Morgunblaðið - 02.03.1989, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 02.03.1989, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 2. MARZ 1989 55 Karl Allgöwer ítfðmR FOLX FráJóni Halldóri Garöarssyni ÍV-Þýskalandi m KARL Allgöwer, miðvörður Stuttgart, sagði í blaðaviðtali eftir tapleikinn gegn Hannover, að nú fyrst reyndi á hæfni Arie Haan, sem þjálfara - hvort að hann væri hæfur í sínu starfi. Haan svaraði á bragði í öðru blaðaviðtali, að Allgöwer ætti ekki að vera að skjóta á sig, því að það væri hans hlutverk sem reyndasta leikmanni liðsins, að halda því saman. Það er greinilegt að undiralda er nú í her- búðum Stuttgart. Það er veikleika- merki þegar þjálfari og leikmaður eru byijaðir að kýtast á í blöðum. ■ MANFRED Kaltz, bakvörð- urinn snjalli hjá Hamburger, til- kynnti í gærkvöldi að hann myndi fara til útlanda eftir þetta keppn- istímabil. Kaltz, sem hefur leikið með HSV í nítján ár, óskaði eftir að fá nýjan tveggja ára samning við félagið. Erich Ribbeck, ráð- gjafi félagsins, vildi ekki bjóða Kaltz nema eins árs samning til að byija með. Kaltz var ekki ánægður með þetta og nú er hann á fórum frá félaginu. KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND Ásgeir Sigurvinsson skilaði fyrirliðabandi sínu: „Tek ekíci aftur við fyrirlidastöðunniM - segirÁsgeirSigurvinsson, sem eróhress með vinnubrögð Arie Haan ÞAÐ vakti geysilega athygli á Neckar-leikvanginum, þegar leikmenn Stuttgart mættu til leiks, að Ásgeir Sigurvinsson var ekki fyrirliði liðsins, eins og þrjú undanfarin ár. Guido Buchwald var með fyrirliða- bandið. Blöð í Stuttgart gerðu mikið úr þessu í gær og sagði Arie Haan, þjálfari liðsins, í blaðaviðtölum, að Ásgeir myndi taka við fyrirliðabandinu aftur. Haan hrósaði Ásgeiri mikið fyrir leik hans gegn Real Sociedad í UEFA-bikarkeppn- inni. Asgeir sagði í viðtali við Morg- unblaðið í gær, að hann hafi ákveðið að skila fyrirliðabandinu á sunnudaginn - á fundi með þjálfara og leikmönnum. „Ég tek ekki við því aftur.“ Það vakti athygli á laugardaginn að Ásgeir var tekinn af leikvelli í leikhléi gegn Hannover, eftir að hafa leikið vel í fyrri hálfleiknum. „Það sauð upp úr í Hannover. Ég læt ekki bjóða mér það sem fyrir- liða, að vera tekinn af leikvelli í leikjum sem ég stend mig vel í. Ég var ekki ánægður þegar ég var tek- inn af leikvelli á dögunum í Miinch- en, þar sem við töpuðum unnum leik gegn Bayem niður í jafntefli. Retur Ásgeir Sigurvinsson sést hér án fyrirliðabandsins, sem hann hefur skilað, í baráttu um knöttinn við Gajate, leikmann Real Sociedad. Þegar sagan endurtók sig í Hannov- er var ég ákveðinn að segja hingað og ekki lengra. Ég sætti mig ekki við þetta, sem fyrirliði liðsins. Ég tel að fyrirliði eigi að hafa stuðning þjálfarans og hjálpa til inn á vellinum. Þegar ég sá að þetta gat ekki gengið svona lengur, ákvað ég að skila fyrirliða- bandinu á fundinum. Þar gerði ég hreint fyrir mínum dyrum og sagði mínar skoðanir á málinu. Það er betra að sætta sig við að vera tek- in af leikvelli þegar ég er ekki fyrir- liði,“ sagði Ásgeir. Ásgeir sagði að Haan hafi