Morgunblaðið - 19.05.1989, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 19.05.1989, Qupperneq 15
MORGUNBLÁÐIÐ FÖSTUDAÓUR 19. MAÍ 1989 þegar Sjálfsbjargarfélögin stofnuðu með sér landssamband var hann kjörinn varaformaður þess. Árið eftir varð hann formaður Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra. Þegar Theodór tók við formennsku hjá landssambandinu voru Sjálfs- bjargarfélögin sem mynduðu það átta að tölu, 28 árum síðar árið 1988 þegar að hann lét af for- mennsku voru Sjálfsbjargarfélögin orðin fimmtán. Undir forystu hans hefur Sjálfsbjargarhreyfíngin stöð- ugt sótt fram og hvergi hvikað í baráttunni fyrir samfélagi öllum til handa. Bandalag fatlaðra á Norðurlönd- um var stofnað 1961 og var Theo- dór frá upphafí í stjóm þess fyrir íslands hönd. Árin 1968 til 1972 var hann formaður Bandalags fatl- aðra á Norðurlöndum. Theodór var í stjóm Hjálpartækjabanka Sjálfs- bjargar og Rauða kross íslands frá stofnun hans til 1980 og varamaður í stjóm Öryrkjabandalags fslands frá 1988. Hann var í framkvæmda- nefnd Alþjóðaárs fatlaðra, vara- maður í tryggingaráði Trygginga- stofnunar ríkisins fyrir Framsókn- arflokkinn frá 1974 til dánardags og sinnti ýmsum félagsmálastörfum fyrir Framsóknarflokkinn í sínu sveitarfélagi á Seltjamamesi þegar hann bjó þar. Á sínum yngri árum var Theodór virkur í starfí Félags ungra framsóknarmanna. Auk þess að vera mikilsvirkur félagsmálamaður var Theodór stór- brotinn persónuleiki. Hann var sannur vinur vina sinna og það var hans líf og yndi að vera í góðra vina hópi. Theodór hafði unun af ferðalögum og hafði komið víða. Þótt hann þyrfti mikla aðstoð á þeim lét hann það ekkert á sig fá og vinir hans, einkum og sér í lagi Tómas Sigurðsson, voru óþreytandi við að aðstoða hann á ferðalögum hans. Það var oft glatt á hjalla í þessum ferðum og margar góðar minningar streyma fram í hugann þegar mér verður hugsað til þeirra. Theodór var ræðumaður góður og á viðeigandi stundum hélt hann stórskemmtilegar tækifærisræður auk þess sem hann gjaman hélt fjörinu gangandi þegar Sjálfsbjarg- arfélagar hittust. Þegar Theodór lét af formennsku hjá Sjálfsbjörg, landssambandi fatl- aðra, á síðastliðnu ári varð hann auk annarra starfa sinna fram- kvæmdastjóri Sjálfsbjargar. Theo- dór var kjölfestan í starfí Sjálfs- bjargar og honum verður best lýst með því að segja að hann hafi ver- ið talandi tölvubanki um málefni fatlaðra og Sjálfsbjargar. Missir okkar Sjálfsbjargarfélaga er því mikill og skarð Theodórs verður vandfyllt. Með samstilltum frum- heijum Sjálfsbjargar vann Theodór stórvirki í því að breyta viðhorfum og aðstæðum í íslensku þjóðfélagi til hagsbóta fyrir fatlaða. Það væri ekki í Theodórs anda að leggja árar í bát þó móti blási, hann á það inni hjá okkur öllum að blásið sé í her- lúðrana og ný sókn verði hafín fyr- ir betri framtfð, fyrir samfélagi fyr- ir alla. Ég votta Ragnari bróður Theo- dórs, aðstandendum, ættingjum, vinum og Sjálfsbjargarfélögum öll- um dýpstu samúð vegna fráfalls hans. Jóhann Pétur Sveinsson, formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra. í dag verður gerð útför Theodórs A. Jónssonar, forstöðumanns Sjálfsbjargarhússins Hátúni 12 Reykjavík og fyrrverandi formanns Sjálfsbjargar Landssambands fatl- aðra. Hann lést langt um aldur fram tæplega fimmtugur að aldri. Theodór helgaði krafta sfna mál- efnum fatlaðra um áratuga skeið og var einn ötulasti baráttumaður á þeim vettvangi. Hann var löngu landskunnur fyrir farsæla forystu og framúrskarandi störf í þágu Sjálfsbjargar. Við