Morgunblaðið - 23.04.1989, Side 1
88 SIÐUR B/C
91. tbl. 77. árg.
SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Smástirni rakst
næstum á Jörð
New York. Reuter.
LITLU munaði að smástimi rækist á
jörðina í síðasta mánuði, að því er seg-
ir í dagblaðinu New York Times á
fimmtudag. Stjarnfræðingar sögðu að
smástirnið, sem er 800 metrar í þver-
mál, hefði farið fi-am hjá jörðinni í
800.000 km fjarlægð, en smástirni hafa
aldrei komist svo nálægt jörðinni í 50
ár. Dagblaðið hafði það eftir Bevan
French, hjá Geimvísindastofnun
Bandaríkjanna, að rækist slíkt smá-
stirai á jörðina myndaðist 8-16 km
breiður gígur, hátt í 1,6 km djúpur.
Hann sagði jafnframt að áreksturinn
myndi jafiigilda sprengimætti 20.000
megatonna vetnissprengju.
Japan;
Herferð hafin
gegn hávaða
Tókíó. Daily Telegraph.
Borgaryfirvöld í Tókíó reyna nú að
stemma stigu við hávaða í borginni og
hvetja borgarbúa til þess að lækka
róminn og kaupa hljóðlátari þvottavél-
ar. í nýlegri skoðanakönnun kom fram
að þrír af hverjum fimm borgarbúum
kvarta undan hávaðasömum nágrönn-
um, ótæpilegum píanóleik, hávaða í
gæludýrum og þvottavélaglamri síðla
um nætur. „Píanó-morðin“ svonefhdu
eru Tókió-búum enn í fersku minni en
fyrir fimmtán árum myrti japanskur
karlmaður nágrannakonu sína og tvö
börn hennar með köldu blóði. Hann
hafði lengi kvartað sáran undan píanó-
leik barnanna.
Bandaríkin;
Billy Graham
til Bádapest
Bandaríski predik-
arinn Biliy Graham
mun flytja Ungveijum
fagnaðarboðskapinn á
Alþýðuleikvanginum í
Búdapest, sem tekur
75.000 manns í sæti,
29. júlí næstkomandi.
Þetta verður íjórða
heimsókn Grahams til
Ungveijalands en
hann hefúr aldrei
predikað utandyra í Austur-Evrópu.
Morgunblaðið/þorkeli
NEISTAFLUG I SLIPPNUM
Kínversk stjórnvöld hafiia viðræðum um lýðræðisumbætur;
Mótmæhmi skotið á fi'est
til að afstýra blóðbaði
Peking. Reuter.
UM 50.000 kínverskir námsmenn yfirgáfú í gær Torg hins himneska friðar í Pek-
ing eftir útför fyrrum leiðtoga Kommúnistaflokks Kína, Hus Yaobangs, sem náms-
mennirair líta á sem tákn fyrir kröfúr þeirra um umbætur í lýðræðisátt. Leiðtogar
námsmannanna hvöttu þá til þess að hætta mótmælunum tímabundið til að afstýra
blóðbaði eftir að sfjórnvöld höfðu hafiiað viðræðum um kröfúr þeirra.
Fjórir námsmenn fengu að fara inn í Al-
þýðuhöllina, þar sem útför Hus fór fram
að viðstöddum langflestum leiðtogum lands-
ins. Embættismenn höfnuðu hins vegar beiðni
þeirra um að fá að afhenda Li Peng, forsætis-
ráðherra landsins, kröfur þeirra um lýðræðis-
umbætur og endurreisn Hus.
„Við neyðumet til þess að biðja námsmenn-
ina um að halda heim til að afstýra blóð-
baði,“ sagði einn leiðtoga námsmannanna,
fulltrúi Stjórnmála- og lagaháskólans í Pek-
ing. „Á morgun höfum við samband við alla
háskólana og boðum verkfall í skólum um
allt land til að halda mótmælunum áfram.
Segja má að við höfum beðið ósigur. Við
höfum ekki fengið kröfum okkar framgengt,“
bætti námsmaðurinn við. Aðrir námsmenn
sögðu að hætta hefði verið á átökum hefðu
mótmælin haldið áfram.
2.000 manna öryggissveit stóð á verði fyr-
ir utan Alþýðuhöllina meðan útförin fór fram.
Eftirmaður Hus í embætti flokksleiðtoga,
Zhao Ziyang, fór lofsamlegum orðum um Hu
í ræðu sinni við útförina, en minntist hins
vegar ekkert á afsögn hans, en harðlínumenn
innan flokksins hröktu hann frá völdum í
janúar árið 1987. Fréttastofan Nýja Kína
skýrði frá því að um milljón manns, eða einn
tíundi af íbúum Peking-borgar, hefði verið á
götum borgarinnar til að fylgjast með því er
kista Hus var borin frá Alþýðuhöllinni til
Grafreits byltingarhetjanna.
Ortegá til tíu Evrópulanda
Managua. Reuter.
DANIEL Ortega, forseti Nicaragua, fer um þessa helgi í heimsókn til tíu
Evrópulanda, að sögn Manuels Espinoza, upplýsingamálaráðherra Nicaragua.
För forsetans, sem stendur í tvær vik-
ur, er heitið til Frakklands, Belgíu,
Spánar, Grikklands, Ítalíu, Vestur-Þýska-
lands, Bretlands, írlands, Noregs og
Svíþjóðar.
Ortega mun eiga viðræður við Mitter-
rand Frakklandsforseta, Felipe Gonzalez,
forsætisráðherra Spánar, og Helmut Kohl,
kanslara Vestur-Þýskalands. Að sögn bre-
skra stjórnarerindreka í Managua mun
Ortega hitta Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, í fyrsta sinn.
ÞJÓÐAR- LÍF OKKAR ER
ARFURINN£:=: r r " • EN6IN TILVILJUN
SUR OG Ý=- SVZANNE
STÖKKUR GERLEIT
10 i 12