Morgunblaðið - 03.05.1989, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.05.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1989 21 Leysið hnút- inn — strax! efitir Sigvrlaugu Bjarnadóttur Nafnlaus „Menntaskólakennari með full réttindi" staðhæfir í dálk- um Velvakanda fyrir helgina (28. apríl, þegar þetta er skrifað): „Hjá okkur framhaldsskólakennurum er algert samúðarleysi með nem- endum.“ Ætla má, að greinarhöfundur, sem leyfir sér í skjóli nafnleysis að slá fram slíkri staðhæfingu, finni hið „algera samúðarleysi" svella í eigin bijósti. Það er hans mál, sva dapurlegt sem það er, af því líka, að hægt er að taka mark á ýmsu öðru í greinini. Það er hins vegar meiri óskammfeilni af „kennarans" hálfu en við verði unað þegjandi að hafa í frammi svo auvirðilegar aðdróttanir í garð starfsfélaga sinna, án raka — út í bláinn, í rauninni ekki svaraverð- ar. Hitt mun sönnu nær, að nú, eftir hart nær mánaðarverkfall, er þolinmæði okkar kennara lang- flestra (og það fyrir löngu) á þrot- um eftir árangurslaust pex og pjakk samningsaðila, þar sem hvorugur aðilinn virðist gera sér grein fyrir, hve mikið er í húfí, — að nú er hver dagur síðastur til að afstýra því, að skólastarf heill- ar annar eða árs fari í vaskinn. Engum fremur en kennurum er ljóst, hve hörmulegt ástand hefir skapast og á hveijum það bitnar harðast — nemendum okkar, þol- endum verkfallsins. Því heimtum við, að hnúturinn verði leystur strax, áður en allur skaðinn er skeður. Við væntum þess, að tals- menn okkar í þessari baráttu komi Sigurlaug Bjarnadóttir „Engum fremur en kennurum er ljóst, hve hörmulegt ástand hefir skapast og á hverjum það bitnar harðast — nemendum okkar, þol- endum verkfallsins.“ niður úr skýjunum og taki mið af raunveruleikanum í kringum þá. Við krefjumst þess, að samnings- aðilar komi til móts hvor við ann- an. Að tekið verði tillit til sérstöðu kennara innan BHMR og samið strax með tryggum fyrirvörum um raunverulegar kjarabætur til kennara svo að afstýrt verði enn frekari fjöldaflótta úr kennarastétt og hruni skólastarfs í landinu. Höfundur er menntaskólakennari. Sveinn Frímannsson Nýr iormaður Aðalfundur Tæknifræðinga- félags íslands fyrir árið 1988 var haldinn 29. mars sl. Fráfar- andi formaður, Daði Agústsson, flutti skýrslu um störf félagsins á árinu. Núverandi stjórn skipa Sveinn Frímannsson formaður, Eiríkur Þorbjömsson, Júlíus Þórarinsson, Hreinn Jónasson, Haraldur Sigur- steinsson, Gunnar Sæmundsson og Bergsteinn Gunnarsson. Skrif- stofa félagsins er í Lágmúla 7 í Reykjavík. (Fréttatilkynning) Sumartíminti hjá SJÓVÁ-ALMENNUM er frá átta til fjögur Vorið er komið og sumarið nálgast óðum. Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM skiptum við yfir í sumarafgreiðslutíma, sem er frá klukkan átta til fjögur. Sumartíminn gildir frá 1. maí til 15. september. SJOVAOirrALMENNAR —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.