Morgunblaðið - 03.05.1989, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MÁÍ 1989
41
in að sér. Guðmundur fór til Þuríð-
ar Ólafsdóttur og Olafs Eggertsson-
ar hreppstjóra í Króksfjarðarnesi.
Hjá þessum heiðurshjónum leið
Guðmundi vel og talaði hann ætíð
um þau með virðingu og þakklæti.
Guðmundur var gæddur góðum
gáfum og á unglingsárum kviknaði
í bijósti hans draumur um að afla
sér menntunar í skóla. Sakir fá-
tæktar og aðstöðuleysis gat þó ekki
orðið af því fyrr en 1920. Þá um
vorið sagði hann húsbónda sínum
frá draumum sínum. Ólafi leizt vel
á þessi áform enda hafði Guðmundi
að mestu tekizt að safna sér fyrir
skólanum. Um haustið fór Guð-
mundur í Ungmennaskólann á Núpi
í Dýrafirði. Sá skóli var þá undir
stjórn stofnanda hans, séra Sig-
tryggs Guðlaugssonar, síðar próf-
asts í Dýrafjarðarþingum. Menntun
sú sem Guðmundur hlaut að Núpi
reyndist honum gott veganesti út í
lífið. Ég minnist á þetta hér vegna
þess að nú geta flestir fengið að
læra það sem hugurinn stendur til.
Það má þó ekki gleymast að það
er ef til vill engri kynslóð eins mik-
ið að þakka og kynslóð Guðmundar
hve mikil umskipti hafa orðið á
högum okkar sem yngri erum í
þesum efnum sem öðrum.
Á námsárum sínum að Núpi fékk
Guðmundur löngun til þess að fara
út í hinn stóra heim. Sá draumur
rættist m.a. fyrir tilstilli dansks
manns, sem Guðmundur kynntist
er hann vann á Reykjum í Mos-
fellssveit skömmu eftir að náminu
að Núpi lauk. í Danmörku vann
hann á búgarði allt til 1926 að
hann fluttist til Bandaríkjanna.
Þangað hélt hann með aleiguna í
einni tösku en engu að sfður fullur
bjartsýni. Leiðin lá til Elgin í Illin-
ois-fylki, en þar fékk hann vinnu
hjá byggingaverktaka. í Elgin bjó
Guðmundur næstu tíu árin og hafði
oftast vinnu þrátt fyrir að kreppan
mikla væri skollin á. Haustið 1936
flutti hann til Chicago þar sem
hann fékk starf við að gera við
skrifstofuvélar. Eftir að stríðið skall
á fékk hann þó betur launað starf
sem sölumaður hjá stóru trygginga-
félagi í Chicago. Árið 1946 opnaði
tryggingarfélagið nýjar skrifstofur
í Los Angeles í Kaliforníu og flutt-
ist Guðmundur þá þangað. Þar bjó
hann allt til ársins 1966 og undi
vel sínum hag.
Guðmundur kynntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Borghildi Péturs-
dóttur, í Los Angeles árið 1954 og
tveim árum síðar gengu þau í hjóna-
band. Borghildur er ættuð frá Ey-
dölum í Breiðdal. Hjónaband þeirra
var einkar farsælt og voru þau sam-
hent um að skapa gott og fallegt
heimili. Við sem þekktum þessi
góðu hjón nutum í ríkum mæli gest-
risni þeirra eftir að þau flutti til
íslands árið 1966. Þau voru höfð-
ingar heim að sækja.
Þrátt fyrir að Guðmundi og Borg-
hildi liði vel í Kalifomíu og Guð-
mundur væri mikils metinn hjá
tryggingafélaginu varð það að ráði
hjá þeim hjónum að flytja til ís-
lands og eyða þar elliárum. Voru
til þess ýmsar ástæður.
Borghildur átti son hér heima frá
fyrra hjónabandi, Svein Kjartans-
son. Komst á gott samband milli
hans og Guðmundar og reyndist
Guðmundur honum og fjölskyldu
hans einstaklega vel. Ég veit að
afabömin munu sakna Guðmundar
mikið því að hann var sérstaklega
bamgóður maður.
Árið 1967 bauðst Guðmundi
sölumannsstarf í húsgagnaverzlun
Guðmundar Guðmundssonar á
Laugavegi 166, en þar starfaði þá
sá sem þessar línur ritar. Tókst
strax með okkur góð vinátta. Guð-
mundur var frábær starfskraftur.
Honum mátti ávallt treysta, hann
var þægilegur í allri umgengni og
hörkusölumaður enda hafði hann
mikla reynslu .1 þeim efnum frá
Ameríku.
