Morgunblaðið - 03.05.1989, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
„Þú ert Grettir, þjóðin mín“
_________Leiklist____________
Bolli Gústavsson í Laufási
LMA (Leikfélag Menntaskól-
ans á Akureyri).
Grettir
Höfundar: Egill Ólafsson (tón-
list), Ólafiir Haukur Símonar-
son (leikur og lög), Þórarinn
Elc(járn (leikur og söngtextar).
Leikstjórn: Pétur Eggerz.
Tónlistarstjóm: Amhildur
Valgarðsdóttir.
Leikmynd: Pétur Eggerz.
Lýsing: Ingvar Bjömsson.
Hljóðstjórn: Gunnar Sigur-
bjömsson.
„Því hefir enginn, þjóð mín, fyr
þetta efni reynt - ég spyr -,
sungið þennan sektaróð,
sögu vorrar dýpstu ljóð?“
Þannig spyr Matthías Joc-
humsson í upphafi Grettisljóða
sinna, en sem kunnugt er orti
hann mikinn flokk um sögu og
örlög Grettis Asmundarsonar,
alls 36 ljóð undir ýmsum háttum.
Það er ljóst að hinn glögg-
skyggni skáldmæringur og leik-
húsmaður, sem ef hugrekki
glímdi við William Shakespeare
og þýddi fjögur af leikritum hans
á íslensku af hrifni og andríki
og samdi þar að auki verk af
ólíku tagi fyrir leiksvið í leik-
hússlausu landi, hafði og komið
auga á hvflík dramatísk upp-
spretta Grettissaga er.
En Matthías kaus ljóðformið,
þegar hann jós af þeirri lind,
þótt stundum jaðri við að ein-
stakir kaflar gætu verið samtöl
fyrir svið eins og 3. ljóðið, sem
fjallar um bernskubrek Grettis.
Matthíasi var mikið í hug:
„Þú ert Grettir, þjóðin mín,
þama sá ég fylgjur þín:
þó að ljós þinn lýsi draum,
losast muntu seint við Glaum..“
Mér virðist sem þrír höfundar
söngleiksins Grettis, þar sem
„spymugnýrinn er vögguvísa
leðurengla", hafi jafnvel hugsað
eitthvað líkt og Matthías, er þeir
tóku mið af sögu Grettis Ás-
mundarsonar í ósviknu nútíma-
verki. Þetta er magnað verk og
beinskeytt í ádeilu, sniðið fyrir
gáfað, ungt og leikglatt fólk, sem
þorir og ræður við það í litrík
leiksýningu að sameina ýmsa
þætti þess lífsstríðs, sem háð er
í fjölbrautakerfi íslenska sam-
félagsins. Það er óhætt að óska
leikstjóranum, Pétri Eggerz, til
hamingju með þessa minnilegu
og þróttmiklu sýningu. Honum
hefur tekist frábærlega að stýra
þeim 23 ungu og lítt reyndu lei-
kurum, sem fram koma á svið-
inu, og nær ótrúlega fumlausum
hraða frá upphafi til enda. Pétur
hefur og gert leikmynd, sem er
vel útfærð og sannfærandi í
rauðu og svörtu og svarar vel
snjallri ljósbeitingu Ingvars
Björnssonar. Fjöldi hóphreyfinga
eru öruggar og táknrænar. Alls
eru atriði 18, en renna hiklaust
fram eins og litbrigðarík mynd-
röð. Og þá er vert að geta þess,
að leikendumir stóðu sig yfirleitt
mjög vel og sumir sýna ótvíræða
hæfíleika. Sérstaklega er mér í
huga Björg Bjömsdóttir, sem
leikur Ásdísi móður Grettis, sem
eldist og bilast í óvæntum svipt-
ingum framvindunnar í Breið-
holtinu og þá persónuþróun túlk-
ar Björg af mikilli næmni og list-
rænni nærfæmi. Svanur Val-
geirsson er ömggur, hress og
úthaldsgóður í hlutverki Atla,
bróður Grettis, sem „rekur
sjoppu í frístundum, nemur á
viðskiptabrautum / þau fræði
færa mannkyni hamingju / auka
verðmætasköpun, skapa veltu og
uppgrip.“ Svanur sýnir næsta vel
hinn dæmigerða, íslenska „uppa“
á níunda áratugnum. Hann kann
að bregðast við fjölmiðlum, já,
það fer ekki á milli mála að túlk-
un hans er traust og sannfær-
andi. Vel tekst þeim félögum,
Hjörvari Péturssyni og Jóni
Gunnari Þorsteinssyni, að tengja
Grettispersónuna fyrir og eftir
þá miklu umbreytingu, sem verð-
ur í fangelsinu. En ekki hefi ég
í hyggju að reka hér frammi-
stöðu hvers leikanda. Óhætt er
að segja að allir leggja sig fram
og enginn spillir heildarmynd-
inni. Það, sem helst er hægt að
Úr einu atriði Grettis.
