Morgunblaðið - 13.05.1989, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAI 1989
Cinnamon-
Orange:
Þróttmikið
bragð með
kanel- og
appelsínu-
*» keim.
Spring Vitalite:
Sérkennilegt
krydd- og
ávaxtabragð.
Koffínlaust.
Alltaf kalt vor
endí ártalið á 9
Exotic Dream:
Milt krydd- og
ávaxtabragð.
Koffínlaust.
SAUÐBURÐUR er nú sem óðast að heijast um allt land. Víða á
landinu sjá bændur ekki fram á að geta hleypt fé út strax ýmist
vegna kulda og gróðurleysis eða hættu sem stafar af því að skurðir
eru fullir af snjó. Sums staðar er þegar farið að saxast á heybirgð-
ir, en bændur hafa getað bjargað sér með því að kaupa hey. Erlend-
ur Eysteinsson bóndi á Stóru-Giljá í Torfalækjarhreppi spáði köldu
vori síðastliðið haust og segist byggja þann spádóm sinn á því að
ef ártalið endar á 9 megi búast við köldu vori. Svo hafi verið í það
minnsta frá árinu 1949.
Gróðurleysi og næturfrost
Sauðburður er almennt byijaður
í Miklaholtshreppi en þar er algjör-
lega gróðurlaust og enn frost á
hverri nóttu að sögn Páls Pálssonar
á Borg. Mikill snjór er til fjalia og
allir skurðir fullir af snjó og því
ekki hægt að láta fé út. Auk þess
eru öll skjól sem snúa undan norð-
anáttinni full af snjó.
Páll sagði að nóg fóður væri til
í hreppnum og hefði verið selt I
miklum mæli í aðrar sveitir. Hins
vegar eru nokkrir bændur orðnir
knappir með hey, en því verður
bjargað.
Miklir skaflar eru enn í kringum
hús og sums staðar hafa gripahús
verið á kafi í snjó í vetur. Fyrr í
vikunni var hvöss norðanátt og
snjóél svo Fróðárheiði var ófær fyr-
ir fólksbíla.
Setur niður kartöflur í júní
Ástandið er mjög svipað í Reyk-
hólasveitinni. Þar er enginn gróður
kominn og frost á hverri nóttu.
Bændur eru ekki farnir að láta út
fé og enginn byijaður á vorverkun-
um. Sveinn Guðmundsson bóndi á
Miðhúsum sagði að um það bil eins
metra hár skafl væri yfir garðinum
hjá honum svo líklega setti hann
ekki niður kartöflur fyrr en um
miðjan júní. í vetur var skaflinn
fyrir utan húsið hjá honum íjögurra
metra djúpur. Þótt enn séu skaflar
hér og þar er að mestu orðið snjó-
laust á láglendi. Sums staðar sést
votta fyrir grænum lit þar sem hiti
er í jörð.
Ófært síðan fyrir jól
Erlendur Eysteinsson á Stóru-Giljá
í Torfalækjarhreppi í Húnavatns-
sýslu.
Erlendur sagði að ekki hefði ver-
ið mikill snjór á þessu svæði í vet-
ur, en víða fauk í skafla og allir
skurðir fylltust af snjó. Sauðburður
er að byija víðast hvar og taldi
Erlendur að sumir bændur yrðu
nokkuð knappir með hey ef heldur
fram sem horfir. Ekki telur hann
mjög mikla hættu á kali þótt eitt-
hvað gæti borið á því.
„Ég spáði í haust að þetta yrði
kalt vor. Það var vegna þess að öll
vor hafa verið köld ef ártalið endar
á 9, allt frá 1949. Þá var hríðarveð-
ur fram í miðjan júní og enga kind
hægt að láta út úr húsi fyrr en 17.
júní. Vorið 1979 var afskaplega
slæmt eins og menn muna, svo
þetta virðist standast."
Ekkert vor í lofti
Stefán Skaftason í Straumnesi í
Aðaldal sagði að sauðburður væri
rétt að fara í gang. Lítið væri hægt
að segja um ástand gróðurs því
hann væri að mestu leyti enn undir
snjó. „Hér er ekkert vor í lofti og
það blasir við að þetta verður erfitt
vor hjá bændum ef ekki fer að
breyta til næstu daga. Menn óttast
kal í túnum en það er ekki farið
að koma í ljós. Ákveðið hefur verið
að kanna ástandið eftir helgina."
Hiti hefur verið um og undir
frostmarki á nóttunni og 2-3 stiga
hiti á daginn, en fyrir nokkrum
dögum gerði stórhríð. „Fólk reynir
þó að bera sig vel þrátt fyrir að
ofan á þetta bætist að flensa er að
hrella það svo heilu og hálfu sveit-
irnar liggja í rúminu."
