Morgunblaðið - 23.04.1989, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP SUNNUDÁUUK <23. APRÍL 1989
UTVA1RP
RÍKISÚTVARPIÐ
FM 92,4/93,5
7.45 Morgunandakt. Séra Sváfnir Svein-
bjarnarson prófastur á Breiðabólstað flyt-
ur ritningarorð og bæn.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Dagskrá.
8.30 Á sunnudagsmorgni með Friðriki
Pálssyni forstjóra. Bernharður Guð-
mundsson ræðir við hann um guðspjall
dagsins, Jóh. 16, 5—15.
9.00 Fréttir.
9.03 Tónlist á sunnudagsmorgni. Kaflinn
um „Vorið" úr „Árstíðunum" eftir Antonio
Vivaldi. Flautukonsert í D-dúr eftir Luigi
Boccherini. Sinfónía nr. 94 eftir Joseph
Haydn. (Af hljómplötum.)
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Af menningartímaritum. Annar þátt-
ur: Um tímaritið Birting. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
11.00 Messa í Njarövikurkirkju. Prestur:
Séra Þorvaldur Karl Helgason.
12.10 Dagskrá.
I 12.20 Hádegisfréttir.
I 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.30 „Ljóðið er glataður tími fundinn á
ný.“ Ljóðadagskrá í umsjón Berglindar
Gunnarsdóttur.
14.30 Með sunnudagskaffinu. Sigild tón-
list. Johann Strauss, Bedrich Smetana,
Franz Lehar, Carl Zeller, Emmerich Kal-
man og Leo Delibes.
15.10 Spjall á vordegi. Umsjón: Ragn-
heiður Gyða Jónsdóttir.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið: „Hjálpi oss heilagur
Skerjalákur Hólmur, verndardýrlingur allra
heimsins einkaspæjara." Enn ef hann á
, kreiki I Barnaútvarpinu hann Baldvin Píff
eftir Wolfgang Ecke í þýðingu Þorsteins
I Thorarensen.
j 17.00 Tónleikarávegum Evrópubandalags
j útvarpsstöðva. Útvarpað verður hljóðritun
frá Tónlistarhátíðinni í Dresden í Austur-
Þýskalandi á síðasta ári. Tónlist eftir
Carl Philipp Emanuel Bach og Johann
Sebastian Bach. Carl Philipp Emanuel
Bach-hljómsveitin leikur; Hartmut Hán-
chen stjórnar. (Hljóðritun frá austur-þýska
útvarpinu, Rundfunk der DDR.)
18.00 „Eins og gerst hafi í gær." Viðtals-
þáttur í umsjá Ragnheiðar Davíðsdóttur.
(Einnig útvarpað morguninn eftir kl.
10.30.) Tónlist. Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.31 Leikandi létt. Ólafur Gaukur rabbar
um tónlistarfólk og spilar plötur, í þetta
sinn Nat King Cole.
20.00 Sunnudagsstund barnanna. Um-
sjón: Kristjana Bergsdóttir. (Frá Egilsstöð-
um.)
20.30 „Esja”, sinfónía í f-moll eftir Karl 0.
Runólfsson. Sinfóníuhljómsveit Islands
leikur; Bohdan Wodiczko stjórnar. (Hljóð-
ritun frá tónleikum í Háskólabíói í maí
1968.)
21.10 Ekki er allt sem sýnist — Þættir um
náttúruna. Sjötti þáttur: Ánamaðkurinn.
Umsjón: Bjarni Guðleifsson. (Frá Akur-
eyri.)
21.30 Útvarpssagan: „Heiðaharmur" eftir
Gunnar Gunnarsson. Andrés Björnsson
les (19).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Einar
Guðmundsson og Jóhann Sigurðsson.
23.00 ...og samt að vera að ferðast."
