Morgunblaðið - 03.05.1989, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
Áhrif verkfalls félaga í BHMR
Morgunblaðið/Júlíus
Frá fundi Qármálaráðherra með félögum í HÍK.
Gerðu hróp að ráðherra
FJÖLMENNUM tveggja löngum
almennum fundi kennara í HIK
Á þriðja þús-
und skjala
bíður þing-
lestrar
JÓN SKAFTASON yfirborgar-
fógeti áætlar að embættinu hafi
borist á þriðja þúsund skjala sem
ekki hafi verið unnt að þinglýsa
vegna verkfalls lögfræðinga hjá
embættinu. Við þær aðstæður á
hann von á að um þijár vikur
muni taka að koma starfsemi
embættisins á réttan kjöl að
loknu verkfalli.
Af sex lögfræðingum sem vinna
við þinglýsingar er nú einn að störf-
um o g annar hvergi nærri fyrirliggj-
andi verkefnum. í skiptarétti og
fógetarétti eru tveir fjögurra lög-
fræðinga við störf og sagði yfir-
borgarfógeti ljóst að afgreiðslur
mála drægjust verulega af þeim
sökum. Hins vegar hefði verkfallið
lítil áhrif haft á starfsemi firma-
skrár og uppboðsréttar.
með Ólafi Ragnari Grímssyni
fjármálaráðherra lauk með því
að fundarmenn gerðu hróp að
ráðherra og gengu á dyr þegar
hann lýsti því yfir i svari við
fyrirspum að óhjákvæmilegt
væri að samningur rikisins og
BHMR tæki mið af samningi
BSRB.
Ráðherra sagði að launastefna
þess samnings hefði nú hlotið stað-
festingu félaga 70-80 þúsunda
launamanna og að á þessum kjama
yrði að byggja í samningum BHMR
þótt unnt yrði að ræða við einstök
félög um einstaka þætti á öðrum
nótum. Að lokinni framsögu svaraði
Ólafur fyrirspumum fundarmanna.
Þar lýsti hann sig meðal annars
andvígan setningu bráðabirgðalaga
til að binda endi á verkfallið, hafn-
aði ítrekað kröfu háksólamanna um
að laun þeirra miðuðust við mark-
aðslaun og lýsti því yfir að ákvörð-
un BHMR um samflot í stað sér-
samninga hvers félags fyrir sig
hefði tafíð fyrir og tefði enn fyrir
lausn deilunnar.
Ráðherra kvaðst telja að farsæl
lausn deilunnar strandaði á því að
félagar í BHMR vildu knýja fram
meiri hækkanir en mögulegt væri
Neyðarástand að
skapast í fískeldi
FRIÐRIK Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva,
segir að standi verkfall Félags
íslenskra náttúrufræðinga enn í
lok þessarar viku muni skapast
neyðarástand í fiskeldisstöðvum
og miklar líkur séu á að margar
stöðvar muni þá endanlega
leggja upp laupana.
sambandsins þegar famir að vinna
að þeim málum.
að stjómvöld gætu samþykkt og
neituðu að taka mið af samningum
annarra hópa. Þá lýsti hann þeirri
skoðun sinni að auðveldara hefði
verið að leysa deiluna hefðu for-
svarsmenn BHMR boðið upp á
meira svigrúm til að ræða mál ein-
stakra félaga og starfshópa. Þá
lýsti ráðherra því yfir að næðist
ekki samkomulag um að binda endi
á verkfallið nú alveg á næstunni
væri eðlilegt að ríkissáttasemjari
gengi á milli með sáttatillögu enda
hefði embætti hans í raun haft deil-
una til meðferðar undanfarnar vik-
ur.
Hópur nemenda:
Hungurvaka
við flármála-
ráðuneyti
HÓPUR framhaldsskóla-
nema efnir í dag til tveggja
sólarhringa hungurvöku við
fjármálaráðuneytið. Með
þessu vilja nemamir leggja
kjarabaráttu kennara sinna
lið.
í fréttatilkynningu frá hópn-
um segir að hagsmunir nem-
enda og kennara séu hinir
sömu. Þess er krafist að deilu-
aðilar setjist að samningaborði
strax og hætti ekki viðræðum
fyrr en samningar náist. Ekki
megi ónýta skólaárið fyrir
14000 framhaldsskólanemum.
