Morgunblaðið - 23.04.1989, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.04.1989, Qupperneq 14
14 MORGjJNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 23. APRIL 1989 „Það er engin þörf að kvarta þegar blessuð sólin skín“ ÞEGAR tveir þingmenn Borgaraflokksins stofhuðu nýjan þingflokk fyrr í þessum mánuði, kröfðust þeir hluta þess fjármagns, sem Al- þingi veitti á Qárlögum til sérfræðiaðstoðar við þingflokka. Af þessu tileftii spunnust nokkrar umræður um skiptingu þess fjár, en ýmsum þótti sem smærri þingflokkum væri hyglað á kostnað þeirra stærri. Opinberir styrkir til stjórnmálaflokka essar umræður leiða hugann að fjárhagslegum grundvelli stjómmálastarfseminnar í landinu. Vitað er, að forystumenn sumra stjómmálaflokka á vinstri væng stjómmálanna telja eðlilegt og æskilegt að stjórnmálaflokkamir njóti framlaga úr ríkissjóði til starf- semi sinnar. Þeir telja það lýðræðis- lega skyldu ríkisins að sjá til þess að stjómmálaflokkar, a.m.k. þeir, sem hlotið hafa þingsæti í kosning- um, njóti fyrirgreiðslu ríkisins til að geta haldið úti starfsemi sinni. Sá, sem hér hugsar upphátt, styður ekki þessi sjónarmið. Það er að vísu rétt, að stjómmálaflokkar og starf- semi þeirra er forsenda lýðræðis í þeirri mynd, sem það hefur þróast í gegnum tíðina þar sem lýðræðið og mannréttindi eru i hávegum höfð. Það er hins vegar skoðun mín, að flokkarnir eigi ekki að byggja tilveru sína á fjármunum skattborgaranna heldur á framlagi flokksmanna og stuðningsmanna. Op- inberir styrkir til stjómmálaflokka, umfram sérfræðiað- stoð til þingflokka, gera þá háða ríkis- valdinu og veita þeim forgang fram yfir nýj- ar stjómmálahreyf- ingar. Að mínu viti eiga stjórnmálaflokk- ar að vera fjölda- hreyfingar fólks með svipuð viðhorf til þjóð- mála, fólks, sem er tilbúið að leggja fram vinnu og ijármagn fyrir málstaðinn, en ekki steingeldar stofnanir, sem nærast á opinberu fé. Ef fólk hefur hvorki skilning né áhuga á starfsemi stjórnmálaflokkanna verða þeir að svara kalli tímans og laga sig að þörfum fólksins. Gerist það ekki losnar um rætur lýðræðis- Skuldir stjórnmálaflokkanna Flestir stjórnmálaflokkar skulda vemlegar upphæðir um þessar mundir. Ástæðurnar em án efa margvíslegar. Sumir flokkar gefa út dagblöð, sem fólk er ekki tilbúið til að kaupa. í því sambandi má minna á NT, sem Framsóknarflokkur- inn gaf út, og Þjóðvilj- ann, sem nú á við veralegan ijárhags- vanda að stríða. Stjómmálaflokkamir gjalda þess eins og svo mörg önnur fé- lagasamtök, að hefð- bundin happdrætti eiga erfitt uppdráttar í samkeppni við skaf- miða, lottó og get- HVGSAÐ UPPHÁTT í dagskrifarFridrik Sophusson varaformabur Sjálfstœdisflokksins raunir. Þeir, sem njóta afraksturs þessara nýju íjáröflunarleiða, eiga það fyllilega skilið, en um leið verða stjórnmálaflokkarnir að finna aðrar fjáröflunarleiðir. Kosningabaráttan fyrir síðustu Alþingiskosnigar varð flestum stjórnmálaflokkum mjög dýr. Ástæðan var sú, að sjónvarps- auglýsingar í stómm stíl héldu inn- reið sína, og þær hleyptu kostnaðin- um við kosningabaráttuna