fráfall hans hefur stórt skarð verið höggvið í þann hóp sem hvað mesta yfirsýn hefur á málefnum fatlaðra. Þekking hans, reynsla og samstarfshæfileikar, ásamt festu og velvilja voru eigin- leikar sem aðrir nutu góðs af í ríkum mæli sem störfuðu með hon- um. Ég hef átt þess kost að eiga samstarf við Theodór varðandi málefni fatlaðra frá árinu 1980, þegar við störfuðum saman í fram- kvæmdanefnd í tilefni af alþjóðaári fatlaðra. Síðan áttum við samleið í samráðsnefnd um málefni fatlaðra, sem Theodór átti sæti í frá upphafi 1982 og til dauðadags. Og nú þeg- ar kallið kom svo skyndilega og óvænt og leiðarlokin verða ekki umflúin viljum við samverkamenn hans flytja honum okkar dýpstu þakkir fyrir ánægjulega og árang- ursríka samvinnu liðinna ára. Við söknum okkar mæta félaga og blessum minningu hans. Aðstandendum er vottuð innileg samúð. Margrét Margeirsdóttir Hann andaðist á heimili sínu í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, Reykjavík, 7. maí sl. Theodór var fæddur á Stað í Steingrímsfirði og sleit bamsskón- um þar og á Hólmavík, en fluttist til Reykjavíkur 1953. Þá voru kom- in í ljós einkenni þess sjúkdóms sem batt hann við hjólastól til æviloka. Foreldrar Theodórs voru hjónin Helga Tómasdóttir og Jón Sæ- mundsson. Jón vann á prestsetrinu Stað í Steingrímsfírði, síðar við Kaupfélagið á Hólmavík, en gerðist starfsmaður Ofnasmiðjunnar eftir að fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. Theodór stundaði nám við Sam- vinnuskólan að Bifröst 1959—1961 og lauk þaðan prófí. Hann var einn af stofnendum Sjálfsbjargar, félags fatlaðra í Reykjavík, sem stofnað var 27. júní 1958 og einn af stofnendum Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra, sem stofnað var í Reykjavik 4. júní 1959. Hann var kosinn varaformað- ur fyrstu stjómar landssambandsr ins. Einu ári síðar á þingi á Akur- eyri er hann kosinn formaður stjómar landssambandsins og gegnir formannstarfínu í 28 ár eða til ársins 1988. Þegar Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar tók til starfa í júlí 1973 var hann ráðinn forstöðumað- ur dvalarheimilisins og gegndi því starfí til dauðadags. Eftir að hann lét af störfum formanns landssam- bandsins gegndi hann störfum framkvæmdastjóra þess. Áður en Theodór hóf störf á vegum Sjálfs- bjargar starfaði hann hjá Trygg- ingastofnuri ríkisins. Leiðir okkar Theodórs lágu fyrst saman á stofnþingi Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra 4. júní 1959, hann sem fulltrúi félagsins í Reykjavík, undirritaður sem fulltrúi félagsins á ísafirði. Að ári, 1960, hittumst við aftur á þingi Sjálfs- bjargar á Akureyri, en þá var hann kosinn formaður landssambandsins, eins og áður segir. Það var svo um haustið 1960 að Theodór hringir til mín vestur á ísafjörð og segir mér að landssambandinu standi til boða skrifstofuherbergi i húsi SÍBS við Bræðraborgarstíg 9 í Reykjavík og spyr hvort ég sé til í að koma suð- ur og vinna á skrifstofu landssam- bandsins. Það varð úr og skrifstofan var opnuð 1. október 1960 og hófst þar samstarf sem átti eftir að vara í tæp 29 ár. Eitt fyrsta verkefnið sem sam- tökin ákváðu að vinna að var bygg- ing dvalarheimilis í Reykjavík fyrir mikið fatlað fólk, en þá _var slíkt heimili ekki til í landinu. Á þessum tíma hafði Theodór upplifað það að dvelja á Elliheimili og þekkti því af eigin reynslu þörfina fyrir slíkt heimili. Má segja að undirbúningur og bygging hússins hafí verið eitt af aðalverkefnum samtakanna, en jafnframt var unnið að ýmsum hagsmunamálum fatlaðra. T.d. voru þing