Morgunblaðið - 29.03.1989, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 29.03.1989, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1989 Ijóðeiga erindi til allra ÍSLENSK KVÆÐI Vigdís Finnbogadóttir valdi „Ég hef lengi litið svo á að Ijóðalestur og Ijóða- söngur sé hin ágætasta leið til að efla málvitund manna, auka orðaforða og treysta samhengið í sögu okkar, auk þess sem skemmtileg og falleg Ijóð veita huganum gleði sem enginn getur frá honumtekið.“ Úr formálsorðum Vigdísar Rnnbogadóttur. Gullfalleg fermingargjöf Mál imi og menning Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Simi 15199-24240. Athugasemd vegna könn- unar Neytendasamtak- anna á farsi og hakki eftirKonráð Konráðsson Stöðugt er verið að gera kannan- ir. Gerðar eru kannanir á því hversu margir hlusta á fréttatíma RÚV, hversu margir horfa á fréttaþáttinn 19:19 o.s.frv. Kannanir þessar eru yfirleitt gerðar af fyrirtækjum er hafa sérhæft sig í slíku. Tekið er úrtak úr ákveðnum hópi, allt eftir því hvað kanna skal. Til þess að könnun verði marktæk þarf að fylgja ákveðnum reglum. Flest allir taka mark á könnunum í trausti þess að þær séu faglega unnar og vel að þeim staðið. Þess vegna er það nokkuð alvarlegur hlutur ef kannanir sem birtar eru opinberlega eru ekki nægilega vel úr garði gerð- ar og eða niðurstöður ranglega túlk- aðar. í framhaldi af þessu vil ég að leyfa mér að gangrýna nýlega könnun Neytendasamtakanna á kjötfarsi og kjöthakki. Ég ætla mér ekki að veija framleiðslu á lélegu hakki og farsi. Ástandið í þeim málum er langt frá því að vera við- unandi. Tilgangurinn er heldur ekki að mæla gegn Neytendasamtökun- um. Þau samtök eiga rétt á sér en það sem máli skiptir er hvemig haldið er á spöðunum. Sem formála að þeim orðum vil ég fyrst koma inn á almennt heil- brigðiseftirlit í landinu og lög er varða sama málefni. Heilbrigðiseft- irlit er framkvæmt m.a. samkvæmt lögum nr. 81/1988 um heilbrigðis- eftirlit og hollustuhætti. í lögum þessum er fjallað um hlutverk heil- brigðisnefnda og Hollustuvemdar ríkisins ásamt öðm. í kafla um Hollustuvernd ríkisins segir í grein 13.11 „Upplýsingar og tilkynningar stofnunarinnar til fjölmiðla skulu vera efnislega rökstuddar og þess gætt að einstakar atvinnugreinar, stofnanir eða fyrirtæki bíði ekki tjón og álitshnekki að óþörfu." Rannsóknastofa Hollustuverndar rannsakaði þessi sýni Neytenda- samtakanna. Mögulegt er að Holl- ustuvernd sé ekki stætt á því að neita samtökum eða einkaaðilum um slíkar rannsóknir, og ekki vom þetta beinar upplýsingar til fjöl- miðla, en vel mátti sjá fyrir hvað Neytendasamtökin ætluðu sér með rannsókninni. Sérstaklega í ljósi þess að slíkar kannanir hafa farið fram áður. Þessi hlutdeild rann- sóknastofunnar er því umhugsunar- efni að mínu áliti, með skírskotun í anda ofangreindrar greinar nr. 13.11. Vera kann að sumum þyki að andi greinarinnar sé teigður heldur langt í þessu tilviki, og lái ég það engum, en engu að síður má Hollustuvernd ekki gleyma þeirri ábyrgð er á henni hvílir. Það vom Neytendasamtökin sem stóðu fyrir könnuninni en ekki heilbrigðis- eftirlitið í landinu. Þær alhæfingar og þær ályktan- ir, sem