Guðmundur veiktist fyrst alvar-
lega haustið 1977 og var þá vart
hugað líf, en hann náði sér svo vel
að hann var kominn aftur til starfa
um vorið árið eftir. í húsgagna-
verzluninni starfaði Guðmundur allt
til ársins 1983.
Guðmundur átti sín áhugamál,
sem hann sinnti í tómstundum.
Hann hafði brennandi áhuga á söng
og tónlist og náði reyndar svo langt
á því sviði að hann hafði af því lifí-
brauð um tíma vestanhafs. I þessu
sambandi má segja að lengi búi að
fyrstu gerð. Guðmundur segir sjálf-
ur frá því í æviágripum sínum í
ritinu Breiðfirðingur að móðir hans
hafi á vetrarkvöldum kallað saman
bamahópinn sinn til þess að láta
hann syngja. Lagði hún mikla
áherzlu á skýran og góðan fram-
burð, en sjálf hafði hún næmt tón-
eyra. Fljótlega eftir að Guðmundur
fluttist til Bandaríkjanna fór hann
að syngja í tveim kórum. Annar
þeirra var kirkjukór og var hann
þar tenórsólóisti í sjö ár. Eftir að
hann fluttist til Chicago átti hann
þess kost að mennta sig í söng og
naut þá tilsagnar margra þekktra
söngkennara. Hann söng oft ein-
söng við jarðarfarir og önnur tæki-
færi og hafði af því dálitlar auka-
tekjur. Guðmundur las mikið um
söng og tónlist og eignaðist mikið
og gott hljómplötusafn. Það veitti
honum miklar ánægjustundir.
Söngurinn átti svo sterk ítök í Guð-
mundi að fyrir kom að við tókum
saman lagið í vinnunni þegar lítið
var að gera. Höfðum við báðir af
hina beztu skemmtan.
Guðmundur var mikill trúmaður,
las mikið um þau málefni og var
alveg sannfærður um líf eftir dauð-
ann.
Nú er vinur minn horfinn yfír
móðuna miklu, en minningarnar lifa
í hugum okkar sem þekktum hann.
Ég kveð hann með söknuði og þakk-
læti fyrir það einlæga vinarþel sem
hann ætíð sýndi mér og fjölskyldu
minni.
Kæra Borghildur og fjölskylda.
Við hjónin flytjum ykkur okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Megi sá
er öllu ræður milda og græða sorg
ykkar um leið og þið minrtist góðs
manns.
Guðmundur L.Þ. Guðmundsson
Þegar vinur minn Guðmundur
Guðlaugsson er allur, lýkur löngum
og farsælum æviferli mikils öðlings-
manns. Árin nálguðust að verða 89,
jafnmörg öldinni okkar, og lífsferill-
inn æði viðburðaríkur og fjölbreytt-
ari en algengt var á þessum tímum.
Má með sanni segja að hann lifði
tímana tvenna, því að æviskeið
hans náði yfir það tímabil, er mest-
ar þjóðfélagsbreytingar hafa orðið
með þessari þjóð. Þegar hann, eftir
40 ára útivist, snýr heim til ættjarð-
arinnar, er það þjóðfélag sem hon-
um mætir æði frábrugðið því sem
hann kvaddi á árunum eftir 1920.
Ekki þar fyrir að miklar þjóðfélags-
breytingar áttu sér einnig stað úti
í hinum stóra heimi á þessum
tímum, framfarir víða risavaxnar,
en áföllin líka hrikaleg af völdum
styijalda og annarra ógnarverka
svo og heimskreppunnar miklu, sem
allt drap í dróma og hindraði fram-
farir og bætt lífslqör.
Guðmundur Guðlaugsson fædd-
ist á Efri-Brunná í Dalasýslu 24.
október árið 1900, og voru foreldr-
ar hans Guðlaugur Guðmundsson
og Sigurlína Guðmundsdóttir. Þeg-
ar Guðmundur er á öðru ári flyzt
fjölskyldan að Kletti í Geiradals-
hreppi, en dvölin þar verður ekki
löng þar eð þau þurfa að rýma jörð-
ina fyrr en ætlað var og flytja þá
að Bakka í sömu sveit árið 1910.
Bakki var ekki stór jörð, sem fram-
fleytt gæti stóru búi og ræktað land
jarðarinn hefur örugglega verið
lítið. Gefur augaleið að þar hefur
mátt gæta mikillar hagsýni og
vinna hörðum höndum til að hafa
fyrir brýnustu nauðþurftum. Engu
að síður mun fjölskyldunni hafa lið-
ið vel á Bakka, en árin þar verða
því miður ekki mörg, einungis þijú.
