Morgunblaðið - 02.03.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.03.1989, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstofiarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. Uppgnöf Akvörðun um nýtt físk- verð, sem tekin var í fyrradag sýnir, að ríkis- stjómin hefur gefízt upp við að stjóma landinu. Fiskverð hefur verið hækkað um 9,25%. Hvemig má það vera? Mánuðum saman hafa tals- menn fískvinnslunnar lýst hörmulegri fjárhagsstöðu fískvinnslustöðvanna. Fullyrt er, að á sl. ári hafí helmingur af eigin fé sjávarútvegsins bmnnið upp. Hver frysti- húsaforstjórinn á fætur öðr- um hefur gengið fram fyrir skjöldu og lýst gífurlegum taprekstri fískvinnslunnar. Hvemig má það vera, að físk- vinnslan semji við þessar að- stæður um hækkun físk- verðs? Talsmenn fiskvinnsl- unnar verða að gera grein fyrir því. Vera má, að skýringin á afstöðu þeirra felist í „að- gerðum“ ríkisstjómarinnar í tengslum við fískverðs- ákvörðun. Hveijar eru þessar „aðgerðir"? í fyrsta lagi er haldið áfram að fella gengið. Segja má, að þetta sé fjórða gengislækkunin á fímm mán- uðum frá því að núverandi ríkisstjóm tók við völdum. Bersýnilegt er, að stjómin stefnir að því að taka upp þá stjómarhætti, sem tíðkuð- ust fyrr á árum og byggðust á nánast stöðugu gengissigi. Endapúnktur þess var 130% verðbólga vorið 1983. Ætlar Steingrímur Hermannsson að skilja þannig við? í öðru lagi er haldið áfram að bæta við uppbótarkerfið. Sl. haust var ákveðið að taka upp verðbætur úr tómum verðjöfnunarsjóði. Þá var tekið til þess erlent lán að greiða fískvinnslustöðvum uppbætur á verð! Nú er tekið upp nýtt fyrirkomulag. Nú á að greiða verðbætur í formi endurgreiðslu á söluskatti! Það kostar 100 milljónir til mafloka. Hvaðan koma þeir peningar? Erlent lán?! Ef þessum greiðslum verður haldið áfram út árið kostar það 600-700 milljónir til við- bótar. Hvaðan koma þeir peningar? Með hallarekstri ríkissjóðs? Ef ríkisstjómin fellir þessar greiðslur hins vegar niður í maflok þarf hún að fella gengið um 7% til þess að fiskvinnslan standi í sömu sporum og er hún þó samt rekin með tapi! Þeir sem láta sér til hugar koma, að hægt sé að stjóma landinu og atvinnumálunum með þessum hætti eru búnir að gefast upp. Það liggur í augum uppi, að launþegar munu líta á þessa fískverðs- hækkun sem fordæmi fyrir launahækkunum. Hvemig ætlar ríkisstjómin að rökstyðja að svo sé ekki? Fyrir tæpum mánuði lýsti ríkisstjómin því yfír, að hún ætlaði að lækka vexti með handafli. Það gengur ekki betur en svo, að vextir hafa hækkað stöðugt síðan og ekki síður hjá ríkisbönkum heldur en öðmm. Það stendur ekki steinn yfír steini í efna- hagsaðgerðum þessarar ríkisstjómar. Nánast allt, sem hún gerir, er tómt kák. Ef stjómarflokkamir geta ekki komið sér saman um efnahagsstefnu, sem ber ein- hver einkenni heilbrigðrar skynsemi, eiga þeir að horf- ast í augu við það, viður- kenna það og ijúfa þing og efna til kosninga. Það er of dýrt spaug fyrir þessa þjóð að búa við svona stjómarfar í nokkur misseri í viðbót. Við höfum reynslu af svona ráðs- lagi. Það hefur alltaf endað með hörmungum. Ríkisstjómin hefur ekki starfhæfan meirihluta á