Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
57
Þessir hringdu ...
Gullarmband tapaðist
Breitt gullarmband tapaðist í
Reykjavík í lok janúar. Um er að
ræða grip sem hefur mikið per-
sónulegt gildi fyrir eiganda.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 32651.
Vísa frá 1940
Á.V. hringdi:
Veturinn eða vorið 1940 var
sungin í Reykjavík vísa sem ég
kann aðeins brot af:
í króknum Möggu ég kyssti
Við kommandör og vín
Mig langar til að vita meira um
þessa vísu, hvernig hún er í heild
og eftir hvem. Fólk sem var hér
í stríðsbyrjun kann þetta.
Prestskosningar
Sóknarbarn í Bústaðasókn
hringdi:
Ég vil endilega fá að kjósa prest
sjálf. Ekki að fámennur hópur
ráði þessu. Ég held það sé líka
betra fyrir prestinn að hafa
meirihluta sóknar á bak við sig.
Það er nóg að fámennur hópur
kjósi biskup. Presturinn þarf að
vinna fyrir mig og ef mér líkai’
hann ekki myndi ég bara leita
annað.
Bankastjórarnir Sverrir
og Valur
P.S. hringdi:
Það er búið að segja svo margt
misjafnt um bankastjórann hann
Sverri vin minn Hermannsson, en
Valur Amþórsson hefur ekki látið
svo lítið að heilsa upp á hinn al-
menna bankamann. En Sverrir lét
það vera sitt fyrsta verk að heilsa
öllum, bæði lágum og háum.
Léleg sorphreinsiþjónusta
í Kópavogi
Kópavogsbúi hringdi:
Ég vil færa fram kvörtun vegna
hreinsunar sorps í Kópavogi í vet-
ur. Það er illa gengið frá tunnu
eða umgjörð og þegar að pokinn
hefur verið tekinn úr tunnunni þá
er hún öll sundurlaus og nýi pok-
inn sem maður fær hangir laus á
milli loks og umgjarðar. Þetta
hefur komið þráfaldlega fyrir í
vetur og þó er góður aðgangur
að tunnunni.
Ég er ósátt við þetta. Maður
borgar fyrir þessa þjónusta og þó
mennimir séu í akkorði þá ber
þeim að vinna sín verk. Ég er
búin að hringja tvisvar sinnum
og kvarta yfir þessu við bæjaryfír-
völd, sem hafa lofað að koma
kvörtuninni til réttra aðila, en það
virðist lítið vera gert í málinu.
Verkfallið óþolandi ástand
Grunnskólakennari í HÍK
hringdi:
Ég er hjartanlega sammála
Menntaskólakennara sem skrifar
í Velvakanda 28. apríl með það
að þetta verkfall er orðið óþolandi
ástand. Það verður að fara að
leysa það. Spurningin er fyárhag
hversu margra heimila HÍK er
tilbúið að leggja að veði í verk-
fallinu. Mér finnast kröfur HÍK
sanngjamar en ekki tímabærar.
Það sem HÍK hefur afrekað núna
er að vekja almenna andúð fólks
á kennarastéttinni. Ég held að
kennarar vilji ekki búa við slíkt.
Ég hef mikla trú á því að mikill
meirihluti kennara vilji fá að
semja sem allra fyrst og mæta í
skólana.
Það hefur gleymst mikið í um-
ræðunni að krakkarnir á barna-
skólastiginu hafa misst úr nær
fjórar vikur á meðan jafnaldrar
þeirra hafa verið í kennslu allan
tímann. Þolinmæðin er á þrotum.
Það verður að semjast um helgina
á þeim nótum sem háskólakennar-
ar vom að semja á. Hinar kröfum-
ar em vonlausar núna.
Heimskir bílstjórar?
Þ.S. hringdi:
Í könnun hefur komið fram að
Islendingar séu skynsöm og án-
ægð þjóð. Hvar er þetta fólk?
Ekki bak við stýri á bíl. Sam-
kvæmt könnun er fram fór í
Svíþjóð á notkun stefnuljósa
reyndust þeir er ekki notuðu ljós-
in vera undir meðalgreind. Út-
koman yrði ekki góð fyrir íslen'd-
inga pg má ég spyija: Em skyns-
amir íslendingar ekki bak við stýri
heldur aðeins hinir sem em undir
meðalgreind?
Endursýnið
flogaveikiþáttinn
Starfsmaður á dagvistunar-
heimili hringdi:
Getur stöð 2 ekki endursýnt
þáttinn um flogaveiki sem var í
19:19 þriðjudaginn 25. apríl?
Kvenmannsúr fannst
Kvenmannsúr fannst í síðustu
viku við Vesturberg í Breiðholti.
Eigandinn er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 74677.
