Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRt I J UIWlsUNNUJDAGUR 23. APRÍL 1989
------------------------UV .. —a t <■1 l n.i----------
Her-
mann
Gunn-
<• arsson,
stjórnandi
þáttarins
„Á tali“,
afhendir
sigurveg-
aranum,
Áslaugu
Fjólu
Magnús-
dóttur,
blómvönd
þá er úr-
slit voru
kunn.
SÖN G V AR AKEPPNIN
„ Allir munu einhvem
tíma elska“
Isöngvarakeppni Sjónvarpsins í
þætti Hemma Gunn, „Á tali“, sigr-
aði átján ára stúlka, Áslaug Fjóla
Magnúsdóttir, með lag Whitney Ho-
uston við íslenskan texta sem hún
samdi sjálf ásamt móður sinni nokkr-
um dögum fyrir keppni. Hún mun
því syngja inn á safnplötu seinna
meir, en segist ekki vera viss hvort
það verði sigurlagið, „Allir munu ein-
hvern tíma elska“.
Áslaug var að koma fram í sjón-
varpi í fyrsta skipti og að eigin sögn
fannst henni það ekkert tiltökumál,
„starfsfólkið var svo rólegt og yndis-
legt að ég náði aldrei að verða stres-
suð.
„Ég var kannski aðeins stressuð
fyrst. En ég átti ekki von á því að
vinna. Það kom mér þægilega á
óvart. Jú, ég hef einu sinni komið
fram áður, það var á ísafirði fyrir
svona tveimur mánuðum.“
— Er söngurinn aðaláhugamálið?
„Það má segja það. Ég hef sungið
síðan ég fæddist, held ég. Svo hef
ég aðeins verið að dunda við að
skrifa ljóð. Nei, ég hef engan sér-
stakan tónlistarsmekk, ég hlusta á
hvað sem er.“
— Gætir þú hugsað þér að leggja
fyrir þig sönginn?
„Já, kannski. Það væri ábyggilega
gaman. Mér finnst æðislega gaman
að syngja uppi á sviði, ég held ég
gæti treyst mér í það í framtíðinni.
Annars hef ég ekkert ákveðið."
Áslaug Fjóla hefur búið á Súðavík
ásamt foreldrum sínum síðastliðið
hálft ár, en lengst af voru þau bú-
sett á Akranesi. Nú starfar hún á
barnaheimili á Súðavík og líkar ljóm-
andi vel. Hún mun þó yfirgefa
Súðavík innan skamms ásamt kær-
astanum, en þau hafa hugsað sér að
starfa á Akranesi í sumar.
BRAUTARHOLTI 20 • SÍMAR 29099 OG 23335
Vor í lofti
Nú fer í hönd tími skólaslita, stúdentafagnaða og
vorfagnaöa af ýmsu tagi.
Við bjóðum glæsilega veislusali okkar fyrir
hverskonar veislur og vorfagnaði.
Haflð samband við Kristján Daníelsson, veitingastjóra,
sem veitir allar nánari upplýsingar.
Þórunn Jónsdóttir og Margrét Benediktsdóttir.
Morgunblaðið/Bjami
FÖRÐUN
Erfitt en skemmtilegt
Aundanförnum árum hafa ein
til tvær íslenskar stúikur
stundað nám á hveijum vetri í förð-
un við skóla í París sem heitir
Christian Chauveau. Margrét Bene-
diktsdóttir 22 ára og Þórunn Jóns-
dóttir 23 ára hafa verið þar í vet-
ur, en þær eru nú staddar á íslandi
til að vinna ljósmyndir í möppu sem
þær eiga að skila inn til prófs í
júní. Myndirnar eiga að sýna það
sem þær hafa verið að læra í vet-
ur. En af hveiju gerið þið þetta
hérna heima?
„Það er miklu auðveldara að
gera þetta hérna. Við getum auð-
veldlega útvegað fatnað, skartgripi
og annað sem til þarf. Það er erfið-
ara úti og væri of dýrt að þurfa
að kaupa allt,“ segja þær.
Þórunn og Margrét hafa fengið
þijá íslenska blaðaljósmyndara til
að vinna þetta með sér. Hver tekur
myndir af verkefnunum ykkar sem
þið gerið í skólanum?
„Það er einn ljósmyndari í skól-
anum,“ segir Þórunn „en hann er
ekkert sérstaklega áhugasamur."
„Við höfum fengið íslenskan ljós-
myndara, Bernharð Valsson, sem
vinnur í París, til að taka myndir
fyrir okkur," segir Margrét.
Hvað er þetta langt nám og hvað
lærið þið?
„Skólinn tekur níu mánuði. Við
byijuðum á að læra allt um kvöld-
og dagmálun og förðun fyrir tísku-
sýningar og -ljósmyndir. Síðan var
farið í leikhús- og kvikmyndaförðun
og hvernig á að gera ungt fólk
gamalt. Við þetta bætist svo
„body-painting“ eða líkamsmálun,
sem tekin verður fyrir nú í vor,“
sögðu Margrét og Þórunn.
Þær eru sammála um að skólinn
sé erfiður en skemmtilegur. „Við
erum oftast í sýnikennslu fyrir há-
degi og æfum okkur síðan á mód-
eli eftir hádegi. Það er farið hratt
yfir og alltaf verið að taka fyrir
nýja hluti."
Hvað með frönskuna? Hún hefur
ekki verið vandamál?
„Ég kunni smávegis í frönsku
þegar ég kom út,“ segir Margrét
„en ekki nóg.“ Og Þórunn segir að
þó frönskukunnátta sé ekki skilyrði
þá sé betra að geta skilið hana.
„Annars missir maður af ýmsu úr
fyrirlestrunum."
Og hvað er svo skemmtilegast?
„Förðun fyrir tískuljósmyndir og
kvikmyndir,“ segja þær stöllur ein-
róma.