Morgunblaðið - 29.03.1989, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1989
33
Grænfriðungar mótmæla hvalveiðum íslendinga í 120 borgum í Bandaríkjunum:
Virðist aðallega hafa átt
að ná athygli Islendinga
- segir sendiráðsritarinn í Washington
l'ALSMADUK grænfriðunga í
Bandaríkjunum segir að hvalveið-
um Islendinga hafi verið mótmælt
í 120 borgum, víðsvegar um
Bandaríkin sl. laugardag, og að
mótmælin hafi vakið mikla eftir-
tekt ahqennings. Sendiráðsritari
íslenska sendiráðsins í Washing-
ton segir að frekar litið hafi farið
fyrir mótmælunum þar í landi,
enda hafi þeim aðallega virst ætl-
að að ná athygli íslendinga.
Svokallaður þjóðardagur gegn
hvalveiðum íslendinga var 25. mars
í Bandaríkjunum. Sally Shoup tals-
maður grænfriðunga sagði við Morg-
unþlaðið, að mótmælt hefði verið í
120 borgum og bæjum um allt landið,
og þúsundir tekið þátt í mótmælun-
um. Mótmælagöngur voru aðallega
við matsölustaði Burger King. Shoup
sagði að í New York hefðu um 150
manns mótmælt fyrir framan veit-
ingahús sem selja íslenskar vörur og
í Washington um 100 manns tekið
þátt í mótmælum við Burger King.
Þá hefðu verið vel sóttar mótmæla-
göngur í nokkrum borgum í Kali-
fomíu og Flórída. Hún sagði sjón-
varpsstöðina CNN hafa sent fréttir
af mótmælunum um allt land, og
héraðsútiþú allra stóru sjónvarps-
stöðvanna sagt fréttir af þeim.
Stefán L. Stefánsson sendiráðsrit-
ari í Washington sagði að samkvæmt
upplýsingum sendiráðsins hefðu
venjulega milli 20 og 40 manns tek-
ið þátt í mótmælunum á hveijum
stað. Þannig hefði framkvæmdastjóri
Burger King matsölustaðarins í Was-
hington sagt að um 20-25 manns
hefðu tekið þátt í mótmælum þar
fyrir utan, en ekki 100 manns eins
og grænfriðungar héldu fram. í Los
Angeles hefðu um 20 manns tekið
þátt í mótmælunum og fjölmiðlar
hefðu ekki sýnt þeim áhuga. Ekki
hefði verið sagt frá mótmælunum í
landssjónvarpi eða stóru blöðunum
eins og New York Times og Was-
hington Post. Staðarstöðvar hefðu
þó sagt fréttir af mótmælunum, aðal-
lega á austurströndinni.
Þegar þetta var borið undir Sally
Shoup sagði hún, að það væri eðli-
lega hagsmunir íslenskra stjómvalda
að gera eins lítið úr mótmælunum
og mögulegt væri. Hún viðurkenndi
aðspurð, að það gagnstæða gilti um
grænfriðunga, og alltaf væri ágrein-
ingur um fjölda þátttakenda í mót-
mælum. Hún hefði hins vegar sjálf
talið um 80 manns í Washington og
síðar hefðu fleiri bæst í hópinn.
Stefán sagði -að mótmælin hefðu
ekkert verið auglýst áður í blöðum,
eins og gert var á síðasta ári. Þeir
einu sem vitað hefðu af því hvar
átti að mótmæla voru virkir meðlim-
ir í Greenpeace og fjölmiðlar. „Maður
fær það á tilfinninguna að þeir leggi
ekkert upp úr því að fá fólk með í
þessar mótmælaaðgerðir, eða vekja
áhuga almennings á mótmælunum
áður en þau fara fram. Mótmælin
eru sniðin að fjölmiðlum, í þeim til-
gangi að láta sem mest á þessu bera
á Islandi. Þannig munu grænfriðung-
ar hafa vitað af íslenskum sjón-
varpsmanni í New York, og það hafði
greinileg áhrif þar,“ sagði Stefán.
Grænfriðungar ætla að halda
næsta þjóðardag gegn hvalveiðum
Islendinga 12. júní næstkomandi, en
þá hefst ársfundur Alþjóða hvalveið-
iráðsjns í San Diego í Kalifomíu.
Sally Shoup sagði að grænfriðungar
ætluðu að ferðast á milli stærstu
borga Mið-vesturríkjanna, færa sig
vestur á bóginn og enda í San Diego.
Samtök físksölufyrirtækja í Bandaríkjunum:
Fiskkaupendur hvattir til
að leiða herferðina hjá sér
SAMTÖK fiskvinnslu- og fisksölu-
fyrirtælga í Bandarikjunum hafa
sent frá sér dreifibréf þar sem
fiskkaupendur eru hvattir til að
leiða hjá sér herferð umhverfis-
verndarsinna gegn kaupum á
íslenskum sjávarafurðum. í sam-
tökunum eru um 1000 bandarísk
fymtæki.
