Morgunblaðið - 23.04.1989, Side 29
'ö't?
MORttÚfcBl.AÐro ATVINNA/RAÐ/SMÁ QMAm
23. APRlL 1989
29
ouglýsingor
¥
EIAGSUF
I.O.O.F. 3 = 1704248 = M.R.
I.O.O.F. 10 = 1704248'/2=M.R.
□
Gimli 59892447 - Lokaf.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Krossinn
Auöbrekku 2. 200 Kópavogur
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Ath. breyttan samkomutima.
Trú og líf
Sirtlðjuvcgl 1 . Kópavogl
Sunnudagun Samkoma kl. 15.00.
Miðvikudagur: Unglingasam-
koma kl. 20.00.
Utivist,
Sunnudferð 23. apr. kl. 13.00
Eldvörp - útilegumannakofamir.
Ekið að einni mestu gigaröð á
Reykjanesskaga og gengið það-
an að útilegumannakofunum,
merkum fornminjum norðvestan
Grindavíkur og aö Flúsatóttum.
Létt ganga. Verð 1000,- kr. frítt
fyrir börn m/fullorðnum. Brottför
frá BSÍ, bensínsölu.
Helgarferðir 29. apr. til 1. maí
Brottför laugardag kl. 8.00.
A. Pórsmörk að vori.
B. Þórsmörk - Mýrdalsjökull.
Gist í Útivistarskálunum, Básum.
Uppl. og farm. á skrifst., Gróf-
inni 1, símar: 14606 og 23732.
Ath. að i dagsferðir þarf ekki að
panta.
Útivist.
AGLOW
- Kristileg samtök kvenna
Fundur verður haldinn í menn-
ingarmiðstöðinni i Gerðubergi
mánudagskvöldið 24. apríl kl.
20.00 til 22.00. Gestur fundar-
ins, Shirley Bradley, talar.
Kaffiveitingar kr. 250,-.
Allar konur velkomnar.
Frá Indlandsvina-
félaginu
Aðalfundur félagsins verður
haldinn á Frikirkjuvegi 11, mánu-
dagskvöldið 24. apríl kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Þóra
Einarsdóttir segir frá hjálpar-
starfi. Veitingar.
Stjórnin.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Gladys Fieldhouse heldur
skyggnilýsingafund manudaginn
24. apríl kl. 20.30 á Hótel Lind,
Rauðarárstíg 18. Aðalfundur fé-
lagsins verður haldinn á Hótel
Lind fimmtudaginn 11. mai kl.
20-30- Stjórnin.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudag-
inn 23. apríl
Kl. 10.30 Stapafell - Sand-
fellshæð - Staðarhverfi
Ekið að Stapafelli, gengið þaðan
að Sandfelli og Sandfellshæð i
Staðarhverfi vestan Grindavikur.
Verð kr. 1.000.-.
Kl. 13.00 Reykjanes -
Háleyjarbunga
Ekið að Reykjanesvita og gengið
um svæðið. Gengið á Háleyjar-
bungu sem er hraundyngja aust-
an við Krossavikurberg. Verð kr.
1.000,-.
Létt gönguferð.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Frítt fyrir börn.
28. apríl -1. mai: Þórsmörk
- Fimmvörðuháls
Gist í Skagfjörðsskála/Langadal.
Gengið á skíðum yfir Fimm-
vörðuháls.
Fararstjóri: Jónas Guðmunds-
son.
Farmiðasala og upplýsingar á
skrifstofu F.Í., Oldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Sunnudagaskóll kl. 11.00.
Siðasti sunnudagaskóli vetrar-
ins. Verðlaunaafhending.
Allir krakkar velkomnir.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Gídeonfélagar kynna starfsemi
sina. Barnagæsla.
Allir hjartanlega velkomnir.
VEGURINN
^4 V Kristið samfélag
Þarabakka 3
Kynningarsamkoma Vegarins
verður í dag, sunnudag kl. 11.00.