upp úr öllu valdi. Sjálfstæðisflokkurinn, sem verð- Teikning/Pétur Halldórsson ur sextugur í næsta mánuði, á hús- eignir í Reykjavík og á nokkrum stöðum öðmm. Með íjársöfnun, vinnuframlagi og dugnaði flokks- manna hefur tekist að halda hús- næðismálum flokksins í sæmilegu lagi. Flokkurinn gefur ekki út dag- blað og tapar því ekki umtalsverð- um fjárhæðum á útgáfu blaða, sem enginn hefur áhuga á að lesa. Þrátt fyrir þetta skortir flokkinn rekstr- arfé til að sinna nauðsynlegri starf- semi. Þess vegna hefur miðstjórn <v ,V HÁSKÓLIÍSLAIMDS Endurmenntunarnefnd og Reiknistofnun TÖLVUNÁMSKEIÐ SUMARIÐ 1989 TölVBBOtkin lyrir PC-lölvar (42 klst.) Lýsing: Þetta er eitt af vinsælustu námskeiðum okkar þar sem byrjend- um eru kennd undirstöðuatriði í tölvu- notkun. Námskeið sem standa í nokkrar vikur hafa reynst mjög vel því þau gefa fólki kost á að prófa sig áfram samhliða námsefninu. Farið verður í ritvinnslu (Word Perfect), töflureikni (Plan Perfect) og gagna- grunn (dBase III+). Einnig verða kynnt stýrikerfi MS-DOS, skipulagning á undirsöfnum og afritun. Leiðbeinendur: Bergþór Skúlason, tölvunarfræðingur og Karl Roth, tölv- unarfræðingur. Tími og verð: Námskeiöið hefst 22. maí og stendur í sex vikur, þrjú kvöld í viku, kl. 20.00-22.30, samtals 45 klst. Þátttökugjald 22.000 kr. Orðsnilld (Word Perlect fyrir PC-tölvor) Lýsing: Þetta er mjög fullkomið rit- vinnslukerfi með fjölbreytta mögu- leika á uppsetningu texta. Word Perfect er hentugt fyrir þá sem skrifa mikið, s.s. bækur eða langar greinar. Einnig má benda á að f vaxandi mæli geta prentsmiðjur tekið við texta á Word Perfect formi. Leiðbeinandi: Hildigunnur Halldórs- dóttir, framhaldsskólakennarí. Tími og verð: 29. maí-1. júní kl. 8.30- 12.30. Verð 9.000,- kr. Skríirvlnnsla í ðtase III+ (lyrir PC-tilvar) Lýsing: dBase er einn af þekktustu og útbreiddustu gagnagrunnum sem eru í notkun í dag. Hann er mjög vel fallinn til skráarvinnslu og forritunar á PC-tölvum. Krafist er nokkurrar reynslu af tölvunotkun, bæði rit- vinnslu og töflureikni. Leiðbeinandi: Halldóra Magnúsdótt- ir, tölvunarfræðingur. Tími og verð: 15.-18. maí kl. 8.30- 12.30. Verð 9.000,- kr. Forritin í dBase III+ (fyrir PC-tölvir) Lýsing: Þetta er beint framhald af námskeiðinu um skráarvinnslu í dBase III+. Leiðbeinandi: Halldóra Magnúsdótt- ir, tölvunarfræðingur. Tími og verð: 12.-15. júní kl. 8.30- 12.30. Verð 9.000,- kr. Plai Perfect töflirelknir (fyrir PC-tölvir) Lýsing: Plan Perfect er töflureiknir sem búið er aö íslenska og er ætlað- ur til alhliða útreikninga, gagnavinnslu og línuritagerðar. Plan Perfect hefur sama skipanasett og ritvinnslukerfið Word Perfect og eru mjög góðir tengi- möguleikar þar á milli. Leiðbeinandi: Karl Roth, tölvunar- fræðingur. Tími og verð: 24.-26. maí kl. 8.30- 12.30. Verð 9.000,- kr. TEX 06 UTEX litvlnnsla Lýsing: Kennd veröa grunnatriði í notkun Tex og LaTex. Ritvinnslukerfið Tex var orðið frægt löngu áður en það kom á markað og er sérstaklega annálað fyrir frammistöðu sína við setningu stærðfræðitexta. það hentar jafnt fyrir geislaprentara sem setn- ingavélar. Greint verður frá ólíkum ritsniðum og umhverfum og með hvaða hætti notandi getur breytt þeim. Leturgerðir og stærðfræðisetn- ing verða kynnt ítarlega. Leiðbeinandi: Jörgen Pind, deildar- stjóri Orðabókar Háskólans. Tími og verð: 22.