Þættir um ferðir Jónasar skálds Hallgríms-
Stöð 2:
Ofurleiðni
■■ í þættinum Undur
45 alheimsins á Stöð 2
“” í dag verður gerð
grein fyrir áhrifum ofurleiðni
á nútíma tækniþróun. Ofur-
leiðni var fyrst uppgötvuð af
hollenskum vísindamönnum
árið 1911 en áhrif hennar voru
fyrst útskýrð árið 1957 og þá
einungis að hluta til. Framtíð-
arsýn manna er að með til-
komu ofurleiðni muni hægt að
framleiða vélar án núnings-
mótstöðu, svífandi farþega-
lestir, ofurnæm lækningatæki
og hraðvirkari og smærri tölv-
ur. Árið 1986 gerðu Alex
Mueller og Georg Bednorz
hitaleiðniuppgötvun sem
ávann þeim Nóbelsverðlaun ári
seinna. Bn vísindamenn eiga
þó langt í land enn og í þessum
þætti verða kynnt vinnubrögð
og hvert þetta allt stefnir að
mati lærðra sem leikra.
sonar í samantekt Böðvars Guðmunds-
sonar. Lesarar með honum: Sverrir Hólm-
arsson og Þorleifur Hauksson. Síðari
hluti. (Áður útvarpað í ágúst 1980.)
24.00 Fréttir.
00.10 Ómur að utan. „The Tempest" —
„Ofviðrið" eftir William Shakespeare.
Síöari hluti. Sir John Gielgud leikur Pro-
spero.
1.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
RÁS2
FM 90,1
3.05 Vökulögin. Fréttir kl. 4.00, 8.00 og
9.00.
9.03 Sunnudagsmorgunn með Svavari
Gests. Fréttir kl. 10.00.
11.00 Úrval vikunnar. Úrval úr dægurmála-
útvarpi vikunnar á Rás 2.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Spilakassinn. Pétur Grétarsson
spjallar við hlustendur sem freista gæf-
Friðrik Pálsson
Rás 1:
Fridrik
Pálsson
ræðir
gudspjall
dagsins
■■■ Á Rás 1 í dag verður
830 það Friðrik Pálsson for-
stjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna sem ræðir
guðspjall dagsins við séra
Bernharð Guðmundsson. Guð-
spjall dagsins er Jóhannes 16.
versin 5—15, þar er rætt m.a.
um heilagan anda, huggarann
og verk hans.
Rás 1:
Ljóðið er glataður tími
fundinn á ný
„Ljóðið er á frábæran
1 Q 30 hátt, eins og galdur,
Að ““ fullt af leik og andstæð-
um, í Ijóðinu blundar eðli barns-
ins. Það neitar að vera afskipt eða
munaður og vill fá að taka þátt
í lífinu. Ogþað er í senn gleymska
og viska, flótti og barátta. Það
er ekkert og það er allt. Það er
galdur." Tilvitnunin hér að ofan
er úr þættinum Ljóðið er glataður
tími fundinn á ný sem er á dag-
skrá Rásar 1 í dag. Umsjónarmað:
ur er Berglind Gunnarsdóttir. í
þættinum fjajlar hún meðal ann-
ars um eðli ljóðsins og tilgang,
um módernistana og yngstu
“skáldin og einnig um 68-skálda-
kynslóðina. Þá flytja Bragi Ólafs-
son, Einar Bragi, Gyrðir Elíasson,
Ingibjörg Haralds, Ragna Sigurð-
ardóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir
og Þórarinn Eldjárn eigin ljóð,
Kristján Franklín Magnús leikari
les ijóð eftir Einar Olafsson og
brot úr erindinu Egill Skalla-
grímsson og sjónvarpið eftir Hall-
dór Laxness verður flutt af bandi.
Til að koma til móts við þá fjölmörgu farþega sem hafa óskað
eftir styttri ferðum í vor, þá bjóðum við ferðir út í áætlunarflugi
og heim í leiguflugi okkarfrá Malaga.
Brottfför 15. maí um London, 12 dagar
Brottfför 16. maí um Amsterdam, 11 dagar
Somo veró i bóóum feróunum
Verð pr. mann: 4 í íbúð kr. 3 í íbúð kr. 2 í íbúð kr. 1 ííbúðkr.
