Morgunblaðið - 23.04.1989, Side 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐia. SUNNUDAGUR 23. AF'RÍL 1933
ERLENT
INNLENT
Jóhanna
hótar
afsögn
Jóhanna Sig-
urðardóttir fé-
lagsmálaráð-
herra segist
munu segja af
sér, verði hús-
bréfafrumvarp-
inu vísað aftur
til ríkisstjómar-
innar og af-
greiðslu þess fre-
stað, eins og
meirihiuti félagsmálanefndar
neðri deildar hefur lagt til.
Engin samræmd próf
Vegna verkfalls kennara í HÍK
verða samræmd próf ekki lögð
fyrir nemendur í 9. bekk grunn-
skóla í vor. Menntamálaráðherra
hefur þó leyft að verkefnin, sem
þegar hafa verið samin, verði not-
uð sem skólapróf. Wincie Jó-
hannsdóttir, formaður HÍK, segir
þetta ólöglegt og illa farið með
almannafé að nota ekki prófin,
þegar verkfalli lýkur.
Slæmt ástand á
Landspítala
Vegna verkfalls háskólamennt-
aðra sjúkrahússtarfsmanna er
mjög slæmt ástand á Landspíta-
lanum, og að sögn Davíðs Á.
Gunnarssonar, forstjóra
Ríkisspítala, má lítið út af bregða
til þess að hættuástand skapist.
Mannbjörg í slysum
Þrir menn björguðust er Þverfell
ÓF sökk út af Gróttu. Tveir menn
sluppu einnig ómeiddir er flugvél
þeirra brotlenti á Mosfellsheiði.
Fiskifræðingar illir út í
ráðuneytið
Fiskifræðingar telja ákvörðun
sjávarútvegsráðuneytisins um að
loka veiðihólfum verkfallsbrot, og
var jafnvel talið að hún gæti stað-
ið í vegi fyrir samningafundi
BHMR og ríkisins.
BSRB samþykkti
Mikill meirihluti samþykkti samn-
inga BSRB og ríkisins í atkvæða-
greiðslu aðildarfélaga bandalags-
ins.
Gróði á Járnblendinu
íslenzka járnblendifélagið skilaði
500 milljón króna gróða á síðasta
ári og greiddi hluthöfum arð í
fyrsta sinn frá stofnun.
ASÍ aflar
verkfallsheimilda
Kjaradeilu ASÍ og VSÍ hefur ver-
ið vísað til ríkissáttasemjara. Al-
þýðusambandið hefur beint þeim
tilmælum til félaga sinna að þau
afli sér verkfallsheimildar.
Kjartan til Genf
Kjartan Jóhannsson, þingmaður
Alþýðuflokksins, verður fastafull-
trúi íslands hjá alþjóðastofnunum
í Genf. Hann er þriðji þingmaður-
inn, sem lætur af störfum á
kjörtímabilinu til þess að sinna
öðrum embættum.
ERLENT
Eiturefiium
beitt í Georgiu?
Heilbrigðisyfirvöld í Sovétlýðveld-
inu Georgíu héldu því fram á
fimmtudag að eiturefnum hefði
verið beitt er sovéskir hermenn
brutu á bak aftur mótmæli þjóð-
emissinna í lýðveldinu fyrr í mán-
uðinum með þeim afleiðingum að
20 manns létust og um 200 særð-
ust. Nefnd sovéskra lækna komst,
að sögn sovéskra fjölmiðla, að
sömu niðurstöðu. Talsmaður sov-
éska utanríkisráðuneytisins bar
fréttir þessar til baka og kvað
hersveitimar hafa beitt táragasi
eða sambærilegu efni.
Samstaða lögleidd
„Sjö ára langri
baráttu er lokið
með sigri okk-
ar,“ sagði Lech
Walesa, leiðtogi
Samstöðu, er
starfsemi óháðu
verkalýðsfélag-
anna var lýst lögleg í Varsjá á
mánudag. Lögleiðing Samstöðu
er liður í samkomulagi stjórnar
og stjómarandstöðu í Póllandi um
víðtækar umbætur á sviði efna-
hags- og stjómmála. Bandaríkja-
stjórn hefur heitið Pólveijum
efnahagsaðstoð til að greiða fyrir
frekari lýðræðisumbótum í
landinu.
Fjölmenn mótmæli í Kína
Kínverskir
námsmenn
efndu til íjöl-
mennra mót-
mæla í Peking
ogvíðarívikunni
til að leggja
áherslu á kröfur
sínar um lýðræði og frelsi í
landinu. Mótmælin hófust um
síðustu helgi er Hu Yaobang,
fyirum flokksleiðtogi, safnaðist
til feðra sinna. Hu var settur af
árið 1987 eftir fjölmenn mótmæli
námsmanna en hann þótti frjáls-
lyndur í embættistíð sinni. Kröfu-
göngur námsmanna em hinar fjöl-
mennustu í Kína allt frá lokadög-
um menningarbyltingarinnar árið
1976.
