Morgunblaðið - 23.04.1989, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. APRIL 1989
13
starf með miklum tekjumöguleik-
um. Suzanne lét undan þrýstingi
þeirra, fór í verslunarskóla og
stundaði störf á því sviði um tíma.
Hún gifti sig og eignaðist tvö börn,
en skildi síðar við mann sinn og
giftist núverandi manni sínum Carl
Gerleit, og búa þau nú í Colorado
ásamt börnum Suzanne af fyrra
hjónabandi. Suzanne og Carl hafa
lengi kennt dans við háskólann í
Louisville og eru nú með hæstlaun-
uðu danskennurum þar í borg.
„Líkamshreyfing er mér nauðsyn-
leg til að endurnýja orkuna og halda
mér í jarðsambandi, ef svo má
segja." En daglegt starf hennar
felst í námskeiðum, fyrirlestrum og
einkatímum í líflestri og heilun.
Á námskeiðum sínum hefur hún
leiðbeint fólki í að vinna með æðri
verum og ég spyr hana hvernig
svona venjuleg manneskja beri sig
að í því sambandi.
Hún segir að þetta sé ekkert
nýtt í veraldarsögunni, bænin hafi
alltaf verið til staðar. „Þú talar til
þeirra eins og þú talaðir til Guðs
sem barn. En þegar þú vilt að þeir
hjálpi þér til að ná markmiðum
þínum, þá er betra að vera með þau
markmið ljós og skýr, ef til vill
skrifa þau niður. Það eru nefnilega
margir sem vilja eitt í dag og ann-
að á morgun og verurnar verða
alveg ruglaðar! Og það er einnig
betra að vera viss um hvað það er
sem þú vilt, því margir biðja um
eitthvað sem þeir vilja í rauninni
ekki, og fá það!
En menn skyldu aldrei ákalla
leiðbeinendur sínar þegar þeir eru
æstir eða hræddir. Þeir verða að
vera í jafnvægi og vera rólegir þeg-
ar þeir taka við skilaboðum. Skila-
boðin geta birst á margan hátt, t.d
fáum við oft skilaboð í draumum,
einhver hringir í okkur, eða' þá að
við hittum ákveðið fólk á ákveðnum
tíma og höldum það hafi verið hrein
tilviljun. En hlutirnir gerast ekki
alltaf af tilviljun þótt menn haldi
það.“
— En ef það gengur nú ekkert
hjá fólki að vinna með sínum ver-
um, hvað er þá að?
„Óttinn við breytingar. Því fylgir
visst öryggi að lifa lífinu eins og
maður hefur alltaf gert. Hugur
manns ög hjarta þráir ef til vill
breytingu, en það er eitthvað í per-
sónuleikanum sem veitir mótstöðu
og má oft rekja það til uppeldis og
trúarskoðana. Sumum finnst þeir
eiga skilið refsingu, þeir eigi ekki
skilið að vera glaðir og heilbrigðir.
Þetta er ekki spurning um að
taka skynsamlega afstöðu til ein-
hvers, heldur opna hjarta sitt. Ósk
og löngun er fyrsta skrefið til sköp-
unar, og trúin, — þú verður að trúa
á það sem þú ert að gera. Margir
Þessi hugmyndum
trygga afkomu er byggð á
ótta en ekki af löngun, segir
Suzanne Gerleit.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
eiga erfitt með taka við kærleikan-
um og þeirri orku sem fylgir hon-
um, því þeir hafa aldrei elskað
sjálfa sig.
En allir hafa sinn tíma, hlutirnir
gerast ekki endilega í febrúar eða
mars þótt viðkomandi óski þess,
hans tími kemur.“
Fyrri líf
— Þú hvetur fólk til að vinna
með æðri verum.en ég hef jafnframt
heyrt að þú varir við vissum hætt-
um. Hveijar eru þær?
„Þegar menn „opnast“ inn á
þessi svið þá verða þeir móttækileg-
ir fyrir öllum áhrifum, bæði slæm-
um og góðum. Þeir verða sjálfir að
læra að velja og hafna milli góðs
og ills, læra að vinna með þeim sem
höfða til þeirra betri manns. Við
verðum að treysta okkar eigin til-
finningum, þeim sem gefa okkur
ást og frið.
Það er til látið fólk, sem hefur
ekki getað slitið sig frá þessari jarð-
vist og mundi vilja nota okkur í
eigin þágu, koma áformum sínum
fram í gegnum okkur. Stjórna okk-
ur, ef við leyfðum.“
Þegar Suzanne tekur fólk í einka-
tíma í líflestri, getur fólk komið
með spurningar varðandi líf sitt,
hæfileika sína og framtíð og einnig
spurt um fyrri líf. En höfum við
einhverja vissu fyrir fyrra lífi og
er einhver ávinningur af því fyrir
fólk að vita hvað það var og gerði?