Al- þingi. Tilraunir hennar til þess að fá Borgaraflokkinn inn í ríkisstjóm fóru út um þúfur. Það er erfítt að skilja hvað vakir fyrir þeim þing- mönnum, sem ljá máls á því að veita stjóm, sem bersýni- lega veit ekki sitt ijúkandi ráð, liðsinni. Fiskverðs- ákvörðunin nú, sem er ger- samlega út í hött sýnir, að það fer bezt á því að stokka upp spilin og efna til þess pólitíska uppgjörs, sem aug- ljóslega er forsenda fyrir því, að einhver þingmeirihluti nái tökum á landsstjóminni. / Fyrsti dag'ur bjórsins Um 340.000 bjórdósir seldar á bjórdeginum Löwenbráu og Egils Gull vinsælastir LÁTA mun nærri að um 340.000 dósir af bjór hafi verið seldar úr verslunum ATVR í gærdag er bjórsala var leyfð í fyrsta sinn síðan árið 1915. Á höfúðborgarsvæðinu voru seldar 213.000 dósir af bjór. í samtölum Morgunblaðsins við verslunarstjóra ÁTVR kom fram að teg- undirnar Löwenbrau og Egils Gull voru vinsælastar. Budweiser seldist upp en mjög lítið magn af honum kom til landsins fyrir bjórdaginn eða einn gámur. stjóri í hinni nýju vínbúð upp á Stuðlahálsi segir einnig að frá því að þeir opnuðu kl. 10 í gærmorgun hafí verið stöðug og mikil umferð fólks í búðina allan daginn. Erling Ólafsson verslunarstjóri á Snorrabraut segir að Löwenbráu og Egils Gull hafi verið mest seldu teg- undimar fyrsta daginn og tóku allir aðrir verslunarsljórar undir það. Þessi samanburður er þó villandi að því leyti að lítið magn af Budweiser var til og seldist hann upp. Kaiser var aðeins til á flöskum og því ein- göngu seldur á veitingahúsum og Tuborg kom ekki í verslunina á Stuðlahálsi fyrr en síðdegis. A Akureyri höfðu starfsmenn San- itas vart undan að flytja bjórinn í verslun ATVR, en Haukur Torfason Af einstökum verslunum var salan mest í vínbúð ÁTVR í Kringlunni eða um 46.000 dósir. Salan var svipuð á Snorrabraut og Lindargötu, rúmlega 38.000 dósir á Snorrabraut en tæp: lega 38.000 dósir á Lindargötu. í Mjóddinni var salan tæplega 27.000 dósir og í hinni nýju búð upp á Stuðlahálsi var salan 35.000 dósir. í Hafnarfirði var salan tæplega 29.000 dósir. Samtals gerir þetta 213.000 dósir. Sævar Skaftason verslunarstjóri í Kringlunni segir að örtröð hafi verið fyrir utan búðina er þeir opnuðu í gærmorgun. Síðan hafi verið jöfn og mikil umferð fólks allan daginn. Auk bjórsins seldist töluvert magn af öðru áfengi í búðinni. Bjarni Þorsteinsson verslunar- Morgunblaðið/Arni Sæberg Umbúðir bjórsins í Rikinu vöktu athygli, „Ekkert kemur í staðinn fyrir mjólk“ , stóð á pokunum sem bjórinn var settur í. Auglýsingar á pokum ÁTYR: Agóðinn rennur til Landvemdar ÞEIR sem keyptu bjórkassa hjá ÁTVR í gærdag hafa væntanlega tekið eftir því að pokarnir undir veigarnar eru orðnir litríkari en áður. ÁTVR hefur nú í fyrsta sinn leyft auglýsingar á plastpokum í verslunum sínum og rennur ágóð- inn af þeim til Landverndar. Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR segir að um sé að ræða samstarf ÁTVR, Plastprents og viðkomandi auglýsenda en á fyrstu 600 þúsund pokunum auglýsir Mjólkurdags- nefnd. Fyrir það fær Landvemd 300 þúsund krónur. Höskuldur vonar að fleiri auglýsendur fáist til að taka þátt í þessu starfi en ÁTVR lætur útibússtjóri sagði að fljótt hefði horf- ið af brettunum og því þurft að bæta reglulega við birgðirnar. A Akureyri seldust tæplega 40 þúsund dósir af Sanitas-bjórtegundunum þremur og um 6.000 dósir af Egils- gulli. Haukur sagði að um 2,5 millj- ónir króna hefðu farið í gegnum verslunina í gær. í gærkvöldi unnu starfsmenn við að afgreiða pantanir á þá staði á Norðurlandi þar sem ekki er áfengisútsala. A Isafirði seldust um 15.000 dósir af bjór og var Löwenbráu-bjórinn vinsælastur fyrir vestan. „Það voru nokkrir mættir á undan mér í morg- un,“ sagði Brynjar Júlíusson á Seyð- isfirði, en þar seldust tæplega 9.000 dósir af bjór í gær. A Siglufirði seld- ust tæplega 5.000 dósir af bjór. A Olafsvík voru seldar tæplega 3.500 dósir af bjór í gær og voru menn spenntastir fyrir Löwenbráu- bjómum, að sögn Sigríðar Þóru Eg- gertsdóttur verslunarstjóra. A Sauð- árkróki keyptu menn hæfilegt magn af bjór, að sögn Stefáns Guðmunds- sonar útibússtjóra, en hann vildi ekki gefa upp nákvæmari tölur þar um. „Ég hef aldrei lent í öðru eins,“ sagði Birgir Axelsson, útsölustjóri ÁTVR í Keflavík. Löng biðröð mynd- aðist fyrir utan áfengisútsöluna þeg- ar leið að opnun verslunarinnar. Birgpr sagði að um 15 þúsund dósir hefðu selst, fyrir 1,5 milljónir. Ekki náðist í útsölustjóra ÁTVR á Selfossi og Neskaupstað í gær- kvöldi. Morgunblaðið/Sverrir Simon afgreiðir í Ölveri í gærkvöldi. Hinn barþjónninn er Guð- mundur sonur hans. Sáttur við bjórinn -segir Simon á Naustinu „ÉG ER sáttur við bjórinn, svo framarlega sem fólk drekkur hann en þambar ekki,“ sagði Símon Siguijónsson, en hann vann á bamum á Naustinu i yfir þrjátíu ár. Símon var kall- aður til í gær til að afgrejða gesti veitingarstaðarins Olvers í Glæsibæ. Staðurinn opnaði þá á ný eftir gagngerar endurbæt- ur og til að laða fram réttu stemmninguna lék írska hljóm- sveitin The Dubliners við opn- unina. Þó svo að Símon hafí ekki af- greitt áfengi um tíma vegna veik- inda átti hann ekki von á að hafa gleymt neinu. „Það sem maður einu sinni hefur lært gleymist ekki,“ sagði hann. Símon starfaði um borð í Gullfossi um nokkurt skeið og afgreiddi þá farþega með bjór. Arið 1953 fékk Símon viður- kenningu frá Tuborg fyrir störf sín og sagði hann að slíkt þætti mikill heiður í dag. Símon sagði að það tæki heilan mannsaldur að læra að drekka bjór. „Ég vona að íslendingar taki bjómum af skynsemi. í góðum selskap léttir bjórinn mönnum lífið.“ Rætl við kráargesti: Leitum efit- ir ákveðinni stemmningu „ÞAÐ ER mjög gaman að þessu og við teljum að þetta verði til þess að vínmenning í landinu batni til muna, vonum það að minnsta kosti,“ sögðu nokkrar starfsstúlkur Ferðaskrifstofúnn- ar Úrvals í samtali við Morgun- blaðið. Þær stöllur voru sammála um að líklega myndu þær oftar freist- ast til þess að fara út á kvöldin, nema að þannig æxlaðist að bjór- krámar fylltust af unglingum, þá gilti öðru máli. „Fólk lærir ömgg- lega að neyta bjórs smám saman. Islendingar era orðnir þvílíkir heimsborgarar og hafa það mikil kynni af bjór að ástæðulaust er að ætla að allt hlaupi úr böndunum. Við treystum því að minnsta kosti. Við eram að leita að ákveðinni