Morgunblaðið - 18.02.1989, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1989
Fr ímerkj asýningar
og íslenzkir safnarar
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
Nokkrir íslenzkir frímerkjasafnar-
ar taka þátt í sýningum hér heima
og erlendis á þessu ári. Er ánægju-
legt til þess að vita, að þeim flölgar
smám saman, sem verða gjaldgengir
á þessum vettvangi. Eins og áður
er samt vissulega við ramman reip
að draga, þegar erlendir stórsafnarar
'eiga í hlut, en allt þokast samt í
rétta átt hjá okkur. Hins vegar tekur
það alllangan tíma og kostar flár-
muni að koma sér upp söfnum, sem
fullnægja þeim kröfum, sem gerðar
eru til sýningarhæfs efnis, a.m.k. á
alþjóðasýningum. En hafi safn einu
sinni hlotið ákveðin verðlaun á lands-
sýningu, er ekkert því til fyrirstöðu
að senda það áfram á næstu sýn-
ingu, þrepi ofar, í von um enn betri
árangur þar. Þetta er það, sem
íslenzkir safnarar vita, og því hafa
margir þeirra lagt mikla alúð við að
bæta söfn sín og auka við þau, svo
að þau verði að lokum gjaldgeng á
alþjóðavettvangi frímerkjasafnara.
Aður en kemur að erlendum sýn-
ingum, veráur haldin landssýning hér
I Reykjavík í apríl nk. á vegum
Klúbbs Skandinavíusafnara, ÍSFÍL
89. Er hún haldin um sama leyti og
landsþing LÍF fer fram. Ekki hef ég
enn haft svo nánar spumir af þess-
ari sýningu, að ég geti frætt lesend-
ur um hana í þessum þætti. Vafa-
laust sendir sýningamefndin brátt
út tilkynningu um hana, enda er
ekki langur timi til stefnu.
Norðmenn halda næstu norrænu
frímerkjasýninguna í Fredrikstad
dagana 7.-11. júní nk., NORDIU
1989. Umboðsmaður íslands er Sig-
urður H. Þorsteinsson. Hann greindi
frá þessari sýningu hér í Mbl. 31.
jan. sl., svo að hér má því fara fljótt
yfir sögu. Engu að síður vil ég líka
vekja athygli á sýningunni í þessum
þætti. í heiðursdeild mun Þjóðskjala-
safn íslands sýna íslenzk bréf frá
1870-1900. í deild dómara verður
safn danskra frímerkja og umslaga
frá 1870-1905. í samkeppnisdeild
verða svo gamalkunn söfn, sem
margir hafa séð og áður hefur verið
rætt allrækilega um í þessum þátt-
um. Hálfdan Helgason sýnir þar
íslenzka bréfspjaldasafn sitt, Sigurð-
ur P. Gestsson Pósthomsfrímerkin
EtTlfíi - breska ferðamálaráðið stendur fyrir stórskemmtilegri Bretlandskynningu á
söluskrifstofu Flugleiða í Kringlunni, laugardaginn 18. febrúar nk. Fulltrúar þeirra
verða á staðnum, ásamt starfsfólki söluskrifstofu Flugleiða, til skrafs og ráðagerða um
ótrúlega fjölbreytta ferðamöguleika innan Bretlands.
Með því að fylla út seðilinn hér fyrir neðan og taka hann með ykkur til okkar í
Kringluna eruð þið orðnir þátttakendur í sérstöku ferðahappdrætti sem BTA efnir til
í tengslum við Bretlandskynningunna.
1. vinningur: Tveggja vikna enskunámskeið á Pitman School í London.
2. vinningur: Helgarferð fyrir tvo til London með gistingu á Cumberland Hótel.
3. vinningur: Helgarferð fyrir tvo til London með gistingu á Clifton Ford Hótel.
4. vinningur: Helgarferð fýrir tvo til Glasgow með gistingu á Swallow Hótel.
Notið tækifærið til þess að fræðast um Bretland - frá fyrstu hendi.
Hittumst í Kringlunni laugardaginn 18. febrúar milli kl. 10 og 16.
flBUf FLUOLEIDIR
BRESKA FERÐAMALARAÐIÐ
Vinsamlegast sendið mér nánari upplýsingar um ferðamöguleika innan Bretlands.
