Morgunblaðið - 03.05.1989, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
98. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ungveijaland-Austurríki:
Landamæragirð-
ingar rifiiar niður
Búdapest. Hegyeshalom. Reuter. Daily Telegraph.
NÝ GLUFA opnaðist á Járntjaldið milli Austur- og Vestur-Evrópu
í gær. Ungverskir hermenn hófu þá að rífa niður gaddavírsgirðing-
ar, varðtuma og annan búnað á landamærum Ungveijalands og
Austurríkis og sagði yfirmaður hermannanna að áætlað væri að ljúka
verkinu í árslok 1990. Landamærin era um 170 km löng. Jarðsprengj-
ur vora fjarlægðar af landamærunum fyrir 20 árum og á síðasta
ári vora allar hömlur á ferðalögum Ungveija til annarra landa af-
numdar.
Aðgerðir ungverskra yfirvalda
munu því litlu breyta fyrir þarlendá
en aftur á móti er talið að Austur-
Þjóðveijar, Tékkar og íbúar fieiri
Austantjaldsríkja, þar sem ferða-
frelsi eru ströng takmörk sett, hugsi
sér nú gott til glóðarinnar. Yfirvöld
í þessum ríkjum hafa um árabil
haft eftirlit með ferðum þegna sinna
til Júgóslavíu þar sem ferðafrelsi
hefur ekki verið skert og landið
þess vegna verið vinsæl flóttaleið.
Er nú búist við því að ferðir til
Ungveijalands verði framvegis und-
ir smásjá stjórnvalda, einkum í
Austur-Þýskalandi. Flóttamenn
þaðan hafa fullan rétt á að setjast
að í Vestur-Þýskalandi takist þeim
að sleppa á brott. Þótt austurrísk
yfirvöld hafi fagnað breytingunum
segja heimildarmenn að þau óttist
að flaumur flóttamanna frá ýmsum
Austur-Evrópulöndum, m.a. Ung-
veijar, sem flúið hafa ofsóknir í
Rúmeníu, skelli nú yfir landið.
Karoly Grosz, flokksleiðtogi í
Ungveijalandi, sakaði fyrrum leið-
toga landsins um slæm mistök sem
valdið hefði vonleysi hjá almenningi
í ræðu sem hann flutti við 1. maí-
hátíðahald í Búdapest. Grosz nafn-
greindi ekki Janos Kadar, fýrrum
flokksleiðtoga, en ljóst var að hann
var skotspónninn.
Sjá fréttir af hátíðahaldi 1.
maí víða um heim á bls. 26.
Reutér
Hermenn rífa niður gaddavírsgirðingu á landamæram Ungverja-
lands og Austurríkis. Athygli liðsforingja á staðnum var vakin á því
að austurrískir landamæraverðir hefðu til þessa getað sofið á verðin-
um í trausti þess að ungverskir starfsbræður þeirra fylgdust vel
með allri umferð. Hann var spurður hvort yfirvöldum í Vín hefði
verið send aðvörun. „Það gerðum við ekki þegar við reistum girðing-
arnar, að því er ég best veit,“ svaraði hann án þess að svara spurn-
ingunni beint.
Sprengju-
tilræði í
miðborg
Oslóar
Ósló. Frá Runé Timberlid, fréttaritara
Morgunblaðsins.
REYNT hefur verið að sprengja
í loft upp tvær verslanir innflytj-
enda í miðborg Óslóar að undan-
förau. Þykir mikil mildi að
sprengjutilræðin skuli ekki hafa
valdið tjóni, á mönnum eða bygg-
ingum.
í bæði skiptin hafði dínamíti ver-
ið komið fyrir í verslununum. í fyrra
skiptið sprungu hvellhettumar en á
einhvern óskiljanlegan hátt varð
engin sprenging. í seinna skiptið
varð einn af íbúum byggingarinnar
var við að sprengiþráður brann.
Slökkvilið var kallað á vettvang og
tókst því að skera á þráðinn á ell-
eftu stundu.
Verslanirnar voru í eigu Pakist-
ana og Sómala. Innflytjendur hafa
tekið við rekstri fjölda verslana í
miðborg Óslóar á undanfömum
árum.
Leiðtogi PLO eftir fund með Frakklandsforseta:
Yfirlýsingar um ólögmæti
Israelsríkis úr gildi fallnar
Segir stofiiskrá Frelsissamtakanna frá 1964 nú dauða og ómerka
París, Washington. Reuter. Daily Telegraph.
Reuter
Francois Mitterrand Frakklandsforseti (t.h.) og Yasser Arafat ræð-
ast við í Elyssé-höll í gær.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis- I
samtaka Palestínumanna (PLO), I
Ráðstefha um
ózon-lagið:
Alþjóðlegur
sjóour styrki
þróunarríki
Helsinki. Reuter.
YFIRMAÐUR áætlunar-
nefiidar Sameinuðu þjóð-
anna um umhverfisvernd,
Mostafa Tolba, hvatti til þess
í Helsinki við upphaf ráð-
stefnu 80 ríkja um eyðingu
ósonlagsins að auðugri þjóðir
heims beittu sér fyrir stofii-
un alþjóðlegs sjóðs sem
styrkti þróunarríkin til að
hætta notkun ósoneyðandi
efiia.