óskað^ eftir því að hann hugsaði málið betur, áður en hann tæki loka- ákvörðun. „Ég er ákveðinn að taka ekki aftur við bandinu. Ég held mínu striki áfram og legg mig allan fram við að leika sem best fyrir Stuttgart, eins og ég hef gert hing- að til,“ sagði Ásgeir, sem sagðist ekki vera í neinu stríði við Arie Haan. „Úrslitin gegn Real Sociedad voru ekki svo slæm fyrir okkur. Heppnin var samt ekki með okkur. Við náðum ekki að nýta færin okk- ar - eins og fyrri daginn. Það er mikill möguleiki fyrir hendi að ná góðum úrslitum í seinni leiknum á Spáni,“ sagði Ásgeir. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD Óli Ben. aftur I Valsmaridð? Mjög líklegt er að Einar Þor- varðarson, markvörður Vals og landsliðsins, leiki ekki meira með liði sínu á þessu keppnistímabili. Einar meiddist í úrslitaleiknum í B-keppninni gegn Pólveijum. „Ég fór í skoðun í dag hjá Stefáni Carlssyni, lækni Valsliðsins og landsliðsins, og hann hélt að þetta gætu verið slitin krossbönd. Slíkt myndi þýða ijögurra mánaða hvíld frá handknattleik," sagði Einar Þorvarðarson í samtali við Morgun- blaðið í gær. Páll Guðnason hefur verið vara- markvörður Vals í vetur. „Hann á án efa eftir að standa sig vel. Nú svo erum við að reyna að fá Óla Ben. til að byija aftur með meist- araflokki. Hann hefur verið. með fyrsta flokki í vetur og staðið sig vel. Hann hefur hinsvegar ekki enn gefið svar um hvort hann ætli að æfa með okkur,“ sagði Einar. Ólafur Benediktsson lék síðast í Valsmarkinu fyrir átta árum. 1.DEILD Fj.leikja U j T Mörk Stlg VALUR 11 11 0 0 294: 220 22 KR 11 9 0 2 278: 247 18 STJARNAN 11 7 1 3 254: 232 15 FH 11 6 1 4 291: 274 13 VÍKINGUR 11 5 1 5 284: 290 11 GRÓTTA 11 4 2 5 232: 237 10 KA 11 4 0 7 257: 267 8 ÍBV 11 1 3 7 223: 255 5 FRAM 11 1 3 7 228: 268 5 UBK 11 1 1 9 229: 280 3 Evrópukeppnin Fyrri leikirnir í 8-iiða úrslitum í Evrópukeppninni í knatt- spyrnu fóru fram í gær og fyrradag. Urslit voru sem hér segir: Keppni meistaraliða IFK Gautaborg (Svíþjóð) — Steaua Búkarest (Rúmeníu)...............1:0 Klas Ingesson (55. mín.) Ahorfendur: 16.067. Eindhoven (Hollandi) — Real Madrid (Spáni)........................1:1 Romario (52. m(n.) — Emilio Butragueno (45. mín.) Áhorfendur: 28.000 Werder Bremen (V-Þýskalandi) — AC Mflanó (Ítalíu)..................0:0 Áhorfcndur: 40.000 Mónakó (Frakklandi) — Galatasary (Tyrklandi)......................0:1 — Tanju Colak (20. mín.) Áhorfendur: 20.000. Keppni bíkarhafa Dinamo Búkarest (Rúmeníu) — Sampdoria (Ítalíu)....................1:1 Vaiscovici (16. mín.) — Vialli (90. mín.). Áhorfendun 15.000. CSKA Sofía (Búlgaríu) - Roda JC Kerkrade (Hollandi)...............2:1 Stoichkov (14. mín.), Kostadinov (67. mín.) - Burebach (84. mín.). Áhorfondur: 30.000. Frankfurt (V-Þýskalandi) — Mechelen (Belgíu)......................0:0 Áliorfendur: 20.000 Árhus (Danmörku) — Barcelona (Spáni)..............................0:1 — Gary Uneker (70. mfn.) Áhorfcndur: 16.000 UEFA-keppnin Stuttgart (V-Þýskalandi) — Real Sociedad (Spáni)..................1:0 Fritz Walter (86. mín.) Áhorfendur: 25.140. Hearts (Skotlandi) — Bayem