Morgunblaðið - 15.03.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.03.1989, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989 Jón Guðmundsson írá Nesi - Minning Fæddur 7. október 1909 Dáinn 7. mars 1989 Það er sama hvemig tímamir breytast og jafnvel mennimir með. Fráfall nákominna kemur alltaf sárt og illa við aðstandendur. Þann- ig var það með mig við fráfall stjúp- föður míns, Jóns Guðmundssonar, sem gjaman var kenndur við Nes í Selvogi. Jón Guðmundsson fæddist þann ^ 7. október 1909 að Borgum í Nesja- hreppi í Austur-Skaftafellssýslu. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson og seinni kona hans, Ingi- björg Jónsdóttir. Jón fluttist með foreldrum sínum og systkinum, fyrst að Reykjanesi í Grímsnesi en síðar að Nesi í Selvogi. Hann vann við búrekstur foreldra sinna frá unga aldri og allt til þess að þau hættu búskap árið 1945. Stundaði hann, jafnframt búskapnum, sjó- sókn á vertíðum frá Grindavík, Þorlákshöfn og síðar var hann á Kveldúlfstogurunum í Reykjavík. Árið 1945 fluttist hann alfarinn til Reykjavíkur og vann eftir það lengst af á Skattstofu Reykjavíkur sem gjaldkeri og fulltrúi. Árið 1980 lét hann af störfum þar fyrir aldurs sakir. Jón gegndi ýmsum trúnaðar- störfum í Selvogshreppi meðan hann bjó þar. Eftir að hann kom til Reykjavíkur tók hann einnig virkan þátt í félagsmálum. Um ára- tugaskeið átti hann sæti í stjóm Húseigendafélags Reykjavíkur um árabil og í Niðutjöfnunamefnd Reylqavíkur sem síðar fékk nafnið Framtalsnefnd Reykjavíkur. Árið 1956 giftist Jón móður minni, Sesselju Jónu Magnúsdóttur frá Borgamesi, sem þá var ekkja með þrjú ung böm heima: Hregg- við, Höllu og þann sem þetta ritar, böm Hreggviðs Magnússonar. Auk þess átti móðir mín eina dóttur frá fyrra hjónabandi, Þóru Guðrúnu Grönfeldt, en hún ólst upp í Borgar- nesi. Móðir mín og Jón eignuðust saman einn son, Guðmund. Jón Guðmundsson var ákaflega sterkur persónuleiki. Má segja, að hann hafi fyllt það umhverfi sem hann var í hverju sinni. Hann var mjög viljasterkrjr maður og harður við sjálfan sig og stundum einnig við aðra. Hann var traustur maður og trúr viðfangsefnum sínum og mjög orðheldinn. Fyrir þá sem leita þurftu til hans og áttu samskipti við hann var það nánast sem loforð ef hann gaf í skyn að hann ætlaði að reyna að gera eitthvað. í starfi sínu á Skattstofu Reykjavíkur og í Framtalsnefnd Reykjavíkur nýttist honum vel hin mikla lífsreynsla sem harðræði við búskap og sjómennsku hafði veitt honum. Gerði það honum auðveld- ara að meta aðstæður þess fólks sem leitaði til hans í starfi. Jón fylgdist mjög vel með stjómmálum og hafði einstakt lag á að setja hin ýmsu mál í pólitískt samhengi. Hann hafði einarðar stjómmála- skoðanir sem mótuðust af trúfestu við Sjálfstæðisflokkinn sem hann fylgdi alltaf einlæglega að málum. Það hefur engan veginn verið auðvelt fyrir Jón að ganga að eiga konu og taka um leið við þremur ungum bömum hennar, sem mótuð vom af því að hafa misst föður sinn snögglega. En Jón rækti hlutverk sitt af þeirri ábyrgð og festu sem honum var lagið. Hann gekk okkur í föðurstað og vegna löngunar okk- ar