í bréfinu eru raktar ástæður ís-
lendinga fyrir hvalveiðum. Þær séu
hluti af langtímarannsóknum þeirra
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 28.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta -Meftal- Magn Heildar-
verft verft verð (lestir) verft (kr.)
Þorskur 49,00 30,00 47,25 26,352 1.245.181
Ýsa 58,00 29,00 55,09 14,593 803.923
Karfi 24,00 15,00 22,92 8,229 188.606
Steinbítur 28,00 20,00 21,97 1,275 28.026
Koli 21,00 21,00 21,00 0,548 11.521
Langa 21,00 21,00 21,00 0,929 19.527
Lúöa 215,00 70,00 157,82 0,577 91.125
Ufsi 27,00 18,00 24,88 7,976 198.487
Hrogn 140,00 100,00 135,90 1,855 252.143
Keila 14,00 11,00 13,61 2,820 38.392
Samtals 44,15 65,160 2.876.931
Selt var úr Oddeyri EA, Ljósfara HF og frá fiskvinnslustöðvum
í Ólafsvik. í dag verður selt úr Haraldi Böðvarssyni AK og bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskursl. 50,00 45,00 47,00 69,573 3.270.059
Ýsasl. 69,00 50,00 54,05 70,560 3.813.754
Ýsa ósl. 69,00 69,00 69,00 0,842 58.098
Karfi 28,00 23,00 24,92 57,792 1.440.423
Ufsi 23,00 22,00 22,30 7,714 171.987
Keila 9,00 9,00 9,00 0,060 540
Langa 20,00 18,00 18,31 0,418 7.652
Lúða stór 285,00 240,00 256,91 0,376 96.600
Lúða millist. 310,00 310,00 310,00 0,039 12.090
Lúða smá 240,00 240,00 240,00 0,020 4.800
Skata 62,00 62,00 62,00 0,092 5.704
Skötuselur 150,00 150,00 150,00 0,118 17.700
Skötuselshalar 295,00 295,00 295,00 0,045 13.275
Samtals 42,92 207,649 8.912.682
Selt var úr Þorláki ÁR, Þrym BA og Ásbirni RE. i
selt úr Framnesi ÍS borskur 60 t, ýsa 15 t og karfi
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
dag verður
30 t.
Þorskur 46,50 38,00 45,90 82,269 3.776.345
Ýsa 71,00 46,00 47,96 48,209 2.311.955
Ufsi 20,00 11,00 14,50 1,262 18.300
Karfi 23,50 14,00 21,82 0,428 9.339
Blálanga 24,00 24,00 24,00 0,135 3.240
Keila 10,00 8,00 9,85 1,320 13.000
Langa 32,00 29,00 29,98 1,785 53.520
Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,492 7.380
Lúða 310,00 120,00 234,86 0,391 91.873
Skáta 61,00 52,00 59,83 0,035 2.130
Samtals 46,04 136,627 6.290.238
Selt var úr Hauki GK, Eldeyjarboða GK, Kára GK og Jennýju KE.
[ dag verður selt úr dagróðrabátum.
SKIPASÖLUR f Bretlandi. 20.-23. mars
Þorskur 67,51 443,530 29.942.143
Ýsa 114,91 21,150 2.430.348
Ufsi 37,21 12,710 472.943
Karfi 38,04 9,520 362.160
Koli 152,21 1,050 159.820
Grálúöa 112,75 8,150 918.911
Blandað 66,81 14,923 997.104
Samtals 69,04 511,034 35.283.429
Kambaröst SU seldi í Hull 20.3. 191 tonn fyrir 13 .979.290 kr.,
meðalv. 73,15. Arnarnes Sl seldi í Grimsby 22.3. 80 tonn fyrir
4.873.852 kr., meðalv. 60,81. Óskar Halldórsson RE seldi í
Hull 22.3. 72 tonn fyrir 5.148.407 kr., meðalv. 71,22. Sigurey
BA seldi í Grimsby 23.3. 167 tonn fyrir 11.281.881 kr., meðalv.
67,36.
á vistkerfi sjávarins umhverfis
landið. Bent er á að ísland veiji hlut-
fallslega meiri fjármunum til fisk-
rannsókna en nokkurt annað land.
Alls eru taldar upp sex ástæður fyr-
ir því að viðskiptabann á íslenskar
afurðir sé ósanngjamt og skaðlegt.
Orðrétt segir í dreifibréfinu:
„Vísindarannsóknir íslendinga
stefna hvalastofnum ekki í hættu.
Stofnar eru vel á sig komnir og um
ofveiði er ekki að ræða.
Fiskur frá íslandi er fullunninn í
Bandaríkjunum. Viðskiptabann
skaðar því bandaríska verkamenn og
sj áv arafurðafyrirtæki.
íslenskar sjávarafurðir er mikil-
vægur hluti af fískbirgðum í Banda-
ríkjunum. Yrðu þær útilokaðar myndi
það skaða neytendur.
