Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 21
ATVINNU RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Skólastjóri í útflutn-
ings og markaðsskóla
Útflutnings- og markaðsskóli Islands óskar að ráða í starf
skólastjóra. Starfið felst í skipulagningu og rekstri skólans,
kennslu og ráðgjöf við fyrirtæki. Krafist er háskólamenntun-
ar í viðskipta- og markaðsfræðum ásamt þekkingu og reynslu
í útflutningi.
Grunnskólar
Auglýstar eru lausar stöður við grunnskóla. Þeirra á meðal
eru skólastjórastöður við Grunnskólann í Grímsey og
Hvammshlíðarskóla, Akureyri, staða skólastjóra við Grunn-
skólann í Svalbarðshreppi, Grunnskólann á Flateyri og
Grunnskólann á Hellissandi. Jafnframt eru auglýstar ýmsar
kennarastöður við þessa skóla t. d. í stærðfræði, íslenzku,
líffræði, eðlisfræði og tónmennt. Þá er auglýst eftir skóla-
stjórastöðum við grunnskólana á Bakkafirði og Djúpavogi
og kennurum við grunnskólana á Eskifirði, Bakkafirði, Borg-
arfirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Breiðdalshreppi, Djúpa-
vogi og Höfn. Þá eru enn auglýstar skólastjórastöður við
Grunnskólann Sandgerði, Dalvík, Kópaskeri og Vesturhóps-
skóla
Matvælaiðnaður
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurlaug Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Atvinnumiðlunar námsmanna, á
skrifstofu miðlunarinnar í Stúdentaheimilinu.
Stórt fyrirtæki í matvælaiðnaði í Reykjavík óskar eftir sölu-
manni. Starfsviðið er sala og kynning á frainleiðsuvörum
fýrirtækisins til veitingahúsa, mötuneyta, verzlana og sölut-
urna.
Atvinnumiðlun námsmanna:
Sölumenn fyrir
ný og eldri ritverk
Öm og Örlygur óska eftir kappsömum og ábyggilegum sölu-
mönnum til þess að bjóða ný og eldri ritverk í Reykjavík og
úti á landi. Tekið er fram, að um mjög seljanlega vöru sé
að ræða, að söluprósentan sé há og því miklir tekjumöguleik-
ar í boði.
A
Utflutningur
Fyrirtæki í borginni, sem m. a. selur sjávarafurðir til út-
landa, vill ráða starfsmann sem fyrst til að annast sam-
skipti við kaupendur erlendis og framleiðendur hér á landi.
Menntun og reynsla, er tengist fiskiðnaði og útflutningsstörf-
um er nauðsynleg.
Kvennaathvarf
Námskeið verður haldið á vegum Samtaka um kvennaat-
hvarf á Hallveigarstöðum dagana 27.-29. apríl nk. Á nám-
skeiðinu fjallar Hrafnhildur Baldursdóttir um sögu samtak-
anna og hugmyndafræði, Ragnheiður M. Guðmundsdóttir
og Guðrún H. Tulinius um nauðgunarmál og Guðrún Jóns-
dóttir um siíjaspell. Dóra Hlín Ingólfsdóttir ræðir um þátt
Rannsóknarlögreglu í kærumálum og Aðalbjörg Helgadóttir
um börn og ofbeldi.
Starfefólk í veitinga-
húsum heldur aðalfúnd
Félag starfsfólks í veitingahúsum heldur aðalfund sinn nk.
þriðjudag. Fundarstaður er Baðstofan Ingólfsbæ, Ingólfs-
stræti 5. Auk venjulegra aðalfundarstarfa eru kjaramál á
dagskrá og öflun verkfallsheimildar.
Búizt við mikilli
fjölgun umsóliiut
Skráning hefet á morgun
í fyrramálið, á mánudagsmorgun, hefst
skráning umsækjenda hjá Atvinnumiðlun
námsmanna. Það er Stúdentaráð Háskóla
Islands, sem rekur miðlunina í samstarfi við
Bandalag íslenzkra sérskólanema, Samtök
íslenzkra námsmanna erlendis og Félag
framhaldsskólanema. Þetta er tólfta vorið,
sem SHÍ rekur atvinnumiðlun fyrir náms-
menn, en síðastliðinn vetur var sett á lag-
girnar miðlun með hlutastörf með námi.
Við fengum 800 umsóknir í fyrra
og eigum von á miklu fleiri
núna, enda hefur komið fram að það
er erfitt að fá vinnu á eigin spýtur,“
sagði Sigurlaug Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri atvinnumiðlunar-
innar. „í fyrra fengum við alls um
700 atvinnutilboð og gátum útvegað
350 manns atvinnu."
