Morgunblaðið - 23.04.1989, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1989 H
ENDURUNNINN PAPPIR
ERUMDEILANLEGUR
Á skrifstofum og í stofnunum
eru ósköpin öll af pappír notuð
í margskonar skjöl. En í
framtíðinni á hluti þessara
skjala eftir að verða heimildir
— meira segja frumheimildir
um nútíðina.
Gott málefiii
En það er sennilega rétt sem
sumir hafa á orði að pappírinn
flæði út yfir alla bakka. Mest af
þessum pappír lendir fyrr en
seinna í ruslakörfunni. Mörgum
málsmetandi mönnum og konum
finnst að vonum sárt að horfa upp
á þessa eyðslu og hvetja til endur-
nýtingar.
Landgræðslu- og náttúru-
verndarsamtökin Landvernd
höfðu á síðastliðnu sumri frum-
kvæði að því að hefja innflutning
og sölu á endurunnum pappír til
ljósritunar og prentunar „til þess
að gefa íslendingum kost á að
nota slíkan pappír sem fram að
því hafði verið ófáanlegur hér-
lendis“. Pappír þessi mun vera
framleiddur af þýska endur-
vinnslufyrirtækinu Steibeis.
Ýmsir hafa orðið til að veita
þessu máli liðsinni, t.d. Guðrún
Agnarsdóttir þingkona Kvenna-
listans, nú síðast í blaðagrein í
DV7. mars. Guðrún segir m.a.
frá fyrirspum sem hún lagði fyrir
forsætisráðherra, Steingrím Her-
mannsson, 16. febrúar, um hvort
Alþingi eða stjómarráðið hefðu
að einhverju leyti tekið upp notk-
un endurunnins pappírs og ef svo
væri hvort hann væri notaður sem
bréfsefni, ljósritunarblöð eða riss-
blöð. Ennfremur hvort ríkisstjórn-
in hygðist hvetja ríkisstofnanir
almennt til að hefja notkun endur-
unnins pappírs.
I grein Guðrúnar kemur m.a.
fram: „Verðlag þess pappírs, sem
Landvernd selurtil fjáröflunar
starfsemi sinnar er mjög sam-
bærilegt við verð pappírs af miðl-
ungsgæðum sem ekki er endur-
unninn." Einnig segir: „Meðan
enn er ekki hafin endurvinnsla
pappírs hérlendis hlýtur það að
vera kærkomið tækifæri fyrir
stjórnvöld að styrkja náttúrvernd
m.þ.a. nota endurunninn pappír
Landverndar þótt erlendur sé.“
Guðrún Agnarsdóttir greindi
lesendum frá þeim svörum forsæt-
isráðherra, að fullur vilji væri til
að kanna þessi mál og enginn
sofandaháttur ríkti í þessum efn-
um.
Lakari?
Það kom ekki fram í blaðagrein
Guðrúnar Agnarsdóttur að for-
sætisráðherra lét þess getið í
umræðum að honum hefði verið
tjáð að hinn endurunni pappír
væri töluvert lakari en fram kæmi
í máli hæstvirts þingmanns,
þ.e.a.s. Guðrúnar. Guðrún brýndi
fýrir forsætisráðherra að fá „bet-
ur skilgreint í sín eyru hvað „lak-
ari“ þýðir“.
Landverndarpappírinn hefur
verið boðinn ríkistofnunum og
sveitarfélögum til kaups. í um-
sögn Gunnars Eydals, skrifstofu-
stjóra Reykjavíkurborgar, til
borgarráðs, dagsettu 4. nóv. 1988
segir m.a: „Af hálfu borgarskjala-
varðar er eindregið mælt gegn
því að notaður verði endurunninn
pappír í bréfsefni eða almenn ljós-
rit vegna ónógs geymsluþols, en
12 ára reynsla er á notkun endur-
unnins pappírs og framleiðendur
telja að hann geti enst í um 30
ár að lágmarki. Ástand þessa
pappírs gæti því leitt til þess að
grípa yrði til kostnaðarsamra að-
gerða við ljósmyndun skjala, þeg-
ar ending pappírs er á þrotum.