til að eignast föður og til þess að auðvelda honum föðurhlutverkið, kölluðum við hann pabba frá fyrstu tíð. Ekki er nokkur vafi á því að Jón hafði mikil áhrif á líf okkar systkin- anna og mótun okkar í uppvextin- um. Eins og gerist og gengur í lífinu þá var sumt frá tilveru hans í lífi okkar lærdómsríkt og ánægjulegt en annað ekki. Má þar ömgglega stundum um kenna erfiðleikum stjúpföðurs að nálgast stjúpbörn og þeirra að nálgast hann. Þegar á heildina er litið rækti hann hlutverk sitt sem fjölskyldufaðir og fyrir- vinna af traustleika. Þegar Jón lét af störfum átti hann langa starfsævi og oft erfiða að baki. Hefur vinnudagur hans ömgglega verið lengri og erfiðari en hjá okkur sem yngri emm og á eftir komum. Jón átti við heilsu- leysi að stríða síðustu árin. Þegar aldurinn færðist yfrr hann og heils- an bilaði breyttist hann úr hörðum, viljasterkum og lokuðum manni í veikari og meyrari mann sem átti auðveldara en áður með að opna sig og nálgast okkur sem næst honum stóðu. Jón Guðmundsson er nú kominn yfír móðuna miklu — sáttur við Guð og menn og laus við veikindi og þrautir. Eg og fjölskylda mín kveðjum hann hinsta sinni og blessum minningu hans. Magnús Hreggviðsson Mér varð hverft við þegar sonur Jóns hringdi til mín og sagði að faðir sinn hefði látist fyrir klukku- tíma. Jón hafði hafði komið til mín nokkrum dögum áður, á okkar gamla vinnustað, Skattstofuna í Reykjavík. Hann var þá hress og glaður, sagðist hafa verið hálf las- inn undanfarið, en væri við nokkuð góða heilsu núna. Við gátum spjall- að saman dálitia stund og farið saman í kaffi, eins og við gerðum daglega þau 30 ár sem við vorum samstarfsmenn. Við vorum búnir að ákveða að hittast bráðlega, og gefa okkur þá góðan tíma til að spjalla saman og minnast liðinna daga. Ég gleymi ekki hlýja hand- takinu þegar hann kvaddi mig. Okkur hefur víst hvorugum dottið í hug að þetta væri í síðasta sinn, sem við hittumst á þessu jarðlífs- sviði. Mér er það nú ljóst, að í þetta sinn var ég að kveðja einn besta mann sem ég hef átt samleið með á lífsleiðinni. Jón var vinsæll maður og mjög góður vinur þeirra sem áttu með honum samleið. Ekki vissi ég til þess, að hann ætti nokkum óvildarmann. Ég þekkti það af langri samfylgd að hann vildi verða flestum að liði. Margir leituðu lið- sinnis hans og vildi hann hvers manns vanda leysa, ef aðstæður til þess voru fyrir hendi. Nú er hann horfinn af sviðinu, en ég er þess fullviss að þeir sem kynntust honum eiga allir góðar minningar um hann. Jón var fæddur í Borgum í Nesja- hreppi í Austur-Skaftafellssýslu 7. október 1909. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson bóndi þar og kona hans Ingibjörg Guðmunds- dóttir. Þau voru bæði af þekktum skaftfellskum ættum. Ég hef heyrt eldri Skaftfellinga hafa orð á því, hve mikill dugnaðarmaður Guð- mundur hafi verið, þegar hann var ungur bóndi í Borgum. Fljótlega kom í ljós, að þessi jörð var ekki nógu stór fyrir slíkan dugnaðar- mann til búskapar. Guðmundur tók þá ákvörðun, sem ekki var algeng á þeim árum, að flytja í annan landshluta, til að finna búskapar- jörð við sitt