Breytinga krafist á
breskum leikvöngum
Breska ríkisstjómin hefur krafist
þess að gerðar verði breytingar á
breskum knattspymuleikvöngum
í kjölfar harmleiksins á Hills-
borough-leikvanginum í Sheffíeld
um síðustu helgi. Fjölmörg félög
hafa þegar afráðið að koma fyrir
sætum þar sem áður hafa verið
stæði en aðbúnaður á breskum
knattspymuvöllum hefur verið
harðlega gagnrýndur í fjölmiðlum
þar í landi.
Nýjum
afvopnunarviðræðum
hafiiað
V arnarmálaráð-
herra Banda-
ríkjanna, Dick
Cheney, hafnaði
á miðvikudag
þeirri tillÖgu
Varsjárbanda-
lagsríkjanna að
hafnar yrðu viðræður um útrým-
ingu skammdrægra kjarnorku-
vopna í Evrópu. Þessi afstaða
ráðherrrans var ítrekuð á tveggja
daga fundi Kjarnorkuáætlana-
nefndar NATO se_m hófst í Bruss-
el á miðvikudag. A'fundinum vora
fyrri samþykktir um endurnýjun
skammdrægra kjamorkueld-
flauga í V-Evrópu ítrekaðar en
engin tímamörk nefnd í því sam-
bandi.
Formennska íslendinga í EFTA:
Leiða viðræður starfshópa
Reuter
a
Oeirðir í Jórdaníu
Skólum í bænum Mahas skammt frá Amman, höfuðborg Jórd-
aníu, var lokað í gær í kjölfar óeirða sem brutust út víða í landinu
á þriðjudag vegna verðhækkana. Að sögn opinbers embættis-
manns í Jórdaníu var Hussein Jórdaníukonungur, sem staddur
var í opinberri heimsókn i Bandaríkjunum, væntanlegur til lands-
ins í dag, en hann frestaði för sinni til Bretlands sem hefiast átti
í gær. A myndinni ræðst óeirðarlögregla til atlögu gegn mótmæ-
lendum í borginni Salt, um 29 km austan við Amman.
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÍSLENDINGUM er m.a. ætlað að
leiða viðræður í hluta af fjórum
til sex starfshópum sem Qalla eiga
um innihald hins sameiginlega
evrópska efnahagssvæðis
Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) og Evrópubandalagsins
(EB) er þeir taka við formennsku
I EFTA í júlímánuði. Þetta kom
fram á sameiginlegum fúndi full-
trúa íslands með embættismönn-
um EB sem haldinn var í Brussel
á fímmtudag en gert er ráð fyrir
því að fyrsti samráðsfundurinn
fiari fram í Brussel 3. júlí.
var í gildi fyrir 1985 þ.e. tollfrelsi á
íslenskum saltfiski, yrði tekið upp
aftur. Líkur eru á því að um tolla á
saltfiski verði fjallað í væntanlegum
viðræðum EB og íslendinga um sam-
skipti á sviði sjávarútvegs sem verða
undirbúnar í Brussel á næstunni.
Jón Baldvin sagði að það væri ljóst
að hraðinn í samningaviðræðum
EFTA og EB yrði mun meiri með
haustinu en búist hefði verið við.
Fundir af þessu tagi eru haldnir
tvisvar á ári og er ætlað að
fyalla um framkvæmd fríverslunar-
samnings íslands og EB. Á þennan
fund mætti Jón Baldvin Hannibals-
son fyrstur íslenskra utanríkisráð-
herra en sú venja hefur verið viðhöfð
um árabil í öðrum EFTA-ríkjum að
ráðherra sitji á hveiju ári.annan þess-
ara funda.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði
að á fundinum hefði verið fjallað um
þau efni sem helst brenna á íslend-
ingum í þessu samstarfí. Hann sagð-
ist hafa rætt tregðu háskóla í ríkjum
EB til að veita íslenskum stúdentum
inngöngu og hafa lagt áherslu á
mikilvægi þess að íslendingar hefðu
greiðan aðgang að menntastofnun-
um erlendis. Jafnframt vakti ráð-
herrann athygli á óviðunandi fyrir-
komulagi tollamála á íslenskum salt-
físki sem fluttur er til EB-landanna.
Jón Baldvin sagðist hafa bent á að
íslendingar væra ekki að fara fram
á annað en að það fyrirkomulag sem
Evrópubandalagið legði áherslu á að
viðræðumar yrðu á milli háttsettra
embættismanna til að flýta hugsan-
legum árangri. Það má því fullyrða
að mjög reyni á íslendinga á seinna
misseri þessa árs. Evrópumenn munu
fylgjast grannt með viðræðum EB
og EFTA enda er líklegt að framtíð
fríverslunarsambandsins ráðist á
þessum haustdögum.
Bandaríkjaþing samþykkir
aðstoð við contra-skæruliða
BÁÐAR deildir Bandaríkjaþings lögðu blessun sína yfír beiðni
George Bush Bandaríkjaforseta um fiárstuðning við sveitir gagn-
byltingarmanna, svonefíida contra-skæruliða (contrarevolucinari-
os) í Nicaragua. Samkomulag þings og forseta er sögulegt fyrir
þær sakir að með því hefur verið bundinn endi á þann trúnaðar-
brest sem skapaðist milli löggjafarvaldsins og framkvæmdavalds-
ins í íran-Contra-hneykslinu er stjórn Reagans forseta ákvað að
beita hugvitsamlegum en jafhframt óleyfílegum aðferðum til að
tryggja áframhaldandi hernaðaraðstoð við contra-sveitirnar.