Reiðhjól hvarf
Bleikt og hvítt EuroStar 24“
reiðhjól hvarf frá Miðtúni 76 27.
apríl sl. Finnandi vinsamlegast
hringi í Elísabetu í síma 14244.
Fundarlaun.
í tilefni kennaraverkfalls
Auðunn Bragi Sveinsson
hringdi:
Mikið hefur verið rætt um
launamál kennara og þeir talið
sig þar alltof láglaunaða. Um
þetta mál datt mér í hug vísa.
Kennaramir beija í borðin
þá bömin gerast villt og þver.
Og þegar launin em orðin
alltof lág, þeir beija sér.
v Og eitt enri... Ég er búinrv Oub -íct
m'ig tuLlsaddan. oS því ob Korfd
á mynd'moioíTbm SeUeck."
. P
Víkverji skrifar
Ileikskrá Þjóðleikhússins sem
gefin er út í tilefni af sýning-
unni á Ofviðrinu eftir William
Shakespeare stendur meðal ann-
ars:
„í Prósperó [gjörningamanni
verksins sem Gunnar Eyjólfsson
leikur] sjáum við ekki aðeins hinn
fjölkunnuga mann í hlutverki
heimspekings, og hinn almáttuga
galdramann sem boðar nýja
vísindaöld sem er í dögun, við
sjáum einnig töframanninn sem
skapar leikhúsið og galdur þess.“
Víkveija þótti ánægjulegt að
sjá þessa sýnirigu og þar tekst að
beita göldrum leikhússins með
eftirminnilegum hætti. Einmitt
þess vegna ætti verkið að höfða
jafnt til ungra áhorfenda og til
hinna sem eldri eru. Þeir sem ótt-
ast leikverk Shakespeares á þeirri
forsendu að þau séu löng og þung-
melt ættu að ganga á hólm við
fordóma sína með því að bregða
sér á sýningu á Ofviðrinu. Hún
kemur þeim áreiðanlega þægilega
á óvart.
Ef Víkveiji tekur mið af þeim
fjölda fólks sem var í leikhúsinu
samtímis honum mætti ætla að
vegna dræmrar aðsóknar yrði
Ofviðrið ekki langlíft á fjölum
Þjóðleikhússins.
XXX
Nýja brautin sem verður sunn-
an við Slökkvistöðina í
Reykjavík og sveigir síðan inn á
Miklubraut á hinu mikla umferð-
arhorni, sem þar er í smíðum, er
nú að taka á sig mynd. Víkveiji
hefur oftar en einu sinni vakið
máls á nauðsyn þess að gerðar
séu rástafanir fyrir gangandi veg-
farendur í terigslum við þessa
stórframkvæmd; þannig verði um
hnúta búið að auðvelt sé að kom-
ast fótgangandi úr Hlíðahverfinu
upp í Óskjuhlíð sem á eftir að
hafa enn meira aðdráttarafl eftir
að útsýnishúsið hefur verið tekið
í notkun í tengslum við hitaveitu-
geymana.
Ef til vill er það aðeins athugun-
arleysi Víkveija að kenna, að hann
hefur ekki orðið þess var að hönn-
uðir þessarar akbrautar sem á
eftir að anna hvað mestri umferð
í landinu hafi skýrt opinberlega
frá því, hvemig þeir sem ekki eru
á bíl eiga að komast upp í útsýnis-
húsið til dæmis ef þeir koma eftir
Lönguhlíð eða ganga eftir hita-
veitustokknum úr austurátt. Fá
göngusvæði eru fallegri í
Reykjavík en suðurhlíðar Öskjuhl-
íðar og með öllu ástæðulaust að
fæla fólk frá að njóta þeirra.
xxx
Nú geta hjólreiðamenn, að
minnsta kosti á Suðurlandi,
tekið fram fararskjóta sína eftir
snjóþungan vetur. Aðstaða til að
nýta þá er misjöfn enda miðast
flest umferðarmannvirki einungis
við bílinn og aftur bílinn, sem
hefur algjöran forgang!
Víkveiji vill leyfa sér að minna
á ný á hugmynd, sem hann hefur
einhvern tíma hreyft, þess efnis,
að göngu- og hjólreiðabraut verði
lögð með allri strandlengjunni frá
Elliðaávogi inn í Fossvog. Slík
braut myndi gjörbreyta aðstöðu
fyrir þá sem vilja hlaupa, ganga
eða hjóla sér til heilsubótar án
þess að fara út úr höfuðborginni.
Uss. Hún er nýsofriuð ... Fyrir alla muni, byijaðu
aftur að reykja ...
HÖGNI HREKKVÍSI
„GEIZÐU t3AÐ FyRIR. AilG.' L-'ATTU LEIKHÚSIÐ
UM &ÖNGIMKI / *