Morgunblaðið - 11.04.1989, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1989
/, Jcl h&mo., þetta. erfc þó.1 Hvcá er larigi
slðan ? Tuttugu dr? Atér-fiannst
þdckj'ou ctffcur jcOcka.'fetin.
*
Ast er...
... að vita hvar upphafshögg
hans lendir.
TM Reg U.S. Pat Otl.—all rigíits reserved
• 1989 Los Angetes Times Syndicate
Með
morgxinkafiinu
Ég veit ekki hver hún er.
Ég lofaði Jóni að sitja hjá
henni en hann fór að ná
sér í drykk.
HÖGNI HREKKVtSI
!H —
„ÉG HATA KETTI."
'1 ^ //V7 ápl
„...OGBS SkAL-SESaAVKkOR WVPRS VEðNA."
Þessir hringdu .. .
Ástæða til að sýna
hæftiisvottorð
Kjósandi á Reykjanesi hríngdi:
Finnst þér, lesandi góður, ekki
ástæða til að þingmenn, að ég tali
nú ekki um ráðherrar, hafi hæfnis-
vottorð til slíkra starfa, sem geta
varðað örlög lands og þjóðar?
Dæmi eru um að menn lýsi sjálfum
sér þannig: „Ég hefí verið í fíla-
beinsturni og því ekki fylgst með
hvað hefur verið að gerast og það
hefur verið skrökvað að mér, ég
hefi verið plataður." Og síðast en
ekki síst þegar menn afsaka mis-
sagnir og vitleysur með gleymsku.
Þeir gleyma s.s. mörgu sem þeir
heyra og sjá. Er mönnum sem
svona er ástatt með treystandi
fyrir meðferð fjöreggs þjóðarinnar?
Dýravernd
Sigrún Eymundsdóttir
hringdi:
Ég held að tími sé til kominn
að Dýravemdunarfélagið láti til sín
taka. Það virðist eins og bændur
og fleiri geti hagað sér eins og
„villimenn" í sambandi við sínar
eigin skepnur, samanber hesta-
flutninga. Ég held að félagið eigi
vantalað við þá á Barðaströndinni
sem virðast gleyma því að þeir
eiga lifandi skepnur í haga.
Ég held að það megi meta
mann-
eskjuna eftir því hvemig hún um-
gengst dýrin. Mér finnst að þessir
menn eigi að gjaldaiffverka sinna.
B.L. hringdi:
Ég hringdi í bankann minn á
föstudagsmorgunn til að athuga
hvort örorkulífeyrisbætumar væm
komnar, en þeim hafði þá seinkað
fram yfir helgi. Mér fannst svar
bankastarfsmannsins vægast sagt
óviðeigandi en það hljómaði eitt-
hvað á þessa leið: „Þá geta öryrkj-
arnir bara hvílt sig á brennivíninu
um helgina.“
Uppskera lramsóknar-
áratugarins
Langminnug hringdi:
Framsóknarmenn hafa nú ekki
hátt um framsóknaráratuginn sem
þeir gumuðu sem mest að í síðustu
kosningabaráttu fyrir þingkosn-
ingar. En sannleikurinn er sá að
nú er uppskera þessa áratugar að
koma í ljós og sannast þá sem
fyrr að það er ekki heillavænlegt
fyrir íslenskt atvinnulíf að áhrif
Framsóknarflokksins séu mikil.
Tímaljósið Garri reynir hins vegar
í pistli sínum 7. apríl að kenna
síðustu ríkisstjóm — sem sat að
völdum í rúmt eitt ár — um ástand
mála og firrir Framsóknarflokkinn
allri ábyrgð. Það er eftir öðru á
þeim bæ, þar sem menn eigna sér
það sem vel gengur, en svetja af
sér það sem miður fer. Enda virð-
ist minnisleysi hijá margan fram-
sóknarmanninn.
Börn í búðarferðum
Edda hringdi:
Fyrir skömmu sá ég fjögurra
eða fimm ára gamalt bam á Bar-
ónsstígnum rogast með nokkra
lítra af mjólk og leiða annað barn
um 2 ára. Eldra barnið réð ekkert
við yngra barnið sem vildi æða út
á götuna. Finnst fólki þetta hægt?
Og ættu foreldrar ekki að hugsa
sig tvisvar um áður en þeir senda
bömin út í búð?
Drengur fæddist
Haraldur Jóhannesson
hringdi:
Ég vil þakka fréttamanninum
sem sagði frá því í útvarpinu á
föstudagsmorgun að drengur hefði
fæðst í sjúkrabíl. Þetta orð, dreng-
ur, er svo sjaldan notað nú orðið.
Bindum enda á verkfallið
Framhaldsskólakennari
hringdi:
Mér finnst kröfur okkar samn-
ingafólks, þegar BSRB er búið að
semja, vera óraunhæfar. Þess
vegna vil ég vita hvort ekki sé
hægt að skella á okkur bráða-
birgðalögum þar sem við verðum
látin fá sömu hækkanir og BSRB
og að misgengi launa frá í fyrra
verði lagað. Það hlýtur að vera
hægt þegar haft er í huga að að-
eins naumur meirihluti var fyrir
verkfallinu. Auk þess gengur það
ekki að við séum alltaf að beita
fyrir okkur saklausum krakka-
greyjum og svo bitnar allt á þeim.
Ballettskóli
Eddu^
Scheving
/á) Skúlatúni 4
Meðlimur í Félagi íslenskra listdansara.
INNRITUN DAGLEGA
Í SÍMA 25620 PRÁ KL. 15-16
4ra vikna vornámskeið hefst 15. apríl.
Fjölbreytt og skemmtilegt kerfi fyrir
alla aldurshópa (yngst 4ra ára).
Innritun og upplýsingar í síma 25620
frá kl. 15-16.
Afhending skírteina í skólanum föstu-
daginn 14. apríl kl. 17-18.