íslendingar hafa leyfi til að fram-
fylgja rannsóknaráætlun sinni sam-
kvæmt Alþjóða hvalveiðisamþykkt-
inni.
Að lokinni könnun allra stað-
reynda málsins komst Bandaríkja-
stjóm að þeirri niðurstöðu að rann-
sóknaráætlun íslendinga hafi ekki
skaðleg áhrif á alþjóðlegu hvalvemd-
aráaætlunina.
íslenska rannsóknaráætlunin er
víðtæk fjögurra ára áætlun sem felur
í sér marga þætti sem ekki krefjast
hvalveiða. Þeim þætti rannsóknar-
innar sem krefst hvalveiða verður
lokið á þessu ári og ekki eru fyrir-
liggjandi áætlanir um framhaldið."
I dreifibréfínu, og öðru bréfi sem
undirritað er af Lee J. Weddig fram-
kvæmdastjóra samtakanna og sent
hefur verið til ýmissa aðila, er þess
einnig getið, að það sé hræsni að
Bandaríkjamenn vilji beita þjóð, sem
er þúsund sinnum minni, viðskipta-
þvingunum, á meðan hvalveiðar séu
stundaðar í Bandaríkjunum. Bent er
á, að Bandaríkjastjóm styði veiðar
frumbyggja í Alaska á sléttbak sem
sé í útrýmingarhættu.
Samtökin munu halda þing 9.-13.
apríl í Las Vegas, þar sem herferð
grænfriðunga gegn íslendingum
verður rædd, og hvemig fiskiðnaður-
inn eigi að taka á slíkum málum.
Menntamála-
ráðherra á
Austurland
Menntamálaráðherra,
Svavar Gestsson, mun heim-
sækja Egilsstaði, Reyðar-
Qörð og NorðQörð dagana
29. til 31. mars.
Miðvikudagskvöld 29. mars.
verður haldinn opinn fundur
með skólafólki og áhugafólki
um skólamál í Menntaskólanum
á Egilsstöðum.
Á fimmtudagsmorgun verð-
ur Menntaskólinn á Egilststöð-
um heimsóttur, síðan verður
farið til Reyðarfjarðar, Eski-
flarðar og Norðfjarðar og þar
heimsóttir skólar og aðrar
stofnanir sem undir ráðuneytið
heyra. Um kvöldið verður fund-
ur með skólafólki í Neskaup-
stað.
Eiðar verða heimsóttir á
föstudagsmorgun og Hallorms-
staður, ennfremur skólar og
stofnanir á Egilsstöðum.
Fulltrúa-
ráðsfundur
sveitarfélaga
SAMBAND íslenskra sveitar-
félaga heldur fulltrúaráðs-
fund á Hótel KEA á Akur-
eyri, dagana 30. og 31. mars
nk. Slíkir fiindir eru haldnir
árlega.
Auk venjulegra fundarstarfa
verður á þessum fundi ijallað
um nokkur sveitarsljómarmál-
efni, sem nú eru ofarlega á
baugi, þ.e. staðgreiðslukerfið,
frumvörp til laga um breytta
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga og frumvarp til laga um
tekjustofna sveitarfélaga.
Formaður Sambandsins,
Sigurgeir Sigurðsson bæjar-
stjóri á Seltjamamesi, setur
fundinn með ávarpi klukkan
13.30 á fimmtudag, en ráðgert
er að fundinum ljúki síðdegis á
föstudag 31. mars.
Félagsmálaráðherra, Jó-
hanna Sigurðardóttir, sem jafn-
framt er ráðherra sveitarstjóm-
armála, mun flytja ávarp á full-
trúaráðsfundinum.
Endurhœfingastöd
hjarta- og lungnasjúklinga,
Háaleitisbraut 11-13, 108 Reykjavík.
Kt. 460189-1529, sími 84999.
Um næstu mánaðamót tekur til starfa í húsi Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra á Háaleitisbraut 11-13, Endurhæfingarstöð hjarta- og lungnasjúkl-
inga. Að henni standa Landssamtök hjartasjúklinga, Hjartavernd og SIBS.
Viðhaldsþjálfun fyrir fyrrverandi hjartasjúklinga undir eftirliti sjúkraþjálfara
og lækna verður í fjórum hópum, sem þjálfa þrisvar í viku.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Seld eru mánaðarkort á 4.500 krónur. Pantanir fyrir aprílmánuð verða tekn-
ar milli kl. 13-16 virka daga í mótttökunni hjá Styrktarfélagi lamaðra og
fatlaðra (sími 84999).
Skipting í hópa er þannig:
Hópur A: Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 18-19 (upppantað).
Hópur B: Mánudaga kl. 19-20,
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18-19 (upppantað).
Hópur C: Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 19-20.
Hópur D: Mánudaga kl. 18-19, miðvikudaga og föstudaga kl. 19-20.
Upplýsingar og skráning fyrir lungnasjúklinga eru á sama stað.