stemmningu þegar við föram út að skemmta okkur og það er stemmn- ing sem bjórveitingar gefa færi á, möguleiki á að setjast í rólegu umhverfi og rabba við vini og kunn- ingja,“ sögðu Úrvalsstúlkurnar að lokum. „Við vonum bara að landsmenn læri að fara með þennan mjöð, það væri til hins góða. Reyndar erum við mjög hlutlausar um bjórinn yfir- leitt, en vonum að tilkoma hans hafi góð áhrif á áfengisvenjur landsmanna,“ sögðu aðrar stöllur á einum af bjórstöðum borgarinnar í gær í samtali við Morgunblaðið. Þær töldu þó ekki að þær myndu stunda bjórkrár. Fjölmargir erlendir fréttamenn fylgjast með bjórkomunni: Tvær bandarískar sjónvarpsstöðv- ar sendu beint frá Islandi í gær árlegafrá sér 2-3 milljónir plastpoka. „Við vonumst til að geta veitt Landgræðslunni álitlega fjárhæð með þessu móti, að minnsta kosti eina milljón króna á ári,“ segir Hös- kuldur. Sveinn Runólfsson landgræðslu er að vonum ánægður með þetta fram- tak. Hann segir að Landgræðslan meti það afskaplega mikils og vonar að það verði öðram aðilum hvatning til að gera slíkt hið sama. „Við lítum á þetta framtak nú sem táknrænt fyrir þann velvilja sem Landgræðslan nýtur í landinu. Það er mjög ánægju- legt og virðingarvert og kemur sér vel í starfi okkar,“ segir Sveinn. FÓLK víða um heim fylgdist með er Islendingar kneyftiðu fyrstu ölsopana í gær. Komu margir er- lendir fréttamenn sérstakalega hingað til lands til að gera at- burði þessum skil. Má nefiia sem dæmi að tvær bandarískar sjón- varpsstöðvar, ABC og NBC, sendu menn út af örkinni svo og danska stöðin Kanal 2. Peter Laurence, fréttastjóri ABC í Evrópu sagði í samtali við Morgunblaðið að mönnum væri enn í fersku minni frá því að leiðtogafúndurinn var haldinn hér að ekki hefði verið hægt að fá áfengan bjór. Það hefði því þótt áhugavert að koma hingað er fréttist að breyting yrði þar á 1. mars. Oddur Gústafsson, deildarstjóri útsendingardeildar RUV, sagði við Morgunblaðið að gervihnattasam- bandið hefði verið ansi ásett í gær, en þá voru nokkrar stöðvanna þegar búnar að panta tíma. Klukkan 16.00 var sendur í loftið pakki til allra ríkissjónvarpstöðva í Evrópu ög tveimur tímum síðar var tíu mínútna löng umfjöllun send til Kölnar í Þýskalandi fyrir ARD-sjón- varpsstöðina. Bandarísku sjónvarps- stöðvarnar NBC og ABC tóku frá hálftíma hvor fyrir sínar útsending- ar, frá kl. 22.30 til 23.00 í gærkvöld. íslenska fyrirtækið Metropolitan Product hafði einnig tekið saman ýmislegt það sem tengdist fyrsta degi í bjór og biðu menn þess að komast í loftið með þá umfjöllun, en seinnipartinn í gær vissi Oddur ekki hvort það tækist. Kostnaður vegna tíu mínútna langrar sendingar og móttöku efnisins í gegnum gervi- hnött er tæplega níutíu þúsund krón- Morgunblaðið/Sverrir ABC-menn leggja síðustu hönd á fréttina um bjórinn í gærkvöldi. Á myndinni eru talið frá vinstri: Peter Laurence, fréttasljóri AlBC í Evrópu, James Godfrey, kvikmyndatökumaður, Michael Trew, klipp- ari, John Lower, framleiðandi og Andy Laurence, h\jóðupptökumað- ur. Þess má geta að kvikmyndatökumaðurinn Godfrey er hér á landi í fjórða sinn líkt og Peter Laurence. Áður hefúr hann fylgst með því þegar