Morgunblaðið - 23.04.1989, Side 25
# I fc bii. #’ ft >1
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIIMNA/RAÐ/SMA
SUNNUDAGUR 23. APRIL 1989
25
ATVIN NUAUGIÝSINGAR
Verzlunarskóli
íslands
Kennarastöður í eftirtöldum námsgreinum
eru lausar til umsóknar við Verzlunarskóla
íslands næsta vetur:
íslensku.
Þýsku.
Stærðfræði (stærðfræðideild).
Verslunarrétti.
Bókfærslu og hagfræði.
Tölvufræði.
Líf-, efna- og eðlisfræði.
Umsóknir skulu vera skriflegar og berast
skólastjóra eigi síðar en 20. maí nk.
Verzlunarskóli íslands.
Félagsstarf aldraðra,
Norðurbrún 1
Starfsmann vantar til að aðstoða við böðun
og fleira.
Upplýsingar á staðnum og í símum 686960
og 83790.
Félagsmálastofnun Reykjávíkurborgar.
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Vélstjóri
Orkubú Vestfjarða óskar að ráða vélstjóra
með full réttindi til starfa í Bolungarvík.
Nánari upplýsingar gefur Jón E. Guðfinnsson
í símum 94-3211 og 94-7242 eftir kl. 19.
Sölumenn
Gullið tækifæri
Við viljum ráða sölumenn til þess að bjóða
ný og eldri ritverk í Reykjavík og úti á landi.
Um er að ræða mjög seljanlega vöru, háa
söluprósentu og því mikla tekjumöguleika.
Ef þú vilt þéna vel, ert kappsamur og ábyggi-
legur, þá hafðu samband við sölustjóra okk-
ar næstu daga milli kl. 10.00-12.00.
Við kennum þér réttu tökin þótt þig skorti
reynsluna.
ÖRN OG ÖRLYGUR
Síðumúla 11, sími 8 39 99.
Framtíðarstörf
Óskum eftir að ráða sem fyrst gott fólk til
eftirtalinna framtíðarstarfa:
★ Vaktstjóra. Kröfur um góðan járniðnaðar-
mann, vanan stjórnun.
★ Matreiðslumann í sumar á gott sumar-
hótel úti á landi.
★ Afgreiðslumann í byggingavöruverslun.
★ Góðan mann til framleiðslustarfa hjá
góðu fyrirtæki í plastiðnaði.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 9-12
og 13-15.
simsNómsm #
Uppmæling
Félag byggingariðnaðarmanna í Hafnarfirði
auglýsir eftir starfskrafti til að annast um
upptekt og útreikning á ákvæðisvinnu bygg-
ingarmanna. Um er að ræða fullt starf og
þarf viðkomandi að hafa bifreið til umráða.
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á
ákvæðisvinnu og góða reiknikunnáttu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Umsóknir er tilgreini aldur og menntun
skal leggja in á skrifstofu félags byggingar-
iðnaðarmanna, Austurgötu 8, Hafnarfirði,
eigi síðar en 5. maí nk.
Æskulýðs- og
íþróttafulltrúi
Laust er til umsóknar starf æskulýðs- og
íþróttafulltrúa hjá Borgarnesbæ.
í starfinu felst umsjón með æskulýðs-
íþrótta- og tómstundamálum.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist skrifstofu Borgarnes-
bæjar á Borgarbraut 11, fyrir 15. maí nk.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður í
síma 93-71224
Bæjarstjórinn í Borgarnesi
Bifreiðasmiðir
Óskum að ráða vana réttingamenn. Við bjóð-
um góða vinnuaðstöðu í björtu, snyrtilegu
og velbúnu verkstæði sem er að hefja starf-
semi í Kópavogi. Við leitum að duglegum
mönnum sem mæta vel og ganga snyrtilega
um og eru líklegir til að efla góðan starfs-
anda á vinnustað.
Upplýsingar í síma 44250.
Varmi, bílasprautun og réttingar,
Auðbrekku 14, Kópavogi.
Breiðholt
Starfskraftur óskast eftir hádegi til léttra
starfa og til að sjá um kaffistofu.
Vinnustaðurinn er reyklaus.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 30. apríl merktar: „A - 8669“.
Gríptu tækifærið!
Loksins erum við komnir til íslands - og nú
vantar okkur góða sölumenn.
Reynsla er æskileg en ekkert skilyrði.
Við bjóðum sölumönnum okkar upp á nám-
skeið.
Við erum fyrirtæki í örum vexti og ef þú:
- vilt komast áfram
- ert 25 til 40 ára
- ert jákvæð(ur), úrræðagóð(ur) og drífandi
- vilt geta skammtað þér laun eftir afköstum
- getur ráðið tíma þínum sjálf(ur)
- hefur bíl og síma
- og hreint sakavottorð
hringdu þá í síma 53494 og fáðu nánari
upplýsingar!
Kirbyí Reykjavík.
Dagheimilið
Marbakki - fóstrur
Hafið þið áhuga á að vinna skapandi starf með
börnum og fullorðnum?
Dagheimilið Marbakki óskar eftir fóstrum til að
vinna í anda „Reggio Emilia".
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
641112.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Er að leggja drög
að framtíðarstarfi!
Húsmóðir í námi með marga ára starfs-
reynslu í alm. skrifstofustörfum óskar eftir
vinnu fram að næstu áramótum eða eftir
nánara samkomulagi. Býr yfir ákveðni og fjöl-
hæfni í starfi.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „F - 8486“ fyrir 29. apríl.
Atvinnumiðlun
námsmanna
Atvinnumiðlun hefur hafið sína árlegu starf-
semi. Úrval hæfra starfskrafta er í boði,
bæði hvað varðar menntun og reynslu.
Atvinnumiðlunin er opin frá kl. 9-18 virka
daga í húsnæði Félagsstofnunar stúdenta,
símar 621080 og 621081.
Laus staða
Staða lögreglumanns í lögregluliði Ólafs-
fjarðar er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur
er til 5. maí nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
lögreglustjóra á Ólafsvegi 1, Ólafsfirði.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Lögreglustjórinn á Ólafsfirði,
18. apríl 1989.
Afgreiðslustarf
Sérverslun í Kringlunni óskar eftir starfs-
krafti strax. Æskilegur aldur 30-45 ára.
Vinnutími kl. 13.00-19.00.
Handskrifuð umsókn sendist auglýsingadeild
Mbl. merkt: „Framtíðarstarf - 8111“ ásamt
upplýsingum um aldur og fyrri störf, fyrir 27.
apríl nk.
Framkvæmdastjóri
Nú þegar er laus til umsóknar staða fram-
kvæmdastjóra Héraðssambandsins Skarp-
héðins. Um heila stöðu er að ræða. Æskilegt
er að umsækjandi hafi starfað að íþrótta-
eða ungmennafélagsmálum.
Umsóknum skal skila til Þjónustumiðstöðvar
HSK, Engjavegi 44, 800 Selfossi, sími 21189,
fyrir 1. maí 1989.
Starfsfólk óskast
Starfsfólk vantar að Þörungaverksmiðjunni á
Reykhólum
Upplýsingar gefur verkstjóri Valdimar Jóns-
son í síma 93-47740 og á kvöldin í síma
93-47797.
Þörungaverksmiðjan hf.,
Reykhólum.