Morgunblaðið - 02.03.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.03.1989, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989 Minning: EngilbertM. Ólafs- son myndskeri í dag er til moldar borinn Engil- bert Maríus Ólafsson, myndskeri, er lést að morgni þess 18. febrúar sl. eftir um það bil eins og hálfs árs baráttu við sjúkdóm þann, sem dró hann til dauða. Engilbert var fæddur að Álftar- hóli, Austur-Landeyjum þann 24. febrúar 1914, og hefði því orðið 75 ára á næsta afmælisdegi sínum. Foreldrar hans voru hjónin Ólafur Halldórsson, bóndi, og Sigurbjörg Ámadóttir. Var Engilbert þriðja bam þeirra, en þeim varð 12 bama auðið. Urðu þau hið mætasta fólk, og eru öll á lífi nema sá er við kveðjum í dag. Óskar, sem er elstur bamanna, er nú bóndi að Álftarhóli. Á þeim ámm sem Engilbert er að alast upp, vom kjör flestra al- þýðuheimila fremur bág, og skar heimilið að Álftarhóli sig þar ekki úr, enda bamahópurinn stór. Ástæður til skólagöngu vom því engar, og gat hann því ekki sem unglingur nýtt sér til náms þær góðu gáfur til munns og handa, er hann hlaut í vöggugjöf, eins og hann að sjálfsögðu hafði löngun til. Hann tók snemma til hendinni við bústörfin og var heima fram á þrítugsaldur. Tuttugu ára fór hann ásamt bróður sínum Óskari á vertíð til Vestmannaeyja, eins og títt var á þeim tíma um unga menn til sveita nærri sjávarplássum. Var hann nokkrar vertíðir í Eyjum. Bræðumir fóm vel með það, er þeir öfluðu og lögðu í sameiginlegan sjóð heimilisins er heim kom. Það er ekki fyrr en árið 1939, að Engilbert, þá orðinn tuttugu og fimm ára, á þess kost að leita sér menntunar og sest á bændaskólann á Hvanneyri. Þegar hann kom í bændaskólann, var hann ekki eins vel búinn undir skóiagönguna og flestir skólabræð- ur hans, er verið höfðu í gagn- fræða- og héraðsskólum. Hann hafði ekki annan undirbúning en stopula bamafræðslu úr farkennslu, sem stundum var misjöfn að gæð- um. Mátti því búast við, að honum reyndist námið erfitt og náms- árangurinn yrði ekki með neinum glæsibrag. En þar varð önnur raunin á. Hann lauk náminu 1941 með hæstu einkunn og margverðlaunaður fyrir framúrskarandi námsárangur. í skólanum reyndist hann nem- endum, sem erfiðara áttu með nám, góð hjálparhella er í nauðir rak. Þóttust kennarar skólans stundum þekkja handbragð Engilberts á sumum verkefna þeirra, þá helst teiknivinnu, en létu kyrrt liggja. Það sagði mér Guðmundur Jóns- son fv. skólastjóri á Hvanneyri, að líklega væri Engilbert sá nemenda sinna, sem honum hefði þótt einna ÞAÐ ER ÓÞARFI AÐ SKJALFA ÞOTT HANN BLASI KOLDU Hita- og kæliblásararnir frá Blikksmiðjunni eru löngu landsþekktir fyrir gæði og afköst. Þeir eru sérstaklega hannaðir fyrir fslenskt vatn sem tryggir þeim hámarks endingu. Ef þú þarft að hita eða kæla bílskúrinn, tölvuherbergið, verkstæðið, vinnusalinn, húsbygginguna eða kæliklefann þá höfum við lausnina. Hafðu samband og við veitum fúslega allar nánari upplýsingar um verð og tæknileg atriði. BLIKKSMIÐJAN Allir hita- og kæliblásararnir eru gæðaprófaðir af sérfræðingi Blikksmiðjunnar f hita- og kælítækni. SMIÐSHÖFÐA 9 112 REYKJAVlK SÍMI 685699 vænst um, því að öll hefði fram- koma hans í skólanum verið til fyr- irmyndar og öðrum til eftirbreytni. Hugur Engilberts stóð ekki til landbúnaðarstarfa, heldur til hand- verks, því hann var hagur vel, eink- um á tré. 1942 hóf hann nám í mynd- skurði hjá listamanninum og tré- skurðarmeistaranum Marteini Guð- mundssyni og var við það nám í fjögur ár. Man ég eftir, að Marteinn sagði við mig, er ég var eitt sinn staddur á vinnustofu hans, að Eng- ilbert væri óvenju hagur maður. Eftir að hann lauk námi vann hann að iðn sinni alla tfð. Fyrst hjá Marteini, en fór til frekara náms til Svíþjóðar 1947 og var á Vást- erás í um það bil tvö ár. Að lokinni dvöl sinni í Vásterás starfaði hann hér heima um tíma, og liggja eftir hann margir fallegir gripir. Hygg ég að sveinsstykki hans, sem er kista skreytt myndum úr norrænu goðafræðinni, sé sá hlutur, er hann lagði mesta vinnu í, og er hinn fegursti gripur. Eftir nokkra dvöl hér heima, langar hann til að skoða sig frekar um í heiminum og fór 1952 til syst- ur sinnar Katrínar, sem búsett var á Norður-Dakóta, þar sem hún og maður hennar ráku búgarð. Nokkrum missirum síðar fluttist hann til Los Angeles, þar sem hann bjó allt til ársins 1987, en þá er hann næstum alkominn