Samkomulagið kveður á um 50 milljóna dollara aðstoð ( um 2.600
miljónir ísl. kr.) við skæruliða en skýrt er kveðið á um að fjármun-
um þessum megi ekki veija til vopnakaupa. Með þessu hyggst
ríkisstjórn Bandaríkjanna reyna á friðarvilja sandinista í Nic-
aragua og Sovétmanna en hernaðaraðstoð þeirra við stjórnvöld
í Nicaragua er talin nema 500 milljónum dollara (um 26.000 millj-
ónum ísl. kr.) á ári hveiju.
Ronald Reagan var einstak-
lega farsæll forseti en á vett-
vangi utanríkismála beið hann
tvívegis ósigur. Hryðjuverkamenn
hröktu Bandaríkjamenn frá
Líbanon og hemaðaraðstoð við
contra-sveitimar var þráfaldlega
hafnað á þingi eftir að demó-
kratar náðu þar völdum. Embætt-
ismenn, einkum þeir William heit-
inn Casey, fyrrum yfirmaður
bandarísku leyniþjónustunnar
(CIA), John Poindexter öryggis-
málaráðgjafi og Oliver North að-
stoðarmaður hans, gripu til ör-
þrifaráða til að tryggja áfram-
haldandi aðstoð við skæruiiða, að
öllum líkindum með vitund og vilja
forsetans og annarra ráðherra í
ríkisstjórninni. Enn er verið að
draga ýmislegt misjafnt fram í
dagsljósið í Iran-contra-hneyksl-
inu en þetta mál er ágætt dæmi
um hve völd forsetans eru í raun
takmörkuð og hvernig þinginu er,
samkvæmt stjórnarskrá Banda-
ríkjanna, ætlað veita aðhald og
halda uppi eftirliti með fram-
kvæmdavaldinu.
James Baker utanríkisráðherra
og bandarískir þingmenn hafa
sagt samkomulagið um fjárstuðn-
inginn við contra-sveitimar ákaf-
lega mikilvægt því þar með sé
trúnaðarbresturinn milli löggjaf-
arvaidsins og framkvæmdavalds-
ins úr sögunni.
Tilgangurinn
með því að veita
gagnbyltingar-
mönnum „mann-
úðaraðstoð" er
ef til vill einíum
þríþættur. Sandinistar hafa boðað
til lýðræðislegra kosninga í Nic-
aragua í febrúar á næsta ári og
heitið þeim skæraliðum sem heim
vilja snúa uppgjöf saka. Nú er
Einn höfuðpauranna í íran-
contra-málinu; Casey, fyrrum
yfirmaður CIA.
tryggt að contra-sveitimar verða
a.m.k. ekki ieystar upp áður en
til kosninganna kemur sem skap-
ar þrýsting á stjómvöld í Mana-
gua um að beita ekki bellibrögðum
eða kúgunum í viðskiptum sínum
stjórnarandstöðuna. Fari kosning-
arnar ekki löglega fram og hundsi
sandinstar kröfur stjórnarand-
stöðunnar um fyrirkomulag þeirra
er sá möguleiki því enn fyrir hendi
að ríkisstjórn Bush fari fram á
beina hernaðaraðstoð á sömu for-
sendum og Reagan áður en með
betri rökum. Loks er það yfirlýst
markmið ríkisstjómarinnar að
reyna með þessu á margyfirlýstan
friðarvilja Sovétstjómarinnar í
þessum heims-
hluta. Sovét-
menn hafa veitt
bæði Nicaragua
og Kúbu ríku-
lega efnahags-
og hernaðarað-
stoð svo ríkulega raunar að hún
er talin jafngilda 50.000 milljón-
um Bandaríkjadala á undanföm-
um tíu áram.
Ríkisstjórn George Bush telur
að sandinistar í Nicaragua séu
handbendi Sovétmanna og að
markmið þeirra sé að stuðla að
byltingu í öðrum ríkjum Mið-
Ameríku. Ein helsta röksemdin
hi fur verið hernaðaraðstoð
sandmista við vinstrisinnaða
skæruliða í E1 Salvador og var
henni óspart beitt er Reagan for-
seti reyndi að fá þingmenn til að
horfast í augu við hættur þær sem
leyndust í þessum heimshluta.
Bush hyggst skapa þrýsting með
öðram o g hefðbundnari aðferðum.
Sandinistar og Sovétmenn eiga
næsta leik og spurningin er því
sú hvort þeir eru reiðubúnir til
að hætta að nota ríki Mið-
Ameríku sem öskuhaug fyrir
gömul vopn og úrelta hugmynda-
fræði en á þennan veg hafa bæði
Baker utanríkisráðherra og Qua-
yle varaforseti lýst útþensiustefnu
Sovétmanna í þessum heimshiuta.
BflKSVIÐ
eftir Asgeir Sverrisson