Morgunblaðið - 17.06.1989, Side 43
MOR(pUNBLAÐjÐ,. LAUGARDAGUR 1,7., J.ýNÍ, 19§p
Samgöngur um
Greinargerð frá Sementsverksmiðju ríkisins og íslenska járnblendifélaginu hf.
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi greinargerð frá Se-
mentsverksmiðju ríkisins og Is-
lenska járnblendifélaginu hf.
í fjölmiðlum hefur lítillega komið
fram, að Sementsverksmiðja ríksins
og íslenska járnblendsfélagið hafi
hug á að fá gerð jarðgöng undir
Hvalfjörð og haft nokkurt frum-
kvæði að því, að þetta geti gerst.
Forráðamönnum þessara fyrirtækja
þykir tímabært að gera opinberlega
grein fyrir, hvað fyrirtækjunum
gengur til og í hveiju frumkvæði
þeirra er fólgið.
Sementsverksmiðja ríkisins
framleiðir mikið magn af sementi
og flytur ár hvert um landið. Megin-
hluti þessa sements er fluttur til
viðskiptavina á höfuðborgarsvæð-
inu. Göng undir Hvalíjörð mundu
gerbreyta aðstæðum til þessara
flutninga og geta Iækkað kostnað
við þá talsvert. Beinn rekstrarlegur
ávinningur Sementsverksmiðjunnar
af tilkomu jarðgangna væri því
verulegur ár hvert. Þar á ofan
væri sjálf jarðgangnagerðin mikil-
vægur markaður fyrir sement.
Ætla má, að jarðgöngin tækju til
sín sement sem svarar tíunda hluta
af því, sem árssala Sementsverk-
smiðjunnar hefur verið undangeng-
in ár.
Beinn fjárhagslegur ávinningur
íslenska járnblendisfélagsins af til-
komu jarðgangna væri minni en
Sementsverksmiðjunnar. Kostnað-
ur við flutning aðfanga, sem verk-
smiðjunni berast frá Reykjavík
mundi þó að sjálfsögðu lækka og
útflutningur kísiljárns og kísilryks
í smásendingum með skipum í
reglubundnum ferðum, beint til
notenda gæti orðið álitlegur kostur
í stað þess að dreifa allri vörunni
frá miðstöðvum í Evrópulöndum.
Sömuleiðis yrði nýting á afgangs-
timbri af höfuðborgarsvæðinu sem
hráefnis til rekstrarins þá fyrst
hagkvæm, þegar flutningsleiðirnar
hafa styst.
Áhugi fyrirtækjanna tveggja
varðar þó ekki einungis ávinning
þeirra í rekstri. Hann á ekki síður
rök sín í því, hversu ófyrirsjáanleg,
jákvæð áhrif jarðgöngin undir Hval-
fjörð mundu hafa á alla atvinnu-
og byggðarþróun norðan Hvalíjarð-
ar og vestur og norður um land.
Með því að færa byggðirnar norðan
Hvalfjarðar og höfuðborgarsvæðið
nær hvor annarri sem nemur 45-60
km eftir því hvaða staði um er
rætt, væru opnaðar alveg nýjar
víddir í því, hver viðskipti og hvaða
atvinnu er unnt að stunda og hvar.
Ársumferð á þessari leið sl. ár var
að meðaltali 1.300 bílar á dag og
ætla má, að nær 20% þess séu stór-
flutningabílar. Lækkaður flutnings-
kostnaður í þessum ferðum er beinn
ávinningur allra sem bera hann nú
og í annan stað kann hann í ýmsum
tilfellum að gera möguleg viðskipti,
sem nú eru of kostnaðarsöm vegna
fjarðlægðar. Aukningu umsvifa og
umferðar, sem af þessu mundi leiða
er enginn vegur að áætla. Byggð-
irnar a.m.k. vestur og norður fyrir
Borgarnes yrðu sjálfkrafa hluti af
atvinnu- og þjónustumarkaði höfuð-
borgarsvæðisins, húsnæðis- og
landverð mundi breytast um leið
og umferð og viðskiptatengsl
mundu aukast. Hin beinu og óbeinu
vaxtar- og spamaðaráhrif þessarar
miklu breytingar í samgöngumálum
svæðisins er enginn vegur að sjá
fyrir.
Þegar forráðamenn fyrirtækj-
anna tveggja skoðuðu í samfellu
þessa mikiu hagsmuni af jarðgang-
nagerð og líkindin til að göngin
yrðu grafin á vegum ríkisins innan
ramma venjulegra ijármögnunar
vegagerðar í landinu, þótti þeim
einsýnt, að aðrar brýnar þarfir
mundu hafa þar forgang um langt
skeið. Raunar teija þeir líklegt að
með þeim aðferðum kæmi ekki að
Hvalfjarðargöngum í forgangsröð
fyrr en talsvert yrði liðið á næstu
öld.
Athugun, sem gerð var ásamt
reyndum verktaka í jarðgangna-
gerð og erlendum ráðgjöfum, gaf
til kynna, að göngin mætti gera og
reka með hóflegum vegtolli af um-
ferð, þannig að ijárfestingin skilaði
sér á tíma, sem telja má hæfilegan
fyrir þessa tegund af mannvirki.
Állmiklar rannsóknir eru þó nauð-
synlegar til að sannreyna þær
vísbendingar.
Rétt er að taka skýrt fram í þessu
sambandi, að hvorki Sementsverk-
smiðja ríkisins né íslenska járn-
blendifélagið hafa minnsta áhuga á
að eiga og reka jarðgöng. Áhuginn
snýst um að fá jarðgöngin gerð sem
fyrst, í hvers höndum sem það ger-
ist.
