Morgunblaðið - 03.05.1989, Síða 48

Morgunblaðið - 03.05.1989, Síða 48
fri>» i" • 48 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1989 Minning: Jón Gunnar Arna- son myndhöggvari ? ** i I « í' f I I < > Jón Gunnar lagði í ferðina löngu í nótt. Það var eins og hlý Andalús- íugolan yrði ísköld þegar mér barst þessi frétt. Minningamar hrannast upp og í kjölfarið hlýnar aftur. Ég kynntist Jóni Gunnari sumrið 1972, þegar ég vann við gestamóttöku á Hótel Holti í Reykjavík, þar sem hann kom oft til að fá sér örlitla bijóst- birtu ásamt þeim félögum sínum Ólafi Jónssyni og Kjartani heitnum Kjartanssyni. Eftir að við Ólafur hófum sambúð varð Jón Gunnar vinur minn og heimiiisvinur til dauðadags, þrátt fyrir breyttar að- stæður. Á árunum 1973 til 1980 dvöldumst við oft stóran hluta sum- ars í Vertshúsi í Flatey á Breiða- firði, þessari paradís íslenskrar náttúru, við leik og störf, ásamt flölskyldum okkar og vinum. Það væri efni í heila bók að segja frá þeim stórkostlega tíma. Ferðalög, gönguferðir að ógleymdum öllum ferðunum í kræklingafjörur þar sem Jón Gunnar hjó til sprek og spýtur með stóra hnífnum og kynti bál sem kræklingurinn var síðan eldaður yfir. Allur matur sem Jón Gunnar kom nálægt var góður, nei frábær, hvort sem það var þykkt, illa skorið brauð með stórum ostbitum heima hjá honum, eða glænýr hrár rauðmagi skorinn í örþunnar sneiðar, ný- keyptur af litlum strákum í fjöru- borðinu suður á Álftanesi, svo mað- úr tali nú ekki um hvítlaukslamba- lærið vel kryddaða. Þegar ég setti niður rifsplöntur í garðinn minn um árið, bjuggu fímm ijörug börn í næsta húsi, sem stukku alltaf yfír vegginn milli hús- anna og auðvitað lentu þau alltaf niður á plöntunum. Ég tuðaði enda- laust yfír þessu. Jón Gunnar sagði: „Leyfðu þeim að leika sér,“ og þar sem ég neitaði heyrði ég að hann tautaði: „Þetta kvenfólk," um leið og hann fór. Tveimur dögum seinna varð mér litið út um gluggann og sá þá Jón Gunnar vera að beygja járn sem hann þræddi í þar til gerða stálvinkla sem hann hafði smíðað og fest á vegginn. Eftir þetta brotn- uðu engar plöntur og bömin stukku að vild. „Hvar á maður að hengja af sér, ljúfan mín?“ spurði hann þegar við vorum nýflutt. Það varð eitthvað fátt um svör. En skömmu seinna voru komnir snagar af öllum gerð- um og stærðum, gerðir af meistara- höndum út um allt húsið. í dag eru hlutir, litlir og stórir, sem hann hefur glatt mig og fjöl- skylduna með allt í kringum okkur. Jon Gunnar var örlátur maður í öllum skilningi. Vinir voru vinir, gott fólk — gott fólk og bjánar — bjánar, burt séð frá aldri, greind eða þjóðfélagsstöðu. Ein ógleyman- legasta stund ævi minnar er sú stund þegar ég sá verkið Cosmos gravity í Nýlistasafninu um árið. Ég veit að Jón Gunnar vann af ofur- kappi síðustu vikur ævi sinnar við að koma frá sér verki sem á eftir að gleðja sjúklinga Borgarspítalans um ókomin ár, þegar sólin endur- kastast af speglum inn um glugga spítalans og geislamir dansa á veggjunum. Enn á minningin um vin minn alltaf eftir að gera sólina bjartari. Sevilla, Bergljót Gunnarsdóttir Gamall vinur er látinn. Jón Gunnar Árnason er látinn, og þar með horfínn félagi sem gekk lífsbrautina sjálfstætt og skapandi t Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi, GUÐLAUGUR VIGFÚSSON frá Holti, Vestmannaeyjum, Kjarrvegi 15, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 5. maí kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Landakotsspítala. Jóhanna K. Kristjánsdóttir, Vigfús Guðlaugsson, Rósa Sigurjónsdóttir, Guðleif Guðlaugsdóttir, Páll H. Guðmundsson, Sigríður Guðlaugsdóttir, Gústav Einarsson, Kristján Guðlaugsson, Ásgerður Halldórsdóttir, Guðrún Guðlaugsdóttir, Helgi Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Eiginkona mín, mó,ðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR ÞÓRHALLSDÓTTIR, Akurgerði 33, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 3. maí kl. 13.30. Haukur Pálsson, Guðrún Helga Hauksdóttir, Gunnar Haraldur Hauksson, Sigurjón Páll Hauksson, Kristín Hulda Hauksdóttir, HaukurHauksson, Unnur Erna Hauksdóttir, Jónas Guðgeir Hauksson, Júlíana Hauksdóttir, Guðfinna Hauksdóttir, barnabörn og Jóhann Örn Guðmundsson, Kristin Jóna Guðjónsdóttir, Gylfi Jónasson, Ulla Harbo, Ólafur Örn Valdimarsson, Hildur Pétursdóttir, Loftur Ólafur Leifsson, Hafliði Halldórsson, barnabarnabörn. t Hjartanlegar þakkir til hinna fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall okkar elskulega eiginmanns, föður, tengdaföð- ur og afa, GUÐMUNDAR JÓNS MAGNÚSSONAR Nesvegi 57. Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem aðstoðuðu okkur og studdu á þessari erfiðu stundu. Guðfinna Jónsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Matthias Daði Sigurðsson, Guðmundur Jón Friðriksson, Jóhann Magnús Friðriksson, Finnur Daði Matthiasson. og í samræmi við sannfæringu sína. Þegar ég kynntist Jóni Gunnari Árnasyni fýrst, var það í hópi fé- laga í Myndlista- og handíðaskólan- um. Á hugmyndafræðilega þróun þessa hóps hefur Jón haft meiri áhrif og þar með meiri áhrif á yngri kynslóð listamanna á íslandi en flestir aðrir listamenn íslenzkir. Hann nálgaðist kennsluna ekki kreddubundinn, heldur með fijáls- legu, mannlegu innsæi. Hann var raunverulega starfandi listamaður, kenndi sem slíkur án kennslufræði- legra krúsidúlna og hikaði ekki við að hleypa nemendum inn í hug- myndaheim sinn og starf. Við sem vorum í fijálsri myndlist eigum margar ánægjulegar minningar frá því tímabili í Ásmundarsalnum þar sem við undir hans handleiðslu unn- um að umhverfisverkefni, við minn- umst langra vinnudaga þar sem rætt var um listina, lífíð og hand- verklega hluti. Samband Jóns við þennan hóp hélst síðan óslitið og innan þessa hóps kynntist hann Rúrí lífsförunaut sínum hin síðari ár. Hin eindregna afstaða hans gagnvart listinni hefur örugglega átt stóran þátt í lífsviðhorfi og starfí þessa hóps og annarra sem nutu kennslu hans síðar. Jón var rausnarlegur og óeigin- gjarn í samskiptum, það sem hann átti skipti hann með samferða- mönnunum. Hann var ræðinn og opinn út á við, skemmtilegur í frá- sögn, hnittinn en jafnframt mark- viss í umræðu. Hann hafði alltaf lag á að vita um hvað hlutimir sner- ust. Hann var félagslyndur og naut þess að vera í góðum hóp. Jón var á fyrsta hluta starfsævi sinnar sem listamaður „infant terrible“ myndlistar á íslandi, mað- ur sem virtist hafa að tómstunda- iðju að slípa hnífa og eggvopn til friðþægingar sjálfseyðingarhvöt þjóðfélags sem hafði beðið skip- brot. Sjálfsagt vilja fleiri okkar minnast járnhjartans sem listsögu- skapandi og imynd listsköpunar Jóns, þeim mun frekar þar sem það þrátt fyrir harðan efnivið ber í sér mýkt og innileik og felur í sér ein- kenni persónunnar sem það skóp, því Jón var hlýr persónuleiki og hollur vinum sínum. Jákvæðni hans gagnvart myndlistinni og myndlist- armönnum en sérstaklega gagnvart ungu listafólki gerði hann að einum forystumanna nýlistar á íslandi. í lífí sínu þræddi hann ekki meðal- vegi, heldur órudda óvegi listarinn- ar óháð duttlungum Ijármagnsins og án tillits til þess hvort öðrum líkaði eður ei. Jon var opinn fyrir skoðunum annarra og tók aðra listamenn alvarlega óháð liststefnu þeirra. Hann gat átt til að gera góðlátlegt grín að hegðan sam- ferðamanna sinna en ekki skoðun- um. Jón var í upphafi starfsferilsins umtalaður sem einn af svokölluðum „yngri listamönnum þjóðarinnar". Enn 15 árum síðar var hann einn af „yngri listamönnunum", hann staðnaði nefnilega ekki í skoðunum eða lífsviðhorfí. Eins og ég upplifði hann, stjómaði lífsviðhorf hans list hans, hann nálgaðist viðfangsefni sitt hveiju sinni fyrst og fremst út frá hugmyndum tengdum umhverf- inu og frumkröftunum. Síðustu árin þjáðist Jón af alvar- legum veikindum. Við sem þekktum hann fylgdumst með löngu dauða- stríði, þar sem Jón sótti baráttu- kraft sinn til listsköpunar sinnar. ■ Við fylgdumst líka með því hversu nánustu aðstandendur tóku þátt í þessari viðureign hans við tímann, t Eiginmaður minn og faðir okkar, INGVARJÓNSSON vörubflstjóri, Bræðraborgarstíg 49, lést í Landakotsspítala 30. apríl. Jónina Björnsdóttir og börnin. t Útför föður okkar og tengdaföður, ÓLAFS ÞORGRÍMSSONAR hæstaréttarlögmanns, fer fram frá Dómkirkjunni í dag, miðvikudaginn 3. maí, kl. 15.00. Erna Ólafsdóttir, Kjartan Reynir Ólafsson, Kristín Sigurðardóttir. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR, Hæðargarði 17. Gunnar Guðbjörnsson, Gunnar Gunnarsson, Guðlaug Gunnarsdóttir, Indriði Rósenbergsson, Jóhann Kristinn Indriðason og barnabörn. t Hugheilar þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð •og vinarhug við andlát og útför KRISTÍNAR INGUNNAR HARALDSDÓTTUR, Fellsmúla 12. Björn Einarsson, Inga Þórðardóttir, Áslaug Þórðardóttir, Sigríður Sverrisdóttir, Stefanía Björnsdóttir Haraldur Sigurðsson, Þorlákur Pétursson, Bragi Svavarsson, Úlfar Aðalsteinsson, og barnabörn. og hversu bönd hans við þá treyst- ust á þessu erfiða tímabili þeirra allra. Síðustu orrustuna berst maður- inn einn, við sjálfan sig, enginn getur tekið öðrum manni réttinn til þessarar baráttu, uppgjörsins við tímann. Jón vissi um þetta uppgjör og hafði sætt sig við endalok þess, einbeittur í að veita dauðanum harða baráttu, sáttur með reist höfuð. Þegar andlát hans bar að var ég hér í Kaupmannahöfn, og get vott- að að hann á marga vini hér sem allir minnast hans sem góðs félaga. í Akademíunni þar sem hann kenndi eitt tímabil ævi sinnar minn- ast hans margir og hafa fylgst með honum í dauðastríði hans, hjá þeim hefur hann aðeins eftirlátið jákvæð- ar minningar. Þeir félgar sem hann þekkti á Café West, Cap Horn og Café St. Strandstr. minnast hans sem góðs samferðamanns. Fjölskyldu Jóns og vinum hans vil ég og fjölskylda mín votta dýpstu hluttekningu, frá okkur hefur horf- ið góður listamaður og góður, ein- lægur, traustur vinur. Kaupmannahö£n, Björgvin Gylfi Snorrason. Með sorg í hjarta meðtókum við frétt um að vinur okkar og fyrrum samstarfsmaður, myndhöggvarinn og konseptlistamaðurinn Jón Gunn- ar Ámason væri látinn. Við, kennarar við myndlistar- deildir og við sameiginleg verkstæði Konunglegu dönsku listaakadem- íunnar, og stjóm akademíunnar, vottum fjölskyldu og vinum Jóns Gunnars Árnasonar okkar dýpstu samúð. Innilegar kveðjur. Kaupmannahöfn, Jörgen Bruun Hansen, Murallaboratoriet. Else Marie Bukdahl, Rektor. Björgvin Gylfi Snorrason, Plastværkstedet. Else Berenth, Sekretær. Ole Anderson, Fællesværkstedet. Myndhöggvarinn og koncept- listamaðurinn Jón Gunnar Ámason er látinn eftir löng veikindi. Ég hitti Jón Gunnar Ámason fyrst árið 1973 í Kaupmannahöfn. EFtir það varð ég gestakennari annað hvert ár við Myndlista- og handíðaskóla íslands og styrktist vinskapur okkar sífellt á þessum tíma. Árið 1979 réð þáverandi prófess- or við skúlptúrdeildina „Skolen for Mur- & Rumkunst“ við Konunglegu Akademíuna í Kaupmannahöfn Jón Gunnar til deildar sinnar. Þar kenndi hann í tvö ár og naut bæði virðingar og vinsælda, jafnt meðal nemenda og samkennara. Þrátt fyrir sjúkdóm sinn vann Jón Gunnar Ámason að skipulagningu á norrænu skúlptúrsamstarfi (Ex- perimental Environment) fram á síðustu stund. Hin síðari ár vann hann verk út frá grundvallar- hugmyndum sínum varðandi vík- ingaskip og er eitt slíkt verk á Hellissandi (5 metra hátt), annað er í smíðum á Akureyri. Jón Gunn- ar Árnason var fulltrúi íslands á Biennalnum í Feneyjum árið 1982. Hinn alþjóðlega sinnaði listamaður Jón Gunnar Árnason sýndi meðal annars litla kringlótta spegla í Kaupmannahöfn, sem hann múraði fasta niður í götur víða um mið- borgina. Verk Jóns Gunnars em til víða, meðal annars í Listasafni íslands, þar sem varðveitt em meðal annars áhrifamikið og hreyfanlegt „hjarta“ og einnig „sólvagn“, bæði verkin úr málmi. Ég heimsótti Jón Gunnar til ís- lands sl. febrúar, þar kvaddi ég hann. Nú er hann látinn, tæplega 58 ára gamall. Ég veit að fyrir hönd margra íslendinga sem hér búa og fyrir hönd fjölda Dana em þessi orð kveðjuorð. Jörgen Murer, lektor við Skolen for Mur- & Rumkunst, Konunglegu dönsku listaakademíunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.