heim, vegna ástæðna, er hann fékk ekki ráðið við. í Los Angeles réði hann sig til fyrirtækis, er framleiddi byssur af mjög vandaðri gerð. Voru byssur þessar meira eða minna handsmíð- aðar. Var hlutverk Engilberts að smíða byssuskefti og skreyta með tréskurði, eftir máli og ósk hvers viðskiptavinar. Var fyrirtæki þetta mjög virt fyrir framleiðslu sína, en tæpast var fyrir aðra en efnamenn að éiga viðskipti við það. Man ég að Engilbert sagði mér, að honum var eitt sinn falið að smíða og skreyta skefti fyrir írans- keisara. Hann hafði gaman af að geta þess, að þótt hann hafi þótt hæfur til að gera skeftið á byssu keisarans, þótti ekki við hæfi að hann mátaði það við hans hátign. Hann fékk þó að vera viðstaddur, er skeftið var mátað, til að geta tekið við athugasemdum. Eftir nokkurra ára dvöl þama keypti hann sér öll nauðsynleg verk- færi og stofnaði sitt eigið verkstæði og vann að mestu við smíði og skreytingu byssuskefta öll þau ár er hann bjó í Los Angeles. Þó mun hann eitthvað hafa fengist við ann- an myndskurð. Engilbert hefði hæglega getað orðið efnaður maður á iðn sinni, en það varð hann aldr- ei. Hann kunni aldrei að verðleggja vinnu sína, aðalatriðið var að skila óaðfinnanlegu verki. Þá trúi ég því líka, að hann hafi aldrei haft áhuga á að verða auramaður, því að í hans huga var farsælast að allt væri í hófi, líka efnahagurinn. „því það er svo misjafnt, sem mennimir leita að og misjafn tilgangurinn, sem fyrir þeim vakir“. (T.G.) Kynni okkar Engilberts hófust haustið 1943, er ég ásamt vini mínum Sigurði Jónssyni, síðar vél- stjóra, sótti námskeið í Iðnskólan- um í Reykjavík fyrir þá, er vildu þreyta próf utanskóla í 2. bekk skólans. Þar tókum við eftir þessum hógværa manni, sem sat einn við borð og lét lítið á sér bera. Þrátt fyrir að hann væri töluvert eldri en við, var eitthvað í fari hans, sem vakti áhuga okkar og leituðum við félagsskapar við hann. Fór svo, að við nefndum við hann hvort við mættum ekki halda hópinn, allir þrír. Hófst þama vinátta þriggja manna, sem staðið hefur síðan og aldrei fallið skuggi á. Ekki sköðuð- umst við Sigurður á þessari sam- vinnu, því að Engilbert var okkur miklu fremri í námsgetu. Er við lukum náminu vorið 1944, var Eng- ilbert með hæsta prófið yfir allan Jónína Ásmunds- dóttír - Minning Fædd6. nóvember 1908 Dáin20. febrúarl989 „Hún Nína okkar er dáin!“ Mér varð bilt við þegar ég heyrði þetta; ég fann, hvað ég hafði misst mikið. Nína fæddist og ólst upp á heim- ili afa míns, Magnúsar Þorsteins- sonar, og ömmu minnar, Valgerðar Gísladóttur á Mosfelli í Mosfells- sveit. Móðir hennar, Bjarghildur Jónsdóttir, einstök dugnaðar- og ágætiskona, var í heimilinu með dóttur sína. Ólst Nína upp sem eitt af bömum prestshjónanna. Nokkru eftir að afi lést, fluttist faðir minn, Bergþór, með fjölskyldu sína til stöðvarinnar í Viðey, og fylgdu Nína og móðir hennar okkur. Móðir- in varð amma og Nína önnur móðir okkar systkina. Stöðin í Viðey var líkust þorpi; var þar margt ungt fólk, sem Nína átti glaða daga með. Hún kynntist þar manni sínum, Ólafi Halldórs- syni, dugnaðar- og myndarmanni. Þegar rekstur stöðvarinnar í Viðey fór að dragast saman, fluttust þau ásamt systrum Ólafs, Guðrúnu og Sigríði, til Reykjavíkur að Hlíðardal í Kringlumýri. Hlíðardalsfólkið var orðlagt fyrir gestrisni, hjálpsemi, og glaðværð. Naut Nína sín vel í þeim hópi. Ég get sjálfur skrifað undir að það var gott að koma í Hlíðardal og upplifa og njóta gestrisni heimilanna. Ég bjó hjá Óla og Nínu flest námsár mín í Reykjavík og naut einstakrar umönnunar. Bjöm bróðir og Hulda systir nutu sömu hlýju. Nína missti mann sinn árið 1961. Fluttist hún þá á heimili einkasonar og tengdadóttur, Halldórs hús- gagnabólstrara og Jónínu Sigurðar- dóttur. Bjó hún þar til æviloka, síðast á Funafold 35. Hjá þeim leið henni vel; hún varð amma fjögurra barna og langamma 8 bama. í þess- um hlutverkum komu eiginleikar, sem Nínu voru í blóð bomir — hjartahlýja, glaðværð og hjálpsemi — að góðum notum. Heimsókn á heimilið gaf ætíð mér og mínum góðar stundir. Ég hefi ekki upplifað betra samband milli tengdamóður og tengdadóttur. Fyrir okkur öll, sem höfum notið glaðværðar, iðjusemi og hjartahlýju Nínu, er eftirsjáin mikil. Að lokum vil ég votta syni, tengdadóttur og öllu venslafólki dýpstu samúð mína. Magnús Bergþórsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.