Morgunblaðið - 13.05.1989, Síða 48
G. Ingason:
Skráplúra
til Spánar
FYRIRTÆKIÐ G. Ingason hefiir
frá áramótum selt um 500 tonn
af heilfrystri skráplúru til Spán-
ar, en Sskur þessi hefur lítið sem
ekkert verið nýttur til þessa.
Veiðar og vinnsla á ýmis konar
flatfiski aukast nú kjölfar tak-
markana á veiðiheimildum á öðr-
um fisktegTjndurn.
Guðmundur Ingason, fram-
kvæmdastjóri, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að með kvótakerfinu
hefði veiði á vannýttum fiskistofn-
um hafizt með snurvoðarveiðum
báta Glettings í Þorlákshöfn. Hefði
þar einkum verið um langlúru að
ræða og veiðar gengið vel. Nú væru
vfimm bátar frá Glettingi við veiðar
á ýmsum flatfiski og heilfrystu þrír
þeirra aflann um borð. Á síðasta
ári fóru á vegum G. Ingasonar nær
tveir gámar af skráplúru utan auk
töluverðs af öðrum flatfiski. Á
síðasta ári nam útflutningur alls á
heilfrystum flatfiski 5.000 til 6.000
tonnum héðan frá landinu.
Guðmundur sagði að aukningin
á nýtingu skráplúrunnar væri mjög
ánægjuleg, mikið væri af henni
umhverfis landið og ástæðulaust
j.að fleygja henni eins og menn hefði
gert til skamms tíma. Hann gat
þess jafnframt að Japanir hefðu
áhuga á skráplúru með hrognum
og yrði þeim send prufa af hrogna-
fiski á næstunni.
A annað
hundrað
bíða hjarta-
-þræðing’ar
HÁTT á annað hundrað manns
bíða nú hjartajiræðingar á
Landspítalanum. Aætla má að af
þeim flölda þurfi einn af hveijum
þremur að gangast undir aðgerð
í ljósi fyrri reynslu. Auk þeirra
biðu þrjátíu aðrir hjartasjúkling-
ar eftir því að gangast undir
hjartaaðgerðir áður en verkfall
BHMR-félaga hófst, að sögn Árna
Kristinssonar, hjartalæknis.
Ámi sagði að starfsemi lyflækn-
inga- og hjartadeilda Landspítalans
væri því sem næst lömuð. Aðeins
bráðatilvikum væri sinnt. Frá upp-
^hafi verkfalls hefur þurft að gera
þijár hjartaaðgerðir vegna neyðar-
tilvika, en undir venjulegum kring-
umstæðum eru framkvæmdar þijár
slíkar aðgerðir á viku hverri. Árni
sagði að biðlistinn lengdist jafnt og
þétt og gætu sjúklingar ekkert gert
nema bíða eða fara til útlanda í
aðgerðir. Á meðan sætu hjarta-
skurðlæknarnir hér heima á kaupi
og hefðu það rólegt. Hann sagði
að ríkið þyrfti að greiða um það
bil eina milljón með hveijum sjúkl-
ingi, sem færi utan í hjartaaðgerð.
Þá væru með talin ferðalög, uppi-
hald og annað sem fylgdi slfkum
ferðalögum.
Átta hjartasjúklingar hafa farið
utan til hjartaaðgerða síðan verk-
fall BHMR-félaga hófst þann 6.
apríl sl., samkvæmt upplýsingum
Tryggingastofnunar ríkisins. Til
samanburðar má geta þess að á
einum mánuði fyrir verkfallið fóru
fjórir sjúklingar utan til aðgerða.
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
^ Morgunblaðið/RAX
I návist við náttúruöflin
Isaflörður:
Erfiðleikar
með varp
nytjafugla
Isafirði.
ERFIÐLEGA gengur með varp
nytjafugla á Vestflörðum vegna
mikils fannfergis.
Að sögn Sigríðar Salvarsdóttur
í Vigur er varpland æðarfuglsins
að mestu undir snjó. Eitthvað er
um að fuglinn sé farinn að hreiðra
um sig á túninu, en lundinn hefur
enn ekkert nema skaflana til að
grafa holur sínar í.