haldin árlega með þátt- töku allra félagsdeildanna, þar sem gerðar voru samþykktir f hinum ýmsu málaflokkum sem tengjast hagsmunabaráttu fatlaðra. Fyrsta skóflustungan að bygg- ingunni var tekin 28. október 1966, af þáverandi félagsmálaráðherra, að viðstöddum fjölda gesta, emb- ættismönnum ríkis og Reykjavíkur- borgar, Sjálfsbjargarfélögum o.fl. Fyrstu íbúar dvalarheimilisins fluttu inn í húsið 7. júlí 1973. Með þessum áfanga í starfí Sjálfsbjargar var eitt af markmiðum samtakanna í höfn. Meðan á byggingu hússins stóð voru oft mikil átök í fjármálum og fjármögnun framkvæmdanna og gengu menn þá í persónulega ábyrgð fyrir Sjálfsbjörg, en það endaði nú allt vel. í formannstíð Theodórs tóku samtökin þátt í margvíslegu sam- starfí við önnur félagasamtök um málefni fatlaðra. Má í þessu sam- bandi nefna stofnun Öiyrkjabanda- lags íslands, þar sem samtök ör- yrkja og styrktarfélög öryrkja stofnuðu með sér hagsmunasamtök til að vinna að sameiginlegum hags- munamálum og einnig má nefna að Sjálfsbjöig átti fulltrúa í nefnd sem undirbjó og kom á fót íþróttum fyrir fatlaða, auk fjölda annarra nefnda, sem vann að hagsmunamál- um fatlaðra. Sjálfsbjörg tók fljót- lega þátt í norrænu samstarfi og varð aðili að Bandalagi fatlaðra á Norðurlöndum og var Theodór til- nefndur í stjóm þess, annar af tveimur fulltrúum, og formaður Bandalagsins 1968—1972. Hann átti sæti í nefnd, sem sá um fram- kvæmdir í tilefni Alþjóðaárs fatl- aðra 1981 — ALFA nefndin. En á þessu ári, Alþjóðaári fatlaðra 1981 var Theodór sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, fyrir störf sín að málefnum fatlaðra. Áður var hann sæmdur Heiðurs- merki Rauða kross íslands fyrir störf sín. Á fyrstu árum Sjálfsbjargar kom mjög vel í ljós hversu erfitt það reyndist mikið fötluðu fólki að fá ýmis hjálpartæki til eigin nota s.s. hjólastóla. Sjálfsbjörg aflaði sér sambanda og fór að flytja inn hjóla- stólá, armstafí og fleiri hjálpartæki og varð þessi þáttur starfseminnar allviðamikill og nutu samtökin reynslu Theodórs ( þessum efnum. Þegar Sjálfsbjörg Rauða kross ís- lands stofnuðu Hjálpartækjabank- ann fluttist þessi þáttur starfsem- innar til bankans. Þegar lögin um málefni fatlaðra tóku gildi átti hann sæti sem varaformaður, í fyrstu stjómamefndinni, sem sá um fram- kvæmd laganna. Theodór var mjög vel að sér í lögum og reglugerðum sem snerta málefni fatlaðra og var sú þekking hans óspart notuð og þótti okkur félögum hans ólíkt þægilegra „að fletta upp í Theodór" en fletta upp í hinum ýmsu lögum og reglugerð- um. Theodór var ákaflega félagslynd- ur maður og hafði öðlast mikinn félagslegan þroska. Hann var mik- ill fundarmaður og fljótur að fínna kjarna málsins. Hann var góður fundarstjóri, því kynntumst við vel, sem sátum með honum fundi mörg- um sinnum á ári í 28 ár. Árið 1973 giftist Theodór eftirlif- andi eiginkonu, Elísabetu Jónsdótt- ur og stofnuðu þau heimili og bjuggu á Seltjamamesi. Síðan snemma á árinu 1986 hefur Theo- dór búið í Sjálfsbjargarhúsinu og þar átti hann sitt heimili þegar hann andaðist. Þessum minningarbrotum um góðan vin og félaga, fylgja inni- legustu saknaðarkveðjur og þakkir frá öllu samstarfsfólkinu á skrif- Stofum samtakanna með kærri þökk fyrir samstarf og samvem. Og vinir Theodórs hjá Ferðaþjón- ustu fatlaðra og einnig þeir sem aka eigin bifreiðum kveðja hann með söknuði og þakka kynnin og samstarfið. Við Sjálfsbjargarfélagar, vinir þínir og félagar, þökkum samver- una og samstarf. Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöngu. Gleymist þó aldrei eilífa lagið við pílagrímsins gleðistund. Kynslóðir koma, kynslóðir fara. Tíminn liður og líður. Örlög ein- stakiinga og lífsferill þeirra mótast og þroskast í því umhverfi, sem þeir lifa í, ogtengist nánustu ástvin- um þeirra, foreldrum og systkinum í æsku, vinum og félögum á ungl- ingsárunum, og á fullorðinsárunum samferðarfólkinu öllu. Tíminn líður og líður. Tímaglasið rennur út, kallið kemur, og því ræður sá er öllu ræður. Á slíkum stundum fínnum við fyrir smæð okkar, fínnum hversu vanmáttug við erum. Flýt þér, vinur, i fegri heim. Kijúptu að fótum friðarboðans, og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. Ég votta nánustu ættingjum Theodórs innilegustu samúð. Minn- ing um mikilhæfan forystumann mun geymast í störfum hans, fyrir bættum kjörum fatlaðra á íslandi. Trausti Sigurlaugsson Kveðja fí*á beklgarfélögum í Samvinnuskólanum. í dag er okkur harmur í huga. Nú kveðjum við þann fyrsta úr hópnum sem hóf nám í Samvinnu- skólanum að Bifröst haustið 1959. Teddi er dáinn. Hann varð okkur öllum fyrir- mynd. Við sem njótum þeirra for- réttinda að vera alheil, getum ekki ímyndað okkur hvemig það er að missa fótanna, í bókstaflegri merk- ingu, á unglingsámm. Það mátti Teddi okkar reyna og þó var aldrei vol né víl að heyra frá hans munni. Hversdagsleg vandamál urðu lítil þegar við litum til fatlaðs vinar okkar. Teddi var vinur og félagi okkar allra og við sóttumst eftir að vera í návist hans. Og þótt hópurinn dreifðist um landið og samfundum fækkaði þá var alltaf Teddi okkar. Af mikilli ánægju fylgdumst við með verkum hans og baráttu fyrir Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, og við reyndum að leggja okkar litla lóð á þá vogarskál þegar við höfðum tækifæri til. Við vottum aðstandendum Tedda innilega samúð en vitum af eigin raun að minningin um góðan dreng yljar. Hvíli góður vinur í friði. Bekkjarsystkini úr Samvinnu- skólanum að Bifröst 1959—61 Kveðja frá SÍBS Á löngum starfsferli Theodórs A. Jónssonar sem formanns Sjálfs- bjargar þróaðist allnáið samstarf milli hinna fjölmennu félageisam- taka, Sjálfsbjargar og SÍBS. Hags- munir voru oft svipaðir og þetta var tímabil stórtækra framfara í málefnum fatlaðra. Oft var unnið sameiginlega að undirbúningi laga, er snertu málefni fatlaðra. Á þess- um árum urðu til lög um endur- hæfíngu, lög og reglugerðir um ferlimál og húsnæðislöggjöf var breytt fötluðum til mikils ávinnings. Auk þess ollu tækniframfarir þessa tímaskeiðs stórfelldum hags- bótum fyrir fatlaða. Verulegur fyöldi Sjálfsbjargarfé- laga hefur jafnan verið í endur- hæfíngu eða vemdaðri vinnu í stofnunum SÍBS og hefur það sett sinn svip á samskiptin. Við í SÍBS metum mikils framlag Theodórs til málefna fatlaðra. Við samhryggj- umst ættingjum og félagasamtök- unum vegna þessa mikla missis. F.h. SffiS, Oddur Ólafsson, formaður. Einn mikilhæfasti leiðtogi fatl- aðra á íslandi er fallinn frá og er af mikill sjónarsviptir. Theodór A. Jónsson, forstöðumaður og fyrrv. formaður Sjálfsbjargar, landssam- bands fatlaðra, var félagsbundinn ( íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík frá öndverðu. Theodór var í þeirri forystusveit manna er ruddi braut fyrir (þróttir fatlaðra hér á landi með brautryðj- endastarfí sínu að málefnum fatl- aðra almennt. Theódór fylgdist með íþróttum og hafði af þeim gaman og sjálfur greip hann stöku sinnum ( boccia-bolta ef aðstæður og tími leyfðu. Ekki æfði Theódór með ÍFR en sýndi áhuga sinn á starfi félags- ins á annan hátt. Hann var félags- kjörinn endurskoðandi þess árum