Morgunblaðið - 03.05.1989, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1989
fclk í
fréttum
SKRÚFUMÓTIÐ
NÁÐU í 10 VERÐLAUN
Skrúfumót fímleikasambandsins var haldið í Digranesi fyrir skömmu. Fimleikafélagið Rán í Vestmannaeyjum
sendi hóp stúlkna til keppni á mótinu. Stóðu stúlkurnar sig vel á mótinu og komu heim með 10 verðlauna-
peninga.
Stjóm fimleikafélagsins tók á móti keppendum og þjálfurum er þeir komu til Eyja í gærmorgun og færði
þeim hamingjuóskir og blóm í tilefni árangursins. Grímur
, , Morgunblaðið/Silli
„Eg heiti Ami og er frændi hennar Lindu, þú veist,“ segir ungi
trommuleikarinn.
HÚSAVÍK
LífoglistíBestabæ
Barnaheimilið Bestibær á Húsavík bauð foreldrum og öðmm bæj-
arbúum til síns heima fyrir nokkru til að kynna starf heimilisins
og sýna muni og myndir sem börnin hafa fengist við að gera á liðnum
vetri.
Á sýningunni var að sjá margvíslegan sköpunarkraft, frumlega og
skemmtilega muni og myndir, listaverk á sínu sviði.
Bestibær tók til starfaí nýju, glæsilegu og velbúnu húsi 1980.
Heimilinu er tvískipt, bæði dagheimili og leikskóli og samtals eru þar
120 börn á 2—6 ára. Eftirspum eftir plássum er meiri en hægt er
að fullnægja.
Dagvistarforstjóri er Helga Jónína Stefánsdóttir.
- Fréttaritari
Morgunblaðið/Sigurður Björnsson
Vel búinn vélsleði til fjallaferða og eigandi hans, Halldór Jónsson
frá Akureyri. Sleðinn er búinn lórantæki og síma og öðrum búnaði.
Halldór fer margar hálendisferðir á veturna og var nýlega á ferð
um Hofsjökul.
LEIKLIST
LH í móttöku
hjá Radjív Gandhi
ÓLAFSFJÖRÐUR
Bikarmót vélsleðamanna
Þriðja og síðasta bikarmót vél-
sleðamanna í vetur var haldið
á Ólafsfírði fyrir skömmu. Var
mótið haldið í samvinnu við Stöð 2
og Sjóvá-Almennar en skipulagning
var í höndum Ólafsfirðinga. Mótið
sóttu um 70 vélsleðaeigendur hvað-
anæva af landinu.
Keppt var í hæfnisakstri og
spyrnu í fimm stærðarflokkum vél-
sleða. Fór mótið hið besta fram í
blíðskaparveðri. Sparisjóður Ólafs-
Qarðar gaf verðlaun til mótsins og
Skeljungur hf. gaf sérstakan bikar;
„Tröllaskagabikarinn", sem veittur
var fyrir besta árangur Ólafsfirð-
inga. Bikarinn hlaut Finnur
Steingrímsson á Indy Trial.
Sigurvegari í spyrnukeppni varð
Árni Grant á Indy 650, Kristmund-
ur Þórisson sigraði í stærðarflokki
3 á JAG, Árni Valsteinsson sigraði
í stærðarflokki 4—5 á Indy 400, Jón
Ingi Sveinsson sigraði í stærðar-
flokki 6 á Indy 500, Árni Grant
sigraði í stærðarflokki 7 á Indy 650
og Benedikt Valtýsson sigraði í
stærðarflokki 8 á Indy 650.
- SB.
Einn keppandanna á fúllri ferð á bikarmóti vélsleðamanna sem
haldið var á Ólafsfirði fyrir skömmu.
Ifebrúarmánuði síðastliðnum fór
ijórtán manna hópur frá Leik-
félagi Hafnarfjarðar í leikferð til
Indlands á mót áhugamanna í leik-
list. Daginn eftir komuna þangað,
þann 12. febrúar, var þeim hópum
sem þegar voru komnir boðið til
móttöku hjá forsætisráðherra
landsins, Radjív Gandhi, þar sem
hann sýndi þeim þann heiður að
bjóða fólk velkomið.
Ljósmynd þessi barst nýlega frá
aðalræðismanni íslands í Nýju Delhí
og er ein af fáum sem tekin var á
staðnum. Gestir Radjív Gandhi
máttu ekki hafa með sér myndavél-
ar og var þar að auki leitað á fólki
að vopnum. íslenska fólkið var að
vonum mjög ánægt að fá að hitta
forsætisráðherrann. Færði það hon-
um brúðu í íslenskum þjóðbúningi.
Fyrir miðju á myndinni er forsætisráðherra Indlands, Radjív Gandhi, og hópar þeir er mættir voru á hátíðina. Það er íslendingar, Belg-
ar, Búlgarir, Japanir og Kóreumenn.