Verkfall náttúrufræðinga:
Bagalegt fyrir starf-
semi Jarðhitaskólans
Friðrik sagði að öllum beiðnum
fiskeldisstöðva og fóðurframleið-
enda um undanþágu fyrir starfs-
mann fóðureftirlits RALA hefði
verið hafnað og þar sem uppáskrift
þess starfsmanns vantaði fengju
stöðvamar ekki að leyst til sín fóð-
ur og bætiefni. Friðrik sagði að
þegar í þessari viku mundi kreppa
alvarlega að 8-10 stöðvum vegna
þessa og drægist verkfallið frekar
gætu menn staðið frammi fyrir
stórkostlegum seiðadauða og þar
með væri allri framtíð fiskeldis í
landinu teflt í tvísýnu. Friðrik sagði
ennfremur að fiskeldismenn áskildu
sér bótarétt á hendur FÍN, vegna
þess tjóns sem verkfallið kynni að
valda og væru lögfræðingar lands-
- segirGuð-
mundur Pálma-
sonjarðeðlis-
fræðingur
Jarðhitaskólinn var settur í
síðustu viku og eru hingað komn-
ir átta nemendur frá ýmsum
löndum til að stunda þar nám.
Hefðbundin starfsemi skólans
getur þó ekki hafist fyrr en verk-
fall náttúrufræðinga Ieysist.
Guðmundur Pálmason jarðeðlis-
fræðingur, forstöðumaður Jarðhita-
deildar Orkustofnunar, sem rekur
skólann í tengslum við Háskóla
Sameinuðu þjóðanna í Tókýó, sagði
í samtali við Morgunblaðið að verk-
fallið væri afskaplega bagalegt fyr-
ir starfsemi skólans. „Ég hef ekki
hugsað þá hugsun til enda hvemig
fer ef verkfallið stendur mjög lengi.
Við höfum reynt að láta nemend-
uma hafa eitthvað að gera á meðan
verkfallið stendur, en ekki veit ég
hve lengi það er hægt,“ sagði Gu-
mundur.
Jarðhitaskólinn stendur yfir í sex
mánuði. Fyrri hlutann em fyrir-
lestrar en seinni hlutann fá nemend-
ur verkefni sem þeir vinna undir
handleiðslu leiðbeinanda. Nemend-
umir koma langt að, frá Kína, Indó-
nesíu, Costa Rica, Mexíkó, Alsír,
Júgóslavíu og Djibouti.
Stúdentseftii vilja ljúka prófum í maí:
Setjumst afitur á skóla-
bekk ef próf dragast
- segir Sigríður Ýr Jensdóttir hjá
Félagi framhaldsskólanema
VERÐI prófum stúdentsefna
ekki lokið fyrir næstu mánaða-
mót hyggjast nemendur skrá sig
til náms að nýju næsta vetur.
Ekki kemur til greina að sitja í
prófum fram í júní eða júlí, að
sögn Sigríðar Yr Jensdóttur, eins
forsvarsmanna Félags fram-
haldsskólanema.
Sigríður sagði, að stúdentsefnin
hefðu sjálf lagt fram nýja próftöflu,
þar sem reiknað væri með að próf
hæfust 5. maí og yrði lokið 26.
maí. Útskrift yrði því 27. maí, svo
sem ráð hefði verið fyrir gert. „Með
þessu emm við í raun að taka tölu-
vert af vandanum á okkur, því próf-
in yrðu mjög þétt, væri farið eftir
þessari töflu,“ sagði Sigríður. Hún
bætti því við að stúdentsefnin ætl-
uðu að halda fast við þennan tíma,
því annars yrðu þau af sumarvinnu
og seinkun prófa fram í júní gæti
valdið þeim ómældum erfiðleikumn
öðmm. Til dæmis yrði þá of seint
að sækja um í háskólum víða er-
lendis. „Ef við verðum ekki útskrif-
uð í maílok sjáum við engin önnur
ráð en að sækja aftur um skólavist
næsta vetur. Mér skilst að við eigum
forgang inn í skólann á ný, en
hvernig okkur verður komið fyrir í
öllum þrengslunum veit ég ekki.“
Sigríður sagði að ef verkfallið
drægist fram yfir næstu helgi byij-
uðu próf að falla út. „Mér skilst
að menntamálaráðuneytið muni
taka ákvarðanir um próf, ef verk-
fallið stendur enn 15. maí. Ég vona
bara að farið verði að kröfum okk-
ar, svo við neyðumst ekki til að
setjast á skólabekk eitt ár í viðbót
til að fá stúdentsprófíð," sagði hún.
Mikil vandkvæði dragist
verkfall fram yfir helgi
- segir Guðni Guðmundsson
GUÐNI Guðmundsson rektor
Menntaskólans í Reylyavík segir
að dragist lausn verkfalls kenn-
ara í HIK liram yfir næstu helgi
verði illviðráðanlegt að ljúka
skólastarfi vetrarins og dragist
verkfall lengur en til þriðjudags
verði miklum vandkvæðum
bundið að prófa og útskrifa stúd-
enta. Hann áætlar að unnt verði
að efna til fyrsta prófs með um
það bil sólarhrings fyrirvara.