saman og það voru ófá skiptin er hann stjórnaði félags og stjómar- fundum. Fáum ef nokkmm var bet- ur treyst til þess. Einnig naut ÍFR ýmiskonar fyrirgreiðslu hjá Vinnu- 15 og dvalarheimili Sjálfsbjargar sem hann veitti forystu alla tíð. Stórt skarð er höggvið í forystusveit fatl- aðra og ÍFR mun best minnast Theodórs A. Jónssonar með efldu starfí og bættum aðbúnaði fatlaðra svo ogjafnrétti í íþróttum sem öðm. Aðstandendum vottum við sam- úð. Blessuð sé minning hans. íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfír storð. Þeirra máli talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólðf frá Hlöðum.) Á þeirri stundu sem andlátsfregn góðs vinar berst, gleymist oft líkn dauðans. Sársaukinn sem kreppist um vitund þeirra sem eftir lifa, er því oft tilfinning, sem á ekkert skylt við rökrétta hugsun. Þessi tilfínning er sennilega sjaldnast sprottin af ósætti við, að dauðinn hafí lagt líkn með þraut, heldur vegna hins al- gjöra vanmáttar, sem við fínnum til frammi fyrir gátunni miklu. Frammi fyrir þessari óræðu gátu stöndum við öll jöfn í nakinni ein- semd. Og hversu velkominn sem dauðinn kann að vera þeim sem þjáist kallar hann alltaf fram jafn fnimstæðar og eigingjamar tilfínn- ingar hjá okkur sem eftir stöndum. Andlát öðlingsins og mannvinar- ins Theodórs A. Jónsonar forstöðu- manns Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfsbjargar, bar skjótt að. Dauða- þögn sló á alla og var sem þoku- slæða hefði lagst yfír heimilið. Því akkeri sem heimilisfólk og starfs- fólk hafði haldið svo fast í í 16 ár var svipt í burtu. Vissulega hefði okkur sem búin vorum að vinna lengi með THeod- óri, átt að vera ljóst að heilsu hans hafði hrakað, en hann talaði aldrei um sín veikindi og þess vegna vor- um við kannski ekki eins viðbúin svo snöggum umskiptum. Þó sáum við sem þekktum hann vel, að hon- um leið ekki alltaf vel. Hann var svo andlega hress að við gleymdum því oftast, að hann var bundinn hjólastól. Theodór sá alltaf það spaugilega við hlutina og átti mjög auðvelt með að flytja skemmtilegar tæki- færisræður og talaði þá alltaf blaða- Iaust. Þessi hæfíleiki hans var starfsfólki og vistfólki í Sjálfsbjörg oft til ánægju, einkum á árshátíðum hússins. Við sem höfum unnið með Theo- dóri hér á Sjáifsbjörg, sum í þau 16 ár sem heimilið hefur starfað, höfum fundið það betur og betur hve traustur bakhjarl hann hefur verið öllum hér. Það sem Theodór lofaði, það stóðst. Hann vildi hafa sitt starfsfólk ánægt og það brást ekki að launaútborgun væri sein- asta virkan dag hvers mánaðar og það leika ekki margar heilbrigðis-, stofnanir eftir. Þá sjaldan sem ein- hver ágreiningur kom upp var leitað til hans og leystust þá málin fjót- lega. Það tók svolítinn tíma að kynnast Theodór, en þegar komið var inn fyrir skelina var hann góður vinur og félagi, sem allir gátu leitað til, með hvað sem var. Það stóra skarð sem höggvið hefur verið í Sjálfsbjargarheimilið verður vandfyllt og sá tómleiki sem lagst hefur yfir verður lengi að hverfa. En við vitum að nú þegar Theo- dór er farinn frá okkur, gefur Guð honum betra líf og hamingju á ókomnum brautum. Guð blessi minningu hans.' Ragnari bróður Theodórs og öðr- um ástvinum færum við dýpstu samúð. Á síðasta andartakinu hættir sólin að hníga og flýtur í lausu lofti eins og brennandi skip í fjarlægum skýjum. Gullin rák brúar öldumar og ég geng inní endalaust sólarlagið og kem aldrei til baka... (Sigvaldi Hjálmarsson.) Starfsfólk Dvalarheimilis Sjálfsbjargar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.