Sérstök söng-, barna- og ungl-
ingadagskrá. Lifandi og frjáls
lofgjörð. Prédikun: Björn Ingi
Stefánsson. Fyrirbænir. Það
verður leikrit fyrir börnin á með-
an á prédikun stendur. Kvöld-
samkoma i kvöld kl. 20.30. Per-
sónulegir vitnisburðir. Lofgjörð.
Starfið kynnt. Kaffiveitingar i lok
samkomu. Verið velkomin.
Vegurinn.
í dag kl. 16 er almenn samkoma
LÞríbúðum, Hverfisgötu 42.
Mikill almennur söngur. Barna-
gæsla. Ræðumenn: Hulda Sig-
urbjörnsdóttir og Jóhann Páls-
son. Allir velkomnir.
Samhjálp.
KfUM&KFUK 1B99-196S
90 ár fytir æshu Islands
KFUMog KFUK
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 á Amtmannsstig 2b. Ný
sköpun í Kristi - 2.Kor.
5,14-21. Ræðumaður: Margrét
Hróbjartsdóttir. Allir velkomnir.
VEGURINN
v Kristið samfélag
Samkoma í dag kl. 14.00.
Mike Bradley talar.
Allir velkomnir.
Ungt fölk
með hlutiserk
TýífFJ YWAM - ísland
Samfélagssamvera
Við minnum á samveruna í
Grensáskirkju í dag kl. 17.00.
Fréttir, fræösla, lofgjörð og þjón-
usta. Sérstök stund fyrir börnin.
Verið velkomin.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
I dag kl. 14.00: Sunnudagaskóli.
Kl. 16.30 Hjálpræðissamkoma
í umsjá flokksforingjanna.
Mánudag kl. 16.00: Heimila-
samband fyrir konur.
Miðvikudag kl. 20.30: Hjálpar-
flokksfundur. Verið velkomin.
ICENNSLA
Vélritunarkennsla
Vélritunarskólinn, s: 28040
AUGL YSINGAR
KENNSLA
Frá Fósturskóla íslands
Innritun fyrir næsta skólaár er hafin.
Umsóknir um skólavist þurfa að berast skó-
lanum fyrir ö.júní nk.
Nánari upplýsingar og eyðublöð fást á skrif-
stofu skólans.
Skólastjóri.
Háskóli íslands
Arleg skráning allra nemenda
Háskóla íslands fer fram dag-
ana 27., 28. og 29. apríl 1989 í nemenda-
skrá frá kl. 9-18.
Háskóli íslands.
iEDISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Sjálfstæðisfólk á
Sauðárkróki
Fundur í bæjarmálaráði verður í Sæborg mánudaginn 24. apríl kl.
21.00. Frummælendur: Steinunn Hjartardóttir, umhverfismál, og
Páll Ragnarsson, iþrótta- og æskulýðsmál. Einnig ræöa bæjarfulltrú-
arnir það sem hæst ber þessa vordaga.
Sjálfstæðisfólk fjölmennið.
Stjórnin.
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisfiokksins
Kvöld- og helgarskóli
Fjölmiðlanámskeið
Staður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Tími: Laugardaginn 29. apríl 1989.
Kl. 09.30 Nýting PC tölvutækni við útgáfu flokksblaða:
Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri.
Útlitshönnun - SAM-útgáfan:
Þórarinn Jón Magnússon, ritstjóri.
Kl. 11.00 Auglýsingar - áskrjftir - önnur fjármögnun:
Baldvin Jónsson, auglýsingastjóri.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
Fjölmiðlaþróun og blaðaútgáfa:
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri.
Kl. 13.30 Leiðarar og pólitískar greinar:
Stefán Friðbjarnarson.
Kl. 14.30 Myndband: Hvernig frétt verður til.
Kl. 15.00 Skoðunarferð ****•?
Innritun er hafin á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins i síma 82900
(Þórdís).
