Morgunblaðið - 17.06.1989, Síða 26

Morgunblaðið - 17.06.1989, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAu'gÁRDAGUR 17. — Ijóðeiga erindi til aDra ISLENSK KVÆÐI Vigdís Finnbogadóttir valdi „Ég hef lengi litið svo á að Ijóðalestur og Ijóða- söngur sé hin ágætasta leið til að efla málvitund manna, auka orðaforða og treysta samhengið í sögu okkar, auk þess sem skemmtileg og falleg Ijóð veita huganum gleði sem enginn getur frá honumtekið.“ Úr fonnálsoröum Vigdísar Finnbogadóttur. Wqáts rimBoaadót-úr valdi Tilvalin stúdentsgjöf Mál ii¥ii og menmng Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240. Helmut Kohl: Eignmáfram samleið með Vesturlöndum Bonn, Genf. Reuter. SOVÉTSTJÓRNIN álítur mögu- legt að tímaáætlun George Bush Bandaríkjaforseta varðandi fækk- un hefðbundinna vopna verði hald- in ef samningsaðilar leggi sig fram, að sögn Helmuts Kohls, kanslara Vestur-Þýskalands. Kohl skýrði þinginu í gær frá við- ræðum sínum við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta. Kohl sagði vangaveltur um brotthvarf frá samstöðu Vestur- Þjóðveija með vestrænum þjóðum vera úr lausu lofti gripnar. Hann hafði eftir Gorbatsjov að mögulegt ætti að vera að ná samn- ingi um fækkun hefðbundinna vopna á árinu 1990 og hrinda honum í framkvæmd 1992 eða 1993 en Bush forseti nefndi þessar tímasetningar er afvopnunartiilögumar voru kynnt- ar í Brassel á leiðtogafundi Atlants- hafsbandalagsins fyrir skömmu. Reuter Margaret Thatcher, forsætisráðherra og maður hennar, Dennis, létt á brún eftir að hafa greitt atkvæði í kosningum til Evrópuþingsins. Kannanir benda til þess að Thatcher hafi ekki ástæðu til að gleðj- ast yfir úrslitunum. Kosningar til þings Evrópubandalagsins: Vinstrimenn virðast vinna á London. Reuter. VINSTRIMENN og umhverfissinnar virðast hafa unnið á í kosningum til þings Evrópubandalagsins (EB) í fimm löndum bandalagsins í fyrradag. í Bretlandi, Spáni og Danmörku bendir allt til þess að stjórnarflokkarnir hafi goldið afhroð í kosningunum. Úrslit kosninganna í Bretlandi,. 32%, Græningjar 14% og Jafnaðar- Danmörku, Spáni, Irlandi og Hoi- landi verða ekki birt fyrr en eftir helgi, eða um leið og niðurstöður liggja fyrir í kosningum til EB- þingsins í Vestur-Þýskalandi, Frakklandi, Grikklandi, Italíu, Port- úgal, Belgíu og Lúxemborg en í þessum löndum verður kosið á morgun, sunnudag. Miðað við könnun, sem gerð var er kjósendur komu út af kjörstað, bendir allt til þess að vinstrimenn og flokkar umhverfisvemdunar- manna hafi unnið stórlega á. í Bret- landi sýndi könnun af því tagi að Verkamannaflokkurinn hefði hlotið 44% atkvæða en íhaldsflokkurinn mannaflokkurinn 6%. Miðað við þetta ynni Verkamannaflokkurinn 19 sæti af íhaldsflokknum á Evr- ópuþinginu, fengi 51 en átti 32 áður. Ihaldsflokkurinn hafði 45 sæti en fengi nú 26. Vegna kosn- ingafyrirkomulagsins í Bretlandi fá aðrir flokkar engan fulltrúa á þing- inu. í Danmörku var kjörsóknin að- eins 46,1% og hefur ekki verið minni í neinum kosningum þar í landi á þessari öld. Bendir allt til þess að fylgi íhaldsflokks Pouls Schliiters, forsætisráðherra, hafi minnkað úr 20,8% í 14% og að Evrópuþing- mönnum flokksins