Morgunblaðið - 20.06.1989, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1989
25
Litlir feetur í oflitlum skóm
eftirKolbein Gíslason
ogHermann Ritter
Að jafnaði gengur annað hvert
barn í of litlum skóm. Þetta er niður-
staða rannsókna á vexti bamsfóta
og notkun skóbúnaðar sem heilbrigð-
isyfirvöld í Vestur-Þýskalandi gerðu
í samráði við þarlenda skóbúnaðar-
sérfræðinga.
Niðurstöður þessara rannsókna
vom nýverið birtar opinberlega.
Kannaðir vom fætur og skór um 270
þúsund vesturþýskra barna og sýndu
mælingar að um 125 þúsund þeirra,
eða rúmlega 46%, gengu í of litlum
skóm. Um 11% barnanna notuðu skó
sem vom meira en einu til tveimur
númerum of litlir en við sams konar
könnun sem gerð var fyrir um réttu
ári síðan töldust þau vera um 18%.
Þá reyndust um 25 þúsund börn
nota of stóra skó, sem var nálægt
því að vera 10% tilfella. Börn sem
töldust nota skó af hæfilegri stærð
vom um 119 þúsund, eða rúmlega
44%.
Þetta er sjöunda sinn á jafn mörg-
um ámm sem gerð er könnun á skó-
búnaði barna og fóthirðu í Vestur-
Þýskalandi. Með athugunum þessum
er reynt að öðlast nokkra hugmynd
um vöxt fótanna og skónotkun. Þó
alkunna sé að fætur barna vaxi mjög
ört og að lögun þeirra breytist, þá
benda niðurstöður þýsku rannsókn-
anna til þess að stór hluti foreldra
láti sig næsta litlu varða skóbúnað
barna sinna og gæti þess ekki að
endurnýja hann með hliðsjón af vexti
og þroska bamanna.
Þessar niðurstöður hljóta að telj-
ast nokkuð sláandi. í það minnsta
vekja þær spurningar um það hvem-
ig þessum málum er háttað hér á
landi. Því miður hafa ekki verið fram-
kvæmdar hliðstæðar rannsóknir hér
á landi. Niðurstöður þýsku rannsókn-
anna benda hins vegar ótvírætt til
þess að full ástæða er til þess að
kanna skóbúnað ungra bama á öm
vaxtarskeiði.
„Þótt það sé sennilega
fæstum tamt að tengja skó-
búnað almennu heilsufari
þá er staðreyndin samt sú
að heilbrigði fótanna er að
verulegu leyti undir skó-
tauinu komið.“
Þótt íslendingar teljist á meðal
rikustu þjóða heims og útgjöld þeirra
til einkaneyslu með því mesta sem
gerist þá virðist oft á tíðum gæta
nokkurs hirðuleysis meðal almenn-
ings þegar skóbúnaður er annars
vegar. Sá gmnur læðist jafnvel að í
hringiðu markaðssamfélagsins
gleymist það mörgum hver auður er
í góðri heilsu.
Þótt það sé sennilega fæstum tamt
að tengja skóbúnað almennu heilsu-
fari þá er staðreyndin samt sú að
heilbrigði fótanna er að vemlegu
leyti undir skótauinu komið. Þetta
er sérstaklega brýnt að hafa í huga
þegar valdir em skór á unga fætur.
Fyrir þann sem beðið hefur skaða á
fótheilsu sinni kann það að vera
huggun harmi gegn að margt meinið
er viðráðanlegt til a.m.k. nokkurs
bata. Engum þarf þó að dyljast að
betra er heilt en vel gróið.
Það er engan veginn hægt með
réttu að heimfæra niðurstöður rann-
sóknanna í Þýskalandi upp á Islend-
inga. Það er hins vegar jafn fráleitt
að gefa sér það að óreyndu að engra
útbóta sé hér þörf og að við getum
aðeins vel við unað. Hvað Islendinga
varðar þá undirstrika rannsóknir í
Þýskalandi fyrst og fremst þörfina á
að heilbrigðisyfirvöld í landinu fylgist
grannt með fótheilsu fólks, ekki síst
ungra barna og standi jafnframt fyr-
ir almennri fræðslu um þessa hluti.
í þessu efni er ábyrgðina ekki aðeins
að finna hjá einstaklingunum.
Höfundar eru bæklunarskósmiðir.
KETTLER
Ný sending af hinum glæsilegu
v-þýsku garðhúsgögnum komin.
GElSiBE
VESTURGÖTU 1. SÍMI 11350
GISELUk 8SLAND
SUMARHUS ER EKKI BARA
FJARLÆGUR DRAUMUR
- ÞAÐ SANNA OKKAR VERÐ
OG GREIÐSLUKJÖR
Sjón er sögu ríkarim
MBWBT■. Éfl— ll'll ' ' ' l'll lillHfWll BI I-“—S
0
i -’Hi
.
Ur eldhúsi
/ ! • 2-4 manna herbergí
Hjónaherbergi
M \IIIII
SÝNING
rfAl
SYNINGÍPI
‘
.
í dag og næstu daga í
Trönuhrauni 8 Hafnarfirði
Okkur hjá TRANSIT hf. er sönn
ánægja að tilkynna yður að á
30 ára afmæli fyrirtækis okkar
bjóðum við til sölu mjög traust,
hlý og vönduð (heilsárs)
sumarhús, sem vió
erum afskaplega
stoltir af.
lRANSÍTl
Frábært hugvit svo og alúð hefur einkennt
alla hönnun og smíði á þessum húsum.
Húsin eru mjög hlý vegna góðrar einangr-
unar m.a. er 6 tommu einangrun í gólfi
og lofti. Tvöfalt verksmiðjugler er í gluggun-
um. Allir viðir húsanna eru sérstaklega
traustir, svo sem gólfbitar (7,5 cm x 20
cm), þaksperrur og aðrir burðarbitar.
TRANSIT hf. býður nú glæsilegt sumarhús
af GISELLA ÍSLAND gerð, sem er 48 fm
að flatarmáli auk 22 fm svefnlofts eða alls
70 fm innanhúss.
Auk þess er yfirbyggð verönd 35 fm. Sam-
tals eru því 105 fm undir þaki.
Við hönnun húsanna hefur hver þumlungur
verið skoðaður gaumgæfilega af fagmönn-
um og vegna hagstæðra viðskiptasamninga
okkar getum við haldið öllum kostnaði í
algjöru lágmarki.
Verð á GISELLA ÍSLAND sumarhúsi óupp-
settu er frá kr. 1.250.000,-
Við munum á næstu dögum bjóða nokkur
hús af GISELLA ÍSLAND gerð á einstöku
kynningarverði, sem er aðeins frá kr.
1.110.000,-. Greiðslukjör eru frábær og
við erum mjög sveigjanlegir í samningum.
DÆMI:
1) Við samning greiðist 15% af verði.
2) Við afhendingu greiðist 40% af verði.
3) Eftirstöðvar greiðast síðan á t.d. 2 árum.
Ef þér viljið kynnast GISELLA ÍSLAND sum-
arhúsinu nánar, þá verið velkomin ÍTRÖNU-
HRAUN 8, HAFNARFIRÐI, skoðið sýninga-
1 húsið og fáið nánari upplýsingar.
ATH. Þeir sem þegar hafa látið skrá
sig í sumar, staðfesti pöntun sem
fyrst vegna mikillar eftirspurnar.
TRONUHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI, SIMI 652501