Morgunblaðið - 03.05.1989, Qupperneq 60
SJÓVÁ-ALMENNAR
ISýll félag inoil aterkar ra-tnr
MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
taldar 3%
Islandsmet aflakóngs
V cst man n aeyj um.
ÞÓRUNN Sveinsdóttir VE sló í gær 19 ára gamalt vertíðarmet
Geirfugls GK, sem var 1.704 tonn. Auk þess að slá aflametið, var
í gær innbyrt þrjátíuþúsundasta tonnið, sem báturinn hefúr aflað
frá því hann hóf veiðar á vertíðinni 1971 og mun aflaverðmæti
þess á verðlagi dagsins í dag vera nálægt 1.200 til 1.500 milljón-
um króna.
Þórunn landaði í gær 30 tonnum og hefur því komið með 1.734
tonn að landi á þessari vetíð. f apríl kom Þórunn með 870 tonn að
landi. Þeir bátar, sem aflað hafa mest á vetarvertíð auk Geirfugls eru
Sæbjörg VE, sem aflaði 1.663 tonna 1969, Albert GK 1.517 tonna
1970, Skarðsvík SH 1.522 1972 og Amfirðingur RE, sem gerður var
út frá Grindavík 1970 og aflaði þá 1.502 tonna. Á þessari vertíð er
Jóhann Gíslason ÁR kominn með 1.518 tonn og var báturinn í gær
í mokfiskiríi suður af Eyjum. Grímur
Kostnaðar-
hækkanir í
fiskvinnslu
ARNAR Sigurmundsson, for-
maður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, segir að samtökin hafi
fengið nægar tryggingar frá
ríkisstjórninni fyrir því að fisk-
vinnslan geti borið þær kostn-
aðarhækkanir sem af nýgerð-
um kjarasamningum við Al-
þýðusamband íslands stafa út
samningstímann. Hann segir
kostnaðarhækkanirnar um
1,5% við gildistöku samnings-
ins, en 3% þegar hann er að
fúllu kominn fram. Einnig hafi
fengist tryggingar fyrir því að
tekjutap við lækkun á 5% verð-
jöfnunargjaldi með frystum
fiski í áföngum og endur-
greiðslu á söluskatti yrði mætt
á annan hátt.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagðist fagna því að
aðilar á almennum vinnumarkaði
væru búnir að gera kjarasamninga.
Hann segir útgjaldaauka ríkissjóðs
vegna aðgerða ríkisstjómarinnar til
að greiða fyrir kjarasamningum
800-1.000 milljónir. Það sé svipuð
upphæð og nemi hærri tekjum ríkis-
ins fyrstu mánuði ársins en áætlan-
ir hafí gert ráð fyrir. Þar komi til
betri innheimta söluskatts og
eflaust meiri harka í innheimtu.
Ásmundur Stefánsson, forseti
Alþýðusambands íslands, segir
þessa samninga raunhæfa, en
stærsti gallinn við þá væri að ekki
væri í þeim tryggingarákvæði,
þannig að kaupmátturinn á samn-
ingstímanum væri mjög háður því
hvemig stjómvöld tækju á málum.
Sjá ennfremur kjarasamning-
inn í heild á bls. 59, og fréttir
á miðopnu ogþingsíðu, bls. 35.
Fjórar vikur frá upphafí verkfalls háskólamanna:
Kemiarar gerðu hróp að §ár-
málaráðherra og gengu á dyr
hjá Blóðbankanum. Fiskeldisstöðv-
ar sjá fram á seiðadauða og rekstr-
arstöðvun vegna fóðurskorts leysist
ekki deila náttúrufræðinga og ríkis-
ins á næstunni. Á þriðja þúsund
viðskiptaskjala bíða þinglestrar hjá
borgarfógeta í Reykjavík. Farið er
að bera á fugladauða í kjúklingabú-
um þar sem slátrun liggur niðri
vegna verkfalls dýralækna. Þetta
eru nokkur dæmi um afleiðingar
verkfalls háskólamanna.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði á fundi með
HIK-félögum í gær að eðlilegt væri
að sáttasemjari legði fram sáttatil-
lögu ef ekki semdist á næstu dægr-
um. Fulltrúaráð HÍK kom saman
til fundar í gærkvöldi og að sögn
Wincie Jóhannsdóttur formanns
HIK var það niðurstaða fundarins
að viðræður deiluaðila hefðu ekki
leitt til þess að lausn væri í sjón-
máli. „Við höfum beðið um tilboð,
en því hefur verið neitað að svo
stöddu og vísað í þá kjarasamninga
sem aðrir hafa gert og sagt að það
væri það sem um væri að ræða.
