Morgunblaðið - 15.03.1989, Síða 4

Morgunblaðið - 15.03.1989, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1989 Þorlákshöfii: Sjó dælt úr Jóni Vídalín Þorl&kshöfh. SLÖKKVILIÐ Þorlákshafnar var kallað út í hádeginu þriðju- daginn 14. mars, til að aðstoða við að dæla sjó úr togaranum Jóni Vídalín, sem var kominn með mjög mikla slagsiðu vegna þess að sjór hafði komist inn á millidekk. Þegar löndunarhópurinn kom úr mat í hádeginu var mikil slagsíða komin á togarann og höfðu dælur skipsins ekki undan. Því var kallað á slökkviliðið og með aðstoðar stórr- ar bensíndælu þess, tókst að tæma sjóinn úr togaranum. Engar skemmdir urðu, hvorki á skipinu né á fiski sem í því var. Tildrög þess að sjórinn komst í skip- ið voru að gleymst hafði að loka fyrir krana, en þegar krananum síðan var lokað hafði steinn lent á milli, þannig að sjór komst þar inn. - J.H.S. VEÐUR I DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa islartds (Byggt á veðurspá Id. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR í DAG, 15. MARS YFIRLIT í GÆR:Skammt suður af Reykjanesi er 990 mb lægð sem þokast austur. önnur álíka djúp lægð yfir Norðurlandi vestra hreyf- ist suður og grynnist. Frost verður um land allt, víða 4 til 10 stig. SPÁ: Norðanátt um allt, land víða 6—8 vindstig. Snjókoma norðan- lands en þurrt syðra. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FIMMTUDAG: Hægviðri og víða léttskýjaö um austan- vert landiö, en suðaustlæg átt og sums staöar snjókoma eða él um landiö vestanvert. Frost 4 til 10 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan- og suðaustanátt um mest allt landið. Dálítil snjókoma eða él á vfð og dreif um landið. Frost 3 tit 8 stig. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■|QC Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir = Þoka = Þokumóða ’ , > Súld (X) Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hhl +2 +4 veður skýjaö lóttskýjaó Bergen 6 haglél Helsinki 2 rtgnlng Kaupmannah. B skýjað Narssaraeueq +17 skýjað Nuuk +6 snjókoma Osló 7 skýjað Stokkhólmur 7 skýjað Þórshöfn 2 anjóél Atgarve 18 þokumóða Amsterdam 10 skýjað Barcelona 16 léttskýjað Bertfn 9 skýjað Chicago 3 þokumóða Feneyjar rigning Frankfurt 8 skýjað Qlasgow 6 rlgning Hamborg B skúr Laa Palmas 20 skýjað London 8 skúr Los Angeles 10 léttskýjað Lúxemborg 7 skýjað Madrfd 11 skýjað Malaga 18 léttskýjað Mallorca 18 akýjaö Montreal +1 alskýjað New York 3 alskýjað Ortando 16 Þokumóða Parfs 10 skýjað Róm vantar Vfn 9 skýjað Waahlngton 3 þokumóða Wlnnipeg +18 léttskýjað Viðskiptaráðuneytið: Sovétmöimiim send- ar upplýsingar um Alþýðubankann Viðskiptaráðuneytíð hefúr sent sovéska utanrikisviðskiptabank- anum, sem annast olíuviðskiptí Sovétmanna, upplýsingar um Al- þýðubankann. Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri viðskiptaráðu- neytísins segir ekkert eiga að vera því tíl fyrirstöðu að Sovét- mann viðurkenni Alþýðubankann sem viðskiptabanka, en þeir gerðu athugasemdir við bankí veittí OLÍS vegna oliufarma. Bjöm sagði sovéska bankann hafa gert athugasemd vegna þess að hann hefði ekki viðurkennt Alþýðubankann sem viðskipta- banka sinn, en væri hins vegar tilbúinn til þess, að fengnum ákveðnum upplýsingum. Bankinn benti síðan á, að hapn hefði viður- kennt tvo banka á íslandi, Lands- bankann og Útvegsbankann sem báðir önnuðust gjaldeyrisviðskipti áður en þau voru gefin fijáls hér á landi. Alþýðubankinn hefur veitt OLÍS jyrgðirnar sem Alþýðubankinn bankaábyrgð vegna tveggja olíu- farma undanfamar vikur, eftir að Landsbankinn, viðskiptabanki OLÍS, krafðist þess að fá útistand- andi skuldi OLÍS til tryggingar vanskilaskuldum OLÍS hjá Lands- bankanum. Samkvæmt upplýsing- um Gunnars Gunnarssonar að- stoðarforstjóra OLÍS er gjaldfrest- ur 30 dagar frá því olían er lestuð ytra, og gildir bankaábyrgð fyrir sama tíma. Von er á næsta olíu- farmi til olíufélaganna innan skamms. Fékk tveggja ára dóm fyrir íkveikju HÆSTIRÉTTUR hefúr dæmt 23 ára gamlan mann, Gunnlaug Jón Ólaf Magnússon, tíl tveggja ára fangelsisvistar fýrir að hafa í maimánuði 1987 vísvitandi kveikt í íbúð I húsi við Barónsstíg. í sakadómi hafði maðurinn verið dæmdur til 2 V2 árs fangelsisvistar. Atvik málsins voru þannig að Gunnlaugur og eigandi íbúðarinn- ar vom saman í samkvæmi í Breið- holti. Þeim sinnaðist og í hefndar- skyni kveikti Gunnlaugur í íbúð hans við Barónsstíg. Þá var komið fram yfir miðnætti og íbúar á öðr- um hæðum hússins vom gengnir til náða en komust af eigin ramm- leik óskaddaðir út úr miklu reykj- arkófi. íbúar. á efstu hæð, hjón með ungt bam, þurftu að fara út á þak hússins og þaðan inn í nær- liggjandi hús. Sakadómari taldi að Gunnlaugi hefði átt að vera ljóst að bráður bani gæti hlotist af at- hæfí hans. Mikið tjón varð á hús- inu í eldinum. Hæstaréttardómaramir Guð- mundur Jónsson, Benedikt Blönd- al, Bjami K. Bjarn^son, Guðrún Erlendsdóttir og Haraldur Henrýs- son kváðu upp dóm þennan. í nið- urstöðum þeirra segir að á rann- sókn málsins hafi verið mjög að- fínnsluverðir gailar, meðal annars hafi sérfróðir skoðunarmenn fyrst verið tilnefndir hálfum fímmta mánuði eftir bmnann, vettvangs- skoðun þeirra hafi verið ábótavant og slökkviliðsmenn hafi ekki verið yfirheyrðir um aðkomu og slökkvi- starf. 7 daga gæsluvarðhald ákærða kemur til frádráttar refs- ingu hans. Haukur Oskars- son látinn HAUKUR Óskarsson hárskera- meistari er látinn 74 ára að aldri. Hann fæddist í Reykjavík 5. janúar 1915, sonur hjónanna Óskars Árnasonar hárskera- meistara og Guðnýjar Guðjóns- dóttur. Haukur nam rakaraiðn af föður sínum og tók við af honum starf- rækslu elstu rakarastofu landsins við Kirkjuhvol í Reykjavík. Þá stofu stofnaði föðurafi Hauks, Árni Nikulásson, í upphafi aldar- innar. Eftir stríð stundaði Haukur Óskarsson um tíma söngnám í Salzburg í Austurríki og lék meðal annars í Gullna hliðinu í upp- færslu Leikfélags Reykjavíkur og í Marmara eftir Guðmundar Kamban í Þjóðleikhúsinu. Haukur var þekktur knatt- spymumaður og lék m.a. fyrsta landsleik íslands í knattspymu 1946. Hann tók mikinn þátt í fé- lagsstarfi Knattspymufélagsins Víkings og gegndi trúnaðarstörf- um innan raða þess. Haukur Óskarsson. Haukur Óskarsson var tvíkvæntur. Hann eignaðist tvo syni með fyrri eiginkonu sinni, Hafstein, sem er látinn, og Hauk, sem lifir föður sinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.