hæfí. Jörundur Brynj- ólfsson alþingismaður, náfrændi Ingibjargar, hafði þá nýlega hafið búskap á hinu forna biskupssetri í Skálholti. Hann mun hafa útvegað Guðmundi jörðina Reykjanes í Grímsnesi. Þangað flutti Guðmund- ur með fjölskyldu sína og bústofn. Mikinn kjark og vilja hefur þurft til að flytja buferlum svo langt frá átthögum sínum, með stóran barna- hóp, eins og samgöngum var háttað á þeim tímum. Eftir nokkur ár var Reykjanes orðin of lítil jörð fyrir þetta dugnað- arfólk. Enn flutti Guðmundur fjöl- skyldu og bústofn. Nú varð fyrir valinu stórbýlið Nes í Selvogi. Eftir nokkurra ára búskap í Nesi var fjöl- skyldan komin með stærsta fjárbú landsins, á hinni víðáttumiklu jörð. Þeir sem til þekkja vita það best, að oft hefur fjárgæsla og smala- mennska verið erfið þegar girðingar voru ekki komnar í sveitum lands- ins. Nú þurfti að afla fjár til að girða þetta stóra land. Jón var þá um tvítugt. Það var erfitt á þessum árum að fá vellaunaða vinnu. Hann gekk á fund Ólafs Thors og falaði vinnu á Kveldúlfstogurunum. Ólafi leist vel á þennan unga og dugnað- arlega mann og Jón var ráðinn á togara. Ég hef góðar heimildir fyr- ir því, að skipstjórinn varð ekki fyrir vonbrigðum með þennan nýja sjómann. Jón var nokkrar vertíðir á Kveldúlfstogurunum og líkaði sjó- mennskan vel. Nú var fjár aflað til að girða landið í Nesi, og hið stóra fjárbú átti starfskrafta Jóns næstu árin. Þegar Guðmundur fór að eld- ast var verkstjóm á búinu að mestu leyti í höndum Jóns. Oft sagði Jón mér frá því, hve ánægjulegt það hefði verið þegar þeir feðgar vom að fá heim stóra fjárhópinn á haust- in. Um tvö þúsund fjár kom þá af fjalli. Á þessum ámm gegndi Jón ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína. Var m.a. í hreppsnefnd og formaður skólanefndar. Árið 1945 hætti fjölskyldan bú- skap í Nesi og flutti hingað til Reykjavíkur. Ingibjörg móðir Jóns var þá nýlega látin. Mæðuveikin byijuð að heija á íjárstofninn. Sam- göngur og aðstæður vom þannig að ekki þótti fjölskyldunni æskilegt að setja upp kúabú í Nesi. Keyptu - H m \AJ & P JötÁyj PARIS SNYRTJ VORUR SEM FAGFOLKIÐ VELUR fást í apótekum snyrtivörudeildum stórmarkaða snyrtivöruverslunum snyrtistofum DUSGUVOGI 2 síml 91-686334 Hef opnað lækningastofu í Domus Medica. Helga Hrönn Þórhallsdóttir. Sérgrein: Húð- og kynsjúkdómar. Viðtalsbeiðnir kl. 9-18 daglega í síma 14513. IIISALA á kuldaúlpum og skíðaanórökum. Helmings afsláttur. Don Cano-búðin, Glæsibæ, sími 82966. bræðurnir Jón og Sigurður þá hús á Óðinsgötu 13, þar sem fjölskyldan bjó fyrstu árin í Reykjavík. Jón hóf nú störf í vömhúsi Mjólk- urfélags Reykjavíkur fyrsta árið sem hann dvaldi í Reykjavík. Þar starfaði hann í nær tvö ár, eða þar til hann veiktist í baki og varð að hætta allri erfiðisvinnu. Halldór Sigfússon skattstjóri hafði keypt Nes í Selvogi af Guðmundi föður Jóns. Nú réð Halldór Jón til starfa á Skattstofunni í Reykjavík, og starfaði hann þar næstu 32 árin, eða frá 1947—1980. Jón var jafn- framt í framtalsnefnd Reykjavíkur í liðlega 12 ár. Ymsum fleiri trúnað- arstörfum gegndi hann á þessum ámm. Hann var í stjóm Húseig- endafélags