Morgunblaðið - 03.05.1989, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
Vogaskóli 30 ára:
Skólasýning og
fj ölsky lduhátí ð
Þess er minnst um þessar mundir að 30 ár eru liðin síðan hann
tók til starfa. Af því tilefni verður haldin sérstök hátíðarsamkoma
að kvöldi 3. maí, fyrir boðsgesti og núverandi og fyrrverandi
starfemenn skólans. Þá munu nemendur vinna eingöngu að verk-
efnum er tengjast afmælinu vikuna 2. til 5. maí og munu þeir
ásamt kennurum vinna að uppsetningu skólasýningar, sem opnuð
verður almenningi á uppstigningardag, 4. maí frá kl. 14 til 17:30.
Hin árlega fjölskylduhátið í íþróttasalnum verður haldin fostu-
dagskvöldið 5. maí.
A skólasýningunni verða sýnd
verkefni nemenda úr myndmennt,
handmennt, heimilisfræði og öðrum
námsgreinum úr öllum aldursflokk-
um allt frá forskóla upp í 9. bekk.
Gert hefur verið líkan af gamla
íþróttahúsinu við Hálogaland,
braggnum sem byggður var á
stríðsárunum er síðar var nýttur til
íþróttakennslu í skólanum. Salurinn
var aðalkeppnissalur borgarinnar í
handbolta og körfubolta þar til
íþróttahöllin í Laugardal var tekin
í notkun.
Á fjölskylduhátíðinni sjá nem-
endur sjálfir um skemmtiatriði og
selja auk þess veitingar og happ-
drættismiða og rennur allur ágóð-
inn af skemmtuninni í ferðasjóð 9.
bekkinga sem fara í þriggja daga
fræðslu- og skemmtiferð til Vest-
mannaeyja.
(Úr fréttatilkynningu.)
Dómkirkjan;
Dagur aldraðra
er á morgun
Á MORGUN, uppstigningardag,
er dagur aldraðra i kirkjunni.
Þá verður messa í Dómkirkjunni
klukkan 2 e.h. Þar prédikar sr.
Ólöf Ólafedóttir, prestur við
hjúkrunarheimilið Skjól í
Reylqavík, en sr. Hjalti Guð-
mundsson þjónar fyrir altari.
Eftir messuna verður kirkjugest-
um, 67 ára og eldri, boðið til kaffi-
drykkju á Hótel Borg. Þar mun
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú),
óperusöngkona syngja einsöng við
Dómkirkjan.
undirleik Marteins H. Friðrikssonar
dómorganista.
Þess er vænst, að eldri borgarar
í Dómkirkjusöfnuðinum fjölmenni
til messunnar og kaffidrykkjunnar
á eftir.
(Frá Dómkirkjunni)
Frá fundinum á Lækjartorgi.
Útifimdir í
Reykjavík
1. maí
10-15
þúsund
manns í
miðbæmim
Frá fúndinum á Hótel Islandsplaninu,
Mikill mannfjöldi var samankominn í miðbæ Reykjavíkur á
baráttudegi verkalýðsins 1. maí, enda blíðskaparveður og tveir
útifúndir tengdir kröfúgöngu.
Gangan hófst klukkan 14.00 á
Hlemmi og þokaðist hægt vegna
mannfjölda niður Laugarveginn.
Fulltrúaráð Verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, BSRB og Iðnnema-
samband ísland héldu síðan sinn
baráttufund á Lælqartorgi, en
félagar í BHMR héldu áfram að
Hótel íslandsplaninu þar sem þeir
héldu baráttufund.
Að sögn Pálmars Halldórssonar
hjá Iðnnemasambandi íslands,
sem skipulagði dagskrá verka-
lýðsdagsins fyrir fyrrnefnda hóp-
inn, var áætlað að milli 10.000
og 15.000 manns hefðu verið í
miðbænum þegar mest var.
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið:
• Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi.
• Rafstofan Bæ, Borgarfirði.
• Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði.
• Verslunin Blómsturvellir, Hellissandi.
• Verslun Einars Stefánssonar, Búðardal
• Póllinn hf., ísafirði.
• Rafsjá hf., Sauðárkróki.
• Sír hf., Akureyri.
• Grímur & Árni, Húsavík.
• Raftækjaverslun Sveins Guðmundssonar,
Egilsstöðum.
• Rafvöruverslun Stefáns N. Stefánssonar,
Breiðdalsvík.
• Kristall, Höfn í Hornafirði.
• Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli.
• Árvirkinn hf., Selfossi.
• Raftækjaverslun Sigurðar Ingvarssonar, Garði.
• Ljósboginn, Keflavík.
Arlegft gestaboð Skagfirð-
ingafélagsins í Reykjavík
Kvennadeild og Skagfírðingafélagid í Reylqavík verða með hið
árlega gestaboð fyrir eldri félaga og gesti þeirra á morgun,
uppstigningadag.
Gestaboðið verður í félags- og veisluhlaðborð að vanda. Sam-
heimilinu Drangey, Síðumúla 35. koman hefst klukkan 14.00.
Þar verður dagskrá í tali og tónum
Nýtt Yor-
blóm selt
ásunnudag
I
|
VORBLÓMIÐ, árleg bók sem
unglingaregla I.O.G.T. gefúr út,
verður selt næstkomandi sunnu-
dag. Þá ganga félagar í bama-
stúkum í hús og selja bókina.
Vorblómið er ætlað börnum og
unglingum og er sala þess
helsta Qáröflunarleið barnastú-
kanna, segir í frétt frá útgef-
anda.
Vorblómið er ekki selt í verslun-
um, heldur er eingöngu gengið
með bókina í hús fyrsta sunnudag
maímánaðar. í bókinni eru teikni-
myndasögur, smásögur, ljóð,
skrýtlur, leikir, ævintýri og fleira.
Bókin er myndskreytt og 80 blaðs-
íður að stærð. Almenna auglýs-
ingastofan sá um myndskreytingu
og hönnun útlits. I ritnefnd eru
Ólafur F. Hjartar, Ásgerður Ingi-
marsdóttir, Eðvarð Ingólfsson og
Mjöll Matthíasdóttir.