synlegt vegna veðurskilyrða til að
tryggja að fært sé á að minnsta
kosti einn völl þegar veður eru eins
og undanfarið hafa gengið yfír
landið. Það virðist vera ljóst, að
almennt eru heimamenn í héraði
áfjáðir í að flugvellir þeirra verði
bættir þannig að þeir geti þjónað
sem varaflugvellir fyrir þotur. Slíkt
bætir samgöngur þeirra og gefur
þeim aukna möguleika í ferðaþjón-
ustu og flutningum. Fjórir staðir
koma til greina. Á fjórða hundrað
milljóna króna kostar að fullgera
Egilsstaðaflugvöll í 2.400 metra
lengd. Nægja ekki tveir flugvellir,
Akureyri og Egilsstaðir? Verða
„bygðasjónarmið" ef til vill til þess
að norðanlands verða fullgerðir
§órir varaflugvellir?
Fjöldi breiðþotna fer um íslenska
flugstjómarsvæðið á degi hveijum.
Bæði farþega- og flutningaflugvél-
ar. Hvar eiga þær að lenda ef neyð
kallar og lokað er í Keflavík? Hvað
á flugstjóri Júmbóþotu að gera þeg-
ar hann er staddur við ísland með
fulla vél af farþegum og tilkynning
berst um sprengju í vélinni? Ef lok-
að er í Keflavík er fátt um fína
drætti, þá verður flugstjórinn að
spyija sjálfan sig hvar skást sé að
renna fram af flugbraut og varla
velur hann þá Aðaldalshraun?
Jón Baldvin hefur alfarið hafnað
þeirri túlkun að alþjóðlegi varaflug-
völlurinn, kostaður af Mannvirkja-
sjóðnum verði hemaðarmannvirki.
Henn hefur bent á að á stríðstímum
sé ekki um marga kosti að velja
fyrir íslendinga. Verði bandamenn
okkar á landinu yrði samið um af-
not af vellinum. Verði innrásarlið í
landinu þurfum við ekki að vænta
þess að samninga verði leitað um
flugvöllinn fremur en önnur mann-
virki. Á það má benda hér að til
dæmis Austurbæjarskólinn í
Reykjavík og Þjóðleikhúsið eru
fyirverandi hemaðarmannvirki og
voru íslendingar ekki spurðir um
þau afnot.
íslendingar bera mikla ábyrgð
með því að hafna gerð alþjóðlegs
varaflugvallar hér á landi. Sú
ábyrgð er þyngri en ella ef kreddur
ráða afstöðunni. Er Jón Baldvin
reiðubúinn til þess að láta bijóta á
málinu í ríkisstjóminni? Hvort veg-
ur hann þyngra andstöðu Alþýðu-
bandalagsins eða öryggi auk at-
vinnuhagsmuna á landsbyggðinni?
Og, ætlar Alþýðubandalagið að
standa svo fast gegn varaflugvellin-
um að stjómarslit verði ef Jón Bald-
vin bakkar ekki í málinu?
En, fyrsta skrefið er að kanna
staðsetningu og gerð vallarins, þeg-
ar það hefur verið gert er hægt að
taka afstöðu. Grænlendingar með
Dani sér við hlið hafa þegar sam-
þykkt forkönnun og vilja fá flugvöll-
inn. Ætla íslendingar að hafna
honum að óathuguðu máli?
OPIÐ HÚS UMHELGINA
i
i
Nú er öU þjónusta Bílaumboðsins
á einum stað.
Jtilefni fonnlegrar opnunæ-
Bílauniboðsins hf. að Krókhálsi 1
í Reykjavík, er þér og fjölskyldu
þinni boðið í heimsókn til að skoða
bæði BMW og Renault bifreiðar, nýja
þjónustuverkstæðið, nýju varahlutaversl-
unina og auðvitað aðstöðu söludeildar.
Veiið velkomin um helgina.
Opið laugardag og sunnudag frá kl.
13—17.
Bílaumboðið hf
Einkaumboð fyrir BMW og Renault bifreiðar
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633.