Morgunblaðið - 16.04.1989, Page 31
< G8GÍ JÍÍHA .91 HU0A(ltJM1jU8 JViUI.1 JH*! B jHJO"l QIQAJSMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1989
0&
31
TÓNLIST
Músíkin í blóðinu á okkur
Sigurvegarar úr „Músíktilraunum" fyrir ári eru hljómsveitin Jó Jó
lrá Skagaströnd. Þeir neita því að sá sigur hafi fært þeim frægð á
einni nóttu en viðurkenna þó að þeir hafi fengið meiri athygli en ella,
og auðvitað meira spilirí. Þeir fengu gefins tíma í hljóðveri og voru
tekin upp tvö lög sem fóru á safnplötuna „Bongóblíðan". Fyrir síðustu
jól kom út á plötunni „Frostlög" lagið „Stæltir strákar" og það lag
hefúr einna helst aflað þeim vinsælda sunnan heiða.
Þessir hressu piltar stofnuðu
hljómsveitina fyrir tveimur
árum á Skagaströnd. Þetta er litrík-
ur hópur, söngvarinn starfar við upp-
vask jafnhliða því sem hann er að
leika í kvikmyndinni „Magnús", ann-
ar á fyrirtæki, sá þriðji ætlar að
verða fjölmiðlafræðingur og aðrir
tveir eru í trésmíðanámi. Eins og
þeir segja er samstarfsandinn góður
og þeir stilltir inn á hvern annan
þrátt fyrir að hver og einn hafi sinn
eigin músíksmekk. „Nei, það er eng-
in fyrirmynd, við erum alltof sjálfs-
uppteknir, það hefur ekkert áhrif á
okkur. Músíkin er í blóðinu á okkur,
eins og á svertingjunum
hmhmhm . ..
— Er hljómplata væntanleg?
„Nú erum við að taka upp ný lög
og ætlum með það í útgefendur. Við
eigum nóg efni sem búið er að safn-
ast upp síðastliðin ár. Og auðvitað
stefnum við að því að gefa út plötu,
það er alltaf draumurinn. Músíkin
er ekki eins létt hjá okkur og áður,
þetta er vandaðra og betra á allan
Hljóm-
sveitin er
semsagt á
lausu ef fólk
vantar alvöru
danshljómsveit.
Hljómsveitina Jó Jó skipa
stæltir strákar. Frá vinstri
talið: Krislján Blöndal,
trymbill, Ingimar Oddsson,
söngvari, Valur Einarsson,
gítar, Viggó Magnússon,
Viggósson,
gítar.
hátt. Það er meiri
hugsun á bak við spil-
ið og textana en
áður.“
Þessir hressu
piltar verða á
Skagaströnd í
sumar - enda
segja þeir að
þar sé gott
næði,
vinna
æf-
inga-
hús-
BRÚÐHJÓN VIKUNNAR
segir um fyrsta fundinn: „Ég verð
að viðurkenna að hún bókstaflega
heillaði mig. Svona lagað gerist
aðeins einu sinni“.
Þessi hjón eru ekki að hefja
sambúð í fyrsta skipti og eins og
gefur að skilja er það oft á tíðum
flóknara en ef um fyrstu sambúð
væri að ræða. Samanlagt eiga þau
sex börn. Eygló var einhleyp móð-
ir í sex ár, með þijú börn. í fjög-
ur ár starfaði hún sjálfstætt sem
auglýsingastjóri og í tvö ár rak
hún eigin verslun. „Þetta er í
fyrsta skipti sem ég giftist“ segir
þessi kona sem geislar af lífsork-
an. „Dagurinn var ógleymanlegur.
Ég hefði ekki viljað missa af
þessu“ segir hún glettnislega.
Þau segja að það hafi ekki kom-
ið annað til greina en að ganga í
hjónaband, þau væru ákveðin í
því að vera alltaf saman. „Ég
hélt að svona rómantík væri ekki
til nema í sápuóperum eins og
Dallas“ segir Eygló og hlær glað-
lega. „Ég hefði viljað kynnast
honum nokkrum árum áður, ég
kem eiginlega inn í miðjan Dallas-
þátt. Mín fjölskylda tók þessu öllu
vel, þótt að hún hafi vitað allar
aðstæður og ég á henni mikið að
þakka“ segir Eygló.
Helgi Már sem er bygginga-
tæknifræðingur, gegnir ábyrgða-
stöðu á Stokksnesi. Hún mun
flytja til hans innan skamms og
verður heimili þeirra að Höfn í
Hornafirði. En má maður hnýsast
í það hvort hann hjálpi til við
heimilisstörfin?
„Hann er alveg einstakur í
matseld og- uppvaski og gengur í
hvað sem er eins og ég. Hann
baðar litlu telpuna og hefur sýnt
að hann er yndislegur faðir.
Stundum er ég viss um að það
var engin tilviljun þegar við rétt
sáumst þarna á flugvellinum.
Þetta átti að gerast“.
Sigurvegarinn, Lucila
Boggiano de Zoeger, 23
ára gömul og tveggja
barna móðir. Hún er gift
landbúnaðarverkfræð-
ingi.
hlaut hún enga þjálfun áður en hún
fór utan, en allar stúlkurnar voru
á einhvem hátt undirbúnar fyrir
keppnina. Eina landið sem keppn-
inni var sjónvarpað beint til á krýn-
ingarkvöldið var Perú, land sigur-
vegarans.
Þetta var í fyrsta skipti sem
rússnesk stúlka tekur þátt í „Frú
heimur“. Bandarísku stúlkunni og
þeirri rússnesku, Irinu Suvarova,
var gjaman stillt upp saman. í einu
atriðinu háðu þær einvígi en vom
þó ekki með byssurnar fullar af
blýi . . . heldur vatni. Var Irinu
vel gætt af rússneskum lífvörðum
meðan aðrar stúlkur höfðu enga
sérstaka gæslu fyrir utan þann
aðila er var stúlkunni til aðstoðar.
María ásamt eigendum keppninnar. Til vinstri er David Z. Marmel,
formaður, María Björk Sverrisdóttir, fulltrúi íslands, og Griff
O’Neil, varaformaður.
Ertu á „besta
★ VETRARBRAUTIN ★
ER NÝR VALKOSTUR - NÝR STÍLL
ÁHERSLA LÖGÐ Á Á VANDAÐAN TÓNLISTARFLUTNING - ÁN HÁVAÐA
Um þessar mundir halda þeir ^
félagar.Ludósextettásamt 30 AR
Stefám upp á 30 ára starfs MIl
nu1 e,tt 9'®sileaasta veitinglhús borgafinr
^HÚSIÐ OPNAR FYRIR MATARGESTIK
M— VEITINGASALIR
®hrí!!í«9 a8a,ur Þar sem **
veislumatsei
_____ Smáréttamatseðill eftir n
Dansinn dunaTvið undirléí
nna fjöfugú
félaga í Lúdósextett ásamt Stefáni Jónssyni
fram á rauða nótt. r 7 ÉíSI
■niðvikudag, föstudag oq
BRAUTAfiHOLTI 2C ,'u.E»G® IVWi FR/t HORMí BRAUTA.RiHOiLTS OC WOATÚNS) SIWARi 290SS OG 23335