Og er ekki hægt að segja okkur
hvað sem er, því ekki erum við
þess umkomin að vita hvað er satt
og rétt?
„Ég segi ekki fólki hvað það var
í fyrra lífi nema það óski þess. Og
það má mín vegna kasta þeim upp-
lýsingum frá sér,“ segir hún.
„En ávinningurinn er sá, að ég
sé oft hæfileika sem enn blundar í
þeim frá fyrra lífi og einnig sé ég
sambönd og tengsl þeirra við núver-
andi ástvini sem hafa verið með
þeim í fyrri tilvistum, en oft hefur
þessum samböndum ekki verið full-
lokið og því þarf að vinna úr þeim.
Við höfum oft sterkar tilfinningar
til ákveðins aðila úr fjölskyldunni,
því samband okkar hefur verið
sterkt og náið í fyrra lífi. Við þurf-
um að læra að elska hvert annað
frá öllum hliðum og tökum því allt-
af að okkur hin ýmsu hlutverk, er-
um ýmist faðir, móðir, sonur eða
dóttir."
Suzanne hefur nú séð landið okk-
ar í sínum versta ham, og einnig
komið auga á þá streitu sem fylgir
okkur. Ég spyr hana hvort við Is-
lendingar séum ekki bara að flýja
þessi ósköp með því að sökkva okk-
ur niður í dulræn málefni?
— „Nei, það held ég ekki. Hins
vegar hafíð þið verið undir miklu
álagi undanfarin ár sem leiðir til
þess að fólk óskar nú eftir meira
jafnvægi í líf sitt og leitar eftir því
með því að skoða sinn innri mann.
Það þýðir ekki það að fólk sé að
gefast upp á raunveruleikanum. Þið
hafíð lengi haft áhuga fyrir andleg-
um og dulrænum efnum þetta er
arfur frá forfeðrum ykkar sem voru
í náinni snertingu við frumefnin og
hin sterku náttúruöfl. Það er mjög
ríkt í ykkur að sækjast eftir frelsi
í öllum myndum og upphaflega
komuð þið til landsins í þeim til-
gangi."
— Hvernig manneskja er Suz-
anne Gerleit? spyr ég.
„Full af gáska og leik,“ svarar
hún um hæl, „en það vill b'ara eng-
inn leika við mig!“ Og hlær svo hátt.
Svo veltir hún aðeins vöngum.
„Já hvernig er Suzanne, svona
dagsdaglega meinarðu? Þegar ég
er ekki að vinna þá er ég oftast úti
í náttúrunni, fer út með hundana
mína, ég er mikið með dýrum. Nú
svo les ég mikið, mála og spila á
píanó. Ég lifi mjög kyrrlátu lífí.“
HRESSINGARDVÖL
Hvernig væri að reyna eitthvað nýtt og koma í hressing-
ardvöl á Reykhólum í Barðarstrandarsýslu í sumar á
tímabilinu: 6/6-14/6
16/6-23/6
27/6-5/7
7/7-14/7
25/7-4/8
Við bjóðum upp á macrobiotiskt fæði, líkamsæfingar,
nudd og margt, margt fleira.
Upplýsingar í símum 32553 og 651137 og eftir 1. maí
hjá Gullu í síma 35060.
Þuríður Hermannsdóttir,
Sigrún Ó. Olsen.
IVECO DAILY 4x4 Turbo:
Tilbúinn j íf jal la- og
iöj iaferði rr íat • AN
kostnaðarsamra breytineall
er eins og siiiðinn fyrir ísienskar
aðstæður og hentar öllum þeim
sem þurfa öflugustu gerð af al-
drifsbíl.
i
> » * _..«nuda9
^ » sunnudaQ
tbSwda9!i
En«t .emo'JJwJO
• Léttbyggð 4 strokka turbodieselvél, 100
hestöfl DIN, tog 23 kg/ra við aðeins 2000
snúninga.
• 5 gíra kassi, hlutföll: 1. gír 1:6.194, milli-
kassi 1:2.74, öxlar 1:5.22, heildarniður-
gírun ílægstagírþví 1:88. Enginnaldrifs-
bíll kemst nálægt þessu!! (Landcruiser =
1:35).
• Handstýrð driflæsing í afturöxli, hand-
stýrð driflæsing í framöxul fáanleg.
• Heildarþyngd aðeins 2.340 kg.
IVECO Daily fæst í mörgum mis-
munandi útgáfum, tilbúinn til
innréttingar fyrir allt að 12 sæti
eða svefnpláss, með eða án há-
þekiu úr trefjagleri með 188 cm
lofthæð.
Smiðsbúð 2, Garðabæ,
S. 65-65-80.
IVECO
Sjón er sögu ríkari, komið og skoð-
ið þennan afburðabíl á sýningunni
hjá okkur.