fínna að, er að styrkur hljóm-
sveitar er helst til mikill svo
söngtextar vilja dmkkna í háv-
aða. Það er miður, því mikilvæg-
ur og góður hlutur ljóða Þórarins
Eldjárns er ótvíræður. Þetta mun
að líkindum stafa af tæknilegum
mistökum fremur en listrænum,
því æfingar fóm fram í Möðm-
vallakjallara, en ekki í leikhús-
inu. Trúi ég að þetta misræmi
verði bætt. Arnhildur Valgarðs-
dóttir stjómar fimm manna
hljómsveit af festu og taktvísi.
Það fer ekki á milli mála, að
þessi Grettir ofanverðrar 20. ald-
ar birtir í hnotskurn þau sann-
indi um áform og vonir íslensku
þjóðarinnar, að „þó að ljós þann
lýsi draum,/losast muntu seint
við Glaum.“ Glaumur eða Glám-
ur birtist hér m.a. sem fjölmiðla-
draúgur og lævís spennuvaldur
á öld hraðans, þegar mannleg
samskipti em vanrækt á ýmsan
veg og bjargvættir era gjaman
„út á þekju" í ýmsum skilningi.
Það er ærin ástæða til þess
að vekja athygli á þessari mynd-
arlegu, þróttmiklu og ekki síst
skemmtilegu sýningu nemenda
Menntaskólans á Akureyri. Hún
vekur bjartsýni á hörðu vori.
Sportjakkar
Stærðir: 34-46.
Verö kr. 6.800,-
v/Laugalæk, sími 33755
Metsolublad á hverjum degi!
FIOJT KMA
7 BEKKJfl KERFID
KEMUR ÞÉR í GOTT FORM FYRIR SUMARIÐ
(Komið og kynnið ykkur nýja æfingaprógrammið)
Æfingakerfið Flott Form býður upp á þægilega leið
til að styrkja og liðka líkam- ann, án þess að ofreyna
vöðva og fá harðsperrur. Vegna einstaks samþlands
af líkamshreyfingum og síendurteknum æfingum, þar
sem vöðvarnir eru spenntir án þess að lengd þeirra
þreytist, geta bekkirnir okkar sjo styrkt og liðkað mis-
munandi hluta líkamans. Auknar birgðir súrefnis og bætt blóðstreymi hjálpa til
við að brjóta niður erfiða appelsínuhúð og losa um vöðvabólgu, bakverk svo og
aðra álagssjúkdóma.
Ath. Nýir eigendur Hringdu og pantaðu frían kynningartíma
Leiðbeinendur: Sigrún Jónatansdóttir Sigrún Inga Sigurbergsdóttir
FLOTT FORM
Nes Form
Eiðistorgi 13-15
2. hæð undir glerþakinu
sími 612422
FLOTT FORM
Engjateigi 1, Rvík
sími 680677
FLOTT FORM
Kleifarseli 18
sími 670370