Forráðamönnum fyrirtækjanna
þótti hins vegar sýnt af þeim tveim-
ur milljónum króna, sem Alþingi
hefur nú í tvö ár veitt til allra undir-
búningsathugana þessarar fram-
kvæmdar, að hennar væri ekki að
vænta í bráð.
Því gerðu fýrirtækin tve sam-
gönguráðherra tilboð með bréfi
dags. 8. febrúar 1989. Tilboðið fól
í sér að fyrirtækin ásamt fyrr-
greindu verktakafyrirtæki mundu
taka á sig kostnað og áhættuna af
því að gera þær undirbúningsrann-
sóknir, sem nauðsynlegar eru til
að ganga úr skugga um hvort jarð-
gangnagerðin er tæknilega mögu-
leg og fjárhagslega fýsileg. Til að
eiga von í að fá umbun fyrir áhættu
sína var tilboðið bundið ýmsum
skilyrðum, sem bundin skyldu í
samningi. Samningsdrög, sem
hugsuð voru sem viðræðugrundvöll-
ur, voru lögð fyrir ráðherra. Er þar
gert ráð fyrir stofnun hlutafélags,
sem fengi einkarétt til byggingar
og rekstrar slíks mannvirkis um
tiltekið árabil og jafnframt að göng-
in yrðu eign ríkisins án endurgjalds
að þeim tíma liðnum. Það er for-
senda þessa tilboðs, að fram-
kvæmdin skerði í engu vegafé til
annarra þarfa.
Samgönguráðherra hefur ekki
tekið afstöðu til þessa tilboðs.
Sementsverksmiðja ríkisins og
íslenska járnblendisfélagið telja
mjög brýnt, að rétt stjórnvöld taki
afstöðu til þess nú þegar, hvort þau
geta fellt sig við þessa aðferð til
að koma þessum mikilvægu sam-
göngubótum í verk og taki þá upp
samninga um málið hið fyrsta.
Sömuleiðis telja fyrirtækin mikils
um vert, að sveitafélög, fyrirtæki,
félagasamtök og allur almenningur,
sem telur þessa gangnagerð sig
varða, láti skoðanir sínar í ljós um
málið, með ályktunum, bréfum,
skeytum eða á annan veg, svo að
fyrirtækin og forystumenn í stjórn-
málum viti, hvort þau hafa almenn-
an stuðning í þessari viðleitni.
Þess skal að lokum getið, að
aðrar hugmyndir um tæknilega
lausn þessa máls en jarðgöng í
gegnum fast berg, hafa verið viðr-
aðar. Einkum er þar rætt um stein-
steypt botngöng, sem gerð yrðu á
fyllingu í botni fjarðarins. Ljóst er,
að næstu skref í undirbúningsrann-
sóknum fælu í sér að kanna, hvort
sú lausn eða brú, gæti verið hag-
kvæmari en venjuleg göng, sem
sprengd væru í föstu bergi.
Forráðamenn fyrirtækjanna
tveggja telja þessa samgöngubót
vera afar mikilsverða fýrir allt Vest-
urland, Vestfirði og Norðurland,
sem og höfuðborgarsvæðið. Þeir
telja þetta hins vegar lykilatriði,
sem gæti ráðið meiru en flest annað
um byggða- og atvinnuþróun í
byggðunum sem næst liggja Hval-
firði að norðan.
Mánudagur Reykjavík—Hvcragcrði, gist á Hótel Ork
Þriðjudagur Hveragerði—Höfn í Hornafirði,
gist á Hótel Höfn
Miðvikudagur Höfn—Egilsstaðir, gist á Hótel Valaskjálf
Fimmtudagur Egilsstaðir—Seyðisfjörður—Húsavík,
gist á Hótel Húsavík
Föstudagur Húsavík—Mývatnssvæðið—Akureyri,
gist á Hótel Norðurland
Laugardagur Akureyri-Dalvík—Óiafsfjörður—blönduós,
gist á Hótel Ðtönduós
Sunnudagur Blönduós—Kjölur—Reykjavík
kr.34.900.
Vero pr. mann í tvíbýli
Innifaliö: Allur akstur, gisting meó morgunveröi og
leiðsögn. Aukalega er hægt að fá hálft fæði.
Börn innan 15 ára fá 50% afslátt í herbergi með foreld
rum og með eigin svefnpoka.
EYJAFJALLAFERÐ
- ÆVINTYRALEG DAGSFERÐ A
HESTUM YFIR FIMMVÖRÐUHÁLS
Farið upp með fossum Skógar, yfir Fimmvörðuháls og göngu-
ferð niður í Þórsmörk. Þetta er einhver stórkostlegasta dagleið
á Islandi.
Brottför frá Skógum: Alla föstudaga, laugardaga og sunnudaga
íjúlíogágúst.
Verð pr. mann kr. 6.900,-
(maki greiðirikr. 6.200.-
Börn yngri en 14 ára greióakr. 3.400,-
- Stmar
31 ■‘624040
og 624214
Eftir þriggja ára hlé eru
hinar frábæru álklæðningar
frá Korrugai nú aftur
fáanlegar.
Sparaðu viðhald
notaðu ál.
Mcga hf. Hafnarhúsinu Tryggvagötu 17
Pósthólf 1026, 121 Rcykjavík ~
____________Sími 622434____________
Telex 3071 zimscn is
—