vinstri stjórnin hótaði að segja upp varnarsamningnum á fyrri hluta síðasta áratugar, þorskastríðinu og leiðtogafúndinum. Sagði hann þorskastríðið hafa verið mjög spennandi upplifún og hefði hann m.a. verið um tvo sólarhringi á varðskipi. Godfrey, sem er breskur, er mjög reyndur kvikmyndatökumaður og m.a. búinn að starfa í 25 ár hjá ABC. Það var Peter Laurence, frétta- stjóri ABC, í Evrópu sem stjórnaði útsendingu stöðvarinnar frá íslandi í gær. Fréttin var send út í þættinum „World News with Peter Jennings" sem er einn vinsælasti fréttaþáttur Bandaríkjanna. Horfa að jafnaði um 20 milljónir áhorfenda á þáttinn. Þetta er í fjórða sinn sem Peter kem- ur til íslands. Fyrsta 6kiptið var árið 1972 til að fylgjast með heimsmeist- araeinvíginu í skák en einnig kom hann árið 1974 vegna þorskastríðs- ins og 1986 vegna leiðtogafundarins. Sagði hann að ávallt hefði verið ánægjulegt að koma hingað og liði að hans mati allt of langur tími milli ferða. Fréttin um bjórinn var sýnd í lok þáttar Peter Jennings í gærkvöldi en þá er venjan að hafa einhverja „öðravísi“ frétt; létta, skemmtilega eða grípandi. „ísland hefur haft sér- stöðu með að selja ekki bjór og er okkur það í fersku minni frá leið- togafundinum að ekki var hægt að fá hér neitt nema óáfengt öl. Mér fannst það þó ágætt. Þegar við frétt- um síðan af því að þessi lög hefðu verið felld úr gildi og bjórsala hæfíst 1. mars fannst okkur áhugavert að koma og fylgjast með hvemig það gengi fyrir sig,“ sagði Peter Lauren- Þegar hann var spurður hvað hann ætlaði að sýna bandarískum áhorf- endum sagði hann að fyrst yrði sýnt frá sölu á bjór í áfengisverslun, síðan yrði viðtal við formann íslenskra bjóráhugamanna, sýndar fallegar myndir af fólki á skautum á Tjöm- inni og sagt aðeins frá sögu landsins og hefðum. Þá yrði sýnt viðtal við þingmanninn Guðrúnu Agnarsdótt- ur, sem hefði greitt atkvæði gegn bjórnum og frá veitingahúsi þegar talið var niður að því augnabliki að bjórsalan mætti hefjast. Peter Laurence sagði að ritstjórar hans í New York legðu mikla áherslu á að smekklega yrði sagt frá þessum atburði. Aðalfrétt stöðvarinnar þetta kvöld væri um John Tower og í dag gengi öldungadeildin til atkvæða um útnefningu hans í vamarmálaráð- herraembættið. Hann sagðist að lokum vera ánægður með hvað veðrið hefði verið gott og vonaðist til að geta komið aftur fljótlega þar sem hann hefði hug á að gera þátt hér á landi er tengdist umhverfinu og sögunni. KEYKJAVIK. - Die Zahl der Wale in den Meeren um Island wird auf etwa 30.000 geschátzt. Die majestá- . tischen Tiere sind heute zum Symbol fúr tll jene geworden, die fur eine besscre und sauberere Erde kámpfcn. I.n den letz- ten Jahren habcn sie zunehmmd vehe- ment reagiert, weil die Islándcr einige der Wale aus Forschungsgrúnden crlegen; im ergangenen Jahr waren es 78 Wale. Was in diesem Jahr geschehcn wird, ist noch ungewifi; möglicherweise könnte Auch Walfang ist Umweltschutz Island wehrt sich gegen BoykoU-Aufrufe aus der Bundesrepublik Yon Björn Bjarnason Handelsministerium wegen Verletzung der IWC-Beschlússe den Prásidenten zu wirtschaftlichen Sanktionen gegen den In- selstaat