Miinchen (V-Þýskalandi)................1:0 lan Ferguson (53. mín.). Áhorfcndur: 26.000. Victoria Búkarest (Rúmeníu) — Dynamo Dresden (A-Þýskalandi)..l:l Solomon (48. mln.) - Guetschow (24. m[n.). Áhorfendun 10.000. Juventus (Ítalíu) — Napólí (Italíu)...............................2:0 Pasquale Bruno (13. mín.j, Giancarlo Corradini, sjálfsm. (45. min.) Áhorfendur: 40.000 Fall blasir við Blikunum Grótta átti ekki í teljandi vand- ræðum með að leggja slakt lið Breiðabliks að velli í íþróttahúsinu á Seltjarnamesi í gærkvöldi. Það er fátt sem getur ValurB. komið í veg fyrir að Jónatansson Blikarnir falli í 2. skrifar deild úr þessu. Liðið hefur aðeins hlotið þijú stig og hefur ekki burði til að bæta mörgum stigum í safnið í næstu umferðum. Leikurinn var þó jafn framan af og þegar 20 mínútur voru búnar Luton, sem er núverandi deildar- bikarmeistari, sigraði West Ham 2:0 í síðari leik liðanna í und- anúrslitum í gærkvöldi og mætir því Nottingham Forest í úrslitum á Wembley 9. aprfl. Luton vann fyrri leikinn 3:0. Það voru þeir Mick Harford og Roy Wegerle sem gerðu mörkin. Tottenham, án Guðna Bergsson- ar, færist upp 1. deildartöfluna eft- ir 2:0-sigur á Aston Villa í gær- varstaðan, 5:5. Þátóku heimamenn við sér og skoruðu hvert markið á fætur öðm úr hraðaupphlaupum, án þess að Blikar fengu við nokkuð ráðið, og staðan 12:6 í leikhléi. Síari hálfleikur var hálfgerður skrípaleikur og ekki mikið fyrir augað. Grótta hafði leikinn í hendi sér í síðari hálfleik og aðeins spum- ing um hve munurinn yrði mikill. Athygli vakti að landsliðsmark- vörðurinn, Guðmundur Hrafnkels- son, fékk ekki að fara inná fyrr en 20 mínútur voru eftir af leiknum. kvöldi. Það var landsliðsmaðurinn Chris Waddle sem skoraði bæði mörkin. Liverpool komst í 5. sæti með sigri á Charlton, 2:0, á Anfield. Mörkin gerðu Peter Beardsley á 14. mínútu og John Aldridge úr víta- spyrnu á 89. mínútu. Paul Miller, ungur nýliði, gerði þrennu fyrir Wimbledon er liðið burstaði Derby, 4:0, á heimavelli. Grótta-UBK 24 : 14 íþróttahúsið Seltjamamesi, íslandsmó- tið í handknattleik - 1. deild karla, miðvikudaginn 1. mars 1989. Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 5:3, 5:4, 8:5, 8:6,12:6,12:7,13:9,15:10, 16:12, 22:12, 23:14, 24:14. Grótta: Willum Þór Þórsson 7, Halldór Ingólfsson 5/3, Davíð Gíslason 4, Páll Björnsson 3, Sverrir Sverrisson 2, Stef- án Amarson 1, Jón Örvar Kristjánsson 1, Friðleifur Friðleifsson 1, Svafar Magnússon, Gunnar Gíslason. Varin skot: .Sigtryggur Albertsson 17/1, Stefán Öm Stefánsson. Utan vallar: 8 mínútur. UBK: Hans Guðmundsson 7/2, Kristj- án Halldórsson 2, Sveinn Bragason 2/1, Andrés Magnússon 1, Elvar Erl- ingsson 1, Þórður Davíðsson 1, Ólafur Bjömsson, Alexander Þórisson, Eyjólf- ur Einarsson, Pétur Ámason. Varin skot: Þórir Sigurgeirsson 9, Guðmundur Hrafnkelsson 3. Utan vallar: 8 mínútur. Áhorfendur: 70. Dómarar: Vigfús Þorsteinsson og Steindór Baldursson dæmdu þokka- lega. m Sigtrvggur Albertsson og Willum Þór Þórsson, Gróttu. KNATTSPYRNA / ENGLAND Luton á Wembley
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.