Rektor sagði að þegar hefðu
áform um útskrift stúdenta síðasta
fimmtudag í maí verið gefin upp á
bátinn og stefnt væri á að útskrifa
1. júní. Eftir þann tima væri feng-
just kennarar að líkindum til að
prófa en meiri vafi væri á nemend-
ur fengjust til að snúa baki við
sumarvinnu og sumarleyfum. Hins
vegar yrði ekki unnt að taka nem-
endur úr grunnskólum inn í fram-
haldsskóla nema elstu nemendurnir
yrðu jafnframt útskrifaðir.
Guðni Guðmundsson sagðist telja
að vandi áfangakerfisskóla væri
erfíðari en í hefðbundnum mennta-
skólum. Þar hefðu þijár vikur verið
eftir af kennslu þegar verkfall skall
á en í menntaskólunum hefði aðeins
ein kennsluvika fallið niður og sá
tími væri venju samkvæmt að
mestu nýttur til upprifjunar. Því
þyrftu áfangaskólar að fara yfír
námsefni þriggja vikna og efna að
því loknu til prófa sem tækju varla
skemmri tíma en tvær vikur. í
menntaskólum væri kennslu lokið
og í stað þess að dreifa stúdents-
prófum yfir sex vikna tímabil yrði
unnt að ljúka prófum á þremur vik-
um. Hins vegar væri á nemendum
að heyra að margir kviðu þeirri
breytingu og þætti stuttur timi
milli umfangsmikilla yfírlitsprófa.
Tvö salmonellutilfelli á Suðurlandi:
Undanþágunefiid synjaði
beiðni um rannsókn
Starfsemi rannsóknadeildar Holl-
ustuverndar ríkisins liggur niðri
TVO salmonellutilfelli komu upp á Suðurlandi fyrir skömmu og
hefur undanþágunefiid Félags íslenskra náttúrufiræðinga synjað
beiðni um undanþágu vegna rannsókna á sýnum, sem tekin hafa
verið. Óvíst er því með öllu hvernig sýkingin er til komin. Saursýni
sjúklinganna tveggja voru send til ræktunar á rannsóknastofu Lands-
pítalans, þar sem í ljós kom í báðum tilvikum að um var að ræða
salmonellu af svokallaðri músataugaveikistegund sem er ein hastar-
legasta tegund salmonellu, að sögn Magnúsar Garðarssonar, heil-
brigðisfulltrúa Suðurlands.
Beiðninni var synjað á þeim for-
sendum að ekki væri um faraldur
að ræða. Hinsvegar telur heilbrigð-
isfulltrúi Suðurlands sig vera að
vinna fyrirbyggjandi störf þannig
að ekki komi til faraldurs. Því hafi
hann farið fram á undanþágu vegna
þessarra tilfella.
Kona á miðjum aldri, búsett á
Selfossi, var flutt á sjúkrahúsið á
Selfossi þann 9. apríl sl. og fimm
dögum síðar var ellefu ára stúlka
af bóndabæ í Landeyjum flutt á
sama sjúkrahús. „Það sem ég vil
gera,“ sagði Magnús, „er að finna
hvaðan sýkingarnar eru komnar til
að koma í veg fyrir að fleiri þurfi
að leggjast inn. Þetta er það hættu-
leg veiki. Ég hef lagt mikla vinnu
í að safna saman sýnum og sent
til Reykjavíkur, en því miður kemst
ég ekki lengra þar sem undanþágu-
nefnd sá ekki ástæðu til að veita
undanþágu,“ sagði Magnús.
Undanþágunefnd FÍN hefur jafn-
framt synjað beiðni frá heilbrigðis-
eftirliti Reykjavíkurborgar um gerl-
arannsókn á neysluvatni.
Starfsemi rannsóknadeildar Holl-
ustuverndar ríkisins liggur alfarið
niðri. Þar eru fimm náttúrufræðing-
ar í verkfalli. Forstöðumaðurinn,
Guðlaugur Hannesson, er í starfi,
en sinnir engum þeim störfum sem
náttúrufræðingamir hafa með
höndum. Hjá heilbrigðiseftirliti
Hollustuverndarinnar em tveir af
fjórum starfsmönnum í verkfalli. Á
mengunarvarnardeild eru þrír af
fimm starfsmönnum í verkfalli.
Einn starfsmaður sinnir eiturefna-
deild og sem forstöðumaður þar,
er hann undanskilnn verkfalli.