drángtc. Fúr die islándische Wirtschaft ist der Walfang ohne Bedeutung. Aber fúr ein Land, das vom Meer lebt, ist das ökologi- sche Gleichgewicht des Ozeans besonders wichtig. Zudem legt Island Wen darauf, dafi das Rccht international anerkannt witd, Wale wie andere Lebewesen auch zu fischen. Seitdie Islánder im lahr 1946 sidentin Gudrun Helgadottir, die zu den Anhángem der gegcnwártigen Links-Rc- gierung záhlt, erklárte vor kurzem itr Parlament: „Island hat die Auseinander- setzung um den Walfang verloren. Ei gibt keinen anderen Ausweg, als den Walfang einzustellen.* Innerhalb der Re- gierung ist die Meinung úber das weitere Verfahren gespalten; auf jcden Fall wach- sen die Zweifel, ob die heutigc Politik nach 1990 zu einer túr Island gunstigei Regelung fúhren wird. In der Debatte úber deutsche Firmen, dic islándische Fischkonserven boykottie- ren — frischer Fisch aus Isiand findei weiterhin auf den Fischmárkten Nord- deutschlands gute Abnahme — hat eir sozialdemokratischer Parlamentsabgeord- neter in Reykjavik das Won von det „Koilektivr.chuld" und die deutsche Dis- kussion dariiber erwáhnt. Es sei mora- liscH falsch, sich an Dritten zu ráchen wie es gegen islándische Unternehmer geschieht, die nie am Walfang beteilig waren. Neben dem Boykott gegen Fi schereiprodukte macht Greenpeace auci isiándischen Luftfahrtlinien und den Ex porteuren von Wollwaren das Lebej schwer. Alle Nachrichten uber Naturkatastro phen im Meer — wie etwa in der Nord- Hvalveiðar eru líka um- hverfisvemd ísland snýst til varnar gegn þeim sem hvetja til efiiahagsþvingana í V-ÞýskaJandi eftirBjöm Bjamason í ÞÝSKA vikublaðinu Die Zeit, sem kom út 24. febrúar síðast- liðinn birtist meðfylgjandi grein eftir aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins til skýringar á málstað íslendinga S hvalamál- inu. Áætlað er að 30.000 hvalir séu í hafinu umhverfis ísland. Þessi stórfenglegu dýr era orðin að tákni fyrir alla þá sem beijast fyrir umhverfisvemd. Undanfarin ár hafa þeir í vaxandi mæli bragð- ist harkalega við því að íslending- ar skuli drepa nokkra af þessum hvölum í rannsóknarskyni; í fyrra var um 78 hvali að ræða. Enn er óvíst hvað gerist á þessu ári. Ef til vill verða enn færri hvalir veiddir. Hvalveiðar í vísindaskyni hafa engu að síður vakið reiði umhverfisvemdar- sinna, einkum í Bandaríkjunum og Vestur-Þýskalandi. Til þess að þvinga íslendinga til að stöðva hvalveiðamar hvetja andstæðing- ar hvalveiðistefnu lslands til þess að menn kaupi ekki íslenskar fisk- afurðir. Ef þessi yrði raunin væm afleiðingamar hrikalegar því að sjávarafurðir era um það bil 70% af útflutningi landsmanna. Árið 1982 bannaði Alþjóðahval- veiðiráðið hvalveiðar í atvinnu- skyni fram til loka árs 1990. ís- land andmælti ekki banninu; ein- ungis Noregur, Japan og Sov- étríkin lögðust gegn hvalveiði- banninu. Frá árinu 1986, er bann- ið tók endanlega gildi, hafa ís- lendingar einungis stundað veiðar í vísindaskyni. I fyrstu var um að ræða 200 dýr á ári. En vegna opinberra mótmæla frá banda- rískum stjómvöldum var dregið úr veiðunum. Þannig hafa íslensk stjómvöld til þessa getað hindrað að bandaríska