-25. maí kl. 8.30- 12.30. Verð 9.500,- kr. nii-iyiiiii Lýsing: Þessi kynning er ætluð þeim sem hafa nokkra reynslu af tölvu- vinnslu og forritun. Kynnt verður sér- staða unix-stýrikerfisins, samskipta- möguleikar og nokkur notendaforrit. Umsjón: Maríus Ólafsson, tölvunar- fræðingur. Tími og verð: 29.-31. maí kl. 8.30- 12.30. Verð 8.500,- kr. Spss (tölfræðivinnsla fyrir PC-tölvur) Lýsing: Spss er tölfræðiforrit sem hentar vel til alhliða tölfræðilegrar úrvinnslu. Það keyrir jafnt á PC-vélum sem stærri vélum. Farið verður yfir helstu atriði Spss/PC+ fyrir PC-vélar og úrvinnslumöguleikar þess kynntir. Tími og verð: 15.-18. maí kl. 8.30- 12.30. verð 9.000,- kr. ProlBB- Rökfraeöi og rökforrltin Lýsing: Turbo-Prolog er sérhæft for- ritunarmál til rökforritunar. Kennd verða undirstöðuatriði í rökfræði og rökforritun. Tími og verð: 22.-25. maí kl. 13.00- 17.00. Verð 9.500,- kr. „LelksliórlniT (fyrlr PC-fölvir) Lýsing: Kynning á norsku forriti, „Regisspren" sem er notað til að búa til ævintýraleiki. Áhugavert fyrir kenn- ara á grunn- og framhaldsskólastigi, einkum íslensku- og tölvufræðikenn- ara. Engin forritunarkunnátta nauð- synleg. Leiðbeinandi: Hildigunnur Halldórs- dóttir, framhaldsskólakennari. Tími og verð: 2. júní kl. 8.30-17.00. Verð 6.000,- kr. Samskiptl. Póstar og láóslelnar Lýsing: í vaxandi mæli nota menn tölvupóst til að skiptast á skilaboðum innan skólans eða milli samstarfsaðila innanlands eða erlendis. Þátttaka í alþjóðlegum samvinnuverkefnum fer vaxandi og þá er tölvupóstur alveg ómissandi. Einnig fer notkun ráð- stefnukerfa vaxandi, en þau gera mönnum kleift að fylgjast náið með þróun einstakra málaflokka sem þeir hafa áhuga á. Kynnt verða póst- og ráðstefnukerfi á tölvum Reiknistofn- unar sem gera mönnum mögulegt að ná þessum markmiðum. Leiðbeinandi: Bergþór Skúlason, tölvunarfræðingur. Tími og verð: 22.-23. maí kl. 13.00- 17.00. Verð 6.000,- kr. MACINTOSH-NáMSKEIB Word (Macintosb) Lýsing: Farið verður yfir grunnatriði ritvinnslu og allar helstu valmyndir Word. Kennd er notkun forritsins ogi farið yfir uppsetningu skjala. Tími og verð: 15.-18. maí kl. 8.30- 12.30. Verð 8.500,- kr. Eicel - Töllirellnir og viöskiptagralík (Maclntosk) Lýsing: Fyrir þá sem þurfa á öflugu hjálpartæki að halda við hvers kyns úrvinnslu talna, tilboðsgerð og alls kyns útreikninga og áætlanagerð. Kennt er að búa til eigin, dagsetning- ar- og talnaumbrot, gerð ramma og val leturgerða, gerð línu- og súlurita auk kökumynda og margt fleira. Tími og verð: 22.-25. maí kl. 8.30- 12.30. Verð 8.500,- kr. Skráning fer fram á aðalskrifstofu Háskólans í síma 694306, en nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Endur- menntunarnefndar í símum 694923, 694924 og 694925.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.