Morgunblaðið - 17.06.1989, Page 18
18...
MÓRGUNBLAÖÍÐ I.AUGAHDAGUR 17. JÚXÍ :iOS9
Öðruvísi sumarfrí
Námskeið undir Jökli 3.-8. og 24.-28. júlí. Alhliða
sálar- og líkamsafslöppun. Jurtafæði. Hugleiðingar
o.s.frv. Með ástarkveðju,
Leifur Leopoldsson - Lone Svargo.
sunnudagskvöld í sumar.
Komið og njótið góðrar kvöldstundar í nýju
oghuggulegu umhverfiáHótelLoftleiðum,
Módelsamtökin sýna nýjustu
tískuna í íslenskum ullarfatnaði.
Kynning fer fram á íslensku og ensku.
Boðið er upp á sérstakan íslenskan
matseðilí tilefni kvöldsins.
íslensk tónlist í fyrirrúmi alltkvöldið.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA jSSW HÓTEL
Bordapantanirí síma 22321
Salat
Blóm vikunnar
Umsjón
Ágústa Björnsdóttir
no. 127
Salat (Lactuca sativa) er æva-
forn garðplanta sem hefur náð
geysilegri útbreiðslu í ræktun vítt
og breitt um heiminn. Eftir vaxt-
arlagi og gerð er því skipt niður
í nokkra aðalflokka svo sem blað-
salat og höfuðsalat og alltaf eru
einhveijar nýjungar að koma á
markaðinn. I þessum þætti segir
Kristín Gestsdóttir frá blaðsalati
sem vinsælt er um þessar mundir:
Grænt salat er það grænmeti
sem ég get helst ekki verið án,
enda ólst ég upp við mikið salat-
át, en móðir mín ræktaði salat
austur á Seyðisfirði. Oft hef ég
heyrt á fólki að því finnst þetta
skrýtið því hvítkál sé miklu betra.
Hvað íslenska hvítkálið áhrærir,
finnst mér það ágætt í hrásalat,
en hið innflutta er alltof gróft.
En misjafn er smekkur manna.
Nú er mikið til af alls konar
„grænu salati“ allan ársins hring
og er það innflutt meiri hluta árs-
ins. Ég hef oft undrast það hversu
vel þetta innflutta salat geymist
því mér finnst þegar ég hef tekið
upp salatið úr garðinum mínum
að það þoli mjög litla geymslu.
Að sjálfsögðu vitum við flest, að
sitthvað er gert við innflutta
grænmetið til að auka geymsluþol
Salat-bowl
þess og áreiðanlega er það á
kostnað hollustunnar. Nú er svo
komið, að ég get alls ekki borðað
innflutta salatið en hakka aftur á
móti í mig það heimaræktaða með
bestu lyst. Grun hef ég um að
líkaminn hafni bara ósjálfrátt
hinu meðhöndlaða. Nú í þessu
kalda vori hafði ég miklar áhyggj-
ur af því að ég fengi ekki salatið
fyrr en seint og um síðir. Ég ætl-
aði að reyna að sjá við því og
keypti stóra plastpotta og sáði í
þá inni. Setti út á svalir þegar
vel viðraði og loks út í garð þegar
hlýnaði, sjaldan fór þó hitinn yfir
6° um hádaginn og var við frost-
mark á nóttunni. En salatið dafn-
aði vel og nú er ég farin að borða
það með mikilli ánægju. Sú salat-
tegund sem ég rækta núna heitir
salat bowl sem lauslega mætti
þýða salat-skál, ræktaði ég fyrst
í fyrrasumar með góðum árangri,
það er líka fljótsprottnara en ann-
að salat sem ég hef ræktað. Ég
er alltaf forvitin um nýjar tegund-
ir grænmetis og þykir því mikill
fengur að þessu salati. Blöðin eru
löng og greinótt og mjúk undir
tönn. Það er gott með öðru græn-
meti eða eitt sér, bæði með kjöti
og fiski og einnig undir álegg á
brauð. Salatinu er gott að sá tvisv-
ar eða þrisvar yfir sumarið og
þegar líður að hausti hef ég hugs-
að mér að sá því aftur í stóru
plastpottana og kippa inn þegar
næturfrostin byija.
Kristín Gestsdóttir
Andaðu djúpt!
Njóttu hreina loftsins — jafnt úti í náttúrunni sem
inni í tjaldinu þínu. Láttu okkur þvo og hreinsa
viðleguútbúnaðinn — tjaldið þitt og svefnpokann
svo að hann verði hreinn og ilmandi í útilegum
sumarsins. Eitt enn: Smáleki má ekki verða að
stórmáli. Þess vegna er heillaráð að láta okkur
vatnsverja tjaldið. Þú tekur aðeins stögin úr
og kemur með tjaldið til okkar. Vatnsvarið
tjald ver þig gegn vætu.
Skeifunni 11
Simi: 82220
— fyrir ferðaianga