Seltjarnarnes, Mosfells-
bær, Kjalarnes, Kjós
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi boðar til
fundar með stjórnarmönnum i sjálfstæðisfélögum og fulltrúaráðum,
í Sjálfstæðishúsinu i Mosfellsbæ, Urðarholti 4, þriðjudaginn 25. april
kl. 20.30.
Dagskrá: Kynntar hugmyndir um styrktarmannakerfi, tvö önnur mál.
Stjórnin.
Vestmannaeyjar
Sjálfstæðiskvennafélagið Eygló heldur al-
mennan fund miðvikudaginn 26. apríl kl.
20.30 í Hótel Þórshamri, (Vestmannabraut
28) uppi.
Gestur fundarins verður Árni Johnsen.
Mætið vel og hafið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Hafnarfjörður, Garða-
bær, Bessastaðahreppur
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi boðar til
fundar með stjórnarmönnum í sjálfstæðisfélögum og fulltrúaráðum,
í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði, mánudaginn 24. april kl. 20.30.
Dagskrá: Kynntar hugmyndir um styrktarmannakerfi, tvö önnur mál.
Stjórnin.
Iðnaðurinn og
efnahagsumhverfið
Iðnaðarnefnd Sjálfstæðisflokksins efnir
til opins fundar í Valhöll þrlðjudaginn 25.
apríl nk. kl. 17.00 um ofangreint efni.
Ólafur Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Félags
íslenskra iðnrekenda,
verður gestur fundarins.
Iðnaðurinn hefur verið i miklum mótbyr á
undanförnum árum. Markaðshlutdeild
hefur stöðugt minnkað, framleiðni hefur
vaxið of hægt og afkoma og eiginfjárstaða
versnað.
Hvernig stendur á þessu?
* Er það vegna þess að iðnfyrirtækjunum sé illa stjórnað þ.e. verr
en áður?
Er það vegna þess að starfsskilyrði iðnaðarins hafa versnað?
Er sambúðin við sjávarútveginn iðnaðinum ofviða?
Eru sveifiurnar i islensku efnahagslifi iðnaöinum óbærilegar?
Skilja stjórnvöld iðnaðinn eftir þegar vandi undirstöðuatvinnuveg-
anna er leystur?
Fundurinn er öllum opinn
Við hvetjum allt áhugafólk um iðnað og atvinnumál eindregið til að mæta.
tónaðarnefnd Sjálfstæðisflokksins.
Akranes
Bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður hald-
inn í Sjálfstæðis-
húsinu í Heiðar-
gerði, sunnudaginn
23. april kl. 10.30.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi.
Lyfiatækiskóli íslands:
Átta nýir ly^atæknar
ATTA nýir lyijatæknar útskrif-
uðust sl. haust að loknu 14.
starfsári Lyfjatæknaskóla ís-
lands. Alls hafa þá 166 ly^atækn-
ar útskrifast frá skólanum.
Hlutverk Lyfjtatæknaskóla Ís-
lands er að tæknimennta aðstoðar-
fólk við lyfjaafgreiðslu og lyfjagerð.
Námstíminn er 3 ár. Bóklegt nám
samtals í 17 mánuði og verklegt
nám samtals í 19 mánuði að með-
töldu lögbundnu orlofi. Starfssvið
lyfjatækna er störf við lyfjaaf-
greiðslu og lyfjagerð undir hand-
leiðslu og á ábyrgð lyfjafræðings.
Skólastjóraskipti urðu við
skólann í ágúst 1987 er Sigrún
Valdimarsdóttir lyfjafræðingur tók
við starfinu af Ólafi Ólafssyni lyfja-
fræðingi.
Á meðfylgjandi mynd eru standandi
frá vinstri: Aðalbjörg Karlsdóttir,
Birna Hreiðarsdóttir, Björg Kjart-
ansdóttir, María Kristjánsdóttir,
Kristín I. Hinriksdóttir og Guðrún
Egilsdóttir. Sitjandi frá vinstri:
Steinunn Geirmundsdóttir, Sigrún
Valdimarsdóttir, skólastjóri og
Sigríður Anna Þorgrímsdóttir.