Morgunblaðið - 16.04.1989, Page 17
MORGUiVbLAÐÍÐ1 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1989
GIC
avniDH
krankleika þjóðfélagsins, var þög-
ul utan makalauss söngatriðs.
En nú taldi Chaplin tíma kom-
inn til að kveðja flækinginn og
þöglu myndirnar. Einræðisher-
rann, (The Great Dictator), var
háðsádeila á fasisma og krón-
prinsa hans, Mussolini, þó einkum
Hitler, sem Chaplin lék sjálfur og
einnig tvífara hans, rakara af
gyðingaættum.
Margir vilja meina að nú fari
að halla undan fæti. Monsieur
Verdoux, (1947), er geysi um-
deild, “svört“ gamanmynd, byggð
á sögninni um Svartskegg með
friðarboðskaps ívafí. Áhorfendur
um allan heim syrgðu flækinginn
litla, hans einföldu en göfugu
hugmyndafræði og barnalegu til-
finningasemi. Næstu mynd gerir
Chaplin, þá landlaus maður, í
London. Limelight er ljúfsár upp-
rifjun á sönghallatímabili bernsku
hans, einnig prýdd leik þess
manns sem einn kemur nálægt
Chaplin í kómedískri túlkun þöglu
myndanna, sjálfs Buster Keaton.
Síðustu tvær myndir Chaplins,
sem hann gerði á Englandi, búa
aðeins yfir nokkrum blossum
hverfandi snilligáfu. Kóngur í
New York, 1957, var háðsk ádeila
á McCarthyismann og Banda-
rískar lífsvenjur, séðar með aug-
um landflótta konungs. í Greifynj-
unni frá Hong Kong, (1966), vék
Chaplin úr röðum aðalleikara, lét
sér nægja að leikstýra þeim
Brando og Loren, skrifa handrit
og semja tónlist, en þetta dugði
ekki til; að flestra dómi er þessi
síðasta mynd hans sú slakasta á
rösklega hálfrar aldar ferli. Og
óneitanlega skyggðu þær á glæst-
an feril.
Það var árið 1953 sem frægðar-
sól snillingsins fór að lækka. Hann
lenti í útistöðum við Ó-Amerísku
nefndina, hafði löngum verið orð-
aður við kommúnisma og einkalíf-
ið hafði verið stormasamt og
hneykslunarhella góðborgaranna.
Kvensemin reið víst ekki við ein-
teyming og átti Chaplin í fjöl-
mörgum, umtöluðum og hávaða-
sömum ástarsamböndum, gjarnan
við þekktar leikkonur og sam-
verkamenn einsog Ednu Purvian-
ce, Polu Negri og hjónaböndin
urðu fjögur. Þriðja eiginkona hans
var Paulette Goddard en fjórða
hjónabandið, með Oonu O’Neal,
(dóttur leikritaskáldsins Eugene),
færði honum hamingju og ástúð
til dauðadags og fjölda barna.
Allt þetta varð til þess að Chaplin
hraktist í útlegð til Evrópu 1953
og eftir það náði hann aldrei fyrra
flugi. Hann hlaut þó að lokum náð
fyrir augum bandarísku kvik-
myndaakademíunnar 1971, er
hún veitti hinum 82 ára snillingi
heiðurs- Oscarsverðlaun fyrir
ómetanlegt innlegg sitt í sögu
kvikmyndanna. Bretar létu ekki
sitt eftir liggja og slógu öldunginn
til riddara 1975.
Þó svo að þessi mesti gaman-
leikari og trúður kvikmyndanna,
höfundur nokkurra bestu verka
kvikmyndasögunnar, hafi fallið
frá fyrir 12 árum fínnum við æ
fyrir nálægð hans í gegnum hin
mörgu og sígildu verk hans sem
sí og æ eru að skjóta upp kollinum
á kvikmyndahátíðum, myndbönd-
um, í sjónvarpi. Við þurfum ekki
annað en að sjá nafnið Chaplin
þá detta okkur í hug töfrar.
Heimildir: Chaplin, e. David Robinson. The
International Encyclopedia Of Film. My
Autobiography, e. Charles Chaplin. The
Parade Is Gone By, e. Kevin Brownlow.
Til þess að kynnast landi og þjóð er nauðsynlegt að leita út fyrir borgirnar.
Á bílaleigubíl, með lestum eða rútum, siglandi eftir skurðum og síkjum
eða jafnvel gangandi.
Norður-England og þjóðgarðarnir Lake District, North York Moors,
Yorkshire Dales og Peak District búa yfir heillandi ósnortinni
náttúrufegurð ásamt fjölskrúðugu jurta- og dýraríki sem löngum hafa heillað
göngugarpa og náttúruunnendur.
Cornwall. Að aka milli litlu fiskiþorpanna á Cornwallskaganum er eins
og að skjótast aftur í aldir. Myndræn fegurð t.d. Clovelly, Lynton og
Lynmouth er ógleymanleg og Jamaica-kráin á Bodmin Moor er jafn
i dulúðug og í samnefndri sögu Daphne de Maurier.
Suður-England hefur sannarlega margt að bjóða þeim sem njóta vilja
sólar og skemmtunar. Einkar milt loftslag, ljós strandlengja, pálmatré og
annar suðrænn gróður hafa gert suðurströndina að einum vinsælasta
sumarbaðstað í norðanverðri Evrópu.
Wales. Óvíða er að fmna jafnmarga sögufræga kastala og kastalarústir og
, í Wales. I grasi grónum hlíðunum, innan um sauðfé á beit eða sitjandi við
\ lítið vatn með stöng, gætirðu haldið að þú værir eina manneskjan í
\ heiminum.
Skotland. Skosku hálöndin hafa árum saman dregið að ferðamenn, með
hinu dularfulla Loch Ness, undurfagra Loch Lomond og hinu sérstæða
Great Glen, ekki síður en hinir heimsþekktu skosku golfvellir.
Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá
söluskrifstofum Flugleiða, Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni,
eða hjá ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um land allt.
FLUGLEIÐIR
BRESKA FERÐAMÁLARÁÐIÐ