Talsmenn þróunarríkja segja
að þessar þjóðir hafi ekki bol-
magn til að hætta notkun þess-
ara efna nema til komi fjár-
hagslegur og tæknilegur stuðn-
ingur auðugri þjóða.
„Eg vænti þess að á ráð-
stefnunni verði samþykkt að
stofna sjóð til að sinna þessu
verkefni," sagði Tolba.
segir að stofnskrá samtakanna
frá 1964 sé úr gildi fallin, en í
skránni er m.a. sagt að ísraels-
ríki eigi sér ekki tilverurétt. A
fúndi samtakanna í nóvember á
síðasta ári vár lýst yfir stofnun
sérstaks ríkis Palestínumanna og
lýst yfir andstöðu við hryðju-
verk. Jafnframt var með óljósu
orðalagi gefið til kynna að ísrael-
ar ættu rétt á eigin ríki en oft
hefur verið bent á að í uppruna-
legri stofiiskrá PLO sé ísrael
lýst ólögmætt. Francois Mitter-
rand, Frakklandsforseti, hafði
áður hvatt PLO-leiðtogann til að
láta breyta orðalagi stoftiskrár-
innar, en Arafat átti viðræður
við forsetann í gær.
Fundur þeirra Arafats og Mitter-
rands er sá fyrsti sem sá fyrrnefndi
á með leiðtoga eins af forysturíkjum
Vesturveldanna og er hann talinn
meiriháttar stjórnmálasigur fyrir
Palestínumenn. Fulltrúar PLO segj-
ast vona að fundurinn verði til þess
að Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, og George Bush,
Bandaríkjaforseti, eigi senn fundi
með Arafat.
Gífurlegur viðbúnaður var í París
vegna fundarins og 2.000 lögreglu-
menn voru kallaðir út til að gæta
öryggis Arafats, til aðstoðar fasta-
liði í borginni. Umferð var beint frá
forsetasetrinu, Elyssé-höll, þar sem
viðræðurnar fóru fram. Tekið var
á móti PLO-leiðtoganum með rauð-
um dregli og annarri viðhöfn og
mótmæltu leiðtogar franskra hægri
manna því harðlega.
Arafat fundaði með ráðgjöfum
sínum eftir hvatningarorð Mitter-
rands. Síðan hélt hann blaðamanna-
fund og sagði þar að ónauðsynlegt
væri að breyta stofnskránni frá
1964; seinni yfirlýsingar samtak-
anna hefðu haft í för með sér að
skráin væri nú „dauð og ómerk“.
Talsmaður Yitzhaks Shamirs, for-
sætisráðherra ísraels, sagði í gær-
kvöldi að yfirlýsing Arafats væri
aðeins til þess ætluð að slá ryki í
augu Vesturlandabúa. Arafat væri
óforbetranlegur lygari og auk þess
yrði Þjóðarráð Palestínumanna að
fjalla um breytingar á stofnskránni
svo að þær öðluðust gildi.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagðist á mánudag
mundu mæla með því að Banda-
ríkin hættu að styðja Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunina (WHO) ef
ríki Palestínumanna fengi aðild að
stofnuninni. Fulltrúi PLO hefur
skýrt frá því að Palestínumenn
hyggist einnig fara fram á leyfi til
að undirrita Genfarsáttmálann um
meðferð stríðsfanga og óbreyttra
borgara á stríðstímum. Um 90 þjóð-
ir hafa nú viðurkennt ríki Palestínu-
manna.
Lögreglan hefur ekki enn komist
á spor tilræðismannanna. Hins veg-
ar voru tveir menn handteknir fyrir
skömmu eftir að sprengja sprakk
fyrir utan móttökuhús fyrir innflytj-
endur skammt fyrir norðan Ósló.
50 innflytjendur voru í húsinu, en
enginn þeirra slasaðist. Tilræðis-
mennimir sögðust aðeins hafa ætl-
að að skjóta innflytjendunum skelk
í bringu.
Holland:
Stjórnin
fallin
Haag-. Frá Eggerti H. Kjartanssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Ríkisstjórn Kristilegra
demókrata (CDA) og Fijáls-
lynda flokksins (VVD) í Hol-
landi undir forsæti Ruud
Lubbers er fallin. Ástæðan
er fyrst og fremst vantraust
Fijálslynda flokksins á eigin
ráðherra og valdabarátta
innan flokksins.
Dr. J. Voorhoeve, formaður
þingflokks frjálslyndra, er álit-
inn hafa valið þetta tækifæri í
samráði við Hans Wiegel, fyrr-
um formann flokksins, sem enn
nýtur mikils trausts flokks-
manna, til þess að fella stjóm-
ina. Deilt er m.a. um það hvort
láta skuli bifreiðastyrk sem
einkabílaeigendur fá, ef þeir
aka til og frá vinnu, renna
framvegis til umhverfismála.
Ekki er gert ráð fyrir að
reynt verði að sætta stjórnar-
liða frekar og búist er við þing-
kosningum í byijun september.
Lubbers mun ganga á fund
Beatrix drottningar í dag og
biðjast lausnar fyrir sig og
ríkisstjórn sína.