birst hafa í fjölmiðlum frá Neytendasamtökunum, vil ég einn- ig draga í efa. Ég tel að það sé með engu móti hægt að draga þær ályktanir sem gerðar hafa verið af hálfu samtakanna. Málið er mun flóknara en svo. Þær upplýsingar sem fram komu í Qölmiðlum vom einungis um sýnatökustað og niður- stöður úr rannsókninni. Engar upp- Iýsingar um hvemig staðið var að sýnatöku, um framleiðanda vörunn- ar né heldur um framleiðsludag hennar, sem er forsenda þess að hægt sé að meta niðurstöðu rann- sókna. Það er augljóst að ekki er sama hvort sýni er tekið af kjötvöru á framleiðsludegi eða á síðasta sölu- degi. Að slá fram niðurstöðum opin- berlega án þessara upplýsinga er ekki forsvaranlegt og ófaglega að staðið. (Niðurstaða könnunarinnar „Það er augljóst að ekki er sama hvort sýni er tekið af kjötvöru á framleiðsludegi eða á síðasta söludegi. Að slá fram niðurstöðum opin- berlega án þessara upp- lýsinga er ekki forsvar- anlegt og ófaglega að staðið.“ gefur hins vegar tilefni til frekari athugana.) Þess ber einnig að geta að sýna- taka er eitt hjálpartækja til þess að meta gæði matvæla. Ein sýna- taka segir okkur einungis um ástand vömnnar í það skiptið er sýnið er tekið. Hún segir ekkert um hvernig ástandið var deginum áður, eða hvernig ástandið verði deginum seinna. Til þess að fylgjast með einu ákveðnu fyrirtæki, og draga raunhæfar ályktanir þar af, þarf mun fleiri sýnatökur til og það á lengri tíma. Tilvist ákveðinna gerla í vöm geta gefið töluverðar vísbendingar um meðhöndlun hennar. Komið var lítillega inn á þetta í grein í Morgun- blaðinu þann 15. mars sl., þar sem vitnað var í greinargerð Rann- sóknastofu Hollustuvemdar er fylgdist með könnunni. Á Rannsóknastofu Hollustu- vemdar er yfírleitt ekki leitað beint eftir sjúkdómsframkallandi gerlum (að undanskildum staphylococcus auresu) við venjubundnar rann- sóknir á matvælum. Hins vegar er alltaf leitað að saurcoli-gerlum. Hár saurcoli-gerlafjöldi í kjötfarsi segir okkur að varan hafí mengast og þar af leiðandi sé hún ósöluhæf. En þessi gerlategund segir ekki viÐsmmm W VEGUR TIL VELGENGNI VEGUR TIL VELGENGNI Með vaxandi samkeppni á öllum sviðum við- skipta er nauðsynlegt að skoða vel þær baráttu- aðferðir sem bjóðast. Nám í viðskiptatækni er ætlað þeim sem vilja hafa vakandi auga með öllum möguleikum sem gefast í nútíma rekstri fyrirtækja og vilja auka snerpu sína í harðnandi samkeppninni. Viðskiptatækni er 128 klst. námskeið. Hnitmiðað nám, sem byggt er á helstu viðskiptagreinum, markaðs- og fjármálastjórnun -sniðið að þörfum yfirmanna fyrirtækja, sölumanna og markaðsstjóra, og þeirra er starfa að eigin rekstri. Nokkur atriði námskeiðsins: Grundvallaratriði í rekstrarhagfræði Framlegðar og arðsemisútreikningar Verðlagning vöru og þjónustu Fjárhags- og rekstraráætlanir Islenski fjármagnsmarkaðurinn Markaðsfærsla og sölustarfsemi Auglýsingar Bókhald sem stjórntæki Gestafyrirlestur Innritun og allar nánari upplýsingar eat veittar í símum 68 75 90 & 68 67 90. Hringið og við sendum upplýsinga- bækling um hæl. Tölvufræðslan Stjórnunar- og viðskiptadeild Borgartúni 28

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.