Reykjavíkur og í full- trúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Öll störf sem Jón gegndi leysti hann vel af hendi, og ávann sér traust þeirra sem með honum störfuðu. Jón kvæntist árið 1956 Sesselju Magnúsdóttur Jónssonar spari- sjóðsstjóra frá Borgamesi. Hún var þá ekkja eftir Hreggvið Magnússon kaupmann, og átti þijú lítil börn. Jón reyndist stjúpbörnum sínum mjög vel og var sífellt með velferð þeirra í huga, bæði þegar þau vom ungböm á heimili þeirra hjóna, og ekki síður eftir að þau höfðu lokið námi og fóm að stofna sjálfstæð heimili. Systkinin em Magnús for- stjóri og blaðaútgefandi, Halla há- skólanemi, og Hreggviður verslun- armaður, sem er búsettur í Borgar- nesi á æskustöðvum móður sinnar. Þau hjónin eignuðust einn son, Guðmund blikksmið, sem nú síðustu árin hefur búið í sama húsi og for- eldrarnir, að Þverárseli 10 hér í Reykjavík. Jón og Sesselja keyptu íbúð í Stigahlíð 2, fljótlega eftir að þau giftust. Nokkmm ámm síðar byggðu þau einbýlishús í Bjarma- landi 6, og bjuggu þar um 15 ára skeið. Eftir að Jón var hættur störf- um á skattstofunni settist hann ekki í helgan stein, eins og það er nefnt þegar menn láta af störfum fyrir aldurssakir. Hann keypti hús í smíðum að Þverárseli 10, ásamt Guðmundi syni sínum. Fullgerðu þeir feðgar húsið, og hafa fjölskyld- urnar búið í þessu húsi síðustu ár- in. Þau Jón og Sesselja áttu alltaf mjög fallegt heimili. Þangað var gott að koma. Veitingar vom höfð- inglegar og viðmót þeirra elskulegt. Á heimili þeirra var jafnan mjög gestkvæmt, enda áttu þau hjónin marga vini og fjölskyldur þeirra fjölmennar. Það er margs að minnast frá langri samleið okkar Jóns. Við vor- um nánir samstarfsmenn og vinir um þriggja áratuga skeið. Eg held að fáir vinnudagar hafi liðið án þess að við Jón fengum okkur kaffi- sopa saman, og aldrei skorti um- ræðuefni. Jón var maður mjög vel greindur og fylgdist vel með öllu sem var að gerast. Hann hafði mjög mikinn áhuga á öllum þáttum lands- málanna, og var áhugasamur um stjómmálin. Við tókum stundum svona smá brýnur, í stjómmálaum- ræðunni, því ekki vomm við alltaf sammála í þeim efnum. Aldrei skyggði þetta þó á vinskap okkar. Við tókum þetta svona eins og smáhressingu okkur til ánægju, því báðir höfðum við mikinn áhuga á þessum málefnum. Jón var mjög vinsæll maður meðal starfsfélaga sinna. Ekki var annan mann betra að biðja bónar ef einhver samstarfs- manna þurfti á fyrirgreiðslu að halda. Ég minnist þess hve margir leituðu til hans með vandamál sín á skattstofuna. Hann var eftirsóttur til viðtals, bæði vegna þægilegs við- móts og hvernig hann lagði sig fram við að leysa vandamál flestra sem til hans leituðu eftir því sem að- stæður leyfðu. Nú er Jón horfinn úr hópnum okkar. Ég minnist þess með þakk- látum huga, hve mikið lán það var mér að eiga slíkan samferðarmann um langt árabil. Ég hef þá trú, að við eigum eftir að hittast síðar á öðru tilverustigi. Ég kvíði ekki þeim samfundi. Við hjónin sendum Sesselju og fjölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ragnar Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.