„Hér er ekki komið vor og engin
rolla farin að bera. Sauðburður á
að hefjast í kringum 20. maí, en
hér er ennþá allt á kafi í snjó,“
sagði Jens Guðmundsson á Bæjum
á Snæfjallaströnd.
Á miðvikudaginn var þar norðan
hraglandi og éljagangur. Vegurinn
hefur ekki verið ruddur frá því að
það byijaði að snjóa fyrir jól. Allar
nauðsynjar hafa verið fluttar með
Fagranesinu sem einnig tekur
mjólkina frá bændum.
Heybirgðir eru yfirleitt nokkuð
góðar, en nokkrir bændur hafa
fengið sér nokkur tonn svona til
halds og trausts. Menn gera ekki
ráð fyrir að fé fari af húsi fyrr en
um miðjan júní. Það stafar ekki
eingöngu af gróðurleysinu því niður
við sjó myndast það sem heima-
menn kalla móð. Það eru snjóhengj-
ur, allt upp í 5-8 metra háar. Sjór
fellur undir þessar hengjur og er
hætta á að þær falli á fé sem geng-
ur í fjörunni. Einnig er hætta á að
fé flæði undir þeim. Minnstu mun-
aði að einn bóndinn missti 30 kind-
ur fyrir skömmu af þessum sökum,
en honum tókst að komast fyrir þær
með því að vaða upp undir hendur.
„Veðrátta hefur verið mjög köld
og því hefur snjó lítið leyst. Það
er fyrirsjáanlegt að sauðburður
verður með þeim eindæmum að
útilokað er að sjá hver endirinn á
honum verður. Hér hugsar fólk
bara um að duga eða drepast og
ég held að flestir ætli sér að duga,“
sagði Jens.
Spáði köldu vori
„Við höfum það ágætt hér en
hér er mjög kalt. Hér er enginn
gróður en maður sér að hann er
aðeins að byija að lifna þar sem
best lætur. Á fimmdudag var kaf-
aldsfjúk úr lofti og mjög kalt,“ sagði
Getum ekki kvartað
Mönnum hefur þótt heldur kulda-
legt um að litast á Fljótsdalshéraði
að undanförnu. Fyrir skömmu
komst hiti upp í 10-15 stig en féll
niður undir frostmark aftur að sögn
Guttorms Þormars í Geitagerði á
Fljótsdal.
„Sauðburður er rétt að byija, en
hér hafa bændur getað hleypt fé
út því jörð er nokkuð farin að
grænka.
Við getum ekki kvartað á þessu
svæði, enda held ég að veturinn
hafi verið nokkuð snjóléttur, bæði
á Héraði og eins suður á fjörðum.
Strax og komið er í Vopnafjörðinn
er meiri snjór,“ sagði Guttormur.
Vona að tíð breyt-
ist um helgina
Valdimar Guðjónsson í Gaul-
veijabæ í Gaulveijabæjarhreppi
sagði að þar væri ekki vorlegt um
að litast þegar spjallað var við hann
á fímmtudaginn. Þá var snjókoma
og slydda og jörð orðin hvít. Ann-
ars hafði allan snjót tekið upp og
aðeins farið að koma græn slikja á
jörðina.
„Hiti er í kringum frostmark og
á nóttunni er frost. Þar sem sauð-
burður er hafinn lætur engin fé út
ennþá. Heyskapur gekk ekki vel í
fyrra og eru heygirgðir því í minna
mæli. Flestir telja sig þó sleppa ef
vorið verður ekki alveg með ein-
dæmum.
Ég veit ekki til þess að nokkur
sé farinn að bera á tún. Þau eru
mjög blaut ennþá nema helst niðri
við sjó þar sem jarðvegurinn er
sendinn.
Menn gera sér nú vonir um að
tíð breytist um hvítasunnuna og
segja sumir að það gerist oft.“
ÁH
Lemon-
Mint:
Hressandi
sítrónu- og
piparmyntu-
bragð.
CountryTranquillite:
Kryddjurtir úr friðsælum
sveitum Frakklands gefa
ferskt bragð. Koffínlaust.
| .v y #: m1 f | ■*»
■
Nýtt, Mbrogðið og hressandí
Bouquet de France er franskt jurta- og ávaxtate sem gæðir tedrykkjuna nýju lífí.
Yfír Bouquet de France hvílir alltaf sérstök stemmning
- hvort sem það er borið fram heitt eða kalt með klaka.
Alltaf ferskt. Bouquet de France er ferskur og hressandi drykkur.
Hver tegrisja er geymd í loftþéttum málmþynnupoka
sem tryggir að bragð og gæði verða alltaf eins og best verður á kosið.
Öðruvísi te. Bouquet de France er búið til úr sérvöldum
frönskum jurtum og ávöxtum.
Útkoman er sérstakt bragð og ilmur sem bera þig á fjarlægar slóðir.