Morgunblaðið - 19.05.1989, Page 1

Morgunblaðið - 19.05.1989, Page 1
64 SIÐUR B/C llO.tbl. 77.árg.______________________________________FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Milljónir manna halda áfram mótmælaaðgerðum í Kína: Reuter Lögreglumenn i Peking halda á borða með yfirlýsingum um stuðning við stúdenta. Launþegar úr öllum stéttum hafa flykkst á Torg hins himneska friðar til að taka undir kröfur stúdenta um stjórnmálaumbætur. Skammdrægar kjarnorkueldflaugar; Mitterrand telur við- ræður ótímabærar París. Reutcr. FRAN<JOIS Mitterrand Frakklandsforseti sagði í gær að ótímabært væri að hefla samningaviðræður við Sovétmenn um fækkun eða útrým- ingu skammdrægra kjarnorkuvopna í Evrópu. Hann kvað réttara að bíða og athuga hvort árangur næðist í Vínar-viðræðunum um niður- skurð hefðbundins herafla i álfunni. Frakklandsforseti tekur því af- stöðu með Bandaríkjamönnum og Bretum, sem hafa lagst gegn þeirri skoðun Vestur-Þjóðvetja og fleiri aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) að hefja skuli sem fyrst við- ræður við Sovétmenn um fækkun skammdrægra kjamorkuvopna. „Önnur núll-lausn er ekki tímabær, langt því frá,“ sagði Mitterrand á blaðamannafundi í París. Hann sagði að á leiðtogafundi NATO í lok þessa mánaðar þyrfti fyrst og fremst að ræða hversu viðamikil endumýjun Sovétmanna á skammdrægum kjam- orkuflaugum sínum væri í raun og vem. Mitterrand sagði ennfremur að lýðræðisríkin þyrftu að leggja áherslu á viðræður um hefðbundinn herafla. NATO ætti að gefa Sovét- mönnum ákveðinn frest til þess að fækka verulega hermönnum sínum og hefðbundnum vopnum. Forsetinn gaf einnig til kynna að Frakkar myndu ekki falla frá áform- um sínum um að endumýja skamm- drægar kjamorkueldflaugar sínar af gerðinni Pluton, en fyrirhugað er að flaugar af gerðinni Hades komi í þeirra stað árið 1992. Eþíópía: Uppreisnin í Asmara brot- inábakaftur Li forsætisráðherra hefiir í hótunum við námsmenn Peking. Reuter. Daily Telegraph. MEIRA en milljón manns var aftur á götum úti í Peking í gær, annan daginn í röð, til að krefjast umbóta og lýðræðis. Um 2.000 stúdentar héldu áfram mótmælasvelti á Torgi hins himneska friðar og tilraun fjögurra kínverskra leiðtoga til að lægja öldurnar með því að heimsækja fastandi stúdenta á sjúkrahús virðist hafa verið til einskis. Li Peng forsætisráðherra neitaði á fundi með fulltrúum stúdenta í Alþýðuhöllinni miklu í gær að verða við kröfiim stúd- enta um að sjónvarpað yrði beint frá viðræðum þeirra við æðstu ráðamenn um umbætur í landinu. Hann sakaði stúdentana um að valda glundroða. „Ég lít svo á að stjómleysi hafi ríkt í Peking síðusta dagana,“ sagði Li á fyrsta fundi sínum með stúdentum síðan mótmælin hófust í apríl. „Ég vona að þið gerið ykk- ur grein fyrir afleiðingunum. Ríkis- stjóminni ber að standa þjóðinni reikningsskil gerða sinna og við Bretland: Naut tónlistar meðan á hjartaaðgerðinni stóð Lundúnum. Daily Telegraph. 48 ÁRA gamall Breti fylgdist á miðvikudag með aðgerð, sem fram- kvæmd var á þjarta hans á meðan hann hlustaði á dægurlög. Þetta var önnur þjartaaðgerðin á tveimur dögum á Brook-sjúkrahúsinu í Lundúnum sem framkvæmd var á sjúklingi með fulla meðvitund. Notuðu læknamir sjónvarpsskjá til að fylgjast með og fjarstýra örsmárri slöngu, sem leidd hafði verið í hjartað. Aðgerðin tók aðeins hálftíma, ans. Var hún svo mjó að hún olli en hefði hún ekki verið framkvæmd hefði líklega þurft að grípa til hjartaflutnings. Sjúklingurinn var með fullri meðvitund, aðeins stað- deyfður, og fylgdist