viðskiptaráðuneyt- ið legði að forsetanum að grípa til efnahagsþvingana vegna brots á ákvörðunum Alþjóðahvalveiðir- áðsins. Hvalveiðar hafa sáralitla eða enga þýðingu fyrir íslenskan efna- hag. En fyrir ríki sem lifir á sjáv- arfangi er vistfræðilegt jafnvægi í hafinu sérlega mikilvægt. Auk þess leggja íslendingar mikið upp úr því að rétturinn til að veiða hvali eins og aðrar lífverur verði viðurkenndur á alþjóðavettvangi. Síðan íslendingar hófu hvalveiðar að nýju árið 1946 hafa þeir ætíð tekið fullt tillit til ástands stofn- anna. Það ætti líka að vera aug- ljóst að það er tilgangslaust að útrýma stofninum vilji maður við- halda jafnvægi alveg eins og það er tilgangslaust að banna alger- lega hvalveiðar sem era innan veijanlegra marka. Síðan hval- veiðibannið tók gildi verða sjó- menn þess í vaxandi mæli varir að hvalir flækjast í netum og tor- velda þar með fiskveiðamar. En hvorki grænfriðungar né aðrir andstæðingar hvalveiðanna benda á þessar staðreyndir. Meirihluti 'íslendinga er á móti því að láta undan „efnahags- hryðjuverkum" grænfriðunga og annarra samtaka eins og Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra kallaði aðgerðir þeirra. Hann not- aði þetta orð þegar ljóst var að hin þýska matvörukeðja Tengel- mann hefði hætt innflutningi á íslensku fisklagmeti vegna hval- veiða íslendinga. En andstaðan við þessa afstöðu vex. Guðrún Helgadóttir þingforseti, sem telst til stuðningsmanna núverandi vinstristjómar, sagði nýlega á Alþingi: „Stefna íslendinga í þessu máli er töpuð ... Deilan um hvalveiðamar er töpuð fyrir ís- lendinga og engin leið út úr henni nema hætta hvalveiðum." Stjóm- in er klofín í afstöðu sinni til þess hvert framhaldið skuli vera. Víst er að efasemdir vaxa um hvort núverandi stefna leiðir til hag- stæðs samkomulags um hvalveið- arjeftir 1990. í umræðunni um þýsk fyrir- tæki, sem sniðganga íslenskt lag- meti (ferskfiskur selst enn vel á fiskmörkuðum í Norður-Þýska landi), minntist þingmaður jafn aðarmanna á orðið „samsekt" og umræður Þjóðveija um það efni. Það væri siðferðilega rangt að hefna sín á þriðja aðila, eins og íslensk fyrirtæki, sem aldrei hafa fengist við hvalveiðar, yrðu fyrir. Auk efnahagsþvingana gagnvart fiskafurðum gera grænfriðungar íslenskum flugfélögum og útflytj- endum ullarvöra lífið leitt. íslendingar fylgjast náið með öllum fréttum af umhverfisslysum eins og þegar fiskur varð eiturefn- um að bráð og selir fundust dauð ir í Norðursjó og Eystrasalti. Að þessu leyti eiga íslendingai grænfriðungar og aðrir umhverf- isvemdarsinnar margt sameigin- legt. Að sjálfsögðu er það skiljan- legt að þeir sem kynnast ástandi sjávar umhverfis meginland Evr- ópu af eigin reynslu fyllist áhyggj um og að björgun hvalanna verði eitt áhyggjuefnið. En hvalveiðibann mun hvorki hindra mengun í Norðursjó né Eystrasalti. Þvert á móti gæti það sett vistkerfíð úr skorðum. Ifyrir nokkrum árum tóku náttúru vemdarmenn ástfóstri við seli Nú er svo komið að þeir fara í þúsundatali um norðlæg hafsvæði og era orðnir að plágu við strend ur Noregs. Vonandi eiga hvalimir betri framtíð í vændum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.