Sigurlaug sagði að þegar hefðu
borizt allmörg atvinnutilboð, einkum
frá atvinnurekendum sem hefðu
nýtt sér þjónustu miðlunarinnar áð-
ur. „Það eru margir vinnuveitendur,
sem leita til okkar að fyrra bragði
á hvetju vori, vegna þess að þeir
hafa verið ánægðir með starfskraft-
ana, sem þeir fengu í gegn um okk-
ur. Hins vegar sendum við líka út
fjölda bréfa til fyrirtækja, þar sem
við kynnum starfsemi okkar, og
minnum einnig á okkur símleiðis og
með blaðaauglýsingum.“
Að sögn Sigurlaugar hefur síauk-
ið umfang og fjölgun umsókna hjá
atvinnumiðluninni kailað á nútíma-
legri vinnubrögð. „Við höfum tölvu-
vætt starfsemina og sláum nú allar
upplýsingar um hvern umsækjanda
inn í tölvu. Þar á meðal eru aldur,
starfsreynsla, menntun, störf sem
menn óska helzt eftir, hvað menn
geta unnið lengi og fleira. Með leitar-
forriti, sem hefur verið hannað fyrir
okkur, má síðan leita á fljótlegan
hátt að „óskaumsækjanda“ hvers
vinnuveitanda. Þeir, sem sækja um
vinnu hjá okkur, eru afar íjölbreyti-
legur hópur, sem hefur margvíslega
menntun og starfsreynslu að baki,
þótt þeir séu enn í námi. Þetta fólk
er vel inni í nýjustu hugmyndum og
aðferðum, og getur þess vegna kom-
ið fyrirtækjum að góðu gagni. Það
spillir svo ekki fyrir, að námsmenn
eru yfirleitt vinnuþjarkar og eru til
í mikla vinnu til þess að vinna fyrir
sem mestum tekjum fyrir veturinn."
Sigurlaug sagði að mest framboð
yrði af heilsdagsstörfum, en einnig
möguleiki á hlutastörfum; kvöld- og
helgarvinnu. Störf væru i boði í flest-
um starfsgreinum: skrifstofustörf,
verzlunarstörf, bókhald, þjónusta,
útkeyrsla, mannvirkjagerð, iðnaðar-
störf, hótelstörf og margt fleira.
Atvinnumiðlun námsmanna er til
húsa hjá Stúdentaráði í Stúdenta-
heimilinu við Hringbraut. Skrifstofa
miðlunarinnar er opin frá kl. 9-18
alla virka daga.
Áhrif bj órbniggnnar:
Sanitas hefúr
bætt við 10
manns í vinnu
í KJÖLFAR þess að byrjað var
að brugga bjór á Islandi hefur
verksmiðjan Sanitas bætt við 10
manns i vinnu. Starfsmanna-
fjöldiim í verksmiðju og dreif-
ingu var um 30 manns en er
kominn upp í um 40.
Ragnar Birgisson forstjóri Sanit-
as ségir að um sé að ræða 8
störf hjá- Sanitas fyrir norðan, þar
sem bruggað er allan sólarhringinn
og unnið er á vöktum. Aukningin
hefur verið í ýmsum störfum, s.s.
kútadreifingu til bjórstaða, ýmis
störf í verksmiðju o.fl. Fyrir sunnan
hefur verið bætt við tveimur mönn-
um í dreifingu og aukið við einum
bíl. Ragnar sagði að hugsanlega
yrði bætt við örfáum starfsmönnum ^
í viðbót. Mikið væri að gera nú, en
hvort það væri nýjabrumið eða
hvort aukningin yrði varanleg væri
ekki ljóst ennþá.
Jóhannes Tómasson forstjóri Öl-
gerðarinnar Egils Skallagrímssonar
segir að þeir hafi ekki bætt við
starfsfólki og muni ekki þurfa á
því að halda, þar sem tæknivæðing
sé mikil.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós:
51 skráður at-
vinnulaus í
byrjun apríl
Blönduósi.
UM SÍÐUSTU mánaðamót
var fimmtíu og einn aðili
skráður atvinnulaus á bæjar-
skrifstofunni á Blönduósi og
hafði atvinnulausum fjölgað
um þrjá frá fyrra mánuði.
Af þessum fímmtiu og eina
aðila, sem atvinnulaus er
skráður, eru þijátíu og íjórir
frá Blönduósi hinir 17 eru úr
nágrannasveitum.
Hilmar Kristjánsson forseti
bæjarstjórnar Blönduóss,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að það væri oft. lítið um verk-
efni á þessum árstíma en vissu-
lega væri ástandið ekki gott.
Gagnvart atvinnuhorfum í sum-
ar var Hilmar tiltölulega bjart-
sýnn en þó væri ljóst að rekstr-
arskilyrði fyrirtækjanna mættu
ekkert versna svo þau færu ekki
yfir um.
— Jón Sig.