Morgunblaðið - 23.04.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. APRIL 1989
Eiflimanrraaff
Það skal aldrei verða
að ég opni fyrir inn-
flutning slíkra vara
- segir landbúnaðarráðherra um
innflutning kjúklinga og svínakjöts
„ÞAÐ SKAL aldrei verða að ég opni fyrir innflutning slíkra
vara,“ sagði Steingrímur J. Sigfiísson landbúnaðarráðherra,
þegar hann var spurður hvort hann gæti stutt innflutning svína-
kjöts og kjúklinga í takmörkuðu magni til að fá verðsamanburð
við innlenda framleiðslu. Hann kvaðst ekki geta gengið gegn
lögum sem banna slíkan innflutning af heilbrigðisástæðum, auk
þess sem hann kvaðst vera mótfallinn slíkri tilraun af öðrum
ástæðum. Aðrir forystumenn stjórnmálaflokkanna sem rætt var
við voru einnig mótfallnir slíkri tilraun, eða töldu hana ekki
þjóna neinum tilgangi. Lög frá 1928 um varnir gegn gin- og
klaufaveiki banna innflutning ósoðins eða lítt saltaðs kjöts og
þar að auki eru í gildi lög frá 1985, svokölluð „Framleiðsluráðs-
lög,“ sem heimila ekki innflutning búvara nema framleiðslu
verði ekki annað innanlands að mati Framleiðsluráðs land-
búnaðarins.
„Nei,“ sagði Steingrímur J. Sig-
fússon landbúnaðarráðherra.
„Fyrir það fyrsta er ég algjörlega
andvígur því. í öðru lagi held ég
að enginn raunhæfur samanburð-
ur fáist með slíkum æfingum. Það
er hægt að fá miklu raunhæfari
samanburð með öðrum hætti en
þeim að heimila mönnum að taka
inn eitthvert magn innflutnings
þar sem menn geta kannski setið
um sérstök tilboð eins og vitað er
að bjóðast þegar menn reyna að
komast inn á nýjan markað. Líka
verður að taka með inn í myndina
opinberan stuðning, niðurgreiðsl-
ur, ef fást á einhver raunhæfur
samanburður. Þá er þess að gæta
að neyslan, hvað þessar vörur
varðar, er að miklu leyti í formi
ferskra vara, og slíkur innflutning-
ur kjöts er einfaldlega bannaður
af öðrum lögum, þannig að það
skal aldrei verða að ég opni fyrir
innflutning slíkra vara,“ sagði
landbúnaðarráðherra.
„Ég held að menn eigi ekki að
gera slíka tilraun, nema þeir viti
hvar hún endar og ef menn eru
reiðubúnir að taka ábyrgð á því
að hér leggist niður svínarækt og
kjúklingarækt, því að þannig hygg
ég að mundi nú fara,“ sagði
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra. „Það er hægt að fá
svona vörur gífurlega mikið niður-
greiddar í Evrópu. Eg er sem sagt
mótfallinn því að gera tilraun með
þetta. Við yrðum þá að marka
okkur þá stefnu að við ætlum að
treysta á aðra í svínakjöti og kjúkl-
ingum og ekkert að vera að
tvínóna við það, en, ég er á móti
því.“
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði þetta mál hafa verið
rætt lengi. „En þeirri stefnu hefur
nú lengst af verið fylgt að landið
væri sjálfu sér nógt um kjötfram-
leiðslu, en það þarf auðvitað stöð-
ugt að vera að endurskoða mörkin
á milli innflutnings og innlendrar
Selfoss:
Brotist inn í
íþróttahúsið
Selfossi.
BROTIST var inn í íþróttahúsið
á Selfossi aðfaranótt sumar-
dagsins fyrsta og stolið um
30-40 þúsund krónum.
Þjófurinn braut rúðu til að kom-
ast inn og virtist vel kunnugur
aðstæðum því hann leitaði uppi
lykil að hitakompu þar sem pen-
ingakassar íþróttadeilda ung-
mennafélagsins voru geymdir. Ur
þeim hirti hann peningana sem
voru æfingagjöld íþróttafólksins
sem æfir í húsinu.
— Sig. Jons.
framleiðslu." Jón kvaðst ekki
þekkja til að slík endurskoðun
færi nú fram hvað þessar vörur
varðar. „Þessa hluti þarf jafnan
að skoða og hugsa að nýju frá því
sjónarmiði hvað gagnist almenn-
ingi best.“ Hann kvaðst ekki viss
um að raunhæft væri að fá saman-
burð á verði með einhveijum inn-
flutningi í takmörkuðum mæli.
„Þetta þarf að skoða mjög vand-
lega. Sérstaklega er hætta á sjúk-
dómum varðandi kjúklinga- og
svínaafurðir mikil og í því efni vil
ég fara mjög varlega," sagði Jón
Sigurðsson.
„Ég tel að framleiðendur, neyt-
endur og auðvitað stjórnvöld eigi
að vinna að því að lækka verð á
matvælum og að það sé mjög brýnt
verkefni að menn skoði möguleika
á því að ná niður kostnaði, bæði
við framleiðslu, vinnslu og svo
dreifingu," sagði Þorsteinn Páls-
son formaður Sjálfstæðisflokksins.
„Þetta er auðvitað það stóra verk-
efni sem menn standa frammi fyr-
ir i þessu efni.“ Hann sagði inn-
flutning i takmörkuðu magni engu
breyta í þessu efni og lækkaði
ekki framleiðslukostnaðinn. „Ég
held að menn eigi að horfa á hið
raunverulega verkefni og tel að
það sé mjög brýnt.“
„Ég get ekki svarað þessu, við
höfum ekki rætt þetta í okkar
hópi,“ sagði Kristín Halldórsdóttir,
Kvennalista. „Ég hef nú ekki sér-
fræðilega þekkingu á því hvort
þessi viðbára sem aðallega er not-
uð sem ástæða fyrir því að ekki
sé leyfður innflutningur á kjöti,
hvort hún er sú rétta, en ég mundi
að minnsta kosti vilja skoða það
mjög vel út frá heilbrigðissjónar-
miði.“
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Aóalfundur
Aðalfundur Félags viðskiptafræðinga og hagfræð-
inga verður haldinn fimmtudaginn 27. apríl kl.
16.00. Fundarstaður: Hótel Holt, Þingholti.
Dagskrá:
1, Erindi. Christian Roth, forstjóri
íslenska Álfélagsins hf. flytur erindi:
„First impression of being a general
manager in lceland".
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætið stundvíslega.
Stjórn FVH.
II
lofftkælinaum
tennisvölíur
og tvær sundlaugar
á Costa del SoÍ!
Las Palomas
- glæsilegur gististaðúr
í Sol hótelkeðjunni.
Verð frá 35.500,-*
Á mánudag byrjum við
að selja ífyrstu íbúðirnar
á þessum frábæra gististað
á alveg einstöku verði.
*Verð miðað við hjón með tvö börn
ítværvikuríjúní.
HJÁ VERÖLD FÆRÐU MEIRA FYRIR PENINGANA - Ó-JÁ!
FERflAMIflSIÖfllN
AUSTURSTRÆTI17, II hœö. SÍMI622200
VíGNA SOLU HIDA OG ENDURNYJUNAR
ARSMIDA OG FIOKKSMWA [R
AÐALUMBODW ..
TJARNARGOIU W
0PH>ÍDB6FRÁKL13mi7.
HAPPDRÆTTIDVALARHEIMIUS ALDRAÐRA SJÓMANNA
Eflum studning við aldraða. Miði á mann fyrirhvern aldraðan.