Morgunblaðið - 03.05.1989, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1989
Rokkveisla
íTónabæ
LOKAKVÖLD Músíktilrauna Tónabæjar og Bylgjunnar var fimmtu-
dagskvöldið 21. apríl sl. og úrslitakvöldið síðan föstudaginn 22. Alls
voru það átta hljómsveitir sem komust í úrslit, ein úr Hafnarfirði,
ein úr Hornafirði, ein úr Eiðaskóla, tvær úr Reykjavík og þrjár af
Akranesi.
Síðasta tilraunakvöldið
Síðasta tilraunakvöld Músíktil-
raunanna að þessu sinni tóku sex
hljómsveitir þátt.
Stertimenni úr Vestmannaeyj-
um voru fyrstir á svið og komu
ákveðnir og vel æfðir tii leiks.
Þeir eiga þó sitthvað eftir ólært í
tónsmíðum og útsetningar voru
ekki vel markvissar þó lögin sem
slík hafi verið þokkaleg. Einkum
hætti þeim til að hafa texta stirða
til söngs.
Önnur sveit var Túrbó úr Borg-
arnesi, sem tók einnig þátt í
síðustu tilraunum. Þátttaka sveit-
arinnar að þessu sinni kom til
tveimur dögum fyrir tilraunakvöld-
ið og fyrstu þrjú lögin sem sveitin
lék urðu til að mestu á þeim tíma.
Það mátti og heyra og til að
mynda var fyrsta lagið frekar hug-
mynd en fullmótað lag. Síðasta
lagið sem sveitin lék var hinsveg-
ar frá því í síðustu tilraunum og
framúrskarandi. Með fjögur slík
lög hefði sveitin átt greiða leið í
úrslit.
Þungarokksveitin Trassarnir úr
Eiðaskóla var næst á svið. Sveitin
leikur þungt rokk af einföldustu
gerð og er ágætlega þétt. Það
breytir því þó ekki að flest lög
sveitarinnar eru gítarfrasastæður
sem sneyddar eru allri dýnamík
og millikaflarnir voru flestir úr
samhengi. Þriðja lag sveitarinnar
var einna skárst og réð þar mestu
góð frammistaða söngvara sveit-
arinnar.
Fjórða sveitin á svið, íslensk
knattspyrna, var einnig úr Eiða-
skóla, en lék gjörólíka tónlist.
Helsta vandamál sveitarinnar er
að hún stendur á mörkum tilgerð-
arlegrar popptónlistar og hrein-
ræktaðs rokks, því á meðan sveit-
armenn geta ekki gert upp við sig
hvað þeir vilja gera verður útkom-
an óáhugaverð eins og hún var
þetta kvöld.
Hornafjarðarsveitin Vitringarnir
var næst. Sveitin leikur melódíska
popptónlist sem markast af eink-
ar einhæfum og frumstæðum
tölvutrommuleik. Vitringarnir voru
sama marki brenndar og svo
margar aðrar sveitir að drekkja
einföldum hugmyndum í yfirdrifn-
um útsetningum. Fyrsta lag sveit-
arinnar var líkt og fyrsta lag
Túrbó, hugmynd en ekki lag, en
þau sem á eftir komu voru öllu
betri.
Síðasta sveitin þetta kvöld,
Bróðir Darwins, var sem ferskur
andblær eftir það sem á undan
var komið. Tónlistin var einföld
og markviss og spngkonan ein
efnilegasta söngkona sem undir-
ritaður man eftir að hafa heyrt í
í mörg ár. Taugaóstyrkur átti hlut
í að sveitinni fataðist flugið nokkr-
um sinnum, en það kom ekki veru-
lega að sök.
Úrslitin þetta kvöld voru að
Bróðir Darwins sigraði nokkuð
örugglega en Vitringarnir urðu í
öðru sæti. Dómnefnd ákvað svo
að veita Trössunum brautargengi
í úrslit.
Úrslitakvöldið
Það mátti sjá fyrir að úrslita-
kvöldið yrði mikil rokkveisla, því
þrjár úrslitasveitanna léku rokk í
þyngri kantinum og þrjár til við-
bótar voru með rokkkyns tónlist.
Trassarnir voru fyrstir á svið, en
sveitin var ekki nema svipur hjá
sjón miðað við kvöldið áður, því
söngvari sveitarinnar var nú radd-
laus og bassaleikarinn og aðal
gítarleikari hennar hlupu í skarðið.