Það er sum sé enn verið að ve-
fengja að við höfum sjálfstæðan
samningsrétt," sagði hún. Hún
sagði ennfremur að fulltrúaráðið
hefði sett niður nefnd til að und-
irbúa viðbrögð við mögulegum að-
gerðum ríkisins, svo sem að það
kæmi fram sáttatillaga, bráða-
birgðalög yrðu sett eða að skipaður
yrði gerðardómur. Nefndinni hefði
verið falið að hafa í huga hörðustu
möguleg yiðbrögð HÍK í hveiju til-
felli. „Ef Ólafur Ragnar lætur þetta
fara út í sáttatillögu þá er hann
að afskrifa starf skólanna á þessu
ári, vegna þess tíma sem atkvæða-
greiðsla tekur,“ sagði Wincie Jó-
hannsdóttir.
Ekki náðist í Guðlaug Þorvalds-
son ríkissáttasemjara í gærkvöldi.
Sjá ennfremur bls. 24.
Beðið um 8%
verðhækkun
á bensíni
OLÍUFÉLÖGIN hafa farið fram
á það við Verðlagsráð, að útsölu-
verð á bensínT* hækki um 8%,
fari úr 43,80 í 47,30 krónur hver
lítri. Jafnframt er óskað hækk-
unar á svartolíu og gasolíu.
Ástæðan er um 30% hækkun á
innkaupsverði frá því verð var
síðast ákveðið hér heima 8. apríl
síðastliðinn.
Fundur í Verðlagsráði hefur ekki
verið boðaður og verður ákvörðun
í fyrsta lagi tekin á föstudag en
líklegast eftir helgi. Verð á bensíni
á alþjóðlega markaðnum í Rotter-
dam er með allra hæsta móti nú.
Miðað við verðið þar í dag, þyrfti
útsöluverð á hveijum litra af bensíni
hér að vera rúmlega 51 króna. Olíu-
félögin hafa til þessa komizt hjá
því að kaupa bensín á hæsta verð-
inu og vonazt er til að verð erlend-
ins fari lækkandi.
Áhöfnin á Þórunni Sveinsdóttur var að vonum kampakát með aflametið á heimstíminu í gær.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ríkisendurskoðun:
Fullvirðisrétti úthlut-
að fyrir utan verðábyrgð
Ríkisendurskoðun telur áð reglugerðarbreytingar nr. 157 og 445
árið 1987 eigi sér ekki lagastoð. Þær hafi valdið því að úthlutað
hafi verið fullvirðisrétti til framleiðenda sem ekki rúmist innan
þeirra verðábyrgða sem búvörulög frá árinu 1985 geri ráð fyrir að
ríkissjóður taki á sig með árlegum búvörusamningum við Stéttarsam-
band bænda. Á grundvelli þessara reglugerða, meðal annars, hafi
verið úthlutað fúllvirðisrétti til bænda sem geti numið samtals 2.800
til 2.900 tonnum af kindakjöti á samningstímanum.
Ríkisendurskoðun álítur að ríkis-
valdið sé ekki bundið af greiðslu-
skyldum í formi verðábyrgðar
vegna fullvirðisréttar sem úthlutað
hafí verið á fyrrgreindan hátt. Þá
framleiðslu yrði að flytja út og
kostnaður vegna útflutningsbóta sé
áætlaður um 1 milljarður króna.
Landbúnaðarráðuneytið óskaði
eftir því í nóvember 1988 að Ríkis-
endurskoðun gerði ítarlega úttekt
á framkvæmd búvörulaga frá árinu
1985. í niðurstöðum stofnunarinnar
kemur fram að gera þurfi verulegt
átak í að aðlaga sauðfjárframleiðsl-
una í landinu að þörfum innanlands-
markaðarins, eins og markmið lag-
anna um búvöruframleiðslu geri ráð
fyrir. Virkan framleiðslurétt, eins
og hann sé áætlaður á árinu 1992,
þurfí að minnka sem svari til kinda-
kjötsframleiðslu um 200 verðlags-
búa.
Kjarasamningur staðfestur.
Fjármálaráðherra býst við sáttatillögu
FÉLAGSMENN HÍK gerðu hróp að Ólafi Ragnari Grímssyni fiár-
málaráðherra, sem mætti á fúnd í baráttumiðstöð þeirra í gær, og
gengu á dyr þegar hann lýsti því yfir að BSRB-samningur yrði fyrir-
mynd samnings við aðildarfélög BHMR, en í dag eru liðnar fjórar
vikur frá því að verkfall þeirra hófst. I dag er búist við að sáttafúnd-
ur í deilunni heíjist hjá ríkissáttasemjara klukkan 10 fyrir hádegi.
Forsvarsmenn kennara, mennta-
málaráðuneytis og stjórnendur
skóla eru sammála um að semjist
ekki í þessari viku sé mjög óvíst
um lyktir skólastarfs í vetur. Vand-
ræðaástand er á öllum deildum
Landspítala, að sögn Árna Björns-
sonar formanns Læknaráðs spítal-
ans, bæði vegna verkfalls hjúkr-
unarfræðinga og náttúrufræðinga