fækki úr fjórum í tvo. Jafnaðarmannaflokkurinn virðist hafa fengið um 28% atkvæða og bætt við sig tveimur þingsætum en hann hafði þijú áður. Á Spáni benda kannanir til að stjómarflokkamir hafi tapað fylgi en í Hollandi virðast Kristilegir demókratar, flokkur Ruuds Lub- bers, forsætisráðherra, hins vegar hafa styrkt stöðu sína. Aukakosnignar í Bretlandi Verkamannaflokkurinn vann tvennar aukakosningar, sem fram fóm í kjördæmum í miðborg Glas- gow í Vauxhall-hverfínu í London í fyrradag. Breyttu úrslitin engu um hlutfall flokka á breska þinginu þar sem Verkamannaflokkurinn vann bæði kjördæmin í síðustu þingkosningum. Efiiahagsvandinn í Færeyjum: Dönsk yfirvöld vísa frek- ari fyrirgreiðslu á bug Jogvan Sundstein segir væntanlega stjórn munu skera harkalega niður útgjöld o g fækka fískiskipum Kaupmannahöfh. Frá Nils Jorgen Bruun, POUL Schliiter, forsætisráð- herra Danmerkur, hefur hafiiað ósk Færeyinga um aukna ríkis- ábyrgð vegna frekari lántöku færeyskra sveitarfélaga. Jogvan Sundstein, lögmaður Færeyja, hefur lýst óánægju sinni með afstöðu dönsku stjórnarinnar og segist munu taka málið upp á ný. Danir hafa ábyrgst allt að 300 milljón d.kr. (2.200 milljón ísl.kr.) lán sem Færeyingar hafe tekið hjá dönskum lánastofnun- um og sjóðum. Færeysk sveitarfélög hafa nær fyllt áðurnefndan ábyrgðakvóta, skulda þegar um 247 milljónir d.kr. hjá sameiginlegum lánasjóði sveit- arfélaga ríkisins einum, og þess vegna fór Sundstein nýlega til Kaupmannahafnar til að reyna að fá kvótann hækkaðan. Sjóðurinn vill gjama lána Færeyingum 200 milljónir d.kr. í viðbót en skilyrðið er að ríkið gangi í ábyrgð. Schliiter segir að færeysk sveit- arfélög hafi á síðasta ári notað mun meira fé en þau hafi haft ráð á. Fjárfestingar og neysla Færey- fréttaritara Morgunbladsins. Jogvan Sundstein, lögmaður Færeyja. inga séu komin langt yfir það sem landið hafi bolmagn til. I símaviðtali við Morgunblaðið í gær sagði Sundstein að dönsk stjórnvöld hefðu tekið þessa ákvörðun án nokkurs fyrirvara. Hann sagðist hafa bent á að lána- sjóðurinn hefði aldrei tapað eyri á því að ábyrgjast ián færeysku sveitarfélaganna. Lögmaðurinn var spurður um stjómarmyndunartilraunir Fólka- flokksins, Sambandsflokksins og Þjóðveldisflokksins: „Við erum nú að leggja síðustu hönd á stjórnar- sáttmálann og ég er vongóður um að við ljúkum þessu í kvöld eða í síðasta lagi á morgun [laugardag]. Samkomulag er um að lausnir á efnahagsvandanum skuli hafa for- gang og önnur ágreiningsmál hafa nánast verið lögð til hliðar. Við hyggjumst skera opinberar ljár- festingar niður í um 550 milljónir d.kr. á næsta ári; 1988 vora þær um 1.000 milljónir. I sjávarútvegn- um verður gerð róttæk uppstokkun og skipastóllinn minnkaður um 10 - 20% á næstu tveim árum; útgerð- armenn fá bætur fyrir skipin sem verða úrelt eða seld. Markmið nýju stjórnarinnar verður einfaldlega að reisa efnahag landsins við á næstu áram með öllum tiltækum ráðum,“ sagði Sundstein. Aðspurður sagði hann allt benda til að hann myndi áfram gegna stöðu lögmanns í nýju stjóminni en ekki væri búið að ganga frá skiptingu ráðuneyta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.