Morgunblaðið - 16.04.1989, Síða 1
96 SIÐUR B/C
86AhL_77:Jírg1_________ SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1989_______________________________________________________________________PrentsmiðjaMorgunblaðsins
VORDAGUR A FAXAFLÓA
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Recruit-hneykslið 1 Japan;
Milljónatugir höfiiuðu í vasa
fyrrum utanríkisráðherra
Hu Yaobang
látinn í Kína
Peking. Reuter.
HU YAOBANG,
fyrrum flokksleið-
togi í Kína, lézt í
gær af völdum
hjartaslags. Hann
var á 74. aldursári.
Hu var kjörinn að-
alritari kínverska
kommúnistaflokks-
ins 1980 en
harðlínumenn neyddu hann til að segja
af sér eftir stúdentaóeirðir 1987. Hann
gekk ungur til liðs við skæruliðasveit-
ir Maós Tsetungs og tók þátt í
Göngunni miklu árið 1934. Komst hann
til áhrifa en féll í ónáð á tímum menn-
ingarbyltingarinnar og aftur 1976 er
ekkja Maós reyndi að treysta völd fjór-
menningaklíkunnar svonefhdu.
Reykjavík ekki
á óskalistanum
Helsinki. Frá Tom Kankkonen, fréttaritara
Morgunblaðsins.
I FINNSKA utanríkisráðuneytinu eru
menn komnir í klípu með skipan nýs
sendiherra Finnlands á íslandi. Stjórn-
arerindrekar, sem uppfylla skilyrði
fyrir því að verða sendiherrar, hafa
neitað boði um að taka við af núver-
andi sendiherra. Að sögn fínnskra
blaða eru nú uppi ráðagerðir um að
reyna að fá mann úr viðskiptalífínu
til að taka við sendiherrastarfínu í
Reykjavík.
Græniand:
Deilur um smá-
bari á hótelum
Kaupmannahöfr. Frá N.J. Bruun, fréttaritara
Morgunblaðsins.
í Grænlandi hef-
ur því verið skot-
ið til dómstólanna
hvort leyfilegt er
að selja áfengi úr
svokölluðum smá
börum á hótelher- *
bergjum á þeim tíma dagsins, sem
áfengissala er annars bönnuð. Græn-
lenska lögreglan vill nú fá úr því skor-
ið hvort sömu reglur eigi ekki að gilda
um smábarina. Samband hótel- og veit-
ingahúsaeigenda hefur klofnað í þessu
máli. Hefiur veitingahúsaeigandinn
Svend Junge sagt skilið við það og
segir hann í viðtali við grænlenska
útvarpið, að mörg dæmi séu um, að
fólk leigi sér herbergi aðeins til að
hafa aðgang að smábarnum.
Tókýó. Reutcr.
SHINTARO Abe, fyrrum utanríkisráð-
herra Japans, viðurkenndi í gær að hann
hefði tekið við greiðslum ft-á Recruit-
fyrirtækinu. Á föstudag skýrði Abe frétta-
mönnum frá því að kona sín hefði um
þriggja ára skeið fengið mánaðarlegar
greiðslur frá fyrirtækinu. Þykir þetta
mikið áfall fyrir Noboru Takeshita forsæt-
isráðherra og ríkissljórn hans en Qöl-
margir embættismenn hafa verið hand-
teknir í tengslum við Recruit-hneykslið
og þrír ráðherrar hafa neyðst til að segja
af sér.
Japönsk dagblöð kváðust hafa heimildir
fyrir því að Abe, sem er framkvæmda-
stjóri Frjálslynda lýðræðisflokksins, flokks
Takeshita forsætisráðherra, hefði fengið tæp-
ar 100 milljónir jena (tæpar 40 milljónir ísi.
kr.) á undanfömum tíu árum frá forráða-
mönnum Recruit. Abe lét ekki uppi um hversu
miklar fjárhæðir væri að ræða en gaf til kynna
að greiðslurnar hefðu runnið í kosningasjóð
hans. Kvaðst hann ekki hafa brotið lög en
japönskum stjórnmálamönnum er heimilt að
þiggja greiðslur til að fjármagna kosningabar-
áttu sína þó svo almenningur telji slíkt merki
um siðblindu.
Á föstudag skýrði dagblaðið Mainichi
Shimbun frá því að eiginkona Abe hefði þeg-
ið greiðslur frá Recruit. Abe viðurkenndi að
fyrirtækið hefði greitt samtals 9,3 millj. jena
(3,5 millj. ísl. kr.) inn á bankareikning konu
sinnar. Sagði hann þó, að hvorugt þeirra
hefði vitað um þessar greiðslur. Abe hefur
verið talinn líklegur sem næsti forsætisráð-
herra.
Noboru Takeshita, forsætisráðherra, hefur
einnig játað að hafa tekið við framlögum frá
Recruit og telja margir fréttaskýrendur að
mál þetta kunni að verða honum að falli.
Tígrisdýr-
um flölgar
London. Daily Telegraph.
Tígrisdýrastofninn hefur um það bil tvö-
faldast í heiminum á síðustu 15 árum vegna
friðlýsingar og verndunar í þjóðgörðum.
Talið er að um 7.500 tígrisdýr séu á fæti.
Við útrýmingu þeirra lá í Indlandi vegna
stjórnlausrar veiðimennsku. Árið 1970 var
bannað að fella þau og er talið að ind-
verski stofninn telji nú um 1.800 dýr.
SVÍFLR
VIIRISHWI
SÓTMEVGAÐ
SKÝ/íO ____
LOFTMENGUN NÁLGAST
VIÐMIÐ UNARMÖRK
Dr. Gottfried Wagner/ ~í A