Sigríður sagði að meir en mann-
hæðar hár snjómóður væri í sjó
fram norðanvert á eyjunni svo að
búast mætti við að langt yrði þar
til náttúran semdi frið við fuglinn.
- Ulfar
Þjóðleik-
húsinu lokað
15. febrúar
Aöalsviðið lokað í
tæpt ár - sýnt
annars staðar
AÐALSVIÐI Þjóðleikhússins
verður lokað 15. febrúar nk. og
verður lokað fram undir áramót
1991, eða í tæpt ár, á meðan
endurreisn verður í þeim hluta
hússins, sem að áhorfendum
snýr, þ.e. í aðalsal, á leiksviði og
göngum.
Byggingarnefnd Þjóðleikhússins
vinnur nú að undirbúningi verksins,
hönnun og fleiru og fram að lokun-
artíma verður sjálf framkvæmdin
undirbúin með margs konar for-
vinnu þannig að endurreisnin taki
styttri tíma.
Starfsemi Þjóðleikhússins verður
í breyttu formi vegna lokunar aðal-
sviðsins, en sýningar verða á vegum
Þjóðleikhússins á öðrum stöðum
bæði í höfuðborginni og úti á lands-
byggðinni. Verið er að skipuleggja
starfsemi Þjóðleikhússins á lokun-
artímanum.
Þórunn Sveinsdóttir VE
fískar eins og ftystitogari
Aðeins Akureyrin og Sjóli gerðu betur í apríl
ÞRJU fiskiskip öfluðu meira en
800 tonna af óslægðum fiski í
síðasta mánuði; Frystitogarinn
Akureyrin var aflahæst með 975
tonn, Sjóli fékk 893 tonn og
netabáturinn Þórunn Sveins-
dóttir aflaði 870 tonna. Siguijón
Óskarsson og áhöfn hans á Þór-
unni tóku netin upp í gær enda
búnir með þorskkvótann. Heild-
arafli þeirra á vertíðinni varð
alls rúm 1.900 tonn, sem er ís-
landsmet. Heildarafli lands-
manna í mánuðinum varð
125.404 tonn sem er tæpum
50.000 tonnum meira en í fyrra.
Munurinn liggur i loðnu, þorski
og grálúðu. Frá áramótum er
aflinn nær sá sami og í fyrra.
Þórunn Sveinsdóttir hætti á net-
um í gær, föstudag, og fékk 1.917
tonn á vertíðinni sem er nýtt ís-
landsmet. Geirfugl GK átti gamla
metið, 1.704 tonn, en það var sett
fýrir 19 árum. Siguijón Oskarsson,
skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hann hefði verið að flýja þorsk-
inn að undanfömu, þar sem hann
hefði verið búinn með þorskkvót-
ann. Fyrir nokkrum dögum hefði
hann til dæmis fengið 15 tonn,
aðallega af þorski, í fjórar litlar
trossur og því orðið að færa netin.
Þorskafli í apríl nú varð 51.522
tonn en 41.982 í fyrra. Bátarnir
juku sinn hlut verulega, en afli
togaranna dróst saman að sama
skapi. Þorskaflinn frá áramótum
er 161.692 tonn, 10.000 tonnum
meiri en í fýrra. Reyknesingar
auka hlut sinn um 11.500 tonn eða
rúman þriðjung, Vesturland eykur
sinn hlut um 6.641 tonn, sömuleið-
is um rúman þriðjung og Sunnlend-
ingar bæta við sig 3.906 tonnum.
Lítils háttar samdráttur er hjá
Vestfirðingum en Norðlendingar
og Austfirðingar fengu 7.000 og
6.000 tonnum minna nú en í fyrra.
Alls öfluðust í apríl 10.088 tonn
af grálúðu, en 5.655 í fyrra og af
loðnu fengust nú 33.174 tonn en
ekkert í apríl í fyrra. Ýsuafli var
nokkru meiri nú en í fyrra, meira
veiddist af ufsa en minna af karfa.
Loðnuafli frá áramótum varð nú
607.323 tonn, en í fyrra 604.765.
Upplýsingar þessar eru fengnar
frá Fiskifélagi íslands og í aflayfir-
liti þess er þess getið að heildarafl-
inn á þessum tíma í ár og í fyrra
sé með því allra bezta sem gerzt
hafi.