Móðirin veikist og deyr og faðirinn
stendur uppi með 6 ung börn. Þetta
var mikið og þungt áfall, sem
breytti gjörsamlega högum fyöl-
skyldunnar, en vinir og ættingjar
komu til hjálpar og tóku börnin til
fósturs. Guðmundur fluttist til hjón-
anna Ólafs hreppstjóra Eggertsson-
ar og Þuríðar Runólfsdóttur í
Króksfjarðamesi, þá 12 ára að
aldri, og þar átti hann heima fram
yfir tvítugt að hann hleypti heim-
draganum og hélt til Reykjavíkur
eftir tveggja vetra skólavist að
Núpi í Dýrafirði.
Ekki ílentist Guðmundur lengi
syðra. Hann var, eins og hann sjálf-
ur sagði, haldinn ákveðinni útþrá.
Hann fysti að sjá sig um í heiminum
og víkka sjóndeildarhringinn. Hann
var áræðinn og óragur að kanna
ókunna stigu og því heldur hann
til Danmerkur og ræður sig til vinnu
á dönskum búgarði. Þar dvelur
hann í 2 eða 3 ár þar til hann afræð-
ur að flytjast til Ameríku og þang-
að kemur hann á vordögum árið
1926. Þar með hefst langur og
reynsluríkur kafli í lífi Guðmundar,
því að í fjóra tugi ára dvelst hann
vestra við ýmis störf, en lengstum
þó á vegum tryggingafélags bæði
í Chicago og Los Angeles. Gaman
var að heyra Guðmund segja frá
ýmsu er á daga hans hafði drifíð
þar vestra. Góðu heilli lét hann
verða af því að skrifa þætti endur-
minninga sinna og hafa þeir birzt
á prenti.
Árið 1956 staðfestir Guðmundur
ráð sitt, er hann gengur að eiga
Borghildi Pétursdóttur, hina ágæt-
ustu konu, er þar dvaldi um þessar
mundir. Ekki er ofsögum sagt að
samhentari og samrýndari persónur
getur vart og var það óblandið
ánægjuefni að heimsælqa þau eða
fá í heimsókn. Það var gott með
þeim að vera. Guðmundur og Borg-
hildur flytja síðan til íslands árið
1966 og vann Guðmundur hér verzl-
unarstörf um margra ára skeið.
Það var okkur eilíft undrunarefni
hve Guðmundur bar aldurinn vel
þótt árin væru orðin mörg. Hann
virtist hreint ekki eldast eins og
flestir þurfa að sætta sig við. En
það var ekki einungis að hið ytra
gervi væri prýði þessa ágæta
manns, heldur ekki síður þeir góðu
kostir, sem hann var búinn. Hið
ljúfa viðmót, jákvætt viðhorf, hóg-
værð og meðfædd kurteisi, þetta
voru eiginleikar, sem hann var bú-
inn í ríkum mæli.
Ekki verður Guðmundar Guð-
laugssonar svo minnst að ekki sé
getið þess þáttar, sem einkenndi líf
hans allt og var honum meiri
lífsfylling en flest annað, en það
var söngur og sígild tónlist. Honum
hlotnaðist í vöggugjöf fögur söng-
rödd, sem hann lagði mikla rækt
við meðan hann dvaldi í Ameríku.
Þar stundaði hann söngnám, söng
í kórum og sem einsöngvari við ein
og önnur tækifæri.
Nú, þegar Guðmundur Guðlaugs-
son er allur og fleiri verða ekki
samfundir að sinni, er ljúft að minn-
ast liðinna samverustunda. Við
Hrefna kveðjum góðan vin og ósk-
um honum fararheilla á þeirri braut,
sem hann var fullviss að við öll
ættum eftir að ganga, og innilegar
samúðarkveðjur sendum við Borg-
hildi og öðrum aðstandendum.
Guðmundur B. Ólafsson
AFGASRÚLLUR
fyrir bilaverkstæöi
Olíufélagið hf
681100
Honda 89
Accord
Sedan
2,0 EX
Verð f rá 1232 þúsund,
miðaö við staðgreiöslu á gengi 1. ap. 1989.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIRALLA.
UHONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
Flexelio
HÚSGAGNA-
HJÓL
FlexelBo
mf:
FlexelBo
j. f'*
Flexello
Flexello
Poufseti
Suðurlandsbraut 10. S. 686499.
-
EINKASKÓLI VIÐ TJÖRNINA
LÆKJARGÖTU 14B -101 REYKJAVÍK - SÍM116820
Skólastarfið við Tjörhina er öflugt.
Sæktu strax um skólavist.
Upplýsingar á skrifstofu frá kl. 8-1.
Símar: 16820 og 624020
SKÓLASTJÓRAR