Það dugði ekki til, enda undirbún-
ingur í minna lagi, en það kom þó
í Ijós að gítarleikarinn er ágætis
söngvari og mætti gera meira af
slíku.
Vitringarnir voru næstir og bar
nú meira á vélrænum trommu-
heilatakti en áður, auk þess sem
þungarokkhljómurinn í gítarnum
átti ekki vel við.
Laglausir byrjuðu með mikilli
hressandi keyrslu og greinilegt
að sveitin er vel tilbúin undir at-
vinnumennsku. Fyrsta lagið var
einna skemmtilegast, en þriðja
lag sveitarinna var og ágætt.
Síðasta hljómsveit fyrir hlé var
Bootlegs. Sveitin var með forfalla-
bassaleikara, sem lék reyndar á
gítar með Túrbó kvöldið áður, en
hann kom víst inn í sveitina með
dags fyrirvara og náði ekki nema
einni æfingu áður en hann kom
fram. Hann stóð sig þó mjög vel
og greinilegt að hann kann sitt-
hvað fyrir sér í bassaleik ekki síður
en gítarleik. Annar gítarleikarinn
átti í hinum mestu erfiðleikum
með tækjabúnað sinn, en sveitar-
menn létu það lítið á sig fá og
sýndu á sér flestar sínar bestu
hliðar.
Eftri hlé kom Lalli og sentimetr-
arnir á svið. Lalli og félagar leika
rokktónlist sem er undir sterkum
og á stundum of miklum áhrifum
frá nýrri breskum rokksveitum
eins og Simple Minds og U2.
Sveitin er vel þétt og söngvarinn
er efnilegur í meira lagi. Það kom
Lalla í úrslit, þó ekki hafi það dug-
að til verðlauna.
Neyðin kom næst á svið og var
ekki vel staðsett á dagskránni því
sveitarmeðlimir urðu fyrir aðkasti
af óþroskuðum aðdáendum
þyngri rokktónlistar á staðnum.
Sýndu þeir óánægju sína og óþol-
inmæði með því að kasta
pappaglösum og fleiru lauslegu
að sveitinni og baula á hana, en
sveitin öll og þá helst söngkona
hennar tók öllu jóssinu af þolin-
mæði og yfirvegun. Það hlaut þó
að koma niður á tónlistinni, því
Neyðin var ekki upp á sitt besta
þetta kvöld.
Batteri var næst á svið og hóf
leikinn með látum. Ekki voru
fyrstu tvö lögin sem sveitin flutti
áhugaverð, en í þriðja laginu var
skipt um gír með feikn þungri
keyrslu. Fyrirtaks lag og vel sung-
ið af bassaleikara sveitarinnar
sem hefur sérlega hentuga rödd
fyrir þessa gerð tónlistar. Hann
söng einnig síðasta lag sveitarinn-
ar sem var það besta sem frá
henni heyröist í þessum músíktil-
raunum; klass
ískir rokkfrasar fluttir af innlifun
og þrótti.
Lokasveit kvöldsins var Bróðir
Darwins, sem var reyndar þriðja
Akranessveitin sem komst í úr-
slit. Sveitarmeðlimir voru ekki
eins taugaóstyrkir og kvöldið áður
og því mun betri og dagskráin nær
hnökralaus. Tvímælalaust efnileg-
asta hljómsveitin sem fram kom
í þessum tilraunum og gaman
verður að fylgjast með henni í
framtíðinni.
Úrslitin urðu svo þau að Lag-
lausir sigruðu og hlutu að launum
50 hljóðverstíma í Hljóðakletti og
Casio hljómborð, Bootlegs urðu í
öðru sæti og hlutu að launum 30
hljóðverstíma í Bjartsýni og
trommuheila frá Casio og Bróðir
Darwins varð í öðru sæti og hlaut
20 hljóðverstíma í Hljóöakletti og
hljóðnema.
Árni Matthíasson
Laglausir, sem
sigruðu nokkuð
örugglega, en
með þeim á
myndinni eru
tveir meðlimir
Bootlegs.
mm
Bróðir Darwins, þriðja sæti,
Bootlegs, annað sæti.
... —----
Túrbó
Stertimenni
íslensk
knatt-
spyrna
Trassarnir
Vitringarnir
Ljósmynd/BS