31.900.- 33.900.- 36.900.- 43.900.-
BARNAAFSLÁTTUR 2-11 ÁRA KR. 10.000.-
Gististaðir eru auðvitað hin vinsælu íbúðahótel okkar,
PRINCIPITO SOL OG SENSET BEACH CLUB
þar sem allur aðbúnaður og þjónusta er fyrsta flokks. Fararstjórar sjá
um að hafa nóg úrval spennandi og skemmtilegra skoðunarferða á boð-
stólum meðan á dvölinni stendur.
Greiðslukjör:
Innborgun kr. Eftirstöðvar með Visa-raðgreiðslum
5000.-
eða Euro-kredit-samningi
íalltað 5 mánuði.
Flugvallarskattur kr. 900.-
og forfallatrygging bætist
við ofannefnt verð pr.
gengi 14. apríl 1989
FERÐASKRIFSTOFAN
Suðurgötu 7
sími 624040
unnar í Spilakassa Rásar 2.
15.00 Vinsældalisti Rásar 2. Áslaug Dóra
Eyjólfsdóttir kynnir tíu vinsælustu lögin.
(Endurtekinn frá föstudagskvöldi.) Fréttir
kl. 16.00.
16.05 126. Tónlistarkrossgátan.: Jón
Gröndal leggur gátuna fyrir hlus'tendur.
17.00 Tengja. Kristján Sigurjónsson tengir
saman lög úr ýmsum áttum. (Frá Akur-
eyri.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.31 Afram island. Dægurlög með
íslenskum flytjendum.
20.30 Útvarp ungu fólksins — Elísabet
Gunnlaugsdóttir leggur nokkrar spurning-
ar fyrir danska rithöfundinn Bjarne Reut-
er. Einnig verður lesið úr nýjustu ungl-
ingabók hans.
21.30 Kvöldtónar.
22.07 Á elleftu stundu. Anna Björk Birgis-
dóttir í helgarlok.
1.10 Vökulögin. Tónlist í næturútvarpi til
morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00 er
endurtekinn frá föstudagskvóldi Vin-
sældalisti Rásar 2. Að loknum fréttum
kl. 4.00 flutt brot úr þjóðmálaþættinum
„Á vettvangi". Fréttir kl. 4.00 og sagt frá
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00
og 6.00. Veðurfregnir kl. 1.00 og 4.30.
BYLGJAN
FM 98,9
09.00 Haraldur Gíslason.
13.00 Ólafur Már Björnsson.
18.00 Kristófer Helgason. Tónlist í helgar-
lokin.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
RÓT
FM 106,8
10.00 Sígildur sunnudagur. Leikin klassísk
tónlist.
12.00 Jazz & Blús.
13.00 Prógramm. Umsjón Sigurður ívarss.
Nýtt rokk úr öllum heimsálfum.
15.00 Elds er þörf. Vinstrisósíalistar. E.
Oluf Larsen og kona hans
ásamt hundinum þeirra.
Sjónvarpið:
Matador
kveður
■■■■ í kvöld sýnir Sjón-
qa 35 varpið lokaþáttinn
af danska mynda-
flokknum Matador. í síðasta
þætti bar það helst til tíðinda
að Kristen Skjern og Elisabeth
létu gefa sig saman eftir að
hafa verið góðir vinir í allmörg
ár. Þau hafa komið sér saman
um að láta ekki fjölskyldumál-
in hafa áhrif á samband sitt
og ætla að flytja til Kaup-
mannahafnar. Ulrik Varnæs,
sonur bankastjórahjónanna,
og kona hans eignast barn en
kona hans bjó á heimili
tengdaforeldra sinna meðan á
meðgöngunni stóð. Hjónaband
Ellenar Skjern er farið út um
þúfur og hefur hún fengið
skilnað.
Lára, þjónustustúlka
Varnæs-hjónanna.