Samkvæmt upplýsingum prent-
stofu er umræddur pappír ekki
nothæfur til prentunar í þeim
vélakosti, sem fyrir hendi er, og
er of viðkvæmur fyrir raka.
Þá kemur fram að verulegur
verðmunur er á endurunnum
pappír, eða 0,60 kr. pr. blað, en
sá pappír, sem prentstofan fyrst
og fremst notar, kostar 0,36 og
0,48 kr. pr. blað, hvorttveggja
án magnafsláttar."
Rétt er að geta þess að viðgerð-
arstofa Þjóðskjalasafns var beðin
um að greina sýrustig umrædds
pappírs og reyndist það vera ph.
4,6 til 4,8 en það er of súrt. Að
sögn kunnugra er æskilegast að
pappír sé sem hlutlausastur
þ.e.a.s. um ph. 7. Prófanir benda
einnigtil að lignininnihald, þ.e.a.s.
magn trénis, sé of hátt.
Það er því ljóst að það eru
ýmis álitamál þegar pappírsnotk-
un er annars vegar.
Áslaug Jónsdóttir, forstöðu-
maður viðgerðarstofu Þjóðskjala-
safns.
Er hér eitthvað súrt?
Morgunblaðið/Sverrir
Félagsfundur
verður mánudaginn 24. apríl 1989 kl. 13.00 í Bíóborg
(áður Austurbæjarbíó).
Dagskrá:
Heimild til verkfallsboðunar
Dagsbrúnarmenn, komið beint úr vinnu, aðeins þetta
eina mál er á dagskrá og til afgreiðslu. Það er áríðandi
að Dagsbrúnarmenn fjölmenni og hafi þetta öflugan
og stuttan fund.
Stjórn Dagsbrúnar.
Munið að fundurinn er kl. 13.00.
4
VERSLUNARRAÐ
ÍSLANDS
Morgunverðarfundur í Átthagasal Hótel Sögu,
miðvikudaginn 26. apríl 1989 kl. 08.00-09.30
VERSLUNIN OG EB
SAMNINGAUMBOÐ
DREIFINGARUMBOÐ
ÚTFLUTNINGUR
KERFISMÚRAR, TOLLMÚRAR
08.15-08.25 Fyrirmæli EB um umboðssöluviðskipti.
Björn Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri.
08.25-08.35 Reglugerð EB um dreifingarsamninga.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri VÍ.
08.35-08.45 Leiðbeiningar Alþjóða verslunarráðsins (ICC)
um dreifingarsamninga.
Haukur Þór Hauksson, framkvæmdastjóri
Borgarljósa.
08.45-09.05 Verslunin sem útflutningsgrein
og kerfisrnúrarnir.
Árni Þór Árnason,
framkvæmdastjóri Austurbakka hf.
Bogi Sigurðsson,
markaðsstjóri hjá Útflutningsráði.
09-05-09.30 Umræður.
Fundurinn er opinn en þátttaka tilkynnist Verslunarráðinu
í síma 83088 fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 25. febrúar.
Þátttökugjald er kr. 400 (morgunverður innifalinn).
Spennandi námskeið
í AROMATHERAPY (þrýstinuddi með náttúrulegum
olíum). Leiðbeinandi verður dr. Anna Edström, lífefna-
fræðingur, sem haldið hefur fjölda slíkra námskeiða
erlendis. Námskeið þetta stendur yfir í næstu 8 mán-
uði (1 helgi á mán.) og öðlast nemendur áritað
prófskírteini í lok námskeiðsins sem viðurkenningu í
þessari fræðigrein. Haldin verða tvö námskeið, upp-
selt var á bæði námskeiðin en vegna forfalla eru nokk-
ur laus pláss á seinna námskeiðið sem byrjar 30. apríl.
Allar frekari uppl. veittar i síma 680630
milli kl. 9.00-17.00 á daginn.