Morgunblaðið - 17.06.1989, Blaðsíða 50
fclk í
fréttum
------------ ^
Monroe deyr
IS reska leikkonan Kay Kent, sem hafði lifibrauð sitt af
því að líkjaeftir Marilyn Monroe, bandarísku leikkonunni
oggoðsögninni sem lést með dul.arfullum hætti árið 1962,
fannst látin á heimili sínu í Chatham á Englandi fyrir
skömmu. í námunda við líkið var vodka-flaska sem drukkið
hafði verið úr til hálfs og pillur á víð og dreif. Þótti dauðdag-
inn minna á endalok konunnar sem var fyrirmynd Kay Kent
í lifanda lífi.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1989
Ragnheiður Mósesdóttir og Már Jónsson.
Morgunblaðið/Sverrir
SOGUFELAG
Sagnfræði gerð
aðgengilegri
Þriðji árgangur tímaritsins Ný
saga er kominn út. Ritstjórar
blaðsins eru Már Jónsson og
Ragnheiður Mósesdóttir. Þegar
þau voru spurð um tilgang og til-
komu ritstins sagði Ragnheiður:
„Það er ekki hægt að rekja
sögu tímaritsins án þess að minn-
ast á Sagnir, rit sagnfræðinema
við háskólann. Þeir, sem standa
að Nýrri sögu, hafa flestir stundað
nám í sagnfræði við háskólann
og hafa kynnst Sögnum, sem er
tilraun sagnfræðinema til að gera
sagnfræði aðgengilegri en áður
tíðkaðist. I Nýrri sögu er að
nokkru leyti byggt á þeirri
reynslu."
Már bætir við að Ný saga sé
þó alls ekki eins og Sagnir, heldur
sé stefnt að þvi ritið verði eins
konar millistig milli Sagna og
Sögu, sem eirinig er gefið út af
Sögufélaginu. í Nýrri sögu eru
fræðilegar greinar eins og í Sögu
en þær eru styttri og lögð er
áhersla á að skreyta efnið með
myndum, sem margar eru fágæt-
ar.
í greinum þessa heftis er
spannað efni allt frá miðöldum til
vorra daga. Guðmund J. Guð-
mundsson fjallar um barneignir
klerka og frillulíf þeirra á miðöld-
um. Már Jónsson ritar um barns-
feðranir og eiðatökur. Hann lýsir
þróun sem varð í þeim málum
allt frá siðaskiptum og fram á 18.
öld þegar ekki var lengur gengið
hart fram í því að konur upplýstu
um faðemi bama sinna. Matthew
James Driscoll skrifar grein sem
einnig snertir skírlífi. Hann lýsir
því hvemig sögunni af „skikkju
skírlífsins" sem fyrst var franskt
söguljóð en breyttist síðan í norr-
æna riddarasögu, var loks snúið
í rímur á Islandi á 15. öld. Guð-
mundur Hálfdánarson ritar grein
um frelsishugmyndir íslenskra
bænda á 19.öld og telur ósannað
að erlendar fijálshyggjuhug-
myndir hafí haft þar nokkur áhrif.
Loks er grein eftir Halldór Bjama-
son um stríðsgróðann í Reykjavík
og hvaða áhrif hann hafði á at-
vinnulíf í höfuðborginni.
Mor^unblaðið/Bjöm Blöndal
Stúlkurnar í sveit Útvegsmiðstöðvarinnar í Keflavík ásamt formanni sínum, Þorsteini Arnasyni, en sveit-
in hefur sigrað í róðrakeppni kvenna á sjómannadaginn 7 ár í röð.