Nafn:________________________________________________________:__________________
Heimilisfang: _______________________________________________ Sími: ____________
norsku, Hjalti Jóhannesson póstst-
implasafn sitt, Óli Kristinsson íslenzk
frímerki og umslög frá 1902-1940
og Páll H. Ásgeirsson flugsögusafn
sitt frá 1928-1945. Þá sýnir Þór
Þorsteins bókina Pósthús og bréf-
hirðingar á íslandi. Umboðsmaður-
inn sýnir einnig ýmis ritverk sín og
má þar m. a. nefiia íslenzk frímerki
1989 og kennslubók um frímerkja-
söfnum.
Unglingastarf á vegum LÍF
í þætti 14. jan. sl. var því lofað,
að rætt yrði nokkuð um unglinga-
starf meðal frímerkjasafnara hér á
landi. Ég hafði samband við Guðna
F. Gunnarsson, sem hefur þetta
starf á hendi fyrir Landssamband
íslenzkra frímerkjasafnara. Það,
sem hér fer á eftir, er að megin-
stofni til frásögn hans. Hann segist
hafa séð ánægjulega breytingu í
starfí meðal unglinga. Þar telur
hann hafa skipt miklu, þegar stjóm
Félags frímerkjasafnara felldi niður
aldurslágmark fyrir inngöngu í fé-
lagið fyrir fáum ámm. í kjölfar
þess jókst þátttaka bama og ungl-
inga í félagsstarfinu. Þessir ungu
safnarar em flestir á aldrinum. 10
til 15 ára. Félagið hefur svo gengizt
fyrir námskeiðum í frímerkjasöfnun
fyrir þessa unglinga.
Jafnframt þessu hafa samtök
frímerkjasafnara hér á höfuðborg-
arsvæðinu í samráði við þá, sem
annast tómstundastarf í gmnnskól-
um borgarinnar, gengizt fyrir
fræðslu um frímerkjasöfnum í þeim.
Er þar um að ræða Árbæjarskóla
og Ölduselsskóla . Þá er fyrir-
hugað, að fleiri skólar taki þátt í
þessu starfi. í sambandi við þetta
starf meðal unglinga hefur verið
vemlegur fengur í kennsluefni frá
Svíþjóð, sem hefur verið þýtt á
íslenzku og staðfært eftir þörfum
okkar.
Um leið og unglingastarf hefur
aukizt til muna hér á landi, hefur
ísland gengið til samstarfs með
öðmm Norðurlöndum. Stofnað hef-
ur verið samband ungra safnara á
Norðurlöndum, sem skammstafað
er SNU. Við tókum fyrst þátt í slíku
samstarfi, þe gar spumingakeppni
unglinga um Alfreð Nóbel fór fram
á alheimssýningunni STOCK-
HOLMIA 86. Næst fór svo fram
keppni meðal unglinga á FIN-
LANDIU 88. Frá hinni frækilegu
frammistöðu íslenzku unglinganna
hefur áður verið greint í þessum
frímerkja þáttum.
Þar sem mjög góð reynsla hefur
fengizt af þessari spumingakeppni
unglinga um ákveðin viðfangsefni
innan frímerlq'asöfhunar, hefur ver-
ið ákveðið að reyna að halda slíka
keppni árlega. Verður næsta keppni
í Jönköping í Svíþjóð á þessu ári.
Þá er stefnt að því að halda árlega
unglingasýningu í einhveiju Norð-
urlandanna. Verður hún í Svíþjóð á
þessu ári, í Noregi 1990 (í Ósló)
og þannig áfram. Eins verður reynt
að auka kynni meðal bama og ungl-
inga með hópferðum á slíkar sýn-
ingar. Þá er á döfinni að reyna
frímerkjaskipti milli unglinga á
Norðurlöndum. Eins er gert ráð
fyrir því að halda sérstök námskeið
fyrir þá, sem tekið hafa að sér leið-
beiningarstarf meðal unglinga.
Af framansögðu sést, að mark-
visst er stefnt að því að auka bæði
fræðslu um frímerki og frímerkja-
söfnun meðal unglinga hérlendis
og svo líka að auka tengslin við
unglinga á öðram Norðurlöndum.
Þetta allt er mjög lofsvert og í reynd
nauðsynlegt, því að oft hefur verið
um það rætt meðal frímerkjasafn-
ara, að áhugi unglinga sé ekki
nægjanlega mikill á þessari hollu
og oft mjög skemmtilegu tóm-
stundaiðju.
iH T* !l
'kvenna * * %