með aðgerðinni í tveimur sjónvarpsskjám á skurð- arborðinu. Á meðan hlustaði hann á dægurlög og gerði að gamni sínu við lækna og hjúkrunarkonur. Loka þurfti slagæð og var slanga þrædd eftir æðum frá nára til hjart- ekki neinni ertingu, þannig að sjúklingurinn fann svo að segja ekkert fyrir henni. Örsmáum málmræmum var síðan rennt eftir slöngunni til að loka skemmdu slagæðinni. „Þetta var skrýtin til- fínning, þvi ég gat fylgst með slöngunni inni í mér án þess að fínna nokkuð fyrir henni," sagði sjúklingurinn. getum ekki horft, fram hjá þvi sem er að gerast... Það skiptir mig engu hvort ykkur líkar að heyra þetta en það gleður mig að fá tækifæri til að koma því á fram- færi.“ Enn hefur Deng Xiaoping, valdamesti maður Kína, ekkert lát- ið frá sér fara um umbótakröfur almennings sem nú ógna stöðu hans. Fulltrúar stúdenta hafa margsinnis sagt að þeir dragi ekki forystuhlutverk kommúnista- flokksins í efa; þeir heimti aftur á móti að nokkrir af æðstu leiðtogum landsins, fyrst og fremst Deng og Li, víki fyrir yngri og djarfari mönnum og komið verði á lýðræð- isumbótum, þ.á m. tjáningarfrelsi. Fjöldi embættismanna, einkum á ríkisfjölmiðlunum, hefur tekið und- ir kröfur stúdenta. Orðrómur er á kreiki um valda- baráttu í forystunni; sagt að Deng og Li hafi sameinast gegn Zhao Ziyang flokksleiðtoga, sem talinn er vilja leita friðsamlegra lausna. Sagt er að yfirmaður 10.000 manna setuliðs í nánd við Peking hafi neitað að láta menn sína ráð- ast gegn stúdentum. Erlendir stjómarerindrekar og ónafngreind- ir, kínverskir blaðamenn töldu í gærkvöldi mögulegt að yfirvöld kölluðu herinn á vettvang til að ryðja miðborg Peking og leysa upp fjöldafundi í Shanghai og fleiri borgum. í yfirlýsingu kínverskra og sov- éskra stjómvalda við lok fjögurra daga opinberrar heimsóknar Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleið- toga í gær er sagt að eining sé um að hefja fækkun í herliði á sameiginlegum landamærum ríkjanna. Lögð er áhersla á góða sambúð ríkjanna. 7A5S-fréttastof- an sovéska sagði í gær að yfírvöld í Kína virtust hafa misst alla stjórn á atburðum í landinu en sovéskir fjölmiðlar hafa fram til þessa gert lítið úr mótmælunum. Addis Ababa. Reuter. EÞÍÓPÍSKIR hermenn, sem halda tryggð við Eþíópíustjórn, brutu uppreisnina innan stjórnarhersins í Ásmara, höfuðborg Erítreu, á bak aftur í gær, að sögn útvarps- ins í borginni. Uppreisnarmenn höfðu hertekið útvarpsstöðina í Asmara en stjórnarherinn náði henni á sitt vald í gær. Erítreskir aðskilnaðarsinnar og uppreisnarmenn innan stjórnarhers- ins í Asmara höfðu áður komið sér saman um tveggja vikna vopnahlé í borgarastyijöldinni í landinu, sem staðið hefur hátt í þijá áratugi. Fanta Delai, iðnaðarráðherra Eþíópíu, var í gær handtekinn fyrir aðild að valdaránstilrauninni í Addis Ababa á þriðjudag. Tveir leiðtogar uppreisnarmanna, Merid Negusie herráðsforingi og Ahma Desta, yfír- maður flughersins, féllu í bardögum við stjórnarhermenn í höfuðborginni. Reuter Kosningabarátta íPóllandi Sjálfboðaliði á kosningaskrifstofu Samstöðu, óháðu verkalýðs- félaganna í Póllandi, ræðir við Varsjárbúa um kosningarnar í landinu, sem fram fara í næsta mánuði. Pólskir unglingar efiidu í gær til mótmæla i borginni Kraká í suðurhluta landsins og hrópuðu slagorð gegn Sovétmönnum og stjórn kommúnista í landinu. Lögreglan beitti kylfiim og sprautaði vatni úr háþrýsti- dælum til að dreifa mótmælendunum, sem stefiidu að sovésku ræðismannsskrifstofunni í borginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.